Morgunblaðið - 03.12.1978, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
Athugasemdin hef-
ur ekkert lagagildi
Sagði Hjalti Geir Kristjánsson
í niðurlagi athuKascmda við
laKafrumvarp ríkisstjórnarinnar
um ráðstafanir KCKn verðbóljfu
kemur fram að leyfilcKar verð-
hækkanir eftir 1. des, miðist við
4—41/2% hið mesta. Kauphækkan-
ir f. dcs. nema hins vegar 6,12%
og hafði Mbl. samband við Ifjalta
Geir Kristjánsson formann
Verzlunarráðs íslands og
spurðist fyrir um hvort fyrirtæk-
in myndu sjálf hera mismun á
leyfilegri vcrðhækkun og
kauphækkuninni.
Þessi athugasemd frumvarpsins
um verðlagsmál hefur að sjálfsögu
ekkert lagagildi, sagði Hjalti Geir.
„Verðlagsnefnd er áfram bundin
þeirri starfsreglu að „verðlags-
ákvarðanir allar skulu miðaðar við
þörf þeirra fyrirtækja er hafa vel
skipulagðan og hagkvæman
rekstur," eins og segir í 3. grein
laga um verðlagsmál. Eftir þeirri
starfsreglu verður verðlagsnefnd
að fara.
Á grundvelli tveggja laga um
verðstöðvun ber rikisstjórninni
hins vegar að hafna eða sam-
þykkja ákvarðanir verðlagsnefnd-
ar. Ríkisstjórnin hefur þó ekkert
vald til að breyta ákvörðunum
nefndarinnar. Ríkisstjórnum
FRA LOKUM 16
. ALDAR TIL 1»48
'v\
V , V 5-, N
1 151.ANID1VS
1UXTAOIÍÍ.TRAT
..uui'.kahíh »»*;
HUGMYNDUM
(>i
AÐ RÉTTRIYFIRSÝN
UMÍSIAND
SEINNA BINDI KORTASÖGU ÍSLANDS
EFTIR HARALD SIGURÐSSON ER KOMIÐ ÚT
Þetta er gullfalleg og vönduö bók, eitt af afrekum
íslenskrar prentlistar og stórmerkur þáttur
landfræöisögunnar. Seinna bindi hennar, sem nú er
komið út, nær frá lokum 16. aldar til 1848, þegar
Björn Gunnlaugsson lýkur mælingu íslands og kort
hans eru gefin út. Hefur bókin aö,geyma, auk
textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum,
og eru 146 myndanna svart-hvítar en 19 litmyndir.
Er í bókinni rakin af mikilli nákvæmni sr.ga
íslands á kortum frá dögum Guðbrands biskups
Þorlákssonar til miðrar 19. aldar og rækileg grein
gerö fyrir þróun kortagerðar af norðvestanveröri
kringlu heims á því tímabili.
Fyrra bindi Kortasögu íslands kom út 1971 og nær
frá öndverðu til loka 16. aldar.
Rit þetta er stórviðburður í sögu íslenskrar
bókaútgáfu.
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 Sínii 13652
hefur samt tekizt með aðstoð
formanns nefndarinnar að fá
meirihlutasamþykktir í verðlags-
nefnd sem verzlunarráðið telur
brjóta í bága við lögin um
verðlagsmál. Dæmi um það er
ákvörðun um útselda vinnu í júlí
1977, ákvörðun um verzlunar-
álagningu í febrúar ’78 og
ákvörðun um söluverð dagblaða nú
í haust. Þessi mál eru nú fyrir
dómstólum.
Þess eru og dæmi að ríkisstjórn
falli frá fyrri ákvörðunum þegar
þeim er ekki tekið þegjandi. Svo
var þegar rekstur fyrirtækja er
framleiddu smjörlíki og gosdrykki
var stöðvaður nú fyrir skömmu og
séð var fram á að fyrirtækin
kynnu að ákveða sjálf eigið verð og
hefja starfrækslu á ný.
Þessi stutta upptalning ætti að
sýna að við ýmsu má búast í
verðlagsmálum. Landslög segja
okkur of lítið um hvað verður.
Lögleyfð verzlunarálagning er t.d.
nú þannig að halda mætti að
þriðja grein laga um verðlagsmál
væri ekki til. Ég held því að litlu sé
hægt að spá um hvað verður. Menn
verða að sjá hverju fram vindur."
NÝSKIPAÐUR sendiherra Japans, hr. Masahisa Takigawa,
afhenti í dag forseta íslands trúnaðarbréf sitt að
viðstöddum Bcnedikt Gröndal utanríkisráðherra.
Síðdegis þá sendiherrann boð forsetahjónanna að
Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gesta.
Bók um Jón á Akri
Skrifuð af vinum hans
HINN 28. nóvember síðast liðinn
kom út hjá Skuggsjá Bókin um
Jón á Akri, skrifuð af vinum
hans, en þennan dag hefði Jón
Pálmason, fyrrum alþingismaður
og ráð herra, orðið níræður.
Veigamesti hluti þessarar bókar
er viðtal, sem Matthías Johannes-
sen átti við Jón Pálmason, drög að
ævisögu hans. Auk hans eiga
sextán vinir Jóns efni í bókinni:
Ágúst Þorvaldsson fv. alþingis-
maður, Björn Bergmann kennari,
frú Brynhildur H. Jóhannsdóttir,
Hjörtur K Kristmundsson fv.
skólastjóri, Emil Jónsson fv.
ráðherra, Guðmundur Jónsson
bóndi, Guðrún P. Helgadóttir
skólastjóri, Gunnar Thoroddsen
alþingismaður, Halldór Jónsson
bóndi, Jóhann Hafstein fv.
ráðherra, Ingólfur Jónsson fv.
ráðherra, Jónas B. Jónsson fv.
fræðslustjóri, Magnús Þorgeirsson
stórkaupmaður, Pétur Þ. Ingjalds-
son prófastur, Sigurður Bjarnason
sendiherra og Þorsteinn Bern-
harðsson stórkaupmaður.
I fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir m.a.:
„Jón Pálmason á Akri var óefað
í hópi svipmestu og merkustu
manna sinnar samtíðar. Þrek
hans, kjarkur og dugnaður gæti
verið öðrum hvatning til dáða og
drengilegrar framgöngu í þágu
þjóðarinnar og forusta hans mun
seint gleymast þeim, sem kynni
MAN ÉG ÞANN MANIM
BÓKIN UM JONAAKRI SKUGGSJÁ
JF-
höfðu af þessari glaðbeittu kempu.
Vinsældir Jóns á Akri voru með
eindæmum. Hann var mikill vinur
og tryggur, sannkallað tryggðar-
tröll, og svik voru ekki fundin í
hans munni. Til forna var hug-
rekkið og sæmdin skylduboð
drengskaparmanns og virðing sú,
er menn nutu í lifanda lífi og
frægð þeirra og ■orðstír eftir
dauðann talin eftirsóknarverðasta
hlutskipti, sem menn gátu öðlazt.
Þetta hefur orðið hlutskipti sveit-
arhöfðingjans og þingskörungsins
Jóns á Akri.“
Bókin er 200 blaðsíður auk
mynda.
„Haming ja og ást“
Ástarsaga eftir Anne Mather
Hamingja og ást heitir ný
ástarsaga eftir Anne Mather.
Guðrún Guðmundsdóttir hefur
þýtt bókina, en útgefandi er
Setberg.
Aftan á bókarkápu segir m.a.:
„Júlía vinnur hjá byggingafyrir-
tæki í London, þegar hún kynn-
ist húsbónda sínum, Robert
Pemberton verkfræðingi. Hann
er mjög glæsilegur maður og
með þeim takast náin kynni, sem
fara út um þúfur, þegar Robert
neyðist til að taka að sér verk, er
krefst nokkurra mánaða dvalar í
Venezuela. Milli hans og Júlíu
myndast óbrúanlegt djúp í fleiri
en einum skilningi, en Júlía er
komin í vandræði og giftist
Michael, bróður Róberts og fer
með honum til Austurlanda ...“