Morgunblaðið - 10.02.1979, Page 16

Morgunblaðið - 10.02.1979, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRUAR 1979 Myndlist eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Lífí leir Nokkrir leirkerasmiðir hafa tekið sig saman og sett upp sýningu á sýnishorni vinnubragða sinna í FÍM-salnum við Laugar- nesveg. Ekki er þetta tæmandi yfirlit um stöðu listgreinarinnar á íslandi um þessar mundir, því að það vantar nokkra virka leir- kerasmiði í hópinn, m.a. Hauk Dór og Kolbrúnu Björgólfsdóttur. Hins vegar gefur sýningin allgóða hugmynd um vinnubrögð flestra sýnenda á listasviðinu og um leið staðfestir hún á uppörvandi hátt, að marktæk vinnubrögð á þessu sviði eru mjög í sókn á landinu. Til þess að fá rétta mynd af stöðu íslenzkrar leirkerasmíði þarf miklu umfangsmeiri sýningu og betri húsakynni — sýningin fer að vísu ágætlega í FIM-salnum, en annmarkar salarins eru til staðar og koma hér greinilega í ljós. Þó að sýningunni sé vel og hugvitssamlega fyrir komið, er verzlunarbragurinn enn ríkjandi, en kemur hér minna að sök, því að um listiðnað er að ræða. Það ætti að vera óþarft að tæpa á því enn einu sinni, að leirkera- smíð er jafn gömul menningunni, en gjarnan má árétta það, að fáar listgreinar hafa í jafn ríkum mæli orðið að þola léttvæga fjölda- framleiðslu og að fá lönd hafa verið jafn opin fyrir 'hvers konar skrani á þessu sviði og ísland. Það er því mjög þarft verk að kynna hið markverðasta, sem gert er á þessu sviði innanlands og slíkar sýningar þyrftu að vera árviss viðburður eins og Haust- sýningar myndlistarmanna. Mót- tökur þær, sem þessi sýning hefur fengið, staðfestir þessa skoðun. Leirkerasmíði er í eðli sínu skyldari skúlptúr en málverki, en þó er það til, er nefnist „keramík- málverk" og vinna ýmsir nútíma- listamenn á því sviði svo og í smeltitækni (emaleringu), bæði í gerð risastórra veggskreytinga og minni verka. Flestir sýnendanna sex í FÍM-salnum velja þá leið að beita blandaðri tækni — aðlaga nota- gildi hlutanna listrænum vinnu- brögðum. Þau hafa þannig yfir sér skreytisvip, — en vel á minnst, alvöru skreytisvip og í ýmsum tilvikum mjög markviss- an og snotran fyrir augað. Líkt og er með vefjarlistina þá er efniviðurinn í sjálfu sér í mörgum tilvikum hættulega fag- ur og auðvelt að ná þokkalegum árangri — en það er líka jafn erfitt að ná úrskerandi árangri á listasviðinu. Fegurstu hlutirnir, sem undirritaður minnist að hafa séð í leirkerasmíði, hafa þannig verið formið eitt — en það rýrir þó ekki gildi aragrúa annarra aðferða. Hlutir Elísabetar Ilaraldsdóttur. sem nú sýnir í fyrsta skipti hérlendis eftir langt nám heima og erlendis, eru t.d. formið eitt og auk þess einlitir. Þeir hafa yfir sér fágaða og formræna fegurð og hafa þannig séð mikið gildi í einfaldleika sínum. Hún kemur mest á óvart á þessari sýningu og haslar sér umsvifalaust völl með okkar traustasta fagfólki á listasviðinu. Þetta er sú hreinasta leirkera- smíð (keramík), sem ég hef séð hérlendis um langt skeið, og hvers konar tilraunir til skreytinga þessara forma mundu vísast jaðra við guðlast. Hér staðnæmdist ég sérstaklega við hluti eins og nr. 19 „Egglaga form“ — 20 „Kúluform" og 24 „Kaffisett". — Það er jafnan gleðilegt, þegar að nýr einstakl- ingur kveður sér hljóðs á jafn sannfærandi hátt. Jónína Guðnadóttir virðist vera á miklu breytingaskeiði, hún á fjölbreyttasta framlagið og það sópar af þessu framlagi hennar. Helst ætti hún þó að vara sig á léttfengum fingraæfingum. Vegg- relief hennar eru mörg mjög skemmtileg, einkum myndirnar „Mónó“ (38) og „Hreiður" (40). Af skálunum þótti mér nr. 46 bera af. Gestur Þorgrímsson er mynd- höggvarinn í hópnum, og er það meir en auðséð, — vasi hans nr. 74 er í fullkomnu formrænu jafn- vægi og einföld skreytingin hittir í mark. Skúlptúr hans „Rauð jörð“ (81) hefur yfir sér persónu- leg einkenni. Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna) er án efa þekktasti og vinsælasti þátttakandinn í þessum hópi. Myndir hennar ganga út líkast rjómabollum, og er það vel, því þær eru listrænar og skemmtileg- ar og því góð eign. Hinar þokka- fullu línur hennar njóta sín til fulls í mynd nr. 47, „Línur". I sumum myndanna á sýningunni virðist hún hugsa í málverki og hér þótti mér myndin „Rökkur" (72) einna áhugaverðust. Samvinna Gests og Rúnu tekst oft vel, t.d«jÁ vösum nr. 56 og 57, en á stundum virðist mér árangur- inn full dekoratívur, t.d. í mynd- unum nr. 62, 63 og 64. Steinunn Marteinsdóttir fer eigin leiðir í útfærslu hluta sinna og ferst það misjafnlega úr hendi. Máski hefðu hlutir hennar þurft litsterkari bakgrunn til að njóta sín. Þóttu mér hlutir svo sem nr. 5 „Mynd“ og vasarnir nr. 7 og 8 bera af framlagi hennar. Guðný Magnúsdóttir á mikinn fjölda hluta á sýningunni, en hún virðist ómótaðri en aðrir þátttak- endur og þyrfti nauðsynlega að hleypa heimdraganum — nógir eru hæfileikarnir og vinnuviljinn. Hlutir hennar nr. 89 og 90 bera af öllu, sem hún á á sýningunni sakir formræns einfaldleika. Ágallar á sýningunni í heild eru of margir hlutir í takmörkuðu húsnæði og þeim dreift óþarflega mikið. Þurfa gestirnir þannig að hlaupa fram og til baka til að gera samanburð á verkum einstakra þátttakenda. Óhætt er að slá því föstu, að þetta sé „fallegasta sýningin", sem sett hefur verið upp í FÍM-salnum til þessa og ættu sem flestir að leggja leið sína þangað fyrir sunnudagskvöld, er sýning- unni lýkur. Ekki varð af spjalli við Sigurjón Fjeldsted skólastjóra á skólaráðstefnu sjálfstæðis- manna um helgina. en þar var hann einn af framsögumönn- um. Því var rennt við hjá hnnum í Hólabrekkuskóla á fimmtudag og rabbað við hann milli símtala og erindisrekst- urs af ýmsu tagi, enda þar rekinn 1000 nemenda grunn- skóli. Svar skólastjóra við fyrirspurn húsvarðar um hvar mætti láta fyrirfcrðarmikið dót, á þá lund að þvi mætti hrúga yfir kvöldið inn í skóla- stjóraskrifstofuna, fæddi af sér fyrstu spurninguna um það, hvað um væri að vera í skólan- um. Það kom í ljós, að þetta kvöld væru nemendur með opið hús í skólanum, en það gera þeir hálfsmánaðarlega. Þá er alltaf yfirfullt, sagði Sigurjón, og auðvitað verður að snúa öllu við hér. Krakkarnir frá árinu áður hafa líka komið og fengið að vera með, ef þau fylgja settum reglum. Okkur finnst hagnaður af því að hafa samband við þau. En gætum auðvitað lent í vand- ræðum með þetta, ef þau verða of mörg. Ein bekkjardeild sér um hvert kvöld. Krakkarnir mega dansa í salnum og í stof- unum er spilað og fleira þess háttar, jafnvel komið fyrir svampdýnum og slegist. Þetta hefur gengið mjög vel undanfar- in 2 ár og við höfum alveg sloppið við áfengi. Semjum á haustin við krakkana um að þau taki ábyrgð á slíku, og þau vita að þetta getur ekki gengið öðru- vísi en að þau sjái til þess að ekki sé áfengi. Krakkarnir sjá alveg um kvöldið sjálf og þau taká til eftir sig. Þegar þau þurfa aðstoð, leita þau til yfir- kennarans, Eðvalds Ragnars- sonar, sem þau eru í góðu sambandi við. Hann er í dag að vinna með þeim að undirbún- ingi. — Koma þá engir kennarar? — Jú, jú, en það þarf ekki að biðja neinn um það. Það koma alltaf fjölmargir kennarar. Þeir hafa gaman af því, og þeir hafa fundið að hagur er að því í kennslu að vera með krökkun- um, spila við þau og þess háttar. Sjálfum finnst mér skólinn vera staður, þar sem krakkarnir mega vera, og á að nýta sem mest. Þetta er vinnustaður þeirra, og þar mega þau vera. Við rekum þau til dæmis ekki út í frímínútum. Auðvitað sér meira á skólanum og gerist ýmislegt við meira álag. En þó að sjáist á og komi blettir, þá verður maður bara að hafa opin augu fyrir því að það hlýtur að gerast. Þetta leiðir talið að nýtni og nýtingu á fjármagni, bæði í byggingum og öðru sem skóla viðkemur, sem Sigurjón hafði fjallað um í erindi sínu. En skóli Sigurjóns er einmitt einn þeirra skóla i nýjasta hverfi borgar- innar, þar sem börnum fjölgaði örar en uppbyggingu skólans og skólahúsið er ekki fullbyggt. —■ Skólar þyrftu í rauninni að vera tilbúnir um leið og íbúar fara að flytja í ný hverfi, segir Sigurjón. Þarna er um annað tveggja að velja, annað hvört að auka fjárveitingar í nýbyggingar í nýju hverfunum eða þá, eins og raunar hefur verið gert, að hafa lausar kennslustofur. Hafa laus- ar kennslustofur til að taka toppana, meðan nemendur eru flestir. Kennarar hafa ekki á móti lausum kennslustofunum, sem eru ágætar. Þær mega gjarnan vera fyrstu 2—3 árin ef nauðsyn krefur, og byggja svo skólahúsið hratt, ef ekki er hægt að vinna upp halann sem orðinn er. En skóli verður að vera meðan börnin eru þarna. En til þess þarf að vera til mikið af lausum kennslustofum — og má ekki skera þær við nögl. Nýting á fjármagni því sem til er, kemur auðvitað þarna inn í. Hvað skólahúsið snertir, þá Viðtal við Sigurjón Fjeldsted, skólastjóra eru byggingarnar boðnar út og ég býst við að þannig sé verði haldið í lágmarki. En ég efast um að hönnunin þurfti að vera svona dýr eða réttara sagt, að þurfi að teikna hús, sem verða svona dýr í byggingu. Síðan þarf að nýta húsin betur og meira. — Sumir skólamenn hafa sagt að allt fjármagn fari í byggingarnar sjálfar, og lítið sé eftir til tækjakaupa? — Reykjavíkurborg sér held ég skólunum fyrir slíku á borð við það sem gengur og gerist. En ég held að mætti koma betra skipulagi á nýtinguna á því fjármagni, sem lagt er til. Skóli byrjar ekki með neinum ákveðn- um stofni kennslutækja. Maður verður að biðja um hvað eina sem oft er veitt en stundum ekki. Sumir fá og aðrir ekki og það veldur samanburði. Ég held að betra væri að skólastjórinn vissi hvað hann má kaupa. Að hann megi til dæmis kaupa fyrir ákveðna upphæð á ári eða ekk- ert. Og ég held að koma mætti við meiri nýtni. Til dæmis vant- aði hér rafmagnsritvél og þar sem ég nefndi það í annarri stórri borgarstofnun, sem hefur miklu meira álag á slíkum tækj- um og þarf því að endurnýja, þá gat ég fengið gamla ritvél, sem ekki var hægt að nota þar lengur, en dugar mér. Sum af þessum tækjum eru dýr, svo sem ljósritunartæki, sem spara mikla vinnu við fjölritun. Tækin sjálf eru dýr, en það má nota venjulegan pappír, sem er ódýr: Þá þarf ekki að skrifa á stensla og fjölrita nema þegar dreifa á einhverju í miklu magni, á allan hópinn. — En stjórnunarþátturinn? — Skólar, hvort sem þeir eru stórir eða smáir, hafa sama mannafla við stjórnun, það er skólastjóra, yfirkennara og stúlku sem svarar í síma og vélritar. Við erum hér með 1000 manna skóla Skólastjóri og yfir- kennari hafa líka kennslu- skyldu, og þannig háttar enn hjá okkur, að við erum með 200 nemendur 9. bekkjar úti í fjöl- brautaskóla, þar sem hvorki er skólastjóri né yfirkennari, og sex lausar kennslustofur. Við hlaupum á milli. Á því verður þó væntanlega bót á næsta ári. Én mér finnst að skólastjóri eigi að vera meira en skrifstofustjóri. Hann ætti að geta skipt sér af kennslunni, fylgst með, gripið inn í og leiðbeint fólki. En við höfum hreinlega ekki tíma til að sinna kennslufræðilegum og uppeldisfræðilegum málum vegna skrifstofustarfa. Skrif- stofa skóla ætti að vera sérmál, þar sem fulltrúi skólastjóra sæi um þetta. Þá mætti, ef vill, bæta meiri kennslu á yfirkennara og skólastjóra. — Varðandi 9. bekk, þá varst þú að velta fyrir þér hvort heppilegra kynni að vera að reka sérstaka skóla einvörðungu fyrir 9. deildir, svo að náms- framboð nemenda yrði alls stað- ar í borginni svipað við skyldu- námsskólana? — Ef við hér í Hólabrekku- skóla eigum að taka minnst 330 nemendur í 9. bekk úr öllum þremur hverfum Breiðholts, þá verða það 11 bekkjardeildir. Þá tekur það svo mikla vinnu, að ég var að velta fyrir mér hvort rétt væri að hafa fyrir það sérstaka skóla. Það er þó ekki það sem ég tel æskilegast. Best er að hver skóli hafi sinn 9. bekk. En gömlu skólarnir voru ekki byggðir fyr- ir það og þá verður að flytja milli hverfa. — Eitt enn. Þér finnst lítið hafa orðið úr verklega náminu? — Já, margir hafa lagt þunga áherslu á að verklegt nám verði aukið og sé til jafns við bóklegt. Ég varpaði fram þeirri spurn- ingu hvort þetta yrðu kannski aðeins orðin tóm um ókomna framtíð. Eða hvort ekki væri hægt að standa betur að því. Allt þetta tl virðist vera til þess eins að friða fólk, sem hefur áhuga á verklegu námi. Og ef á að demba verklega náminu í framhaldsskólunum sem er á fyrstu tveimur árum, á sveitar- félögin, þá ráða þau ekki við þetta dýrasta nám og það er þá til að drepa það aiveg. - E. Pá. Krakkarnir hafa á eigin vegum opið hús í skólanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.