Morgunblaðið - 03.12.1978, Qupperneq 1
80 SÍÐUR
278. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Anwar Sadat
ekki til Óslóar
Ósló — 2. desember — Reuter
SADAT Egyptalandsforseti hefur ákveðið að f ara ekki til
Óslóar til að veita friðarverðlaunum Nóbels viðtöku hinn
10. þessa mánaðar að því er sendiherra Egypta í Noregi
skýrði frá í dag. Telur forsetinn ekki ástæðu til að sitja
við hlið Begins, forsætisráðherra ísraels, við athöfnina
fyrst friðarsamningarnir eru ekki einu sinni í sjónmáli,
að sögn sendiherrans. Sadat hafnar þó ekki verðlaunun-
um, en sendir fulltrúa sinn til að veita þeim viðtöku.
Ljóst er að mál þetta veldur
Norðmönnum hinum mestu vand-
ræðum, ekki sízt vegna þess að
verðlaunaveitingin hefur verið
mjög umdeild og var af mörgum
talin ótímabær. Reiulf Steen,
formaður Verkamannaflokksins,
segir að hátíðarathöfnin, sem að
þessu sinni er ráðgerð í Akers-
EBE-deila
sctur svip á
gjaldeyris-
stefnuna
Ósló, 2. des.
Frá fréttaritara Mbl.,
Jan-Erik Lauré
HARÐAR deilur hafa spunnizt
um það meðal stjórnmálamanna í
Noregi hvort Norðmenn eigi að
taka þátt í samstarfi Evrópuríkja
um nýjan gjaldmiðil, eða EMS,
eins og samstarf þetta er nefnt í
daglegu tali. Upphaflega var það
ætlun ríkisstjórnarinnar að
falast eftir þátttöku í EMS án
þess að um það yrðu ítarlegar um-
ræður á Stórþinginu eða þing-
flokknum. En vegna ásakana frá
stjórnarandstöðunni hefur
Verkamannaflokkurinn nú skipt
um skoðun, og verður málið tekið
til umræðu á þingi fljótlega.
Fyrst vill stjórnin sjá hvað gerist
á fundi forsætis-og utanríkisráð-
herra ríkja Efnahagsbandalags-
ins á mánudag og þriðjudag, en
þar verður væntanlega tekin
ákvörðun um hvort EMS-sam-
starfinu verður endanlega komið
á.
Noregur er nú aðili að svo-
nefndri „gjaldeyrisslöngu" í
Evrópu. Ef komið verður á
annars konar gjaldeyrissamstarfi
í EMS, sem í Noregi nefnist
„súperslangan", verða Norðmenn
að taka afstöðu varðandi aðild að
því.
Madrid, 2. des. — Reuter.
RÍKISSTJÓRN Spánar hefur
ákveðið að senda sjö herskip til
viðbótar til að vernda spænska
sjómcnn, sem stunda veiðar á
miðunum úti af vesturströnd
Spænsku-Sahara, en þar voru sjö
fiskimenn drepnir fyrr í vikunni,
og cr talið að morðingjarnir hafi
verið skæruliðar úr
Polisario-samtökunum.
hus-kastala en ekki í húsakynnum
Stórþingsins eins og verið hefur,
þjóni engum tilgangi, ef aðeins
Menachem Begin verði viðstaddur,
og muni raunar gefa ranga mynd
af því sem honum, þ.e. Steen, hafi
hingað til skilizt að væri mark-
miðið með þessari verðlaunaveit-
ingu. Fleiri stjórnmálaleiðtogar í
Colombo — 2. desember — AP
SAMKVÆMT ákvörðun loftferðayf-
irvalda á Sri Lanka verða „svörtu
kassarnir“ úr Loftleiðaþotunni,
sem fórst í Colombo, sendir til
Polisario-samtökin berjast fyrir
sjálfstæði Spænsku-Sahara, sem
áður laut Spáni, en sænsk yfirvöld
afhentu Marokkó og Mauritaníu
árið 1976.
Morðin á spænsku sjómönnun-
um eru nú í rannsókn, og segja
yfirvöld að allt verði gert til að
tryggja öryggi sjómanna á þessum
slóðum.
Noregi taka í sama streng, og
segja sumir að athöfn án Sadats
verði mjög óheppilegur atburður.
Víða um lönd hefur sú ákvörðun að
veita Begin friðarverðlaun Nóbels
verið gagnrýnd ekki sízt í Noregi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
norska friðarverðlaunanefndin
kemst í óþægilega aðstöðu vegna
hátíðarathafnar, og er þess
skemmst að minnast að Henry
Kissinger sendi fulltrúa sinn til
Óslóar til að taka við verðlaunun-
um árið 1975, en við sama tækifæri
var hinn verðlaunahafinn, Le Duc
Tho, líka fjarstaddur og sendi
engan fulltrúa.
Enn hefur ekkert heyrzt um
viðbrögð Begins vegna þessa máls.
rannsóknar í Ástralíu, en ekki til
Bandaríkjanna. Að sögn Sigurðar
Helgasonar, forstjóra Fiugleiða,
breytir þessi ráðstöfun engu um
rannsókn málsins, enda þótt það
hafi verið ósk Flugleiða að þessi
liður rannsóknarinnar færi fram í
Bandaríkjunum.
Ekki kvaðst Sigurður vita hvað
ylli því að loftferðayfirvöld á Sri
Lanka kysu fremur að kassarnir
væru sendir til Ástralíu en Banda-
ríkjanna, en gat sér til að það þætti
þægilegra viðureignar þar sem um
skemmri vegalengd væri að ræða. í
frétt AP-fréttastofunnar er það haft
eftir forráðamönnum rannsóknar-
innar í Sri Lanka að ákveðið hafi
verið að senda kassana til Ástralíu,
þar sem þotan hafi verið skráð í
Bandarikjunum. Þetta er ekki rétt.
Þotan var skráð á íslandi.
Anwar Sadat
Flóttamenn
farast
Kuala Lumpur, Malasíu, 2. des.
— Reuter.
ÓTTAZT er að rúmlega 100 flótta-
menn frá Vietnam, þeirra á meðal
fjöldi barna, hafi farizt í stórsjó við
strendur Malasíu eftir að þarlend
yfirvöld neituðu að heimila bát
þeirra landtöku. Alls voru 290 manns
á bátnum, og hefur aðeins 148 þeirra
verið bjargað.
Leifur Magnússon, formaður
nefndar þeirrar hjá Flugleiðum, sem
starfar að rannsókn málsins, sagði í
viðtati við Morgunblaðið í gær, að
mjög erfitt hefði reynzt að fá
yfirvöld á Sri Lanka til að hraða
rannsókn málsins, og það hefði ekki
verið fyrr en eftir að áskorun var
send flugmálastjórn landsins með
afriti til Jayawardene forseta, að
ákvörðun hefði verið tekin um að
senda kassana til rannsóknar. Færu
þeir til Ástralíu á þriðjudaginn, en
að svo komnu máli væri ógjörningur
að spá um hvenær rannsókn lyki, en
fremur maptti gera ráð fyrir því að
mánuðir en vikur liðu áður en
niðurstaða fengist. Af hálfu Islands
yrðu tveir menn við rannsóknina í
Ástralíu, þeir Skúli Jón Sigurðsson
frá Flugmálastjórn og Guðlaugur
Helgason frá Flugleiðum.
Fjörutíu
milljarðar
til útgerðar
Ósló, 2. des. — Reuter.
NORSKA ríkisstjórnin birti á
föstudag nýjar tillögur sínar um
aukinn fjárhagsstuðning og lán-
veitingar til fiskiðnaðar lands-
ins, sem hefur átt við mikla
erfiðleika að stríða vegna
minnkandi afla.
í tillögum ríkisstjórnarinnar er.
gert ráð fyrir að uppbætur og lán
nemi 640 milljónum norskra
króna (tæpum 40 milljörðum ísl.
kr.) en á síðustu árum hefur þessi
upphæð numið 500 milljónum n.
kr.
Sjómannasambandið í Noregi
hefur harðlega gagnrýnt þessar
tillögur ríkisstjórnarinnar. Segir
formaður sambandsins, að fisk-
iðnaðurinn hefði þurft að
minnsta kosti einn milljarð
norskra króna (um 62 milljarða
ísl. króna) til að tryggja áfram-
haldandi kaupmátt launa sjó-
manna.
Óttast
stórátök
w
í Iran
Teheran, íran, 2. des. — AP.
TIL ÁTAKA kom í Teheran, höfuð-
borg írans, í morgun við upphaf
Moharram-hátíðar Shiite-trú-
flokksins, sem stendur í 29 daga.
Beittu hermenn stjórnarinnar skot-
vopnum gegn mannfjölda, sem
brotið hafði útgöngubann þar í
borg, og að sögn stjórnvalda féllu
sjö og 26 særðust, en aðrar heimild-
ir herma að allt að 70 manns hafi
látizt.
Rafmagnslaust var víða í borginni
og óeirðir í mörgum hverfum. Mest
urðu átökin við markaðstorgið þar
sem mannfjöldi safnaðist saman
undir svörtum fánum múhameðstrú-
armanna og hrópaði „morðingjar
morðingjar" að hermönnum stjórn-
arinnar.
Herinn sendi skriðdreka og bryn-
varðar bifreiðar á vettvang, og yfir
þeim sveimuðu þyrlur, sem beitt var
til að leiðbeina vígvélunum á jörðu
niðri.
Mikill trúarandi ríkir meðal
múhameðstrúarmanna á Moharr-
am-mánuðinum, en þá minnast þeir
pyntingardauða Hosseins sonarson-
ar Múhameðs árið 641 e. Kr., sem var
stofnandi Shiite-trúarflokksins.
Mikill meirihluti þjóðarinnar fylgir
Shiite-trúnni, þeirra á meðal sjálfur
keisarinn.
Helzti andstæðingur keisarans er
Ayatullah Khomani, 78 ára gamall
leiðtogi Shiite, sem er í útlegð í
París. Hefur hann skorað á fylgis-
menn sína að berjast gegn tilraunum
keisarans til að koma á vestrænum
siðum í íran. Nýtur Khomani þar
einnig stuðnings pólitískra andstæð-
inga keisarans, sem aðallega eru úr
röðum vinstrisinna og berjast gegn
alræðisvöldum keisarans.
Óttazt er að til enn alvarlegri
átaka komi í þessum nýbyrjaða
hátíðarmánuði Shiite, og haft er
eftir áreiðanlegum heimildum að
nýlega hafi hermenn stjórnarinnar
fundið mikið vopnabúr í borginni
Tabriz í Norðvestur-íran, og voru
vopnin þar frá Sovétríkjunum.
Einnig hafa vopnabirgðir verið
gerðar upptækar í Teheran og
Nashhad.
Herskipavemd
„Svartir kassar“ til
Astralíu á þriðjudag