Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979
33
GHG vék sérstaklega að ræðu
Gils Guðmundssonar, forseta S.þ.
Sagði hann framlag forseta til
þessa máls bera vott um reisn og
manndóm, skilningi á því, hvern
veg sjálfstæðri þjóð beri að haga
sér gagnvart nágranna með sæmd,
og hefði framlag hans til þessa
máls aukið á virðingu íslands,
bæði út á við og inn á við.
111 nauðsyn hjá
Færeyingum
Bragi Níelsson (A) sagði m.a. að
það væri ill nauðsyn hjá Fær-
eyingum að semja við Efnahags-
bandalag Evrópu. Það væri sið-
ferðileg skylda okkar að hjálpa
Færeyingum og styrkja stöðu
þeirra gagnvart umheiminum.
Ræðumaður fór nokkrum orðum
um samskipti Færeyinga og Is-
lendinga fyrr og síðar, sem hefðu
aðeins verið af því góða. Hér væri
um gagnkvæma samninga að
ræða, sem sízt færðu Færeyingum
of stóran hlut.
Ekki tef ja
samninga
Halldór E. Sigurðsson (F) sagði
hlut Framsóknarflokks í þessari
umræðu lítinn af þeim ástæðum
að þeir framsóknarmenn teldu
ekki ástæðu til að tefja framgang
samninganna með of löngum um-
ræðum. Hann sagðist styðja samn-
ingana. Hins vegar væri ranglega
veitzt að forsætisráðherra, þó að
hann hefði hagað orðum sínum af
varúð í sjónvarpsviðtali frá eldri
tíð. Hlutur núverandi forsætisráð-
herra til landhelgismála, í þeim
ríkisstjórnum, sem hann hefði átt
aðild að, hefði reynzt mikill og
farsæll. Það væri út af fyrir sig, þó
að þeir hældu hver öðrum á sviði
landhelgismála, sjálfstæðismenn
og alþýðubandalagsmenn, en því
mætti ekki gleyma, að Fram-
sóknarflokkurinn hefði setið í
öllum þeim ríkisstjórnum, sem
fjallað hefðu um útfærslu land-
helginnar.
Höfum ekki
efni á
samningnum
Garðar Sigurðsson (Abl) vék
nokkrum orðum að ræðum þeirra,
sem mælt höfðu með samningnum,
og andmælti efnisatriðum í ræðum
þeirra. GS andmælti staðhæfingu
Gils Guðmundssonar, að ekki væri
nægilega sterk rök gegn Færeyja-
samningunum. Staðreyndin væri
að við létum dýran auðveiddan
fisk í staðinn fyrir ódýran lang-
sóttan fisk. Hvorki þorsk- né
loðnustofn væri lengur til skipta.
Það eina sem stendur upp úr
efnislega í ræðu Gils Guðmunds-
sonar er það, að utanríkisráðherra
hafi ekki staðið rétt að samnings-
gerðinni. „Það fór þó aldrei svo,“
sagði GS, „að við gætum ekki verið
sammála um eitthvert atriði, varð-
andi Færeyjasamningana." Meðan
við þurfum að skerða okkar eigin
veiðar og meðan atvinnutækifæri í
fiskiðnaði eru í hættu af þeim
sökum, höfum við ekki ráð á því að
hleypa öðrum á okkar fiskislóðir.
Það er mergurinn málsins.
Efnahagsbanda-
lagið — Atlants-
hafs-
bandalagið
Ólaíur Ragnar Grímsson (Abl)
fjallaði einkum um tvö atriði. I
fyrsta lagi gagnrýndi hann máls-
meðferð af hálfu utanríkisráð-
herra. „Ég fagna því að utanríkis-
ráðherra lýsti því yfir hér í dag,“
sagði ÓRGr, „að meðferð málsins,
forminu á þessari samningagerð,
hafi verið ábótavant." Taldi hann
nauðsynlegt að læra af þeim mis-
tökum, sem gerð hefðu verið.
Málið hefði hvorki verið rætt né
formlega afgreitt sem slíkt í ríkis-
stjórn, eða nægileg samráð höfð
við þingflokka. Þá harmaði ÓRGr
að afstaða ríkisstjórnar til Jan
Mayen-málsins hefði ekki komið
nægilega skýrt fram, eins og óskað
hefði verið eftir. Þar eru aftur á
ferð „hin lausu tökin," sagði hann.
Hitt atriðið, sem ÓRGr gerði að
umtalsefni, var þáttur Efnahags-
bandalagsins í þessu máli, en það
væri sá skuggi, sem þessi
samningsgerð færi fram í. „Það er
skortur á raunsæi að halda, að
frændsemismálefni okkar við
Færeyinga séu hér aðalatriði,
vegna þess að í þessari samninga-
gerð eru Færeyingar í raun og
veru milliliður.“ Efnahagsbanda-
lagið „er tröllið í þessum leik“.
„Við skulum ekki láta frændsemis-
tengsl við Færeyinga villa okkur
sýn á veruleika Efnahagsbanda-
lagsins, frekar en við höfum látið,
Alþýðubandalagsmenn, frænd-
semisröksemdir gagnvart Norð-
mönnum villa okkur sýn varðandi
Atlantshafsbandalagið,“ sagði
ÓRGr.
Steingrím-
ur sýnir á
Akureyri
Akureyri
STEINGRÍMUR Sigurðsson iist-
málari opnar málverkasýningu í
Gallerí Háhól á Akureyri í dag,
laugardag kl. 15. Þetta' er 42.
sýning Steingríms og hin fjórða á
Akureyri. en hér sýndi hann
síðast fyrir níu árum.
Á sýningunni verða um 30
myndir, bæði olíumálverk og
vatnslitamyndir. Hún stendur að-
eins í fjóra daga, og verður opin
sem hér segir: Á laugardag frá kl.
15—23, á sunnudag frá kl. 14—23,
á mánudag kl. 18—23 og á þriðju-
dag kl. 18-23.30.
- Sv.P.
Blástursað-
ferðin kennd á
námskeiðum
NÁMSKEIÐUM Reykjavíkurdeild-
ar Rauða kross íslands í þessari
viku lýkur í dag, laugardag. en
síðasta námskeiðið hefst kl. 2 e.h. í
Heilsuverndarstöðinni.
Aðsókn hefur verið mjög góð og er
þess vegna fyrirhugað að gefa al-
menningi kost á fleiri námskeiðum í
lífgunartilraunum í næstu viku á
sama tíma en upplýsingar um þau
eru veittar í síma 28222 á mánudag
n.k.
Á þessum námskeiðum er kennd
blástursaðferðin, en hún hefur tví-
vegis á skömmum tíma bjargað lífi
ungra barna, þ.e. lífi tveggja barna
sem voru nær drukknuð er bíll sem
þau voru í valt í Kópavogslækinn og
nú síðast lífi stúlku sem festi trefil
sinn í toglyftu í Hlíðarfjalli og hafði
nær kyrkzt.
MMjtM
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RIKISSJOÐS ■ ■ Innlausnarverð
10. febrúar 1979 Kaup- Seölabankans Yfir-
Gengi gengi m.v. 1 ars gengi
pr. kr. 100.-: tímabil frá:
1968 1. flokkur 2.981.04 25/1 ‘79 2.855,21 4.4%
1968 2. flokkur 2.804.17 25/2 ‘79 2.700.42 3.8%
1969 1. flokkur 2.086.07 20/2 ‘79 2.006.26 4.0%
1970 1. flokkur 1.915.84 15/9 ‘78 1.509.83 26.9%
1970 2. flokkur 1.389.23 5/2 ‘79 1.331.38 4.3%
1971 1. flokkur 1.303.96 15/9 ‘78 1.032.28 26.3%
1972 1. flokkur 1.136.51 25/1 ‘79 1.087.25 4.5%
1972 2. flokkur 972.31 15/9 ‘78 770.03 26.2%
1973 1. flokkur A 739.11 15/9 '78 586.70 26.0%
1973 2. flokkur 681.09 25/1 ‘79 650.72 4.7%
1974 1. flokkur 473.11
1975 1. flokkur 386.81
1975 2. flokkur 295.20
1976 1. flokkur 279.99
1976 2. flokkur 226.03
1977 1. flokkur 209.93
1977 2. flokkur 175.84
1978 Lflokkur 143.81
1978 2. flokkur 113.11
VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100-
1 ár Nafnvextir: 26% 77 — 79
2 ár Nafnvextir: 26% 68—70
3 ár Nafnvextir: 26% 62—64
*) Miðað er við auðseljanlega fasteign.
HLUTABREF
Sióvátrvaainaarfélaq íslands HF. Sölutilboð óskast
í niðursuöuiðnaði Sölutilboð óskast
Flugleiðir h/f Kauptilboð óskast
PjéRPemncRRFCMG iflMM Hft
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaðarbankahúsinu).
Sími 2 05 80.
Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16
& Stór-útsalan 1979 m
Útsölunni, sem haldin er
í hinni nýju verksmiðju-
byggingu okkar í
Mosfellssveit, lýkur nú
um helgina.
Opnunartími:
Laugardag kl. 10—18
Sunnudag kl. 13—18
Ath.: Kaffi og kökusala á
staðnum.
Enn eru til miklar
birgðir af eftirfarandi:
Hespulopi — Plötulopi — Lopi Light —
Tröll lopi — Eingirni — Tweed hosuband
— Teppaband — Endaband — Fatnaður
— Hosur — Treflar — Gardínuefni —
Fataefni — Áklæði.
Værðarvoöir, verð frá kr. 3.000-
Gólfteppi á heil herbergi og minni íbúöir.
Faldaðar mottur.
^llafoss hf