Morgunblaðið - 16.11.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978
15
Teng og Fukuda í Tokyo.
lengi keppt að því að fá fjárhagslega
og tæknilega aðstoð Japana til að
nýta náttúruauðlindir sínar í
Síberíu. En Japönum hefur fundizt
of mikil áhætta fylgja slíkum
fjárfestingum og þeir hafa heldur
ekki viljað auka þá ógn, sem þeir
telja að þeim stafi frá Rússum.
Rússar hafa sjálfir stuðlað að því
að afstaða Japana til þeirra hefur
harðnað: með nærveru sovézka
flotans á Kyrrahafi, harðrar afstöðu
í fiskveiðiviðræðum og með því að
neita að taka til athugunar kröfu
Japana um að þeim verði skilað
fjórum eyjum, sem Rússar hertóku í
lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Rússar hafa boðið Japönum vináttu-
og samstarfssamning, en Japanir
hafa hafnað honum. Síðan Teng kom
í heimsókn hafa Japanir gefið í skyn
að þeir vilji bæta sambúðina við
Rússa, en þeir eru greinilega
óhræddir við þá.
Valdahlutföllin við Kyrrahaf hafa
breytzt. Ástandið í Kóreu er mesta
ógnunin við jafnvægið í þessum
heimshluta. Kínverjar eru aðal-
bandamenn Norður-Kóreu og Japan-
ir eiga mikil viðskipti við Suður-Kór-
eu. Kínverjar vilja koma í veg fyrir
að Norður-Kóreumenn dragist inn á
áhrifasvæði Rússa, en reyna að
stuðla að viðræðum Norður- og
Suður-Kóreu og Japanir hafa látið í
ljós áhuga á því að draga úr
spennunni á skaganum. Teng sagðist
ekki trúaður á styrjaldarátök á
skaganum í fyrirsjáanlegri framtíð
og Kínverjar og Japanir gætu
hugsanlega tryggt það í sameiningu,
hvað sem Rússar gera.
Ágreiningsmál
I heimsókn sinni viðurkenndi Teng
opinskátt að Kínverjar og Japanir
greindi á um Kóreu og Sean-
kaku-eyjar, en notaði óspart tæki-
færi með lítt fullbúnum árásum til
að benda á þá hættu, sem báðum
þjóðunum stafaði frá Rússum. Takeo
Fukeda, forsætisráðherra Japans,
tók fram að þótt Japanir vildu
hjálpa Kínverjum í tækni og efna-
hagsmálum vildu þeir ekki hjálpa
þeim að breyta kínverska hernum í
nútímahorf. Teng dró úr ugg ýmissa
Japana um að Kínverjar mundu
beita sér fyrir hernaðarsamstarfi
þegar hann sagði að Kínverjar vildu
þakka Japönum fyrir hverja þá
samvinnu, sem þeir gætu látið í té.
Teng ítrekaði stuðning Kínverja
við afstöðu Norður-Kóreumanna,
meðal annars þá kröfu þeirra að
bandarískt herlið verði flutt frá
Suður-Kóreu, en hann lagði megin-
áherzlu á nauðsyn þess að Kóreu-
menn gerðu sjálfir út um deilumál
sín. Fukuda gat vel tekið undir slíkar
óskir, þótt hann styðji aðstoð
Bandaríkjanna við Suður-Kóreu.
Þótt Teng fengi ákvæðið með
fordæmingunni um yfirdrottnun inn
í samninginn með öðrum orðum
sovézka útþenslustefnu varð hann að
fallast á kröfu Fukuda um annað
ákvæði þess efnis, að samningnum
væri ekki beint gegn nokkru þriðja
ríki. Þess vegna voru Sovétríkin ekki
nefnd með nafni. En Teng talaði sí
og æ um þá hættu sem heimsfriðn-
um stafaði af yfirdrottnunarsinnum
og sagði eitt sinn: „Hættan á
heimsstyrjöld er nærtækur veru-
leiki". En hann gerði þetta á þann
hátt, að Japanir ókyrrðust ekki, og
sýndi í þessu sem öðru, að hann er
ágætur diplómat. Heimsóknin vakti
geysimikla athygli og var- mikill
sigur fyrir Teng.
Þyngdar-
punkturinn
Að dómi japansks dálkahöfundar,
Jiro Tokoyama, er framtíð allrar
Asíu og Kyrrahafssvæðisins bjartari
eftir gerð vináttusamningsins. Hann
telur, að samningurinn muni stuðla
að því að gæða efnahagslíf þessa
heims mikla auknum þrótti, ásamt
lækkuðum flugfargjöldum yfir
Kyrrahaf, auknum fjarskiptum um
gervihnetti og öðrum þáttum.
Tokoyama segir, áð Henry Kiss-
inger, fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hafi lýst þeirri
skoðun í samtali við sig í sumar, að
hann sæi merki þess, að „kjarni
lífsþróttarins í heiminum" væri að
færast frá Atlantshafi til Kyrrahafs.
„Eg er alveg sammála," segir
Tokoyama. „Samningurinn er enn
ein vísbendingin um að þessi heims-
hluti er í þann veginn að stíga fram í
dagsljósið."
Fyrrir börnin
í Vörumarkaðinum
Þroskaleikföng og önn-
ur sterk leikföng.
Leikkrókur fyrir börnin j
meöan pabbi og
mamma versla.
Vorumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A
Fatnaöur í glæsilegu úrvali.
Skór og vaöstígvél.
Húsgögn í barnaherbergi.
Piaymobil leikföng.
Dúkkur margar geröir,
gullfallegar.