Morgunblaðið - 27.10.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978
25
félk í
fréttum
+ HJARTAKNÚSARI. -
Þetta er einn af hjarta-
knúsurunum frá Holly-
wood. — Hann er hér á
íþróttavelli, í Los Angeles,
kominn til að vera við-
staddur leik tveggja kylfu-
knattleiksliða, The Dodg-
ers og New York Yankees.
— Og hjartaknúsarinn er
Gary Grant.
+ EINS og dýr. — Þessi mynd er tekin í réttarsal í Mflanó 4 Ítalíu
fyrir nokkru. Tveir foringjar úr Rauðu herdeildinni voru leiddir
fyrir réttinn í járnbúri. Til frekara öryggis eru þeir handjárnaðir
og keðja við járnin fest við gólfrimlana. Til hægri í búrinu er
Renato Curcio, stofnandi þessa blóðidrifna hermdarverkaflokks. —
Til vinstri (fyrir aftan lögregluþjóninn) er Fabrizio Pelle, annar
foringi í herdeildinni. Meðan á réttarhöldunum stóð las Renato upp
yfirlýsingu frá herdeildarmönnum þess efnis, að herdeildin neitaði
að viðurkenna dómstólinn eða rétt yfirvalda til að sakíella þá.
+ NJÓSNARAR. - Þessir
menn hér að ofan eru
Sovétdiplómatarnir tveir,
sem fyrir skömmu voru
sekir fundnir um það að
hafa stundað njósnir um
varnarmál Bandaríkj-
anna. Báðir voru starfs-
menn í sendinefnd Sovét-
manna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Sá ti vinstri
heitir Valdik A. Enger og
hinn Rudolf Chernyayev.
í málinu voru leidd fram
yfir 20 vitni og meðal
þeirra gagnnjósnari einn.
Safn segulbanda var og
lagt fram sem sönnunar-
gögn og ljósmyndir af
njósnurunum að störfum.
+ SKRIFAR bók. — Þessi unga
stúlka heitir Judith Chavez. A
þessari mynd er hún á blaða-
mannafundi í New York og
sagði þar frá þvi að hún væri að
skrifa bók og var forleggjari
hennar með á fundinum. Judith
þessi var í mjög nánum tengsl-
um við sovézkan diplómat,
Arkady Shevchenko, sem var
mjög háttsettur í sendinefnd
Sovétríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Hann sneri baki við
heimalandi sínu í aprílmánuði
síðastl. Sagði Judith blaða-
mönnum að hún myndi segja
frá þeirra tilstandi öllu og sýna
fram á að 35.000—40.000 dollar-
ar sem diplómatinn rússneski
hafi gefið henni, hafi verið
peningar frá CIA, leyniþjónust-
unni bandarísku. Þessum full-
yrðingum hefur sjálfur Carter
forseti mótmælt.
Opið til kl. 7
í kvöld og til hádegis á morgun.
HERJRADE ILD
AUSTURSTRÆTI 14
BAÐMOTTUSETT
ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT
GEísiPf
cJMatar-
ogkafftstell
ímíkluúrvali
i
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SIMINN ER:
22480