Morgunblaðið - 03.12.1978, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
42
Pálmi Gunnarsson er meöal þeirra tónlistar-
manna, sem fram koma á Jólakonsertnum í
Háskólabíói klukkan 22.00 í kvöld.
Jólakonsert 78
í Háskófabíói
Það verður leikiö og sungið af mikilli innlífun í
Háskólabíói í kvöld, en Þá halda Hljómplötuút-
gáfan h.f., Æskulýðsráö Reykjavíkur og
geðdeild Barnaspítala Hringsins hljómleika Þar
og hefjast Þeir klukkan 22.00. Þar koma fram
Brunaliðiö, Pálmi Gunnarsson, Björgvin
Halldórsson, Halli & Laddi, Ragnhildur Gísla-
dóttir, Magnús Þór Sigmundsson, kór Öldu-
túnsskóla, félagar úr Karlakór Reykjavíkur,
Ruth Reginalds og átta manna söngsveit
margra okkar beztu söngvara. Hefur hljóm-
leikunum verið gefið nafnið Jólakonsert ’78, en
Þeir eru haldnir til styrktar geðveikum börnum.
Gefa allir listamennirnir vinnu sína, Þannig að
allur ágóði rennur óskertur til stofnsjóös
meðferðarheimilis fyrir geðveik börn.
í tilefni Þessara hljómleika hefur Brunaliðið
verið „aukið ogendurbætt". Skipa Það nú Pálmi
Gunnarsson, bassaleikari og söngvari, Sigurður
Karlsson, trommuleikari, Ragnhildur Gísladótt-
ir, söngvari og píanóleikari, Björgvin Gíslason,
gítarleikari, Þórhallur Sigurðsson (sem
Þekktari er undir nafninu Laddi), söngvari, og
Magnús Kjartansson, píanóleikari og söngvari.
Þá leika Þeim til aöstoðar Friöri, Karlsson,
gítarleikari, Lárus Grímsson, píanóleikari,
blásarasveit undir stjórn Magnúsar Kjartans-
sonar og ef til vill fleiri.
Söngvararnir átta sem skipa söngsveitina
eru: Ellen Kristjánsdóttir, Bergpóra Árnadóttir,
Magnús Þór Sigmundsson, Finnbogi Kjartans-
son, Birgir Hrafnsson og Þær Eva Ásrún
Albertsdóttir, Erna Hildur Gunnarsdóttir og
Erna Þórarinsdóttir, sem áður voru í hljómsveit-
inni Hver á Akureyri.
Sem fyrr getur hefjast hljómleikarnir klukkan
22.00 og er miöaverö 3.500 krónur. Vonandi
veröur fullt hús á Þessum hljómleikum Því Þeir
eru haldnir fyrir veröugt málefni, auk Þess, sem
allir ættu að geta fundið eitthvað sér til hæfis á
hljómleikunum. SA.
Plötudómur:
Gunnar Þóróarson
(Ýmir hf) 2-LP
Ef við teljum bara þar plötur,
þar sem Gunnar Þórðarson hefur
verið ábyrgur flytjandi alls efnis.
á hann að baki 17 breiðskífur alls
með tilkomu þessara platna.
Mar^ur tónlistarmaðurinn hef-
ur verið uppurinn eftir minna.
En Gunnar Þórðarson virðist
vera að hef ja nýtt tímahil í
tónlistarsköpun með þessum plöt-
um. Mörsum þykir eflaust full-
mikið að gefa út tvöfalt alhúm, en
þegar hlustað hefur verið á
plöturnar skilst það strax hvers
vegna annað var ekki hægt. Það
hefði ekki eitt einasta lag mátt
missa sig úr mynstrinu og er þá
mikið sagt um sautján lög. Það
má telja Gunnari til hróss hversu
heilsteypt efnið er. hvað þá ef
miðað er við það. að platan var
tekin upp á sjö mánuðum. Hann
hefur greinilega séð fyrir hvernig
platan átti að vera í endann.
Þrátt fyrir það að ekkert lag
hefði mátt missa sig hafa þau öll
mjög sterk sérkenni.
Gunnar minnir þó á ýmsa í
brotum úr lögum ef svo má að
orði komast. Sérstaklega á það
við „amcri'sku plötuna*' þar sem
hregður fyrir bcrgmáii af lista-
mönnum eins og George Harri-
son. Bee Gees, Paul Simon. Paul
McCartney, Bcach Boys og söng
Björgvins Halldórssonar (í lag-
inu Gypsy Rose). „Ameríska
platan" er að mínu mati í beinu
framhaldi af síðustu plötu Hljóm-
anna. „Hljómar '74“, sem var
sérlega góð plata. Lögin á „amer-
ísku plötunni" eru öll sterkt
melódísk og hnitmiðuð. Textarnir
eru ágætir og Toby Ilerman, hver
scm hún er, virðist vera liðleg í
textasmíðum.
„íslenzka platan" er nokkuð
ólík þeirri „amerísku". Fyrri
hliðin er sungin en seinni ekki. Á
þeirri fyrri eru textar eftir Hrafn
Gunnlaugsson og Þorstein Egg-
ertsson. Textar Hrafns eru það
sem kallast má „flipp" og líklega
meint sem slíkt.
Lögin eru nokkuð ólík því sem
Gunnar hefur gert áður, sérstak-
lega tvö þeirra, og gefur það í
skyn að það megi búast við
einhverri breytingu á tónlist
Gunnars á næstunni. Raddbeit-
ingar Gunnars á plötunni gefa
líka til kynna mikla framþróun.
Önnur hliðin á „fslenzku plöt-
unni “ cr tileinkuð spilverkum
Gunnars, „Bergþeyr við strönd-
ina" og „Djúpavík". Þessi tvö
verk sýna líka fram í framþróun
hjá Gunnari, á öðru sviði þó. En
ofar öllu öðru, Gunnar ber hér á
borð sitt besta efni. ánægjan af að
vinna efnið skin út úr hverju lagi
í formi raddarinnar og svo í
útsetningu.
Við skulun nú renna í gcgnum
lögin 17 og gefa þeim punkta.
Hliðl
Fyrsta lagið er „Ilold On“,
Ifflegt lag með miklum horna-
hlæstri, latneskum bumbuslætti.
kvenrödd til aðstoðar Gunnari,
sem er í essinu sínu. og pianóið er
á fullu líka. Þetta lag var það
fyrsta sem Slaghrandur heyrði og
líka það fyrsta sem greip. „Don't
Go To Strangers" byrjar þung-
lamalega en verður íljótt dreym-
andi með Gunna>- syngjandi a-la
Bee Gees f upphafinu, og síðan
nokkuð í stíl Beach Boys. Mjög
aðlaðandi lag sem endar á hljóð-
um saxófón.
„Rainin' In N.Y.“ var eitt af
þeim sem gripu strax. Líflegt
„Fíladelfíusánd", hornablástur
og góður söngur og textinn og
lagið fara mjög vel saman.
„She Had A Reality" byrjar
rólega og seiðandi og verður í
viðlaginu týpískt „Eurovision"
lag, nema með bragðbæti. Gæti
jafnvel unnið í slíkri keppni ef
það færi eftir gæðum.
Illið I endar á kröftugum
rokkara sem Slagbrandur hélt í
fyrstu að Björgvin Halldórsson
syngi og fékk síðan að sjá Gunnar
sjálfan syngja það í Háskólabíói
og komst að því að hann hefur
ekki verið allur þar sem hann
hefur verið séður. Gunnar rokkar
hér eins og Paul McCartney gerir
stundum. Spilið er aðallega
bassi/ trommur/ gítar auk
horna.
Hlið II
„Like Love..." byrjar líkt og
vögguvísa með strengjum, enda
blíðasta lagið á plötunni.
„Iley Brother" er tileinkað
Rúnari Júliussyni, fyrrum sam-
starfsmanni Gunnars í Illjómum.
Trúbroti og Lónlí BJú Bojs.
Tcxtinn er eftir Gunnar og er sá
eini eftir hann sjálfan á plötunni.
Það verður að segjast. að textinn
segir það sem segja þarf, og lagið
er ljúft með smáhraðhlaupi í
viðlaginu. Bakraddir hressilegar,
en Gunnar syngur allar hakradd-
ir sjálfur nema í þrem lögum á
„fslenzku plötunni
„Wake Up" er nokkuð
skemmtilegt. létt lag þar sem
Gunnar leikur sér með raddirnar.
minnir nokkuð á Beach Boys og
aðra góða hljómsveit sem enginn
man eftir. Stackbridge.
„Ahlrep's Adleuh" er léttur
rokkari sem f jallar um undarleg-
an draum. eitt af fáum lögum þar
sem heyrist í gítar Gunnars þó
ekki sé það mikið.
„Sail Away" er síðasta lagið á
2. hlið. Lagið byrjar á seiðandi
hljómborðsleik og gítar. sem fær
að heyrast, viðlagið nokkuð
skemmtilegt og lagið óvenjulegt.
Hlið III
„Konan með köttinn" var samið
af Gunnari f samvinnu við Egil
Eðvarðsson. en tcxtinn er Ilrafns
Gunnlaugssonar.
Lagið byrjar á klassískan
fslenzkan máta með rödd. Tónlist-
in er döpur með undirlcik píanós,
strengja. fagotts og kassagítars
m.a. nokkuð ístíl „Vísnaplatn-
anna".
„Drottningin rokkar" er afar
sérstætt lag. byrjar sterkt með
söng Gunnars og pfanói og cykst í
styrk. útsetningin er sérstaklega
sterk. Lfklega eitt sterkasta lagið
á plötunni. Textinn er undarleg-
ur og ekki merkilegur. En samt
mjög gott lag, mjög góð útsetning
og góður flutningur. Þess má
geta að Gunnar Þórðarson,
Björgvin Halldórsson og Magnús
Kjartansson fluttu lag þetta
niðursneitt f sjónvarpinu um
síðustu jól.
„Blóðrautt sólarlag" er ekki
síður sérstakt, eggjandi kraftur-
inn er vel til fallinn sem kvik-
myndatónlist, enda titillagið úr
samnefndu sjónvarpsleikriti
Hrafns Gunnlaugssonar.
„Lít ég börn að leika sér" er ný
útgáfa á lagi sem fyrst heyrðist á
fyrstu Trúbrotsplötunni. Einn af
betri textum Þorsteins Eggerts-
sonar. Lagið heldur sér mikið til
óbreytt en flutningur mun betri.
Gítarsólói hcfur líka verið bætt
inn.
„í dag" hér á „Mandala">
„Today". Gunnar flytur lagið
betur og með meiri tilfinningu.
Annars minnir það á að á
„Mandala" voru nokkrar jafnvel
betri melódfur.
Hliö IV
Fyrst þegar ég heyrði Gunnar
flytja „Bergþey við ströndina"
var gítarinn aðalhljóðfærið en
ekki fagott. Fagott gerir gerir
lagið sérlega myndrænt og minn-
ir á „öndina" í Pétri og úlfinum.
Útsetning Gunnars á þessari
litlu fallegu melódfu er eftirtekt-
arverð. Inn á milli koma þungir
kaflar með glefsum frá Electric
Light Orchestra.
„Djúpavík", lítil og ljúf
melódfa fyrir píanó og strcngja-
sveit. Það er Ilalldór Haraldsson
sem gefur tilfinningar sínar í
pfanóinu.
HIA.