Morgunblaðið - 03.12.1978, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
7
í dag hefst jólafastan,
aðventan, og í meira en
hálft annað árþúsund,
síöan helgisiðakerfi
kirkjunnar fékk þaö form,
sem viö búum í öllum
megindráttum við enn í
dag, hefur jólafastan, að-
ventuvikurnar fjórar verið
ætlaðar kristnum mönn-
um til undirbúnings
fæðingarhátíð 'frelsarans.
Og yfirskrift aðventunnar
allrar er Kristsorö Opin-
berunarbókarinnar: 1Sjá,
ég stend við dyrnar og
kný á“.
í bókmenntum forn-
aldarþjóðanna, heimspeki
þeirra og trúspekiritum,
má víöa sjá þess skýra
vitnisburöi, að með þeim
hefur vakað þrá eftir
þeirra var svo heilög, að
eitthvað í sál þeirra varaði
þá viö að orðfæra hana
viö aðra vegna þess að
henni yröi aldrei lýst meö
orðum svo að meira yrði
en daufur svipur hjá sjón.
Þránni eftir Kristi og því
að lifa Krist á þeim augna-
blikum þegar mannssál.in
hefur sig himni Guðs
næst, verður líklega hvað
bezt lýst í myndlist og
hljómum, en með oröum
hefur þó verið til miklu
fleiri manna náð með
þann boðskap. Mér koma
í hug miðaldaskáld og
nútímamaöur.
í marglitri dýrlingahjörð
rómverksu kirkjunnar er
hvað merkastur að mann-
viti og heilagleika Bern-
aðventan gengur í garð og
kirkjan ver fjórum sunnu-
dögum til aö boða komu
hans, sem kom og kemur
enn: „Sjá, ég stend við
dyrnar og kný á“.
En þráin eftir honum
vakir víðar en í hugum
kristinna manna, hún vakir
einnig ómeðvituð í hugum
svo margra að Guð einn
veit, sem aldrei hafa heyrt
nafn Krists nefnt. Einnig
þessir eiga sína drauma,
sínar vonir, sem finna
fullkomnun sína í lífi óvið-
jafnanlega mannsins frá
Nazaret, og því er sú þrá
þeirra, sem stefnir hæst,
þrá eftir Kristi þótt þeir
þekki nafn hans ekki.
Og þráin eftir honum
vakir einnig í ótal manns-
Þráin eftir honum,
sem kom og kemur
guðmenni, mannkyns-
lausnara sem sendur yröi
til lausnar og leiðsagnar
mönnum á jörðu. Og þó
ber sér hvergi þessi þrá
vitni eins og í helgiritum
Gyöingaþjóðarinnar og þá
mest í ritum innblásinna
spámanna, í hugboðum
þeirra og dulvitrunum.
Þeir mændu eftir guð-
menni, sendiboða hins
hæsta sem í fyllingu tím-
ans kæmi og sýndi í
mannlegu holdi hæstu
hugarsýnir og dýrustu
drauma hinna göfugustu
manna.
HANN KOM, og þeir
sem sáu hann lifa, heyrðu
hann tala, sáu hann deyja
og urðu vottar að upprisu
hans, urðu svo alteknir
þeirri vissu að hann væri
fyrirheitni guðssonurinn,
að játning þeirra var:
Hann var „Ijómi dýrðar
Guös og ímynd veru
hans“, Ivo alteknir að þeir
hófu furöulegustu sigurför,
sem mannkynssagan
kann að greina. Blóðvott-
ar urðu sumir þeirra, en
blóð þeirra varð að út-
sæði, sem dýrasti meiður
mannkyns er sprottinn af.
Þráin eftir Kristi ber sér
síöan vitni fram á þennan
dag, óteljandi vitni í bók-
menntum og listum
mannanna og þó miklu
fleiri vitnisburði í lífi nafn-
lausra milljóna, sem aldrei
skráðu orð á blað um
reynslu, sem sumum
hard frá Clairveaux
(1091 — 1153). Hann var
lengi talinn vafalaus
höfundur hins fagra
Kristssálms: Þín minning,
Jesú mjög sæt er, sem
Páll lögmaður Vídalín
þýddi á íslenzkt mál en við
eigum nú og notum í
þýðingu Helga lektors
Hálfdanarsonar. Þar er
m.a. þetta fagra vers:
Ei heyrist fegra í heimi
mál,
ei hugsað æðra getur sál,
og engan söng að eyra
ber,
sem yndislegri en nafn þitt
er.
Svo ortu menn á
miðöldum, og enn á okkar
öld yrkir Einar H. Kvaran
(d. 1938) í Kristssálmi
sínum, þar sem af hverri
Ijóölínu leggur ilm til-
beiðslu og lotningar fyrir
Kristi sem hámarki alls, er
hugur manns getur gripið:
Kom, þó að vér
aöhyllumst þrjózku og tál
þá þráir þig, Kristur, hver
einasta sál
frá sólskini suölægra
landa
til næöinga nyrztu
stranda.
Svo ómar í gegn um
árþúsundir nálega tvær
strengur á hörpu manns-
hjartans, sem hönd Krists
hrærir nær sem sálin lítur
einhver leiftur af heilagri
veru hans.
Á þessa þrá er minnt í
kristnum heimi, þegar
sálum, sem „aðra guði
dýrka“ og finna guðsdýrk-
un sinni form í ekki-kristn-
um trúarbrögöum þótt
þeir þekki nafn Krists og
viti nokkuð um kenningu
hans og líf. Þetta er hinn
„huldi kristindómur“ utan
endimarka kristinnar
kirkju. Ég veit að ýmsir
munu telja þetta jaðra við
guðlast. En ég veit að í
öðrum trúarbrögðum er
margar þær hugmyndir að
finna, sem hliðstæðar eru
því, sem Kristur kom til aö
boða, þótt öðrum nöfnum
séu nefndar og íklæddar
eru öðrum helgisiðum en
þeim, sem viö búum við.
Þess vegna benda æðstu
hugmyndir þeirra, til þess,
sem fyllingu fann í honum,
sem aðventan boöar að sé
nú í nánd. Þess vegna er
þrá þeirra þrá eftir Kristi.
Þetta vissu sumir hinna
fornu kirkjufeðra og
kenndu, að Kristindómur
hefði verið til löngu fyrr en
Kristur fæddist. Þeir voru
frjálslyndari, víösýnni en
kirkjan hefur tíðast verið
síðan.
Víðerni guðsríkis í
sálum mannanna hefur
enginn mælt, því að
enginn sér þá huldu dóma
með augum hans, sem
segir nú viö mig og þig:
„Sjá, ég stend við dyrnar
og kný á“. „Opna glaður
hjartans hús“ segir í einum
'aðventusálminum.
Jólafundur
Kvenstúdentafélagsins verður haldinn 6. des. í Atthagasel Hótei
Sögu kl. 20.30.
SKEMMTIATRIÐI
JÓLAHAPPDRÆTTI
Framreitt veröur jólaglögg og plparkökur.
Seld verða jólakort Barnahjálpar Sameinuöu þjóöanna.
Þátttaka tilkynnist í síma 21644 — 24871 — 35433 fyrir
þriðjudagskvöld.
Stjórnin.
PROGRESS
Viðurkennt fyrir gæöi. Meö
úrval af margskonar
progress heimilistækjum
Meðal annars:
Gerö Super 91 Auto-
matic er ætluö stórum
heimilum. Mjög góður
sogkraftur, 900 w
mótor.
Ennfremur fleiri geröir.
Hagstætt verð. Áratuga
reynsla á ryksugum frá
Progress.
Veriö velkomin
LEGGJUM SÉRSTAKA ÁHERZLU Á GÓÐA
VIÐGERÐA- OG VARAHLUTAÞJÓNUSTU
í Austurveri, Háaleitisbraut 68,
sími 84445 og 86035.
A Stjórnunarfélag íslands Jk
Fyrir þá sem vilja auka
útflutningstekjur.
ÚTFLUTNINGSVERZLUN
Dagana 11.—13. desember n.k. gengst Stjórnunarféiag
íslands fyrir námskeiöi í Útflutningsverzlun. Námskeiöið
veröur haldiö að Hótel Esju og stendur frá kl. 15—19 alla
dagana eóa alls í 12 klst.
Námskeið þetta er einkum ætlaö starfsfólki útflutningsfyrirtækja og
fyrirtækja er hyggja á útflutning, og megin tilgangurinn er aö gera
starfsfólk hæfara til aö leysa hin ýmsu vandamál í útflutningsstarf-
inu. Á námskeiöinu veröur aöallega leitast viö kynna:
— frágang og gerð útflutnings-
skýrslna
— val markaða
— val dreifiaðila -
— söluörvandi útflutningsaðgerðir.
Auk þess veröa fleiri atriði er snerta
útflutning kynnt.
Úlfur Sigmundsson.
Leiðbeinendur veröa Úlfur Sigmundsson og starfsfólk útflutnings-
miðstöövar iönaöarins. Þátttaka tilkynnist í síma 82930 hjá
Stjórnunarfélagi íslands. Hringiö ennfremur og biðjiö um að fá
sendan ókeypis upplýsingabækling um námskeiö SFÍ.
m.t.