Morgunblaðið - 10.02.1979, Side 17

Morgunblaðið - 10.02.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 17 Veður Lissabon London Los Angeles 17 rigning 5 skýjað 15 heið8kírt víða um heim Madríd Malaga 15 skýjaö (vantar) Mallorca 19 alskýjað Akureyri 1 skýjað Miami 19 heiðskírt Amsterdam 3 skýjað Moskva -11 skýjað Apena 15 skýjað New York 1 skýjað Barcelona 16 alskýjað Osló 1 sólskin Berlín 0 skýjað París 35 sólskin Brussel 7 skýjaö Reykjavík 1 alskýjað Chicago -10 úrkoma Rio De Janeiro 35 sólskin Frankfurt 4 skýjað Rómaborg 13 skýjað Genf 9 skýjaö Stokkhólmur -3 skýjaö Helsinki - snjókoma Tel Aviv (vantar) Jerúsaiem (vantar) Tókýó 11 heiðskírt Jóhannesarb. 21 skýjað Vancouver -13 skýjað Kaupmannah. 3 snjókoma Vínarborg 2 skýjað Þetta gerdist 10. febrúar 1976 — Ford forseti fyrirskipar rannsókn á mútum fyrirtækja erlendis. 1973 — Kissinger kemur til Hanoi i fyrstu heimsóknina eftir vopnahlé. 1971 — Átök milli stjórnarher- manna og skæruliða í Jórdaníu — Lon Nol, þjóðhöfðingi Kambódíu, fær heilablóðfall. 1962 — Rússar sleppa Francis Gary Powers í skiptum fyrir Rudolf Abel. 1960 — Krúsjeff fer í heimsókn til Indlands, Burma og Indónesíu. 1953 — Neguib hershöfðingi fær alræðisvald í Egyptalandi. 1947 — Rússar gera friðar- samning við Finna. 1943 — Áttundi her Breta sækir að iandamærum Túnis. 1939 — Japanir taka eyna Hainan, Kína. 1939 — Þjóðverjar sækja um inngöngu í Þjóðabandalagið. 1878 — Tíu ára stríði á Kúbu iýkur með E1 Zanjou-sáttmálan- um. 1846 — Her Goughs sigrar Síkha við Sobrahan, Indlandi. 1840 — Viktoría drottning giftist Albert prins. — Kanada sameinast. 1828 — Símon Bólivar fær völdin í Kólombíu. 1811/— Rússar taka Belgrad. 1763 — Bretar fá Kanada sam- kvæmt Parísar-friðnum. 1696 — Samsærið um að myrða Vilhjálm af Óraníu afhjúpað. Afmæli: Charles Lamb, brezkur rithöfundur (1775—1834) — Harold Macmillan, brezkur stjórnmálaleiðtogi (1894--) — Leontyne Price, bandarískur sópran (1927------) — Boris Pasternak, sovézkur rithöfund- ur (1890—1960) — Dimmy Durante, bandarískur gaman- ieikari (1893--). Andlát: Luca della Robbia, myndhöggvari, 1482 — Alexand- er Pushkin, rithöfundur, 1837 — Lister lávarður, skurðlæknir, 1912 — Pius páfi XI 1939. Innlent: Póstferðir hefjast 1872— Dómkirkjuhneysklið: síra Ásgrímur afhrópaður 1850 — Stöðufrumvarp til fyrstu umræðu 1870 — Söfnunarsjóður stofnaður 1888 — d. Jón Þor- kelsson þjóðskjalavörður 1924 — „Elliði sekkur vestur af Önd- verðarnesi 1962 — „Hans Sif“ ferst við Rifstanga 1968 — f. Guðm. J. Hlíðdal 1886 - Níels P. Sigurðsson 1926. Orð dagsins: Lygi er þrenns konar: lygi, haugalygi og hag- tölur — Benjamin Disraeli, brezkur stjórnmálaleiðtogi (1804-1881). Carter í lágmarki New York, 9. febrúar. AP. VINSÆLDIR Jimmy Carters forseta hafa nánast aldrei verið minni en nú vegna lélegrar frammistöðu stjórnar hans í kjölfar umrótsins í Iran og misheppnaðra tilrauna til þess að fá undirritaðan friðarsamn- ing í Miðausturlöndum sam- kvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar AP og NBC. Vinsældir Carters hafa minnkað um átta af hundraði síðan í desember og flestir þeirra sem hafa misst álit á forsetanum eru úr flokki demókrata. 28% söðgu að Carter ynni gott eða ágætt starf miðað við 36% í desember. Lægst hefur Carter komizt í skoðanakönnunum í júní 1978 þegar 17% voru ánægðir með hann og í ágúst þegar 26% voru ánægðir með hann, en þær niðurstöður eru ekki verulega ólíkar niðurstöðu könnunarinnar nú. 53% segja að hann standi sig aðeins sæmilega og 17% að hann standi sig illa miðað við 12% í síðustu könnun. Tveir af hundr- aði voru ekki vissir. Tito skildi ekki Belsrad, 8. febrúar. AP. TALSMAÐUR ríkisstjórnarinnar í Júgóslavíu vísaði fréttum sem birst hafa í vestrænum biöðum þess efnis að Tito Júgóslavíufor- seti væri skilinn við konu sína og giftur á nýjan leik alfarið á bug og sagði þær hreinan uppspuna. Talsmaðurinn sagði að greini- legt væri að andstæðingar Titos hefðu komið þessum kviksögum af stað til þess að draga athygli fólks frá stjórnmálastarfsemi hans og sverta mannorð hans. ERLENT Ali í Stiörnubíói STJÖRNUBÍÓ er farið að sýna myndina Múhammeð Ali, sá mesti, en í þeirri mynd leikur hnefaleikakappinn heimsfrægi sjálfan sig og fer á kostum. I myndinni er ferill hans rakinn, greint frá sigrum hans og ósigrum, og síðast en ekki sízt frá orðhákn- um, sem vakið hefur meiri aðdáun og um leið andúð en aðrir hnefa- leikakappar sögunnar. Auk Ali sjálfs koma ýmsir kunnir leikarar fram í myndinni, þar á meðal Ernest Borgnine, sem leikur þjálf- ara Ali og vin hans. Leikstjóri myndarinnar er Tom Gries. Tass ræðst á Korchnoi Höfðaborg. 8. febrúar. AP. Reuter. SOVÉZKA fréttastofan Tass sakaði í dag skákmeistarann Viktor Korchnoi um að hafa sýnt „siðferði- lega niðurlægingu“ með því að samþykkja að setjast að skákborði með „kynþáttahöturum“ í Suður-Afríku. Forseti suður-afríska skáksam- handsins, Leonard Reitstein, brást harkalega við þessum ásökunum og benti sovézka skáksambandinu á að gera hreint hjá sér áður en það réðist á suður-afríska skáksam- bandið. Reitstein sagði að suður-afríska skáksambandið hefði verið eitt fyrsta íþróttafélag landsins sem hefði bundið enda á alla kynþátta- aðgreiningu innan vébanda sinna. Hann sagði að samkvæmt nýjum lögum sambandsins væri öllum félögum þess bannað að gera sig seka um nokkuð það sem gæti flokkazt undir kynþáttastefnu. „Ég held að Viktor Korchnoi hafi sýnt siðferðilegan styrk með því að láta sér í léttu rúmi liggja allar árásir af pólitískum rótum með því að fallast svo fúslega á að koma hingað," sagði Reitstein. Korchnoi vill ekkert um málið segja en suður-afríska skáksam- bandið segir að hann hafi átt von á árás Tass þegar hann samþykkti að koma til Suður-Afríku. Korchnoi keppir á svokölluðu Oude Meester móti ásamt þremur öðrum stórmeisturum í Pretoria, Durban, Höfðaborg og Jóhannesar- borg. Mótið fer fram í maí. Tony Miles frá Bretlandi og Anatoly Lein, fyrrverandi sovézkur skákmeistari nú búsettur í Bandaríkjunum, verða meðal þátttakenda sem verða alls fjórir. Reynt er að fá þýzkan stórmeiát- ara til þess að taka einnig þátt í þessu móti. Afleiðingar vísitöluútreikninganna: Borgarsjóður þarf að greiða rúman milljarð kr. meo SYR MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því í gær, að nokkrar þjónustustofn- anir hins opinbera hefðu fengið heimild til þess að hækka þjón- ustu sína, en hækkanirnar voru allmiklu minni en stofnanirnar höfðu óskað eftir. Þannig fékk Póstur og sími aðeins 12% af 25%, Rafmagnsveita Reykjavíkur aðeins 15,5% af 38%, Hitaveita Reykjavíkur aðeins 15% af 20%, Strætisvagnar Reykjavíkur 20% af 50% og Landsvirkjun 12% af 35%. Morgunblaðið hafði í gær samband við stjórnendur þessara fyrirtækja og spurðist fyrir um afleiðingar þessar ákvarðana rfkisvaldsins. Jón Skúlason póst- og síma- málastjóri kvað sína stofnun hafa óskað eftir þessari hækkun í viðræðum, sem fram fóru við fjárveitinganefnd við þriðju um- ræðu fjárlaga, en þar hefði verið gert ráð fyrir slíkri hækkun tvisv- aV sinnum á árinu um 25% í hvort skipti, 1. febrúar og 1. ágúst og eru jöfnunargjald og frísímar þá með talin. Hefðu samgönguráðherra, fjármálaráðherra og formaður fjárveitinganefndar verið sam- jnála þessari hækkunarþörf. Um afleiðingar þess að fyrir- tækið fengi ekki nema 12% kvað Jón Skúlason erfitt að fullyrða. Fyrirtækið væri nú í taprekstri og á undanförnum tveimur árum kvað hann ýmislegt hafa verið gert til sparnaðar í fyrirtækinu. Símstöðvar hefðu verið lagðar niður og fækkað hefði verið um það bil um 100 ársverk. Hjá stofnuninni ynnu um 2 þúsund manns og væri því launakostnaður mikill, sem stöðugt hækkaði, en tekjurnar væru háðar gjaldskrá. Jón Skúlason kvað ákaflega erfitt að reka stofnun við slikar aðstæð- ur, sérstaklega þegar gjaldskrár- nefnd virðist ekki líta sömu aug- um á þarfir stofnunarinnar og sérfræðingur stofnunarinnar. I desember fékk Póstur og sími rekstrarfjárlán, sem lofað hafði verið að greitt yrði í aprílmánuði nú, en Jón sagði fyrirsjáanlegt, að vandséð væri hvernig unnt yrði að standa við það, ríkissjóður yrði í því að hlaupa undir bagga. Undanfarið hefur verið farið út í það að taka ekki með í stofn- gjöldum ýmislegan aukakostnað, sem því fylgir að setja upp síma. Hefur t.d. símtækið sjálft verið tekið út úr og er viðskiptavinunum nú selt tækið. Jafnframt býður síminn fólki uppgerð tæki, notuð, sem eru ódýrari. Með því kvað Jón Skúlason sparast fjárfestingu, þar sem fyrir bragðið þarf ekki eins mikið af nýjum tækjum. Örn Marinósson, skrifstofu- stjóri Landsvirkjunar, kvað ekki vera búið að reikna út, hvað þessi heimilaða hækkun þýddi fyrir fyrirtækið, en hann kvað það augljóst að svo mikill niðurskurð- ur á beiðni Landsvirkjunar, úr 35% í 12%, væri alvarlegur fyrir það. Tölurnar töluðu sínu máli. Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur, kvað mismun á hækkunarbeiðni fyrir- tækisins og heimilaðrar hækkun- ar þýða um 250 milljónir króna tekjutap fyrir fyrirtækið. Verður Reykjavíkurborg nú að greiða með fyrirtækinu rúmlega einn milljarð króna, en á fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 500 milljón króna útgjöldum borgarsjóðs, en 250 milljónir vegna skuldahala, sem skapazt hafði vegna tregðu á fargjaldahækkunum. Því kvað hann þetta vera orðna gífurlega mikla meðgjöf. Fari Reykvíkingur í strætisvagn greiðir hann helm- ing fargjaldsins um leið og hann stígur inn í vagninn, en afganginn greiðir hann í sköttum. Fari hins vegar utanbæjarmaður með strætisvagni, greiðir hann aðeins hálft fargjald. Utanbæjarmenn fá þó launahækkun ef fargjaldið hækkar. Eiríkur kvað keyra um þverbak, er verðlagsyfirvöld væru að skipta sér af fyrirtækjum í bullandi taprekstri og kvað hann þau ekki eiga að koma nálægt öðru en því sem teldist okur. Aðalsteinn Guðjonsen raf- magnsveitustjóri kvað Rafmagns- veitu Reykjavíkur hafa farið fram á 22% fyrir sig, en hefði fengið 10%, en Landsvirkjun hefði fengið 12%, en af því fær Rafmagnsveit- an 5,5% til viðbótar. Afleiðingarn- ar sagði hann vera þær, að til hliðar við 22% hækkunina fyrir Rafmagnsveituna hefði verið gert ráð fyrir lántöku, sem stillt var í hóf og nam einni milljón dollara eða um 320 milljónum króna. Með því móti hefði aðeins verið unnt að grynnka á skuldum fyrirtækisins, en þetta þýddi að þeir neyddust til að nota að fullu þá lántökuheimild sem væri inni í lánsfjáráætlun eða 2 milljónir dollara eða 640 milljónir króna á núverandi gengi. Eftir mun standa eigi að síður fjárskortur, sem nemur 200 milljónum króna. Enn kvað hann þó ekki hafa verið tekna ákvörðun um seinni hluta lánsins, þannig að í raun væri fjárskorturinn nú 520 milljónir króna. Aðalsteinn sagði að hækkunar- beiðninni hefði verið stillt eins mikið í hóf og frekast hefði verið kostúr, m.a. með því að taka milljón dollara lán. Því væri þessi synjun mjög sár samtímis þvi sem verið væri að knýja í gegn hækkun á verðjöfunargjaldi, þannig að þetta væri nánast tilflutningur á fé til Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða. í þriðja lagi kvað hann hafa verið hafnað tillögum um leiðréttingar á gjald- skrá, næstsíðasta áfanga í að móta hana eins og hún á að vera. Voru það allt lagfæringar, sem Aðalsteinn kvaðst telja til mikilla bóta bæði fyrir Rafmágnsveituna og fyrir notendur. Þessar breytingar voru tiltölu- leg lækkun á iðnaðartöxtum bæði til ljósa og smærri véla, sem jöfnuð var með svolítilli hækkun á heimilistaxta. Þessu var hafnað augljóslega vegna vísitölunnar. Einnig var hafnað tillögum sem voru til bóta, svo sem eins og að setja lágmarksgjald á lýsingar og smávélataxta á heimilum, þ.e.a.s. í bílskúrum, sumarbústöðum og hesthúsum, þar sem notkun er mjög lítil. Þá vildu þeir lækka iðnaðartaxta stærri fyrirtækja, breyta hlutfalli afls og orku, þannig að verðlauna þá, sem hafi lengri nýtingartíma. Þetta hafi verið lækkun til réttlætis og í þriðja lagi var hafnað hækkun mælaleigu, sem verið hefði úrelt. Loks var að hækka hitunartaxta örlítið meira en meðaltalið. Öllu þessu var hafnað. I Morgunblaðinu í gæt sagði Jóhannes Zoéga, hitaveitustjóri, að sú hækkun, sem Hitaveita Reykjavíkur hefði fengið, 15% í stað 20%, þýddi að fyrirtækið yrði að draga úr framkvæmdum og myndi það þýða að ekki yrði hægt að byggja nægilega hratt upp vatnsöflun og dreifingu í framtíð- inni. Fjárskortur Rafmagnsveitu Reykjavíkur nemur 520 milljónum kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.