Morgunblaðið - 16.11.1978, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978
33
um um breytingar á samningsrétti
opinberra starfsmanna gegn því
að fallið verði frá þeirri áfanga-
hækkun, sem núverandi
samningar gera ráð fyrir. Þrátt
fyrir nefndarskipun hefur ekki
enn þá heyrst, að samkomulag sé í
vændum í máli þessu eða hvort
slíkt samkomulag muni ekki leiða
til annars konar útgjalda hjá
ríkissjóði
I fjórða lagi hafa framlög úr
ríkíssjóði til Byggðasjóðs samkv.
lögum þar um verið hækkuð um
1.2 milljarða kr. Byggðasjóði er
ætlað með lántöku að tryggja sér
það ráðstöfunarfé sem lögin gera
ráð fyrir að sé varið til hans úr
ríkissjóði. Með þessum talnaleik er
á pappírnum verið að lækka
útgjöld ríkissjóðs og ná þannig
hagstæðari útkomu á fjárlögun-
ík vinnubrögð eru gersamlega
út í hött. Miklu karlmannlegra
hefði verið fyrir fjármálaráðherr-
ann að leggja til breytingu á
lögunum um Byggðasjóð og láta
það vera háð fjárlögum hverju
sinni, hvert framlag ríkissjóðs
væri.
I fimmta lagi er vantalinn í
útgjaldalið 1 milljarður kr., sem
fjármálaráðherra hefur gert ráð
fyrir, að fjárveitinganefnd muni
ráðstafa. Er þetta atriði eitt
ljósasta dæmið um þann talnaleik,
sem notaður er varðandi fjöl-
marga þætti frv.
Þegar tekið hefur verið tillit til
allra þessara atriða sem að
framan greinir hækka útgjaldalið-
ir frv. um a.m.k. 12.2 milljarða kr.,
þannig að áætlaður rekstraraf-
gangur verður ekki 8.2 milljarðar
heldur rekstrarhalli, sem nemur
um 4 milljörðum kr., og greiðsluaf-
gangur, sem sýndur er 4 milljarð-
ar, verður greiðsluhalli, sem nem-
ur 8 milljörðum kr. Þá eru ótalin
loforðaútgjöld, sem eintakir
stjórnarflokkar virðast ganga með
upp á vasann, sem nemur milljörð-
um sbr. yfirlýsingu þingmanna
Alþýðubandalagsins.
Að öðru leyti en að framan
greinir eru launagreiðslur frv.
samkv. þeim samningum, sem í
gildi eru. Gert er ráð fyrir að
lækka yfirvinnu og álagsgreiðslur
hjá Ríkisspítölunum um 270 millj.
kr. og hjá löggæslunni um 125
millj. kr. Þá er gert ráð fyrir
lækkun launagjalda í grunnskól-
um um 150 millj. kr.
Við fjárlagagerð ársins 1978 var
stofnunum ríkisins gefin fyrir-
mæli um að skipta launaútgjöld-
Jólakort Asgrímssafns á
þessu ári er prentað eftir
olíumálverkinu Hafnarfjörður
um eftir efnisþáttum, til þess að
hægt yrði að skapa aukið eftirlit
með launaútgjöldum ríkissjóðs.
Var stofnunum gert að skila
greinargerð þar að lútandi mánað-
arlega og í maílok þessa árs gerður
samanburður á áætlunum og
útgjöldum. Með þessu fyrirkomu-
lagi sem framhaldi af því út-
gjaldaeftirliti, sem komið var á í
fjármálaráðuneytinu í upphafi árs
1976, skapaðist grundvöllur til
ákvarðanatöku um þær útgjalda-
lækkanir, sem að framan greinir.
Að mínum dómi ber brýna nauð-
syn til að fylgja þessum verklags-
reglum eftir og skapa þar með
aukið aðhald og betri vitneskju um
launaútgjöld ríkisins.
Rekstrargjöldin hækka umfram
almenna verðlagshækkun um 25%
eða 1 milljarð kr. Þetta er eflaust í
anda þeirrar yfirlýsingar eða hitt
þó heldur sem fram kemur í einum
af fyrirvörum, að lögð skuli
sérstök áhersla á stóraukið aðhald
í ríkisbúskapnum, og stefnt að því
að lækka rekstrarkostnað um 1
milljarð kr.
Sú mikla hækkun vaxtakostnað-
ar, sem fram kemur, má m.a. rekja
til vanáætlunar á fjárlögum yfir-
standandi árs, vegna greiðsluhalla
þessa árs, svo og vegna þess að
ríkissjóði tekst ekki að greiða
umsamdar afborganir við Seðla-
bankann skv. fjárlögum 1978.
Hækkun niðurgreiðslna um
164% eða rúma ll milljarða kr.
má að mestu leyti rekja til
efnahagsráðstafana núverandi
ríkisstj. Væri þessi liður rétt
áætlaður eins og bent hefur verið
á, ætti hann hækka a.m.k. um 19
millj. kr., eða um 282% en ekki
164%.
Útflutningsuppbætur hækka um
80% eða 2.4 milljarða kr. og eru
því 300 milljarðar kr. vegna
eftirstöðva verðjöfnunargjalds
bænda, sem ríkisstj. ákvað að
ríkissjóður tæki á sig umfram þá
10% hámarksreglu, sem nú er
lögbundin. Hér er vissulega við
mikið vandamál að glíma og
ýmsar hugmyndir hafa komið
fram um breytingar þar að lút-
andi, sem í senn geti tryggt
jafnvægi milli framleiðslugreina,
grundvallarverð til bænda og verið
hvati til að selja landbúnaðaraf-
urðir til útflutnings, jafnan á
hæstu verði.
Fylgt er þeirri stefnu í fjárlaga-
frv. varðandi opinberar fram-
kvæmdir að til þeirra er ætluð
sama fjárhæð og á yfirstandandi
í skammdegissól. Myndin er
máluð um 1929, og þykir eitt af
öndvegis olíumálverkum
ári að framlögum til vegamála
undanskildum. Með þessu á sér
stað nokkur magnminnkun verk-
legra framkvæmda, en telja verður
eðlilegt að ríkið dragi nokkuð
saman framkvæmdir við núver-
andi aðstæður.
Tekjuhlið frv. her með sér að
mörg veigamikil atriði eru enn
óútkljáð hjá stjórnarflokkunum.
Eitt er þó ljóst, að hlutur beinna
skatta.í tekjuöflun ríkissjóðs er
stóraukinn á næsta ári. Gert er
ráð fyrir, að hlutfallið hækki úr
18.2% í 22—23% og má búast við
að tekjuskattsinnheimtan á næsta
ári geti hækkað um allt að 100%
frá árinu í ár, ef koma á saman
hallalausum fjárlögum. Skattbyrði.
einstaklinga af tekjum greiðsluárs
hækkar um 20—30%. Verður
fylgst sérstaklega með afstöðu
þeirra alþm., sem afnema vilja
beina skatta úr tekjuöflun ríkis-
sjóðs.
Hvaö ætlar ríkis-
stjórnin aö gera
Af því sem hér hefur verið rakið
að framan er naumast ógerlegt að
gera sér fulla grein fyrir hvert
stefnir í fjármálum ríkissjóðs á
næsta ári. Eitt er þó ljóst, að þeim
höfuðmarkmiðum, sem ríkisstj.
hyggst ná fram, þ.e. hallalausum
ríkisbúskap, verður ekki náð með
þessu frv. Umr. um fjárlagafrv. á
þessu stigi eru næsta marklitlar.
Þingmenn hefðu þurft að fá
upplýsingar um efnahagsstefnu
ríkisstj. í heild til þess að þeir geti
tekið afstöðu til afgreiðslu ein-
stakra liða í fjárlögum. Hvað
ætlar ríkisstj. að gera í gengismál-
um? Hefur hún ákveðið að láta
gengið síga áfram? Hvað með
stefnuna varðandi lántökur er-
lendis? I samstarfsyfirlýsingu
ríkisstj. segir, að stefnt skuli að
jöfnuði í viðskiptum við útlönd á
árinu 1979 og dregið úr erlendum
lántökum. Hverju geta menn
treyst í þessu efni, þegar gripið
hefur verið til þess ráðs á síðustu
vikum að heimila sveitarfélögum
að taka erlend lán til að standa
undir rekstrarkostnaði? Hvað um
stefnuna í vaxtamálum? Þing-
menn eins stjórnarflokkanna
flytja frv. til laga, sem stangast á
við sjónarmið hinna tveggja flokk-
anna. Hvenær tekur ríkisstj. af
skarið í þessu efni? Hvaða ráðstaf-
anir á að gera vegna fyrirsjáan-
legra kauphækkana 1. des. n.k.?
Ætlar ríkisstjórn Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks að éta ofan í
Ásgrímssafns, en Ásgrímur
Jónsson málaði töluvert á
þessum slóðum kringum 1930.
sig öll stóryrðin, sem talsmenn
þessara flokka höfðu um efna-
hagsaðgerðir fyrrv. rríkisstj. í
febrúar? Ekki verður annað séð en
helstu talsmenn Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks innan verkalýðs-
hreyfingarinnar séu farnir að búa
sig undir að verja það, sem þeir
kölluðu „kauprán" fyrr á þessu ári
og i kosningabaráttunni. Hvernig
ætlar ríkisstj. að standa að
endurskoðun vísitölunnar? Hver
er stefna hennar í því máli?
Viðhorf sjálfstæðismanna
Eg vil að lokum leyfa mér að
undirstrika viðhorf Sjálfstæðis-
flokksins varðandi þau miklu
vandamál sem nú steðja að.
Sjálfstæðisflokkurinn telur rétt
og nauðsynlegt að skrá gengi
íslensku krónunnar samkv. verð-
gildi hennar í aðalviðskiptalönd-
um okkar.
Sjálfstæðisflokkurinn telur
óhjákvæmilegt að beita ítrasta
aðhaldi um erlendar lántökur sbr.
stefnu fyrrv. ríkisstjórnar í lán-
tökumálum á þessu ári.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
megináherslu á jöfnuð í viðskipt-
um við útlönd.
Það er skoðun Sjálfstfl, að beita
þurfi ströngu aðhaldi í peninga-
málum og ná aftur jöfnuði í
fjármálum ríkisins.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
ríka áherslu á auknar verðtrygg-
ingar í lánamálum svo tryggðir
verði fjármunir sparifjáreigeenda
og minnir á þá einföldu staðreýnd,
að aukinn sparnaður er forsenda
nýrra framkvæmda.
Að lokum vil ég minna á
yfirlýsingu fyrri ríkisstj. um
nauðsyn þess að draga úr víxl-
hækkun kaupgjalds og verðlags og
endurskoðun núgild. vísitölu og
hefur skoðun sjálfstæðismanna í
engu breyst enda þótt flokkurinn
hafi skipt um hlutverk í íslenskum
stjórnmálum.
Ég hef hér áður í ræðu minni
vissulega dregið upp dapurlega
mynd, sem hver maður getur
raunar séð fyrir sér við lestur
þessa fjárlagafrv. Hún er þeim
mun hörmulegri þegar haft er í
huga að þörf er á raunsæi og
hugrekki til að takast á við
vandann. Þess í stað má horfa á
stjórnarflokkana verja tíma sínum
og Alþ. í innbyrðis áflog.
Við verðum að vona lands og
þjóðar vegna, að betur fari en nú
horfir.
Kortið er í sömu stærð og hin
fyrri listaverkakort safnsins,
með íslenzkum, dönskum og
enskum texta á bakhlið, ásamt
Ijósmynd af listamanninum við
vinnu.
Offsetprentsmiðjan Grafik sá
um prentun þessa korts, og er það í
fyrsta sinn sem listaverkakort frá
Asgrímssafni er offsetprentað.
Eiríkur Smith listmálari valdi
myndina til prentunar, en hann
hefur verið ráðunautur Ásgríms-
safns frá fyrstu tíð í sambandi við
val á myndum til kortagerðar.
Eins og undanfarin ár hefst sala
jólakortanna snemma til hægðar-
auka fyrir þá sem langt þurfa að
senda jóla— og nýárskveðju, en
þessar Iitlu eftirprentanir af
verkum Ásgríms Jónssonar má
telja góða landkynningu. Ennþá
eru fáanleg hin ýmsu kort sem
safnið hefur látið prenta undan-
farin ár. Ágóði af kortasölunni er
notaður til viðhalds listaverkum
safnsins.
Listaverkakortin eru aðeins til
sölu í Ásgrímssafni, Bergstaða-
stræti 74 á opnunardögum, og í
verzlun Rammagerðarinnar í
Hafnarstræti 17.
Ásgrímssafn er opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
1.30-4.
Þá skiptum við — Guðmundur
Kr. Sigurðsson við stjórnvöl-
inn.
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Kópavogs
S.l. fimmtudag 9. nóvember
var spiluð 4. umferð í hrað-
sveitakeppni Bridgefélags
Kópavogs.
Besta árangri kvöldsins náðu
þessar sveitir:
stig
Vilhjálmur Vilhjálmss. 643
Friðjón Margeirsson 600
Sigríður Rögnvaldsd. 598
Grímur Thorarensen 589
Fyrir síðustu umferð er röð
efstu sveita:
Ármann 2566
Vilhjálmur 2450
Böðvar 2407
Grímur 2349
Síðasta umferð verður spiluð
fimmtudaginn 16. nóvember kl.
8.00 að Hamraborg 11.
Barðstrend-
ingafélagið
íReykjavík
Urslit í annarri umferð hrað-
sveitakeppninnar, 5 efstu voru
þessir:
Sveit stig
Ragnars Þorsteinss. 1199
Helga Einarss. 1167
Hauks Heiðdals 1112
Gunnlaugs Þorsteinss. 1105
Kristins Oskarss. 1093
Nýtt jólakort frá Ásgrímssafni
Hafnarfjörður í skammdegissól. Olíumynd máluð um 1929.