Morgunblaðið - 03.12.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
Varðarfundur á mánudagskvöldi
Aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar og launamálin
Landsmálafélaííið Vörður mun
halda fund urti aðgerðir rikis-
stjórnarinnar ok launamálin
mánudaginn 4. des. n.k. í Valhöll.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Frummælendur verða: Geir
Hallgrímsson, er ræðir aðgerðirn-
ar og hvernig að þeim var staðið,
Guðmundur H. Garðarsson er
ræðir þann þátt er snýr að
launþegasamtökunum og Þráinn
Eggertsson hagfræðingur er ræðir
almenn áhrif aðgerðanna.
Fundarstjóri verður Pétur
Sigurðsson.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til að
fjölmenna á fundinn.
Ríkisstjórnin hef-
ur samþykkt nær
4% gengissig
ALLT FRÁ því er Seðlabanki
Isiand.s hóf á ný að skrá gengi
íslenzkrar krónu hinn 6. septem-
ber síðastliðinn, er ákveðin hafði
verið í samráði við ríkisstjórnina
15% gengisfelling, sem hækkaði
erlendan gjaideyri um 17,3%
hefur erlendur gjaldeyrir enn
hækkað í verði að meðaltali um
3,9% vegna gengissigs. Samtals
hefur því erlendur gjaideyrir
hækkað í verði um tæplega 22%
frá því er núverandi ríkisstjórn
var mynduð. Ferðamannagjaid-
eyrir hefur hins vegar hækkað
um 34%.
„Það er rétt að Seðlabankinn
þarf að fá samþykki ríkisstjórnar-
innar hverju sinni fyrir auknu
svigrúmi, en hann hefur hverju
sinni svokallað 2% reikningslegt
svigrúm," sagði Svavar Gestsson
viðskiptaráðherra er Mbl. spurði
hann í gær, hvort 4% gengissig
þýddi það að hann hefði sem
viðskiptaráðherra tvisvar sinnum
samþykkt gengissig. „Þetta geng-
issig stafar að nær öllu leyti af því
að það hafa verið geysilegar
sveiflur á erlendum gjaldeyris-
mörkuðum. Dollarinn hrundi nið-
ur í október, en hækkaði aftur í
nóvember. Og meðah hann lækk-
aði í október hækkuðu og styrktust
06 SVO VAR VA9
wkfNv/fRt/Nú SEM
W %iA0/0 S/rtVlEO tlMtír-
Bergiðjan er mjög illa farin eftir eldinn í fyrrinótt.
Ljósm. Mbl. Kristján.
gjaldmiðlar þeirra landa, sem við
flytjum inn vörur frá. Tveir þriðju
okkar útflutnings eru í dollurum
og tveir þriðju innflutningsins í
Vestur-Evrópumyntun. Þegar slíkt
misgengi verður milli dollarans og
Vestur-Evrópumynta verður að
leiðrétta það. Útreikningar á
meðalgengi innflutnings og út-
flutnings eru framkvæmdir dag-
lega og reikningslegar leiðrétting-
ar síðan framkvæmdar í samræmi
við niðurstöður þessara útreikn-
inga. Vegna þessa hefur orðið
nokkur hreyfing á krónunni síðan
gengið var fellt og sú hreyfing
hefur verið öll niður á við.“
Mest hafa gyllini hækkað í verði
eða um 7,3% frá því er gengis-
skráning hófst með skráningu nr.
159. Danskar krónur hafa hækkað
um 6,7%, norskar um 6,4%,
sænskar um 4,0% og finnsk mörk
hafa hækkað um 4,7%. Dollar og
sterlingspund hafa hækkað jafn
mikið eða um 3,0%, vestur-þýzk
mörk um 7,1% og pesetar um
7,0%. Gjaldeyrir tveggja þjóða
hefur staðið sig verr en íslenzka
krónan á þessu tímabili. Eru það
svissneskir- frankar, sem lækkað
hafa um 3,5%, og yen, sem lækkað
hafa um 1,9%.
A annað
hundrað
DÚsund
ír.stolið
ÁFRAM er haldið rannsókn á
innbrotinu í heilsugæzlustöðina í
Bolungarvík, en þaðan var stolið á
annað hundrað þúsund krónum í
peningum. Tveir menn frá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins fóru vestur
til þess að rannsaka málið, en
óvenju mikið hefur verið um
innbrot í Bolungarvík á þessu ári.
Eldur í bergiðju Kleppsspftala<
Reynt að koma upp vinnu-
aðstöðu á ný hið fyrsta
REYNT verður hið íyrsta að varð ilia úti í eldsvoða í íyrrinótt.
koma upp á ný vinnuaðstöðu Jóhann Sigurðsson, umsjónar-
fyrir vistmenn Kleppsspítala í maður, sagði í samtali við Mbl. að
vestari enda bcrgiðjunnar sem byggingin væri mjögilla farin og
Jöfn sala á svína-
kjöti ogkjúklingum
AUKNAR niðurgreiðslur, sér-
staklega á sauðfjárafurðum,
virðast ekki hafa haft teljandi
áhrif á sölu svínakjöts og ali-
fugla, þeim tveimur kjötvörum
scm engra niðurgreiðslna njóta,
en áður hefur reynslan oít orðið
sú, að ódýrt kindakjöt hefur leitt
til samdráttar f sölu á þessum
kjötvörum.
Þorvaldur Guðmundsson, for-
stjóri Síldar og fisks, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann
gæti ekki merkt að auknar niður-
greiðslur á kindakjöti hefðu haft
nein áhrif á sölu svínakjöts. Hann
sagði, að svínakjötsneyzla væri
orðin tiltölulega stöðug. Fólk
neytti þess fyrst og fremst til
hátíðabrigða, og ekki virtist vera
þar nein breyting á þrátt fyrir að
annað kjöt lækkaði, enda væri
svínakjötið tiltölulega ódýrt og
stöðugt í verði, því að verðið réðist
alveg af framboði og eftirspurn.
Framleiðsla svínakjöts er nokkuð
jöfn frá ári til árs eða í kringum
eitt þúsund lestir, en til saman-
burðar má nefna að kindakjöts-
framleiðslan í ár er áætluð um 15
þúsund lestir.
Jón Guðmundsson alifuglabóndi
á Reykjum, sagði í samtali við
Mbl. að hann vissi ekki til annars
en birgðir af alifuglakjöti væru
með eðlilegum hætti, þannig að
auknar niðurgreiðslur á kindakjöti
hefðu ekki breytt þar neinu um og
valdið sölutregðu. Verð á kjúkling-
um hefur ekki breytzt frá því í jlúí
í sumar en það er nú til athugunar.
Kjúklingaframleiðslan í landinu
er á bilinu 350—400 tonn en með
slátrun eldri fugla, þar sem neysla
á þeim fer vaxandi, má áætla að
framleiðsla á hænsnakjöti sé ná-
lægt 500 tonnum.
miklar skemmdir bæði utan húss
og innan, en hann kvaðst þó
staðráðinn í að koma upp aðstöðu
í þessum vestari enda bergiðjunn-
ar hið fyrsta því að hann hefði
sloppið tiltölulega vel í eldinum.
Eldsins varð vart kl. liðlega 2 í
fyrrinótt, og þegar slökkviliðið
kom á vettvang logaði út um
glugga á norður- og suðurhlið
byggingarinnar og einnig upp úr
þakinu.
Ráðist var á eldinn með
tveimur háþrýstislöngum og bráð-
lega kom í ljós að eldurinn var í
fölsku lofti, svo að rjúfa varð þakið
til að komast að honum. Reyndist
töluverðum vandkvæðum bundið
að ná til eldsins vegna reyks en
slökkvistarfinu var lokið um kl.
3.30.
Góður af li línu-
báta á ísafirði
— Aflinn hefur verið góður
hjá linubátunum hér að undan-
förnu þar til í gær og hjá
togurunum hefur vcrið reytings-
afli, sagði Jón Páll Iialldórsson
framkvstj. Hraðfrystihússins
Norðurtanga á ísafirði í samtali
við Mbl. í gær.
— Línubátarnir fengu í nóvem-
ber milli 110 og 138 tonn og var
aflahæstur Orri með 138 tonn í 22
róðrum. Aflinn í gær var lakari.
Línubátarnir stunda þessar veiðar
fram að þorskveiðibanninu 20.
desember og verður þá hlé hjá
þeim fram yfir áramótin. Togar-
arnir hafa verið með reytingsafla
að undanförnu og rækjuveiðar eru
enn ekki hafnar og verður vart
fyrr enn upp úr áramótum. Vinna
hefur samt verið sæmileg, hér
hefur mikið verið byggt og mikil
vinna kringum það, en þó hafa t.d.
þær konur sem unnið hafa við
rækjuna ekki fengið vinnu hjá
frystihúsunum þar sem ekki hefur
verið svo mikið að gera hjá þeim,
en hér var samt enginn kominn á
atvinnuleysisskrá í gær.
Þeirra
eigin
orð...
„Kaupránslögin verða því aðeins
afnumin aðAlþýðubandalagiðkomi
sterkara út úr kosningunum...“
— sagði Svavar Gestsson, ritstjóri, 21. júní
Svavar Gestsson, þáverandi
ritstjóri Þjóðviljans, sagði í
blaði sínu hinn 8. júní sl.: „Enn
fleiri launamenn þurfa að fylkja
sér til andstöðu við kaupráns-
flokkana 25. júní, annars munu
þeir halda áfram að skerða
kaupið eins og þeir höfðu áður
lýst jí:r. Eina leiðin til þess að
stöðva áform kaupránsflokk-
anna er að fylkja sér um
Alþýðubandalagið, pólitískt ein-
ingarafl íslenzkra launamanna."
Svavar Gestsson í Þjóðviljanum
21. júní: „Kaupránslögin verða
því aðeins afnumin að Alþýðu-
bandalagið komi sterkara út úr
Alþingiskosningunum en
nokkru sinni fyrr.“
Það hefur margoft gerzt,
að fallið hefur verið frá
kauphækkunarkröfum...
— sagði Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra,
27. nóv.
SVAVAR Gestson, viðskiþta-
ráðherra, í ræðu á Alþingi
skömmu áður en hann greiddi
„kaupránslögum" núverandi rík-
isstjórnar atkvæði sitt og sam-
þykkti þar með 8% „kauprán":
„Þegar verkalýðshreyfingin á
íslandi hefur gengið frá kjara-
samningum undanfarna áratugi
hefur það margoft gerzt, að
fallið hefur verið frá kaup-
hækkunarkröfum gegn því, að
tilþtekin félagsleg réttindamál
næðu fram að ganga."