Morgunblaðið - 21.01.1979, Side 2

Morgunblaðið - 21.01.1979, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1979 * Utsvar og verðbólga: Hlutfallið er svipað og áður VERÐBÓLGA hofur oft verih meiri á milli ára en nú er útiit fyrir án þess að tii hækkunar útsvara hafi komið. en auk þess hafa nú verið hækkaðir fasteignaskattar oií aðstöðugjiild maricfiilduð. sagði Árni Árnason rekstrarhatffræðinKur hjá Verslunarráði Islands í samtali við Morjfunhiaðið í xær. Arni hefur að heiðni ýmissa sveitarstjórnarmanna kannað þaæ fullyrðinKar sem settar hafa verið fram að aukin vcrðbólga Keri það nauðsyniest að hækka álaKninKu útsvars úr 11 í 12 af húndraði. Arni satíði að sá rökstuðningur Árni kvaðst ekki vita hvað nú væri alveK réttur að álatít útsvar kæmi til að sveitarfélag eins og rýrnaði í verðbólgu, svo langt seni sá rökstuðningur næði. Ef menn væru hins vegar að miða við árin 1971 eða 1972, þá hefði margt annað breyst síðan þá. Til dæmis hefði kaupmáttur tekna sveitarfélaganna. aukist síðan þá, hínar raunverulegu ráðstöfunar- tekjur væru nú meiri en þá var. Innheimta gjaldanna væri nú örari en áður, en sveitarfélögin með svipaða starfsemi á sínum vegum og var þegar tekjustofnalögin voru samþykkt. Þessi örari innheimta og aukni kaupmáttur teknanna ætti því að vega upp þá rýrnun sem verð- bólgunni nemur, þannig að ekki ætti að vera þörf hærra útsvars. Sé hins vegar viíji til að fylgja kaupmáttar- aukningunni, fylgja sem sagt tekju- hækkun og auka þjónustuna sam- svarandi, þá þurfi að hækka útsvar- ið. Reykjavík þyrfti allt í einu að fara að pina alla sína teþjustofna upp í hámark, og jafnvel að fá tekjuhækk- un umfram það sem lög heimila nú. Að lokum sagði Árni, að þegar lögin um tekjustofna sveitarfélaga voru samþykkt hinn 22. mar/. 1972, þá hafi aðalreglan verið um lO'/r útvar, og miðað við verðbólguna 1973 og þær innheimtureglur sem þá voru, þá hafi útsvar verið 8,2% af tekjum fyrra árs, miðað við verðlag ársins 1972. Hins vegar miðað við 12% útsvar í ár og 75%, af innheimtu f.vrirfram, þá væri hlut- fallið 8,7% af tekjum. Innheimtan nú væri því meiri en var áður en sú óðaverðbólga sem nú er við lýði tók að geisa. Yrði útsvarsprósentan hins vegar 11% áfram eins og nú er yrði innheimtuhlutfallið svipað og það var 1973 miðað við tekjur árið 1972, eða um 8% . Kjartan Jóhannsson: Eðlilegast að gerð fjár- festingaáætlana sé i höndum þjóðhagsstofnun- ar og fjármálaráðuneytis „MÍN PERSÓNULEGA skoðun er sú að það sé að ýmsu leyti eðlilegast að gerð fjárfestingaráætlana sé í höndum Þjóðhagsstofnunar og fjár- málaráðuneytisins." sagði Kjartan Jóhannsson varaformaður Alþýðu- flokksins. er Mbl. spurði hann í gær. hvar Alþýðuflokkurinn vildi hafa gerð fjárfestingaráætlana. en í efnahagsmálatillögum Framsókn- arflokksins er lagt til að hún verði hjá f jármálaráðunevtinu. en í Bil stolið í Hveragerði IJÍL af g(>rðinni Chevrolet Malihu \-228l var stolið frá lleiðarhrún I í Ilveragerði aðfararnótt laugardags. en hann er af árgerð- inni 1971. Að sögn logreglunnar var unnið að rannsókn málsins og hafði híllinn ekki fundist laust eftir hádegið í gær. Hins vegar fannst í llveragerði híll er stolið hafði verið í Reykjavík aðfararnótt iaugardagsins og var verið að rannsaka hvort um einhver tengsl gæti verið að ræða þar á milli. tillögum Alþýðuhandalagsins að sérstök deild f’ramkvæmdastofnun- ar ríkisins annist verkið. Kjartan sagði að þetta mál hefði ekki verið rætt innan Aiþýðuflokks- ins þannig að flokkurinn hefði ekki ákveðna afstöðu til þess, hvar verkið yrði unnið. „En í okkar augum skiptir formið ekki meginmáli held- ur hitt að undirbúningur verði góður og eftirlitið með framkvæmdinni sömuleiðis," sagði Kjartan. Varðandj frétt Mbl. í gær um að nefnd stjórnarflokkanna hefði ein- róma mælt með því að deild við Framkvæmdastofnun ríkisins yrði falin gerð fjárfestingaráætlana sagði Kjartan að í greinargerð nefndarinnar hefði komiö fram fyrirvari um það að nefndarmenn væru ekki á eitt sáttir með þetta atriði. Leiðrétting I>A11 mistiik urðu við birtingu greinar Birgis Isl. Gunnarssonar í Morgunhlaðinu í gær um áliigur vinstri meirihlutans í Reykjavík. að hluti greinarinnar féll niður. Greinin mun því birtast í Heild á þriðjudag. hjarlan I \3 Horvaldur («arðar Matthías A. Pétur KKKúrt Ellert B' Þióðin var blekkt — snúum vörn í sókn Fundir Sjálfstæðisflokksins í dag: Búðardalur, Blöndu- ós og Bíldudalur „I>JÓÐIN var blekkt — snúum vörn í sókn" er yfirskrift þriggja funda er Sjálfstæðis- flokkurinn boðar til í dag. sunnudag. í Búðardal. á Bíldu- dal og á Blönduósi. Fundirnir eru öllum opnir og að loknum ræðum framsögumanna verða almennar umra'ður og fyrir- spurnir. Búðardalur F’undurinn í Búðardal verður haldinn í Dalabúð og hefst hann klukkan 14 í dag. Ræðumenn á fundinum verða þeir Kjartan Gunnarsson lög- fræðingur og 'Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingismaður. Bíldudalur Matthías Á. Mathiesen al- þingismaður og Pétur Sigurðs- son fyrrverandi alþingismaður verða ræðumenn á fundinum á Bíldudal. Fundurinn verður í félags- heimilinu Baldurshaga og hefst hann klukkan 14. Bliinduós Fundurinn á Blönduósi hefst klukkan 14 í dag í Félagsheimil- inu. Ræðumenn verða þeir Egg- ert Haukdal alþingismaður og Ellert B. Schram alþingismaður. Flytja létt lög að Hótel Loftleiðum BANDARÍSKUR kór frá Coe College í Iowa verður staddur hér á landi um helgina. Kórfélagar eru 52 en 17 manna hópur mun koma fram á Ilótel Loftleiðum (í Blómasal) á morgun. mánudag kl. 21. Hópur þessi mun flytja ýmis létt lög m.a. úr „Grease“, „Annie“ og „I love My Wife“ og fleiri söngleikj- um og kvikmyndum. Stjórnandi 17 manna hópsins er Richard P. Hoffman. Tæplega helmingur þessa hóps eru hljóðfæraleikarar óg hafa þau meðferðis m.a. elektrónískt píanó en leika enn- fremur á önnur strengjahljóðfæri, blásturshljóðfæri o.fl. Fyrirlestur um hagræðingu í op- inberum rekstri SÆNSKI stjórnunarfræðingurinn Peter Gorpe, sem er ráðgjafi Hagsýslustofnunar sænska ríkis- ins og er höfundur bókarinnar MODERNE ADMINISTRATION, en sú bók hefur komið út í islenzkri þýðingu, mun halda fyrirlestur á veguni Viðskipta- deildar Háskóla íslands og Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga mánudaginn 22. janúar kl. 20.30 í stofu 102 í Lögbergi. Fyrirlestur- inn mun fjalla um hagræðingu í opinberum rekstri og verður flutt- ur á ensku. íslenzkur ballettflokkur sýnir í fyrsta sinn erlendis Islenzki dansflokkurinn fer um helgina í sýningarferð til Noregs og Svíþjóðar ásamt hljómsveitinni Þursaflokknum og sýnir þar ís- len/.ka balletta eftir Ingibjörgu Bjiirnsdóttur. Ballettflokkurinn hefur fengið styrk frá Norrænu leiklistarneíndinni til fararinnar og verður þetta í fyrsta sinn sem íslen/.kur dansflokkur sýnir erlend- Fyrstu sýningar verða á Södra Teatern í Stokkhólmi á mánudags- og þriðjudagskvöld en síðar mun flokkurinn sýna í Gautaborg og Osló. Meginuppistaða sýningarinnar er balletttinn Sæmundur Klemensson sem Ingibjörg Björnsdóttir samdi við tónlist Þursaflokksins og hefur verið sýndur í Þjóðleikhúsinu s.l. haust. Þá hefur Ingibjörg samið 2 stutta balletta í tilefni ferðarinnar, einnig við tónlist Þursaflokksins og nefnast þeir „Hættu að gréta hringáná" og „í Gálgahrauni". 10 dansarar taka þátt í sýning- unni: Ásdís Magnúsdóttir, Birgitta Heide, Helga Bernhard, Guðrún Páisdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Orn Guðmundsson, Ólafur Ólafsson og Björn Sveinsson. íslenzki dansflokkurinn hefur nú starfað í á 6. ár, í tengslum við Þjóðleikhúsið og sýnt fjölda leiksýn- ingum og óperu- og óperettusýning- um hússins. Þursaflokkurinn flytur alla tón- listina í sýningunni en í flokknum eru: Egill Ólafsson, Karl Sighvats- son, Þórður Árnason, Tómas Tómas- son og Ásgeir Óskarsson. Bandarískir hljómlistar- menn i Norræna húsinu Nýja postulakirkjan með starfsmann hér NÝJA postulakirkjan. The New Apostilic Church. hefur fengið fastan starfsmann á íslandi. Er það Lcnnart Hedin og mun hann annast vikulegar guðsþjónustur á sunnudögum kl. 15i30 að Strandgiitu 28 í Hafnarfirði og verður hin fyrsta í dag. Lennart Iledin hefur þrívegis áður dvalið hérlendis. en hann er Svíi og heíur verið búsettur í Kanada sl. 20 ár. Nýja postulakirkjan var stofnuð 1830 og sagði Lennart Iledin í samtali við Mbl. að líta mætti á hana sem beint framhald af starfi postulanna. — Þar sem ég er eini starfs- Þá munum við reyna að fá hingað Lennart lledin. Ljúsm. Emilía. maður Nýju postulakirkjunnar hér á landi og sinni því starfi í sjálfboðavinnu verður e.t.v. ekki tnjög margt á dagskrá í fyrstunni, en ég hyggst reyna að ná sam- bandi við fólk sent ég hefi rætt við áður á ferðunt ntínunt hérlendis auk hinna reglulegu guðsþjónusta. heimsóknir starfsnianna kirkj- unnar þegar þeir eru á ferð t.d. ntilli Evrópu og Anteríku, en kirkjan starfar í unt 75 löndunt. Auk þessa ntun ég reyna að fá fólk heint til ntín vilji það ræða um trúmál við ntig, en ég bý að Ölduslóð 28. TYEIR ungir bandarískir lista- menn halda hljómleika í Norræna húsinu í Roykjavík í dag. sunnu- daginn 21. janúar kl. 20.30. Ronald Neal fiðluleikari er prófessor og forntaður strengja- deildar við Southern Methodist University í Dallas í Texas. llann hefur haldið hljómleika í ntörgum helstu borgunt Bandaríkjanna, farið í hljótnleikaferðir til Suð- ur-Anteríku og leikið inn á hljónt- plötur. Hann stundaði nánt við Eastman tónlistarháskóiann og við Juilliard í New York. Kennarar hans voru Carroll Glenn og Ivan Galamian. Brady Millican fæddist í Texas og hóf píanónánt 8 ára gantall. Kennarar hans hafa verið Eugen List, en með honunt hefur hann leikið inn á hljóniplötur, Leon Fleisher og Jörg Dentus. Millican hefur stundað nánt við Eastman tónlistarháskólann, Royal College of Musie og New England Conservatory. Sent stend- ur vinnur hann að doktorsritgerð við háskólann í Boston. Hann hefur ferðast víða unt Bandaríkin og Plngland sem einleikari-og með kammertónlist. Á efnisskrá tónleikanna verða sónötur eftir Brahnts, J.S. Bach, (’hopin og César Frank. Ronald Neal fiðluleikari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.