Morgunblaðið - 06.01.1979, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979
25
Sveigjan-
legri vinnu-
tími tekinn
upp hjá
Hafskip
-starfsfólk fær aukin
frí með meiri vinnu
ÞEIM fyrirtækjum fer nú fjölg-
andi sem taka upp sveigjanlegan
vinnutíma á skrifstofum sínum.
en sem kunnugt er. reið Olíu-
félagið Skeljungur h.f. á vaðið í
þessum efnum hérlendis árið
1973. í kjölfarið komu svo fyrir-
tæki eins og IBM. Olíuverzlun
(slands og Flugleiðir.
Énn hefur fjölgað í hópi þessum
og nú hefur Hafskip h.f. tekið upp
þetta vinnutímafyrirkomulag á
skrifstofu sinni. Sú nýbreytni var
hins vegar tekin upp þar að
starfsfólkinu er heimilt að safna
sér aukafrídögum með vinnu
umfram hinn hefðbundna vinnu-
tíma. Fyrst um sinn og meðan
reynsla fæst af þessari nýbreytnl
takmarkast frídagafjöldinn við
einn aukafrídag í mánuði.
Að sögn forráðamanna Hafskips
h.f. er hugmyndin að á síðari
stigum að þróa vinnutímafyrir-
komulagið frekar í það sem víða
þekkist erlendis m.a. í þá veru að
starfsfólki sé heimill aukinn
sveigjanleiki með því að færa það
sem á vantar fullan vinnustunda-
fjölda eða umframtíma á milli
mánaða eftir því sem hverjum og
einum kann að henta og starfssvið
viðkomandi leyfir.
Nokkuð
aukið
atvinnu-
leysi
ATVINNULEYSI í Vesturbýzka-
landi jókst um 3.9% í október og
var þá tala atvinnulausra komin
upp í rúmlega 900 þúsund. segir í
frétt frá verkalýðsmálaráðuneyti
Vestur-Þýzkalands.
Ilafði tala atvinnulausra vaxið
um 30.700 frá því sem var í
september og var sú hæsta á
þessu ári.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir:
Kjaradómur
Mistök eða hvað?
í desember sl. birti ég grein í
Morgunblaðinu undir þessari fyr-
irsögn: Kjardómur — Mistök eða
hvað?
Greinin fjallaði um einn þátt í
dómi Kjaradóms um launamál
hjúkrunarfræðinga, sem braut-
skráðir éru frá háskóla hér á landi
eða erlendis. í stað þess að fjalla
um þennan starfshóp sem fullgild-
an til ákveðinna starfa úrskurðaði
Kjaradómur, að hann skyldi ljúka
níu mánaða starfsreynslu fyrst,
síðan skyldi hann taka laun
samkv. ákveðnum launaflokki í
kjarasamningi Bandalags háskóla-
manna.
Ég taldi og tel enn, að Kjara-
dómur hafi með þessum úrskurði
óvirt og vanmetið viðurkennt nám
frá Háskóla íslands og háskólum
erlendis og bað um skýringu.
Kjaradómur hefur ekki svarað
fyrirspurnum mínum. Hins vegar
hefur Kjararáð Hjúkrunarfélags
íslands gert athugasemdir við
grein mína og birtust þær í grein í
Morgunblaðinu 29. des. sl. og
Dagblaðinu um svipað leyti. Hún
bar heitið: „Allt orkar tvímælis þá
gjört er.“ Það hvarflaði aldrei að
mér, að ég með grein minni og
fyrirspurn til Kjaradóms myndi
lenda í orðaskiptum við kjararáð
Hjúkrunarfélags íslands. Til
skýringar skal þess getið, að
Kjararáð er þriðji hluti níu manna
kjaramálanefndar Hjúkrunar-
félags íslands og fer með
samninga um kaup og kjör fyrir
hönd þess félags. Hjúkrunar-
fræðingar BS. eru í félagi innan
Bandalags háskólamanna, og fer
bandalagið með samninga þeirra.
Kjararáð Hfí (Hjúkrunarfélags
íslands) furðar sig á því, að þrír
félagar í Hfí skuli hafa tjáð sig um
fyrrnefndan dóm Kjaradóms.
Einn af kostum þjóðfélags okkar-
Ingibjörg R. Magnúsdóttir.
er tjáningafrelsi — ritfrelsi — og
ber að hafa í heiðri. Ég tel eðlilegt
og sjálfsagt að þeir, sem eru
ósammála umræddum dómi
Kjaradóms, fái að tjá sig um það.
Má þá spyrja, hvort aðrir hafi
meiri eða betri þekkingu til þess
en hjúkrunarfræðingar, hvort sem
þeir sitja í Kjararáði Hjúkrunar-
félags Islands eða ekki.
Sömu laun fyrir sömu vinnu
Kjararáð Hfí segir í grein sinni
að: „Sjónarmið Hjúkrunarfélags
íslands sé, sömu laun beri að
greiða fyrir sömu vinnu.“ Hvað er
átt við með „sömu laun fyrir sömu
vinnu?"
Launakerfið er yfirleitt þannig
byggt upp, að gengið er út frá því,
að aukin menntun — hvort sem
um er að ræða frummenntun,
framhaldsmenntun eða sér-
Ingvar Agnarsson:
Hver jir lída
vegna jólanna
i.
Jólin er liðin. Allir hafa reynt að
auka á gleði sína og annarra með
ýmsu móti: Með heimsóknum,
gjöfum og góðum mat. A ýmsan
hátt hefur reynt verið að gera
þessa hátíð hækkandi sólar sem
eftirminnilegasta. Prestar og
kirkjukórar hafa lagt sig fram um
að auka á gleði þeirra er kirkjur
hafa sótt og á hverju heimili hefur
jólaskrauti verið komið fyrir,
öllum til yndisauka.
Og margir álíta, að sjálfur
undirbúningur jólanna með öllu
sínu amstri og fyrirhöfn og
umhyggjusemi, sé ekki þýðingar-
minni til sálubóta, en það sem
fram fer á jólunum sjálfum. Það er
mannbætandi að undirbúa jólin,
því þá hugsa allir vel til annarra
og hugleiða, á hvern hátt megi
gleðja þá á jólunum.
En öll þessi jólagleði og alls-
nægtir, sem flestir eiga kost á að
njóta á jólum, leiða hugann að því,
hvort ekki muni einhverjir vera
afskiptir. Eru ekki einhverjir til,
sem hafa orðið útundan? Eru ekki
til einhverjir einstaklingar sem
hafa farið varhluta af jólagleðinni
og jólaallsnægtunum, af því að
þeim hafi hreinlega verið gleymt
af meðbræðrum sínum. Eru ekki
einhverjar einmana, gleymdar
sálir, mitt í jólagleði fjöldans?
Hvað um vissa einstaklinga meðal
gamalmenna, ekkna, barna,
fanga? Hefur verið munað eftir
öllum, hverjum einstökum?
Vonandi að svo sé.
menntun — komi að meiri notum í
starfi. Einstaklingur er talinn
verðmætari starfskraftur ef hann
hefur hlotið aukna menntun og
hann gengur inn í ákveðinn
launaflokk samkv. því.
I kjarasamningi Hjúkrunar-
félags íslands og fjármálaráð-
herra eru margir launaflokkar og
eru störf hjúkrunarfræðinga
metin eftir ábyrgð og þekkingu.
Hjúkrunarfræðingar innan Hfí,
sem starfa hlið við hlið í sjúkra-
húsi eða heilsugæslustöð, taka
ekki allir laun samkv. sama
launaflokki. Þeir, sem bætt hafa
við sig einu námsári eða meira,
taka hærri laun en hinir og hlýtur
það að vera á þeim forsendum að
meiri þekkingu beri að greiða
hærra verði. Áður fyrr var þeim
hjúkrunarfræðingum, er höfðu
aukna þekkingu í einhverri sér-
grein hjúkrunar, t.d. skurðhjúkrun
eða röntgenhjúkrun, greidd hærri
laun ef þeir unnu á sérdeild þar
sem þekking þeirra kom augljós-
lega að notum. Nú fær hjúkrunar-
fræðingur innan Hfí, sem bætt
hefur við sig námsári, víða hærri
laun þótt hann vinni ekki við
sérgrein sína heldur „sömu vinnu“.
Þessi launaflokkahækkun eftir
aukið nám er einn þeirra þátta, er
Hjúkrunarfélag Islands hefur
beitt sér fyrir í launamálum.
Hefur félagið breytt um stefnu?
Kjararáð Hfí telur mig hafa
sagt, í fyrri grein minni, að
nemendur á þriðja ári í
Hjúkrunarskóla Islands hafi sömu
laun og hjúkrunarfræðingar BS.
Þarna er ekki rétt með farið. Ég
bið Kjararáð að lesa grein mína
betur. Ég tók skýrt fram, að
nemendur á þriðja ári fengju
57,80% af launum hjúkrunar-
fræðings en 100% fyrir yfirvinnu.
Með þessu var ég að benda á, að
þekking nemenda í Hjúkrunar-
skóla Islands eftir tveggja ára
nám er metin til fullra launa, ef
um yfirvinnu er að ræða, þótt
þekking hjúkrunarfræðinga með
fjögurra ára háskólanám að baki
sé ekki metin til fullra launa fvrr
en þeir hafa lokið „níu mánaða
starfsreynslu“.
Brevtingar á starfssviði
hjúkrunarfræðinga?
í lok greinar sinnar vendir
Kjararáð Hfí kvæði sinu í kross og
mælir nú fyir munn Hjúkrunarfé-
lags íslands og segir orðrétt:
„Öllum breytingum á starfssviði
hjúkrunarfræðinga verður mót-
mælt og mætt með hörku af
félögum Hfí. Tilgangurinn með
þeim verður að minnsta kosti að
vera háleitari en svo, að beinhörð
peningasjónarmið ráði ferðinni."
Nú yrði líklega einhverjum á að
segja: „Allt orkar tvímælis þá
gjört er." I þessari yfirlýsingu
felst hótun. Mér er spurn: Hverju
er hér verið að hóta og hverjum?
Samþykkti stjórn Hjúkrunar-
félags Islands þessa yfirlýsingu?
Starfssvið hjúkrunarfræðinga
hefur tekið sífelldum breytingum
undanfarna áratugi vegna fram-
fara í heilbrigðisvísindum og
heilbrigðisþjónustu. Þessar breyt-
ingar hafa kallað á aukna
menntun hjúkrunarfræðinga og
sérmenntun á ýmsum sviðum svo
sem geðhjúkrun, barnahjúkrun,
heilsuvernd, svæfingum, gjör-
gæslu o.fl. Á síðustu árurn hefur
bæði hér og annars staðar komið í
ljós vaxandi þörf fyrir hjúkrunar-
fræðinga til heilsugæslu utan
sjúkrastofnana. Má þar t.d. nefna
hjúkrunarstörf í heimahúsum,
aðstoð vegna ýntissa fjölskyldu-
vandamála svo sem ofneyslu lyfja
og áfengis, heilsugæslu á vinnu-
stöðum og fræðslustörf fyrir
almenning. Sennilega er þetta sú
útfærsla á starfssviði hjúkrunar-
fræðinga, sem þjóðfélagið þarf nú
mest á að halda. Að óreyndu
verður því vart trúað, að slíkri
útfærslu á starfssviði hjúkrunar-
fræðinga yrði „mætt með hörku af
félögum Hjúkrunarfélags
íslands".
Nemalaun og níu mánaða
starfsreynsla
Að lokum vil ég víkja að þeim
þætti í dómsorði Kjaradóms, er
var kveikjan að fyrri grein rninni
og verður endurtekinn hér: Hvers-
vegna fjallaði Kjaradómur ekki
um laun hjúkrunarfræðinga BS.
Fyrstu starfsmánuði þeirra?
Hvað eru þessir einstaklingar að
mati Kjaradóms þessa níu mánuði
— eru þeir hjúkrunarfræðinemar
eða eru þeir hjúkrunaríræðingar?
Hvernig á stjórn námsbrautar í
hjúkrunarfræði við Háskóla
Islands, sem ábyrgð ber á þessu
námi, að líta á þennan úrskurð?
Spurning mín stendur enn og
henni er ósvarað.
II.
Og enn mætti spyrja: Eru
nokkrir íbúar lands okkar, sem
beinlínis hafa orðið að líða og
þjást vegna jólanna eða réttara
sagt, vegna undirbúnings þeirra?
Já, svo er víst ef haft er í huga,
að fleiri eru íbúar lands okkar en
mannfólkið. Er ég þar sammála
Rósu B. Blöndals, (Sjá Morgunbl.
22. des. sl.), sem hvetur húsmæður
til að kaupa ekki rjúpur í jólamat,
vegna þess að rjúpur eru ekki
drepnar á hreinlegan hátt, því
fjöldi þeirra deyr af sárum eftir
skotárásir veiðimanna og verða
langvinnar dauðaþjáningar
þessara særðu fugla engum til
gagns.
Vil ég ekki leggja að jöfnu
drápsaðferðir þær, sem notaðar
eru við rjúpnaveiðar og slátrun
búfjár, sem fer fram undir eftirliti
og dýrunum að þjáningalausu,
þótt Björn Leví Birgisson, (Sjá
Morgunbl. 23. des. sl.) vilji ekki
gera greinarmun á þessum ólíku
aðferðum og segist ekki sjá mun á
„rjúpna- eða lambablóðbaðinu"
Því aðeins geta jólin orðið öllum
sannkölluð friðar- og gleðihátíð,
að engin lífvera, þótt á fjöllum búi,
hafi þurft að líða langvinnar
þjáningar að þarflausu, vegna
drápsgleði veiðimanna, þótt jólin
séu þá höfð sem skálkaskjól.
Vildi ég skora á valdhafa að
alfriða rjúpuna, svo að þessi vetur
verði sá síðasti sem rjúpur eru
veiddar, og þessi nýliðnu jól þau
síðustu, þar sem rjúpnakjöt er á
jólaborðinu.
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RIKISSJOÐS: Kaupgengi Yfirgengi
pr. kr. 100- miðað við innlausnar- verð Seöla- bankans.
1968 1. flokkur 2842,40 56,3%
1968 2. flokkur 2673,77 55,5%
1969 1. flokkur 1989,06 55,2%
1970 1. flokkur 1826,74 21,0%
1970 2. flokkur 1324,63 54,2%
1971 1. flokkur 1243,33 20,4%
1972 1. flokkur 1083,65 53,7%
1972 2. flokkur 927,47 20,4%
1973 1. flokkur A 704,73 20.1%
1973 2. flokkur 649,41
1974 1. flokkur 451,11
1975 1. flokkur 368,82
1975 2. flokkur 281,47
1976 1. flokkur 266,97
1976 2. flokkur 216,79
1977 1. flokkur 201,35
1977 2. flokkur 168,66
1978 1. flokkur 137,46
1978 2. flokkur 108,49
VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 77—79
2 ár Nafnvextir: 26% 68—70
3 ár Nafnvextir: 26% 62—64
*) Miðaö er við auöseljanlega tasteign.
HLUTABRÉF
Sjóvátryggingarfélag íslands HF. Sölutilboð óskast
x) Miðaö er við auðseljanlega fasteign
nánraTinGMPéAe íiumm hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaöarbankahúsinu).
Sími 2 05 80.
Opiö alla virka daga frá kl. 13—16.