Morgunblaðið - 21.01.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1979
15
hamskipti, blaðamaðurinn breyt-
ist í fljúgandi járnkarl, sem herjar
á glæpalýð og þorpara borgarinn-
ar. Þannig kemst Súpermaðurinn í
kast við stórþorparann Lex Luthor
(Gene Haekman) og þý hans, sem
hefur aðsetur sitt undir yfirborði
borgarinnar og situr þar jafnan á
svikráðum við borgarana. Þarna
hefst hin ægilegasta barátta góðs
og ills sem ekki sér fyrir endann á
fremur en í raunveruleikanum.
* Flókin ástamál
Ástamál myndarinnar eru
býsna flókin og eiginlega kapítuli
út af fyrir sig. Blaðamaðurinn
hægláti, hann Clark Kent, vinnur
einatt með öðrum blaðamanni,
ungri og aðlaðandi stúlku að nafni
Lois Lane og er ekki laust við að
hann elski hana í laumi, þótt hann
hafi ekki uppburði í sér til að hafa
sig neitt í frammi í þeim efnum.
Lois Lane hefur þegar hér er
komið sögu verið falið að hafa uppi
á og fylgjast með þessum Súper-
manni, sem sýknt og heilagt eru að
berast fréttir af um alla borgina,
og með harðfylgi tekst henni að ná
fundum hans eða öllu heldur
Súpermaðurinn verður til að
bjarga lífi Lois Lane í þyrluslysj.
Er skemmst frá því að segja, að
Lois Lane fellur gjörsamlega fyrir
Súpermanninum svo að Clark
auminginn Kent kemst ekki einu
sinni að í huga hennar. Súper-
mann hins vegar lítur ekki við
þessari blaðskellandi blaðakonu,
svo að þarna er úr vöndu að ráða
sem kvikmyndagerðarmennirnir
eru auðvitað ekkert að draga
fjöður yfir. Reyndar er gefið í skyn
að þetta kunni einungis að vera
látalæti hjá ofurmenninu, og eiga
rætur sínar í líffræðilegri sam-
setningu hans, sem er víst eitthvað
öðru vísi en hjá venjulegu fólki og
þess vegna einhver áhöld um að
ofurmennið geti yfirleitt gagnast
blaðakonunni. Þetta vandamál
mun eitthvað skýrast í Súper-
manni II, sem er í burðarliðnum
rétt í þessu og væntanleg til
sýninga einhvern tíma á næsta ári
með öllum helztu sömu leikurun-
um og í hinni fyrri. Svo það er
bara að bíða og sjá.
Þótt þetta flókna mál sé óleyst í
Súpermannsmyndinni sem hér er
á dagskrá, þá munu kvikmynda-
gerðarmennirnir hafa greitt af
stakri snilld úr öðru erfiðu vanda-
máli — því hvernig átti að fá
Súpermanninn til að fljúga sem
eðlilegast. Kvikmyndin hefur
fengið mikið lof fyrir tæknibrellur
sínar á þessu sviði og þá ekki síður
Christopher Reeves, sá sem leikur
Súpermanninn, en hann á að hafa
sýnt einstaka atorku og harðfylgi
við töku þessara atriða, og slegið
við öllum staðgenglum sem yfir-
leitt eru notaðir í tilfellum sem
þessum. Útkoman er líka sögð vera
hrein listflugssýning. „Súper-
maðurinn flýgur ekki aðeins betur
og hraðar en nokkur fugl eða
flugvél heldur hefur hann uppi
slíka listflugstilburði að jafnvel
örninn myndi festa sætisólarnar,"
segir gagnrýnandi Time.
Brando. faður ofur-
barnssins og leiðtogi
deyjandi samfélags.
Útsalan
hefst á morgun
Kjólar — Dragtir — Blússur — Pils.
20—80% verölækkun. Dragtin,
Klapparstíg 37.
Æ' Æ-
Utsala — Utsala
Mikil verölækkun.
Glugginn Laugavegi 49.
Tilkynning frá
Bæjarfógetaembætt-
inu í Kópavogi
Frá og meö mánudeginum 22. janúar 1979 veröur
þinglýsingadeild embættisins opin frá kl.
10:00—13:00, mánudaga til föstudaga. Aöeins á
ofangreindum tíma veröur tekið á móti skjölum til
þinglýsingar. Aö ööru leyti veröur afgreiöslutími
embættisins óbreyttur.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.