Morgunblaðið - 06.01.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979
Ríkisstjómin bað Seðlabank-
ann að fresta 2 % hækkun á
vöxtum af vaxtaaukainnlánum
Það var rysjótt veðrið í gær og_ verður það áfram í dag samkvæmt
upplýsingum veðurstofunnar. í dag er gert ráð fyrir snjókomu
norðanlands siðdegis og einnig á Austurlandi en él verða vestanlands.
Suðaustanlands mun létta til með norðlægri átt með kvöldinu en gert
er ráð að aftur kólni í veðri seinni partinn á morgun.
SAMKOMULAG varð ekki í ríkis-
stjórninni um þær tillögur Seðla-
bankans að hækka vexti á vaxta-
aukainnlánum um 2% og breyta
fyrirkomulagi afborgana af vaxta-
aukalánunum. Varð það úr að
ríkisstjórnin beindi þeim til-
mælum til Seðlabankans að hann
frestaði aðgerðum þar til tillögur
um heildarstefnumótun í efnahags-
málum liggja fyrir í lok þessa
mánaðar. Stjórn Seðlabankans
hefur ákveðið að fresta ákvörðun-
um í málunum.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér voru
ráðherrar Alþýðuflokksins þess
mjög fylgjandi að fallizt yrði á
Mikilvægt að keyptur verði tog-
ari frá Stálvík en ekki Portúgal
— segir Magnús L. Sveinsson
MJÖG mikilvægt er að útgerðarráð
Bæjarútgerðar Reykjavíkur ákveði
að mæla fremur með þvi' að kaupa
skuttogara frá skipasmíðastöðinni
Stáivík heldur en að kaupa annan
hinna portúgöisku togara er nú er
verið að bjóða af hálfu ríkisstjórn-
Þriggja mánaða
vaxtaaukainnlán
með 25%vöxtum
SEÐLABANKINN hefur ákveð-
ið að taka upp nýjan flokk
vaxtaaukainnlána. sem verða
bundin til 3ja mánaða og bera
25% vexti. Núverandi vaxta-
aukainnlán. sem eru bundin 1 12
mánuði, verða áfram en þau
bera 32% vexti.
I frétt Seðlabankans segir að
vegna tæknilegs undirbúnings sé
ekki gert ráð fyrir því að
innlánsstofnanir geti farið að
taka á móti fé inn á nýju
vaxtaaukareikningana fyrr en
um miðjan mánuðinn.
arinnar. sagði Magnús L. Sveinsson
borgarfulltrúi á fundi borgar
stjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld.
Sagði Magnús það mjög mikilvægt
nú, að stutt væri við bakið á
innlendum iðnaði, enda væri at-
vinnuástand á höfuðborgarsvæðinu
nú mjög ískyggilegt. Fleiri hefðu
verið skráðir atvinnulausir í Reykja-
vík nú um áramótin en um árabil, og
líklegt væri talið að atvinnulausir
yrðu milli 300 og 400 hundruð í
borginni á tímabilinu janúar til
apríl, samkvæmt upplýsingum frá
ráðningaskrifstofu Reykjavíkur-
borgar.
Því væri það mjög mikilvægt að
svo stórt fyrirtæki eins og Stálvík
hefði næg verkefni, enda veitti það
fólki frá mörgum bæjarfélögum, þar
á meðal Reykjavík, atvinnu. Þá væri
það einnig mikilvægt og eðlilegt að
fremur væri skipt við innlenda aðila
en erlenda þegar um væri að ræða
svo mikla framkvæmd sem smíði
skuttogara. Sagði Magnús að ekki
ætti að þurfa að hafa um það mörg
orð, og ætti það einnig við þó að
atvinnuástand væri betra en það er
nú.
Magnús sagði að nú vantaði leyfi
tillögu Seðlabankans, en Svavar
Gestsson bankamálaráðherra lýsti
sig mjög tregan til að fallast á
vaxtahækkun og sama gerði Stein-
grímur Hermannsson. Komu ráð-
herrar Alþýðubandalagsins síðan af
þingflokksfundi með þá afstöðu að
þar sem ríkisstjórnin hefði skipað
sérstaka efnahagsmálanefnd þá
væri æskilegra að bíða eftir niður-
stöðum hennar áður en tekin væri
afstaða til slíkra aðgerða í vaxta-
málum. Ráðherrar Alþýðuflokksins
sögðust geta fallizt á þá málsmeð-
ferð og var þá samþykkt að beina
framangreindum tilmælum um
frestun til Seðlabankans.
Tillögur Seðlabankans um
breytingar á greiðslum af vaxta-
aukalánum fela í sér að aðeins lítill
hluti af verðbólguþætti vaxtanna
verði greiddur, en afgangnum bætt
við höfuðstól lánsins. Andstæðingar
fyrri tillögunnar voru jákvæðir til
þessa og öfugt.
I frétt sem Seðlabankinn gaf út í
gær segir m.a. að hlutfall innstæðu-
fjár í bankakerfinu miðað við
þjóðarframleiðslu sé nú um þriðj-
ungi lægra en við upphaf þessa
áratugar, sem samsvari því að
framboð lánsfjár ætti nú að vera
um 70 milljörðum króna hærra en
það er, ef fyrra hlutfall hefði
haldizt.
Á árinu 1978:
Skuld ríkissjóðs
við Seðlabank-
ann jókst um 11,4
milljarða króna
SKULD ríkissjóðs við Seðlabank-
ann jókst um 11.4 milljarða króna
á síðasta ári, þar af um 7.5
milljarða vegna gengisbreytinga
lána í erlendri mynt. I árslok nam
skuld ríkissjóðs við Seðlabankann
26.4 milljörðum króna.
Greiðslur ríkissjóðs vegna af-
borgana af skuldabréfum við Seðla-
bankann námu 5,5 milljörðum
króna á árinu 1978.
Bíllinn fór fram af hengi-
flugi — Ökumaðurinn slapp
Bíllinn er talinn gjörónýtur. Öku-
maðurinn hitti brátt fyrir vegfar-
endur sem fluttu hann til byggða.
yfirvalda til erlendrar lántöku, er
væri forsenda þess að af smíði
togarans innanlands gæti orðið. Að
öðrum kosti gæti fyrirtækið ekki
boðið jafn hagstæða skilmála og
stæðu til boða ef keyptur yrði togari
frá Portúgal. Kvaðst Magnús vænta
þess að stjórnvöld stæðu ekki í veg
fyrir því að smíða mætti skipið hér
innanlands.
Sjá nánar um skuttogarakaupin á
hlaðsíðu 20.
Akureyri. 5. janúar.
Bflaleigubfll frá Akureyri stakkst
ofan í Heiðará á Öxnadalsheiði um
kl. 11 í morgun. Bfllinn mun hafa
hrapað 60— 80 metra. að því er
giskað er á en ökumaður sem var
einn í bflnum kastaðist út úr
honum á leiðinni og slapp með smá
skrámur.
Hann segir svo frá, að mikil hálka
og hvassviðri hafi verið á veginum
yfir Öxnadalsheiði í morgun, og
þegar komið var í Giljareit vestar-
lega á heiðinni hafi bíllinn fokið út
af veginum og runnið fram af
hengifluginu og niður í gljúfrið á
vinstri hönd.
Skömmu eftir að ökumaðurinn
kastaðist út úr bílnum stöðvaðist
bíllinn á klettanibbu. Maðurinn
klöngraðist strax upp á veginn
aftur en þegar hann kom þangað og
leit fram af, sá hann að bíllinn hafði
hrapað alla leið niður í á, og í seinna
hrapinu hafði húsið farið af honum.
- Sv.P.
Framkvæmdastofnun ríkisins:
Tel ad breytingar á forstjórn
stofnunarinnar eigi að bíða nið-
urstöðu á endurskoðun laganna
— segir Sighvatur Björgvinsson sem í gær var skipaður
formaður stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins
„ÉG TEL að breytingar varðandi forstjórn framkvæmdastofnunar-
innar eigi að bíða eftir niðurstöðum þeirrar endurskoðunar á lögum
stofnunarinnar. sem kveðið er á um í samstarfsyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar,- sagði Sighvatur Björgvinsson alþingismaður,
sem í gær var skipaður formaður stjórnar Framkvæmdastofnunar
ríkisins, er Mbl. spurði hann í gærkvöldi, hvort stjórnin hefði á
prjónunum ákveðnar tillögur til ríkisstjórnarinnar varðandi skipun
forstjóraembætta við stofnunina. Núverandi íorstjórar eru Sverrir
Ilermannsson alþingismaður og Tómas Árnason, sem hefur leyfi frá
þeim störfum vegna embættis fjármálaráðherra. Ingvar Gíslason
alþingismaður var í gær skipaður varaformaður stjórnar fram-
kvæmdastofnunarinnar.
„Ég lít svo á,“ sagði Sighvatur,
„að allar breytingar á stjórnkerfi
stofnunarinnar eigi að bíða þar
til niðurstöður þessarar endur-
skoðunar liggja fyrir, en það er
sjónarmið Alþýðuflokksins að um
stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins eigi að gilda sömu lög og
reglur og um aðrar lánastofnanir,
að þeir sem fara með pólitískt
vald á Alþingi eigi ekki að fara
með forstöðu slíkra stofnana
líka.“
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér hafa
stjórnarflokkarnir deilt nokkuð
um skipan mála við fram-
kvæmdastofnunina. Eftir breyt-
inguna 1974 voru Sverrir Her-
mannsson og Tómas Árnason
ráðnir forstjórar stofnunarinnar.
Við stjórnarskiptin á síðasta ári
Sighvatur Björgvinsson
tók Tómas Árnason þá ákvörðun
að víkja ekki vegna fjármálaráð-
herraembættisins heldur aðeins
fá leyfi frá störfum. Alþýðuflokk-
urinn vilði að forstjórar fram-
kvæmdastofnunarinnar yrðu
ráðnir sem aðrir embættismenn
slíkra stofnana og fékk inn í
samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar ákvjeði um endurskoðun
á lögum um framkvæmdastofn-
unina. Hefur Alþýðuflokkurinn
staðið gegn því að Tómas Árna-
son tilnefndi mann til að gegna
forstjórastöfunum fyrir hann, en
Tómas mun hafa haft við orð að
frekar sleppti hann ráðherraem-
bættinu en stöðu forstjóra við
framkvæmdastofnunina. Alþýðu-
bandalagsmenn hafa stutt
sjónarmið Tómasar og vilja fá
Alþýðubandalagsmann í for-
stjóraembætti líka.
jW WONUM
ywwBfflfíi
^ OKKUR N\9
WlNtM IH l«f
PRO'StNTf
&
J W MöNOH
< AWRf I
otm w
H//VMAtNIV
wm*
L\m 1\’HMÓt
Féll útbyrðis
og drukknaði
ANNAN stýrimann á ms. Dísar-
felli tók út af skipinu sl. miðviku-
dagsmorgun er skipið var á leið
frá Helsinki til Danmerkur.
Maðurinn hét Sigurður Brynjólfs-
son, 35 ára að aldri. Nánari tildrög
slyssins eru ekki kunn en ítrekuð
leit fór fram að manninum en bar
ekki árangur. Sjópróf fara fram svo
fljótt sem auðið er, en skipið var
væntanlegt til Kaupmannahafnar í
gærkvöldi.