Morgunblaðið - 06.01.1979, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 06.01.1979, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979 Borg mesti gullkáffurinn BjörK Bor>í frá Svíþjóð var sá trnnislcikari srm vann sér inn mesta fjárupphart fyrir tennisleik á árinu sem var að líða. Námu heildartekjur hans 213.6 miiljónum íslenskra króna. og eru þá ekki meðtald- ar allar þa-r tekjur sem hann hlýtur vejjna autjlýsinKastarf- semi á íþróttaviirum ok fleiri hlutum. Sá sem varð í iiðru sa“ti var Bandaríkjamaðurinn Jimmy Connors sem hafði 180.2 millj- ónir fslenskra króna. I>á kom Vitas Geruiaitis frá Banda- ríkjunum með 119 milljónir ísl. króna. Tekjur tennisleikara aukast ár írá ári og er samkeppni þeirra sem halda tennismótin mikil um að fá til sin aðal- stjörnurnar. Tekjuha-st tenniskvenna á síðasta ári var Martina Navra- tilova en hún er landflótta Tékki. Tekjur hennar námu 178 milljónum ísl. króna. Skúli Óskarsson íþróttamaður ársins SKÚLI Óskarsson lyftingamaður var kjörinn íþróttamaður ársins 1978 af íþróttafréttamönnum. Hlaut Skúli 67 atkvæði af 70 mögulegum. Bjarni Felixson formaður Samtaka íþróttafréttamanna lýsti kjöri íþróttamanns ársins og sagði meðal annars er hann afhenti Skúla verðlaunin. — Maður gerir sér varla grein fyrir því hvað titillinn „íþrótta- maður ársins" er mikils virði fyrr en maður hefur hlotið hann. — Nú vonast ég bara fastlega til að geta staðið mig vel á Evrópu- meistaramótinu í kraftlyftingum í mars í Stokkhólmi og gaman væri að geta slegið heimsmetið í hnébeygju á því móti, það munaði svo litlu hjá mér síðast. Það ætti að takast ef ég skrúfa frá vara- tanknum. Þá hjálpar það mér líka að ég er spíritisti og næ af þeim sökum meiri einbeitingu við þung- ar lyftur. Annars er hálferitt að ná árangri í íþróttum þegar maður þarf að vinna heila 10 tíma á dag og fara svo dauðlúinn á æfingar. Það er ekki mikill tími eftir fyrir áhugamálin sem eru bíóferðir og dansleikir, sagði Skúli hress í bragði að lokum. í HÓFINU í gærkveldi voru mættir allmargir sem hlotið höfðu titilinn íþróttamaður ársins, ásamt íþróttafólki sem var meðal 10 efstu að þessu sinnii Neðri röð frá Vi Hjalti Einarsson, Sigríður Sigurðardóttir, Skúli Óskarsson. Þórunn Alfreðsdóttir, Jón Sigurðsson. Efri röð frá Vi Guðni Kjartansson, Erlendur Valdimarsson. Jón Þ. ólafsson. Hreinn Halldórsson, Guðmundur Hermannsson, óskar Jakobsson, og Gústaf Agnarsson. Skúli sem er vel að titlinum kominn lét þau orð falla er hann tók við hinum glæsilega verð- launagrip að hann væri ansi þungur, en fallegri en falleg kona. - þr. Aðrir íþróttamenn, sem hlutu stig: Ragnar Ólafsson (golf), Þor- steinn Bjarnason (knattsp. & körfukn.) 7 stig. Bjarni Friðriksson (judo) 6 íþróttamaður ársins 1978 er Skúli Óskarsson, lyftingamaður. Hann hlaut 67 stig af 70 möguleg- um í þessu kjöri. Skúli er vel að þessu sæmdarheiti kominn. Hann vann silfurverðlaun á heimsmeist- aramótinu í kraftlyftingum í Finnlandi í haust og hann vann einnig silfurverðlaun í Evrópu- meistaramótinu á Englandi í vor. Skúli er þrítugur að aldri, fæddur og uppalinn á Fáskrúðsfirði, og hann hefur alltaf haldið tryggð við sínar æskustöðvar og keppt undir merki Ungmenna- og íþróttasam- bands Austurlands, þótt hann hafi um langt skeið haft búsetu í Reykjavík. Skúli hóf að iðka lyftingar fyrir 10 árum og hann hefur tekið stórstígum framförum á hverju ári síðan, enda hefur hann stundað íþrótt sína af sérstakri alúð. Það verður vart komið tölu á öll þau Islandsmet, sem Skúli hefur sett á ferli sínum til þessa, og þau eiga áreiðanlega eftir að verða fleiri. Hins vegar er það víst að hann hefur sett 15 Norðurlandamet. Sérgrein Skúla er kraftlyftingar, sem hann hefur einkum stundað nú síðari árin, og í þessari grein hefur hann náð mestum frama og frægð, en hann á enn Islandsmet í Olympískum lyftingum. Skúli hefur mjög fátið að sér kveða á alþjóðlegum mótum í kraftlyftingum á síðustu árum og hann vann bronsverðlaun á heims- meistaramótinu árið 1974, en stærstu afrek sín vann hann á s.l. ári, þegar hann vann silfurverð- laun á heimsmeistaramótinu og silfurverðlaun á Evrópumeistara- mótinu. A heimsmeistaramótinu reyndi Skúli við nýtt heimsmet, en vantaði aðeins herslumuninn til að setja metið. En heimsmetið er innan seilingar og kannske nær Skúli því á Evrópumeistaramótinu í vetur. Skúli er sannur íþrótta- maður. Hann hefur lagt mikla rækt við íþrótt sína og hann er skemmtilegur keppnismaður, sem hefur unnið hylli áhorfenda bæði innanlands sem utan. Hann er kappsfullur, ákafur og fylginn sér, en hann er samur og jafn í meðbyr sem mótbyr. Hann er drengur góður. AIls hlutu 24 íþróttamenn at- kvæði í kosningunni að þessu sinni. Efstu sætin skipuðu eftir- taldir íþróttamenn: Stig. 1. Skúli Óskarsson, lyftingamaður 67 2. Óskar Jakobsson, frjálsíþróttamaður 48 3. Hreinn Halldórsson frjálsíþróttamaður 48 4. Jón Diðriksson, frjálsíþróttamaður 37 5. Sigurður Jónsson, skíðamaður 35 6. Pétur Pétursson, knattspyrnumaður 25 7. -8. Jón Sigurðsson, körfuknattleiksmaður 22 7.-8. Karl Þórðarson, knattspyrnumaður 22 9. Vilmundur Vilhjálmsson, frjálsíþróttamaður 21 10. —11. Gústaf Agnarsson, lyftingamaður 10 10.—11. Þórunn Alfreðsdóttir, sundmaður 10 Þorbjörn Guðmundsson (Handkn. 1) 4 Árni Indriðason 3 Jóhann Kjartansson (badminton), Ingi Björn Albertsson (knattsp.) Sigurður T. Sigurðsson (fimleik- ar), Axel Axelsson (handkn. 1.) 2 stig. Ásgeir Sigurvinsson (knattsp.), Gunnar Einarsson (markv. í handkn. 1.), Hugi Harðarson (sund), Sigurður Haraldsson (knattsp. og badminton) 1 stig. Að lokinni ræðu Bjarna og afhendingu verðlauna en þau sem urðu í 10 efstu sætunum fengu öll áritaða bókina Sjömeistarasagan eftir Laxness, tók til máls Ásgeir Gunnarsson framkvæmdastjóri Veltis HF og Volvo á íslandi. Óskaði hann íþróttafólkinu til hamingju og tilkynnti að Volvo byði Skúla til einhvers hinna Norðurlandanna er íþróttamenn ársins verða heiðraðir á Norður- löndunum, og valinn íþróttamaður Norðurlanda. Örn Eiðsson formaður FRÍ tók einnig til máls og óskaði sveitungi sínum til hamingju með titilinn og sagði það vera sér ánægjuefni að íþróttamaður frá Fáskrúðsfirði hefði fengið titilinn. -þr. • Skúli óskarsson horfir aðdáunaraugum á hinn veglega farandgrip sem fylgt hefur kjöri íþróttamanns ársins frá upphafi. Ansi er hann þung- ur, en hann er fal- legri en falleg kona — sagði Skúli er hann tók við verðlaunagripnum. ÞAÐ GREIP mig nákvæmlega sama tilfinning þegar ég gekk upp til að taka við verðlaunagripnum og grípur mig þegar ég er að lyfta og tekst best upp. Það fór straumur um mig allan og mér leið óskaplega vel, sagði Skúli óskarsson íþróttamaður ársins 1978 í viðtali við Mbl. í gær. — Það kom mér verulega á óvart að vera kosinn, en ég er mjög glaður yfir því. Þetta er mikil hvatning fyrir mig. Og sérstaklega er ég glaður yfir þessari útnefn- ingu fyrir hönd ÚÍA, þetta verður hvatning fyrir allt þeirra efnilega íþróttafólk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.