Morgunblaðið - 10.02.1979, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.02.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 1 9 Fjölþœtt samstarf sveit- arfélaga á Suðurnesjum Samstarf sveitarfélaga é Suöur- nesjum mó rekja allt aftur til érsins 1946, en t>é var gerður samningur milli hreppanna 7 é Suðurnesjum um byggingu og rekstur sjúkrahúss fyrir Keflavíkurlæknis- héraö. Lengi vel var petta eina skipulagða samstarfið milli sveitarfélaganna. Það samstarf hefur aukist stig af stigi og í dag er pað með miklum blóma og hvergi é landinu hafa önnur byggöarlög néö svipuð- um érangri. Þetta samstarf hefur vakið verulega athygli sveitarstjórnarmanna um land allt og é pað litið sem æskilega fyrirmynd í samstarfi og hagræðingu. Hér é eftir verður litið é og gert grein fyrir pessum Þætti. Árið 1971 var formlega stofnuð Samstarfsnefnd sveitarfélaga é Suöurnesjum (S.S.S.). Hlutverk nefndar- innar var að ræða sameiginleg mél sveitar- félaganna og vinna að bættu samstarfi peirra í milli. Að stofnun nefndarinnar stóðu öll sveitarfélögin 7 é Suöurnesjum og kusu pau einn mann hvert í hana. Samtals töldu pau 1. desember é sl. éri um 12600 íbúa. Keflavík 6473, Njarðvík 1815, Grindavík 1779, Sandgerði 1104, Garður 804, Vogar 479 og Hafnir 141. Strax í byrjun snerust störf nefndarinnar um 3 höfuðmél, sorpeyöingu, dvalarheimili fyrir aldraða og hitaveitu, auk pess var skipzt é upplýsing- um um ýmis hagnýt mél svo sem gjald- skrér, innheimtu, élagningarreglur o.fl. Þróunin varð fljótlega sú, að mélefnum, sem snertu fleiri sveitarfélög en eitt, var vísaö til nefndarinnar til skoðunar og tillögugerðar. Fré 1974 komst sú skipan é, að í nefndinni éttu sæti framkvæmdastjór- ar sveitarfélaganna. Starfseminni er pannig héttað, að nefnd- in kemur saman til fundar einu sinni í ménuði eða oftar ef purfa pykir. Tekur hún Þé fyrir mél, sem vísað er til hennar fré sveitarstjórunum, eða einstakir nefndar- menn bera upp, og í einstaka tilfellum koma ti'l hennar mél fré félagssamtökum é Suðurnesjum. Nefndin afgreiöir mél Þann- ig, að Þau eru rædd og síðan send sveitarstjórnunum annað hvort til kynning- ar og umræðu éður en tillögur eru gerðar, eöa að geröar eru ékveönar tillögur til sveitarstjórnanna. Nefndin tekur aldrei endanlega ékvörðun ( neinu méli fyrr en ékvörðun sveitarstjórna liggur fyrir. Kerfi Það sem nefndin hefur unnið eftir virðist é stundum nokkuö Þungt, en Það tryggir aftur é móti að mjög stór hópur manna hefur fjallað um hvert mél og Það fengið rækilega skoðun. I mörgum tilfellum eru haldnir sameigin- legir fundir allra sveitarstjórnanna um sérstök mél til að öruggt sé aö ekki fari é milli méla um hvað er rætt og auðveldar Það ékvörðun sveitarstjórnanna. Fundar- gerðir eru fjölritaöar og sendar hverri sveitarstjórn og fær hver einstakur sveitar- stjórnarmaður eintak og eru fundargerð- irnar é dagskré hverrar sveitarstjórnar. Sé héttur hefur verið hafður é for- mennsku í nefndinni að érlega er skipt um formann og hafa fulltrúar allra sveitarfélag- anna gegnt formennsku og byrjaður annar hringur. Kóstnaður við nefndina hefur ekki verið mikill, einkum auglýsingar vegna sérstakra verkefna, húsaleiga vegna funda o.s.frv. Fyrst í stað bar hvert sveitarfélag, sem hafði formanninn, kostnaðinn, en é seinni érum hefir honum verið skipt é sveitarfélögin, en mestur érlegur kostnaö- ur hefur verið 300 Þúsund krónur. Hér é eftir veröur gerð grein fyrir stærstu verkefnum nefndarinnar én Þess að um tæmandi upptalningu sé að ræða heldur frekar til upplýsingar um hvernig hún vinnur. Tekið skal fram, að paö er héð sampykki hverrar sveitarstjórnar hvort hún tekur Þétt í Þeim verkefnum, sem unnið er að, og í ýmsum tilvikum hafa Þær kosið að standa utan við eins og fram kemur síðar. HITAVEITA SUÐURNESJA Stærsta verkefnið sem samstarfsnefndin hefur fengist viö er Hitaveita Suðurnesja. Eftir að tilraunaboranir höfðu farið fram é Svartsengi é vegum Grindavíkur og gefið góða raun, kom mélið til kasta nefndarinn- ar og var henni faliö af sveitarstjórnunum aö vinna að framgangi Þess. Samstarfsnefndin vann síðan að frumathugun, réð verkfræðistofu til könnunar og éætlanagerðar, étti viðræður við stjórnvöld, landeigendur og aöra aöila. Nefndin samdi síðan í samvinnu við iönaðarráðuneytiö frumvarp að lögum fyrir H.S. Eftir að stjórn hafði verið kosin fyrir H.S. lauk beinum afskiptum nefndarinnar sem slíkrar að mélinu. Hitaveíta Suöurnesja er sameign ríkisins að 40% og sveitarfélaganna að 60%. Stjórn H.S. er Þannig skipuð að iðnaðar- og fjérmélaréðuneytiö skipa sinn stjórnar- manninn hvort til Þriggja éra en sveitar- félögin tilnefna Þrjé stjórnarmenn og gengur einn stjórnarmaður úr érlega. SKÓLAMÁL Að tilhlutan Iðnaðarmannafélags Suður- nesja tóku sveitarfélögin höndum saman um byggingu og rekstur Iðnskóla fyrir Suðurnes. Skólinn var staðsettur ( Keflavík og tók til starfa í nýju húsnæði 1972. Snemma érs 1975 setti samstarfsnefndin é laggirnar nefnd til að kanna og gera tillögur um framhaldsskóla é Suðurnesj- um. Nefndin skilaði greinargóöu éliti um haustið og var Það til skoðunar hjé sveítarstjórnunum strax é eftir. Tillaga nefndarinnar var, að unnið yrði að stofnun Fjölbrautaskóla. Sveitarstjórnirnar féllust é tillögur nefndarinnar og ný nefnd var kosin til að koma mélinu í framkvæmd, Það tókst með slíkum égætum að Fjölbrautaskóli Suðurnesja tók til starfa 1. október 1976, um leið var Iðnskólinn lagður niður og sameinaður hinum nýja skóla. SJÚKRAHÚS — HEILSUGÆSLA Árið 1974 hófust umræöur um skipu- lagningu heilsugæslunnar. Ákveðið var aö taka é leigu húsnæði í Keflavík par sem innréttuð var aðstaða fyrir lækna o.fl. Stöðin tók til starfa vorið 1975 og hefur verið rekin sem miðstöð heilsugæslu fyrir Suðurnes. Læknamóttökur eru síðan í Grindavík, Sandgerði, Garði og Vogum. Rekstur stöðvanna er sameiginlegur og greiddur af sveitarfélögunum miðað við fólksfjölda. Áætlaður kostnaður é pessu éri er kringum kr. 2.000.00 é íbúa. DVALARHEIMILI ALDRAÐA Eitt af fyrstu málum, sem samstarfs- nefndin ræddi, var dvalarheimili fyrir aldraða. Haustið 1975 skipuðust mél Þann- ig að Gerðahreppur eignaðist hús sem ekki var fullklérað, en fyrirhugað var sem matstofa og verbúð. Samstarfsnefndin néði samningum við Gerðahrepp um að húsnæðið yrði notað sem dvalarheimili fyrir aldraða. Sveitarfélögin að undanskildri Grindavík, sem pé var orðin Þétttakandi í D.A.S.-heimili í Hafnarfirði, veittu fé til að Ijúka við húsnæðið og stofnuðu síðan félag um reksturinn. Húsnæðið var tekið í notkun haustið 1976 og rúmar 22 vistmenn, í sama húsi er læknamóttakan ( Gerða- hreppi. Nú eru uppi réöagerðir um stækkun hússins, Þ.e. byggingu vistmannaélmu fyrir um 18 vistmenn og jafnframt að kaupa húsnæðið af Gerðahreppi, en Það hefur verið f leigu fram að Þessu. Sérstök framkvæmdastjórn er fyrir heimilið, skipuð einum fulltrúa fré hverri sveitarstjórn. HEILBRIGOISFULLTRÚI Samstarfsnefndin vann að Því að einn heilbrigðisfulltrúi var réðinn fyrir svæöið, að réðningu hans stóðu öll sveitarfélögin utan Gerðahrepps. Heilbrigðisfulltrúinn starfar með heil- brigöisnefndum hvers sveitarfélags og fylgist með framkvæmd heilbrigðisreglu- gerða. Formenn heilbrigðisnefndanna mynda Heilbrigðisnefnd Suðurnesja, sem kemur saman til fundar ööru hvoru og ber saman bækur sínar varðandi hin ýmsu mél. Heilbrigðisfulltrúinn var fyrstu tvö érin í Njarðvík, en hefur nýlega flutt í Keflavík. BRUNAVARNIR Brunavarnir é Suðurnesjum voru éður með Þeim hætti að hvert sveitarfélag haföi sitt eigið slökkvilið, Þau voru yfirleitt vanbúin tækjum, seinna var farið inn é Þé braut að kaupa Þjónustu fré slökkviliöinu í Keflavík og Þé greitt fyrir hvert útkall. Árið 1972 var stofnaö af fimm sveitar- félögum Brunavarnir Suðurnesja meö aösetri í nýju húsnæði é mörkum Kefla- víkur og Njarövíkur, Sandgerði og Grinda- vík eru ekki í Þessu félagi en reka éfram sín slökkvilið. Árið 1976 var gerður samningur milli Þessara slökkviliða ésamt slökkviliði Kefla- víkurflugvallar um gagnkvæma aðstoð. Samningur Þessi hefur reynst vel, en í honum er tekið fram hvernig staöiö skuli að útköllum, greiðslum, tryggingum, sam- æfíngum o.fl. Fastir starfsmenn Brunavarna Suður- nesja eru tveir, slökkviliðsstjóri og eftirlits- maður. Slökkviliðið er skipað éhugamönn- um. En eitt stórverkefnið er bygging sameiginlegrar sorpeyðingarstöðvar, en Það mél veröur ekki rakið frekar hér, en vísað til sérstakrar greinar um stööina annars staöar í blaöinu. Við Þessa upp- talningu mé bæta undirbúningi að Salt- verksmiðju, Landgræðsluverkefni og eftir- liti með lausagöngu búfjér, érlegum fund- um nefndarinnar með Þingmönnum o.fl. í sumar kusu sveitarfélögin tvo menn hvert til að gera tillögur um framtíöarskipun Þessara méla. Þessi nefnd starfar enn, en í Ijósi Þeirrar reynslu, sem fengist hefur af Þessu samstarfi, eru menn samméla um að ékvarðanir um framhaldið verði auðveldar. Formaður samstarfsnefndarinnar er nú Albert K. Sanders, bæjarstjóri í Njarð- víkum, og eru framangreindar upplýsingar fré honum komnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.