Morgunblaðið - 03.12.1978, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
Magnús Magnússon
Upprisa
alþingismanna
Voru þingmenn meiri skörung-
ar og reisn Alþingis meiri fyrr
en nú? Upprisa alþingismanna
svarar þessu að nokkru, en þar
er að finna mannlýsingar 55
alþingismanna og ráðherra,
eftir háðfuglinn Magnús Storm.
Þessar mannlýsingar hans ein-
kennast af fjörlegum stíl og
fullkomnu valdi á kjarngóðu,
hnökralausu máli og margar
eru þær stórsnjallar, einkum
hvað varðar hið broslega í fari
viðkomandi. Bregður þá fyrir á
stundum dálítið meinlegri
hæðni.
Magnús Stormur bjó Upprisu
alþingismanna undir prentun stuttu fyrir andlát sitt og sjálfur
mun hann hafa talið marga þessara palladóma meðal þess
bezta, sem hann lætur eftir sig á prenti.
0
GROHE
vandaður
JÓLAGLAÐNINGUR
Margir sem þjáðst hafa af gigt, vöðvabólgu og meiðslum margskonar,
hafa náð heilsunni aftur með notkun GROHE vatnsnuddtækisins.
ÓTRÚLEGT EN SATT.
Hægt er að mýkja og herða bununa að vild, nuddtækið gefur 19-24 lítra
með 8.500 slögum á mínútu.
Svo er líka hægt að tengja vatnsnuddtækið við hvaða blöndunartæki
sem er, gömul sem ný, svo nú geta allir notið GROHE vatnsnuddtækisins
TILVALIN HEIMILISJÓLAGJÖF í ÁR -
GJÖF SEM GEFUR VELLÍÐAN
BYGGINGAVORUVERSLUN KOPAVOGS SF. gU ^
SÍMI41000 r\ yO
Xitr
Finnskir listamenn á
þjóðhátíðardegi Finna
Þjóðhátíðardagur Finna er
miðvikudaginn 6. des. n.k.
Af því tilcfni efnir Suomifélag-
ið til hátíðasamkomu í Snorrabæ
(Austurbæjarbíóhúsinu) kl. 20t30.
Formaður félagsins, Barbro
Þórðarson setur samkomuna.
Ávarp flytur Matti Reinilá sendi-
ráðsfulltrúi. Hátíðarræðuna flytur
síðan Jón Haraldsson arkitekt. Þá
syngur finnska þjóðlagasöngkonan
Ragni Malmsten við undirleik
landa síns Teuvo Suojárvi.
Báðir eru listamennirnir gestir
Suomifélagsins og koma hingað í
boði þess í tilefni þjóðhátíðarinn-
ar.
Ragni Malmsten er ein frægasta
og vinsælasta söngkona Finnlands
og hefur hróður hennar víða farið.
Hún fetar í fótspor föður síns,
Teuvo Suojarvi
Georg Malmsten, sem mjög var
ástsæll vegna þjóðlagasöng síns.
Hún syngur á finnsku, sænsku og
ensku. Undirleikarinn Teuvo
Suojárvi er einn besti jasspíanó-
leikari Finna.
Þá les Valdimar Helgason
finnsk kvæði m.a. eftir Runeberg,
Elmer Diktonius og Heino Leino í
þýðingu Þórodds Guðmundssonar
skálds.
Að lokum verður dansað við
undirleik hljómsveitarinnar
Kjarna.
Borin verður fram léttur kvöld-
verður.
Allir eru velkomnir til þessa
fagnaðar.
(Frá Suomi).
Ragi Malmsten
Basar klúbbs
matreiðslu-
meistara
KLUBBUR matreiðslumeistara
efnir í dag, sunnudag, til basars í
húsnæði Þjóna- og veitingaskólans
í Sjómannaskólanum í Reykjavík.
Hefst hann kl. 11 árdegis og verða
þar á boðstólum forréttir og
eftirréttir auk aðalrétta ýmiss
konar og eru réttirnir útbúnir
þannig að auðvelt er að flytja þá,
en hér er um kalda rétti að ræða.
Klúbbur matreiðslumeistara ráð-
gerir að standa fyrir Norðurlanda-
móti matreiðslumeistara í marz á
næsta ári og er þessi basar liður í
fjáröflun fyrir mótið, en á það eru
væntanlegir milli 150 og 200
erlendir gestir.
Aðventukvöld í
Eyrarbakkakirkju
Aðventukvöld verður í Eyrar-
bakkakirkju í kvöld og hefst það
kl'. 21. Oddviti Eyrarbakkahrepps,
Kjartan Guðjónsson, flytur ræðu,
kór Gagnfræðaskólans á Selfossi
syngur aðventulög, sýnd verður
röð skuggamynda um aðventuna,
sem félagar í Æskulýðsfélagi
Eyrarbakkakirkju hafa tekið
saman og flytja og sr. Valgeir
Ástráðsson sóknarprestur lýkur
aðventukvöldinu með hugvekju.
Sýningum á Tobacco
Road að ljúka
LEIKF’ÉLAG Keflavíkur sýnir um
þessar mundir leikritið „Tobacco
Road“ eftir Jack Kirkeland sem
gerði leikritið eftir samnefndri
sögu Erskine Caldwell. Leikritið
hefur fengið mikið lof gagnrýn-
enda og hefur aðsóknin að sögn
forsvarsmanna félagsins verið
mjög góð. Næsta sýning á leik-
ritinu verður í kvöld kl. 21 en þar
sem jólaundirbúningurinn fer að
segja til sín hefur verið ákveðið að
hafa síðustu sýningar á verkinu í
næstu viku.
Leikstjóri „Tobacco Road“ er
Þórir Steingrímsson en leikmynd
er eftir Steinþór Sigurðsson.