Morgunblaðið - 10.12.1978, Síða 3

Morgunblaðið - 10.12.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978 3 Sorphirðugjaldið: Þetta væri skattpíning - sagði Davíð Oddsson EINS OG kunnugt er at' fréttum felldi borgarstjórn Reykjavíkur sl. fimmtudagskvöld með atkvæðum borgarfuiltrúa Sj&lfstæðisflokksins og Sjafnar Sigurbjörnsdóttur borgarfulltrúa Alþýðuflokksins, tillögu borgarráðsmanna meirihlutans um sérstakt sorphirðingargjald á borgarbúa. Mikið fjaðrafok varð í liði borgarstjórnarmeirihlutans þegar Sjöfn greiddi atkvæði með sjálfstæðismönnum, en ef tillagan hefði náð fram að ganga hefði það þýtt yfir 300 milljóna króna auknar álögur á borgarbúa. Tillagan sem felld var er svohljóð- andi: „Borgarstjórn beinir því til félagsmálaráðherra, að sett verði í lög heimild fyrir sveitarfélög til innheimtu á gjaldi fyrir sorphirðu samkvæmt gjaldskrá, sem sveitar- stjórn setur." Borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, Adda Bára Sigfúsdótt- ir, fylgdi tillögunni úr hlaði. Hún sagði, að lögspekingar hefðu látið í ljós, að lagaheimild þyrfti til þessa og þess vegna væri nú verið að bera þessa ósk fram við ráðherra. Tillag- an miðaði að því, að venjulegir íbúðaeigendur greiddu 25% af sorp- hirðingu hjá sér en atvinnurekstur 90%. Það hlyti að vera að skapi sjálfstæðismanna, að hver greiddi sitt. Hún sagði gjöld þessi ekki verða svo há, að menn gætu ekki greitt þau, en ætlunin væri, að þau yrðu 4500 fyrir stærri gerð íláta og 3000 fyrir minni gerð íláta. Davíð Oddsson (S) sagði, að þessi tillaga væri hrein skattpíningartil- laga af hálfu meirihlutans einungis undir dulnefni og kvaðst hann lýsa algjörri andstöðu sjálfstæðismanna við þessa tillögu. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir (A) lýsti andstöðu sinni við tillöguna,- kvaðst bæði á móti sorphirðugjaldi og svo væri málið illa undirbúið. Hún myndi því greiða atkvæði gegn tillögunni. Adda Bára Sigfúsdóttir sagði, að hér væri aðeins um beiðni að ræða. Albert Guðmundsson (S) lýsti yfir mjög mikilli ánægju með afstöðu Sjafnar Sigurbjörnsdóttur. Hann kvaðst vara við lævíslegum málflutningi Öddu Báru, hér væri einfaldlega um aukaskatt að ræða. Birgir Isleifur Gunnarsson (S) kvaðst fagna afstöðu Sjafnar Sigur- björnsdóttur. Það væri alveg fráleitt að leggja á þennan aukaskatt undir dulnefninu sorphirðugjald. Magnús L. Sveinsson (S) sagði, að meiri- hlutaflokkarnir væru ekki skatt- heimtuflokkar heldur skattpíningar- flokkar. Andstaða Sjafnar kom meirihluta- mönnum greinilega á óvart og þess vegna varð fjaðrafokið. Af öllu fátinu í meirihlutanum má ráða, að reynt hafi verið á fá Sjöfn til að greiða tillögu Kristjáns Benediktssonar atkvæði, en Sjöfn var föst fyrir og sat hjá. Frestunar- tillagan fékk aðeins 7 atkvæði annarra meirihlutafulltrúa en Sjafn- ar. Tillagan um 300 milljón króna auknar álögur á borgarbúa í formi sorphirðugjalds var síðan felld. 6,12% hækkun mun ná til allra borgar- starfsmanna 1. janúar Á FUNDI borgarstjórnar sl. fimmtudag spurði Birgir ísleifur Gunnarsson meirihluta borgar- stjórnar að því, hvort þak myndi látið gilda á vísitölubætur ti) borgarstarfsmanna eftir áramót. Björgvin Guðmundsson varð fyrir svörum og vitnaði til ummæla um sama efni á borgarstjórnarfundi fyrir skömmu. Samkvæmt því mun ekki neitt þak látið gilda fyrir borgarstarfsmenn eftir áramót, þ.e. 6.12% hækkunin sem kom til framkvæmda 1. desember verður látin ná til allra launaflokka borgarstarfsmanna frá 1. janúar. Á fundi borgarstjórnar 5. október sagði Björgvin Guðmundsson orð- rétt um þetta: „Borgarstjórn sam- þykkti hinn 15. júní sl. að greiða öllu starfsfólki borgarinnar fullar verðbætur á laun í áföngum, þannig að frá og með næstu áramótum yrðu greiddar óskertar verðbætur samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Ekki eru uppi neinar ráðagerðir um að víkja frá þessari samþykkt borgarstjórnar þrátt fyrir bráðabirgðalög ríkis- stjórnarinnar frá því í sept sl. en þau kveða á um ákveðið hámark verðbóta". Innlendar skipasmíðastöðvar: Teikning af nýja skuttogaranum, sem byrjað er að smiða í Stálvík, á ábyrgð fyrirtækisins. Nýjungar í hönnun skipsins gera það að verkum að það verður mun ódýrara en sambærileg skip smíðuð hér á landi, og verðið verður sambærilegt við verð togaranna frá Portúgal. Geta smíðað 500 brúttó- lesta togara á 6 mánuðum á samkeppnisfæru verði UNNT ER að smíða hér á landi skuttogara á sex til átta mánuðum, fyrir um eða undir einum og hálfum milljarði króna, en það er sama verð og greitt er fyrir skuttogarana frá Portúgal. Sjóhæfni og aðrir eiginleikar hins íslenska skips yrðu mun meiri en hinna erlendu skipa. — Framangreindar fullyrðingar koma fram á blaðamannafundi í gær, sem boðað var til af Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja. Á blaðamannafundinum skýrði Þórleifur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna og Félags drátt- arbrauta og skipasmiðja frá því, að nokkra undanfarna mánuði hefði verið unnið að tækniþró- unarverkefni í íslenskum skipa- iðnaði. Þessu verkefni var hrint í framkvæmd af Félagi dráttar- brauta og skipasmiðja, með stuðningi Iðnþróunarsjóðs, Iðn- rekstrarsjóðs og Iðntæknistofn- unar Islands. Hefur Sigurður Ingvason skipatæknifræðingur, sem um áratugaskeið hefur verið búsettur og starfandi í Svíþjóð, verið fenginn hingað til lands til að kanna stöðu skipa- iðnaðarins í landinu. Hefur hann ferðast um landið og skoðað flestar skipasmíðastöðv- ar landsins, og lagt fram tillög- ur um uppbyggingu þeirra og áframhaldandi verkefni í skipa- iðnaði. Þetta var sumarið 1977, en síðan kom Sigurður aftur hingað til lands, og hefur gert tillögur er varða vöruþróun og rekstrarráðgjöf skipasmíðaiðn- aðarins. Hvað varðar fyrra atriðið, vöruþróunina, þá kom það fram á fundinum, að nú þegar hefur verið hannaður 499 brúttólesta skuttogari, og er vinna hafin við smíði hans hjá Stálvík h.f. í Garðabæ. Töluverð breyting hefur verið gerð á Iagi skipsins frá því sem nú tíðkast, auk þess sem innri uppbyggingu þess hefur verið breytt og hún einfölduð verulega. Að sögn forráðamanna Stálvíkur virðist sem spara megi fjölda vinnu- stunda um 40% á þeim hlutum skipsins er nú þegar hafa verið smíðaðir, miðað við aðra sam- bærilega skipshluta, byggða eftir eldri aðferðum. Hefur þetta meðal annars verið gert á þann hátt, að böndum í skrokk skipsins hefur verið fækkað verulega, eða um 35%, með því að nota þykkara stál í skrokkinn en áður hefur verið notað í skip af þessari gerð. Vinna við bönd skipa er mjög tímafrek. Verk- efni þetta hafa tæknimenn Stálvíkur unnið undir leiðsögn Sigurðar Ingvasonar, og Sigl- ingamálastofnunin hefur fylgst með hönnun skipsins. Síðara atriðið, rekstrar- ráðgjöfin, fjallar um úrbætur í tækni, skipulagi og rekstri nýsmíða- og viðgerðastöðva ásamt framtíðaráætlunum um uppbyggingu þeirra. Fyrirtæki og sveitarfélög í Garðabæ, Hafnarfirði, Njarðvík, Vest- mannaeyjum, Seyðisfirði og Isafirði hafa tekið þátt í þessum hluta verkefnisins. Fram kom á blaðamanna- fundinum, að talið er að íslensk fyrirtæki geti annað nýsmíði um 2000 tonna á ári, en það mun láta nærri að sé um það bil einn þriðji af eðlilegri endurnýjun á ári. Einn helsti þröskuldur á vegi þess að íslensk fyrirtæki geti annað slíkum verkefnum, og þar með haft nægileg verk- efni, er rekstrarfjárskortur. Hefur því verið farið fram á það við iðnaðarráðuneytið, að leyfi verði veitt til þess að taka lán erlendis, án milligöngu inn- lendra sjóða. Þar með væri unnt að hefja nýsmíði skipa þegar það hentaði viðkomandi skipa- smíðastöð, og yrði skipið þá annað hvort í eigu væntanlegs kaupanda frá byrjun, eða þá í eigu skipasmíðastöðvarinnar til að byrja með, eins og tíðast er erlendis. Er þá skapaður grund- völlur undir innlendar skipa- smíðar, bæði fyrir innlendan og erlendan markað. Er von á svari frá iðnaðarráðuneytinu innan skamms, og að sögn Þórleifs Jónssonar er ástæða til að ætla að það verði jákvætt. Austurstræti 17.2. hæð Símar 26611 •— 20100 Leitið opplýsinga um ferðamöguleika. Farseöl- ar um allan heim. Sérfræðingar í sérfargjöldum. í sól á Kanaríeyjum eöa Florida? Á skíði til Austurrikis? Til London — Parísar eöa New York? Hvert viltu fara úr skammdeginu?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.