Morgunblaðið - 10.02.1979, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979
Miðherjinn sterki úr ÍS, Bjarni Gunnar Sveinsson, er ekki meðai
þeirra lfí icikmanna, sem valdir hafa verið í landslið fslands í
körfuholta. þrátt fyrir stórxóða leiki að undanförnu. Hér sést hann í
leik get(n KR.
Val landsliós-
nefndar
vekur furðu
EINSOG fram kom hér á iþróttasíðunni í gær hefur landsliðsnefndin f
körfuknattleik nú kunngert 17 manna iandslið. Hefur val þetta vakið
talsverða furðu svo ekki sé íastara að orði kveðið. Þess ber þó að geta í
upphafi. að seint verður vali landsliðs í körfuknattleik svo háttað að
allir verði þar á eitt sáttir. í þessu tilviki virðist þó mikið vanta á að
tcflt sé fram því landsliði sem sterkast geti talist. Af mönnum. sem
fyllilega verðskulda sæti í þessum hópi skal fyrstan nefna Þóri
Magnússon, stórskyttuna úr Val, en þrátt fyrir nokkuð misjafna leiki í
vetur hefur Þórir þó þess á milli sýnt slik tilþrif. að framhjá honum
verður treglega gengið.
Landsliðsnefnd hefur hins vegar valið fjóra leikmenn úr 1. deildinni,
en að mati undirritaðs er raunar aðeins einn þeirra, sem fyllilega
verðskuldar landsliðssæti, en það er Símon Ólafsson, Fram. Eins og áður
er fram komið þá meiddist Símon alvarlega í síðustu viku, og verður þar
af leiðandi frá keppni. Af öðrum leikmönnum sem ekki voru valdir, en
ættu fyllilega heima í þessum hópi, má nefna Garðar Jóhannsson KR,
sem sýnt hefur hvern leikinn öðrum betri að undanförnu, Bjarna Gunnar.
Sveinsson ÍS, sem sömuleiðis leikur nú mun betur en í upphafi
Islandsmóts. Einnig má nefna þá Ríkharð Hrafnkelsson Val og Eirík
Sigurðsson Þór. Sá síðarnefndi hefur átt jafna og góða leiki í vetur og
þrátt fyrir augljósa annmarka á því, að Eiríkur gæti sótt æfingar, þá
verður „landsliðsnefnd" eigi hún að standa undir nafni, að líta til allra
landshorna.
Að lokum má spyrja hvort ekki sé rétt að fylgja fordæmi annarra
íþróttagreina og láta einn mann sjá um að velja landsliðið. Þeirri
iandsliðsnefnd, sem nú á að vera starfandi hefur ekki orðið tíðförult á
leiki úrvalsdeildar svo ekki sé minnst á veru hennar á 1. deildarleikjum.
Nær hefði verið að treysta dómgreind landsliðsþjálfarans til að velja sitt
landslið. GI / gíg / ÁG.
Stjörnuhlaup
FH-INGAR efna í dag til þriðja Stjörnuhlaups vetrarins. Ilefst hlaupið
við Lækjarskólann klukkan 14. en því lýkur á sama stað eftir að
hlaupararnir hafa lagt að baki svonefndan Álftaneshring, en
vegalengdin í karlaflokki verður um sjö kílómetrar, en öllu skcmmri í
kvennaflokki.
Staðan í vetrarhlaupum víðavangshlaupara íyrir þetta hlaup er
eftirfarandi (fjöldi hlaupa í svigum):
Karlar:
Ágúst Þorsteinsson UMSB (4) 59 stig
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR (5) 52 stig
Ágúst Ásgeirsson, IR (4) 51 stig
Hafsteinn Óskarsson, IR (4) 49 stig
Konur:
Thelma Björnsdóttir, UBK (5) 74 stig
Hrönn Guðmundsdóttir, UBK (4) 56 stig
Frábær varnarleikur
að baki sigri Vals
EINS OG fram kom í blaðinu í
gær, sigruðu Valsmenn í hinu
sérlega vel heppnaða hraðmóti í
innanhúsknattspyrnu sem KR
gekkst fyrir. Var fjöldi áhorfenda
meiri heidur en gengur og gerist
á 1. deildarleikjum f handbolta.
eða um 5 — 600 manns, enda tóku
þátt í mótinu öll þau lið sem leika
munu 1 1. deiid á komandi
keppnistfmabili, utan KA. í
þeirra stað lék FH, sem féll úr 1,
deild á sfðasta keppnistímabili.
Valsmenn mættu Þrótti í úr-
slitaleik mótsins og eins og skýrt
var frá í gær, sigruðu þeir 2—0.
Guðmundur Þorbjörnsson skoraði
bæði mörk Vals, sitt í hvorum
hálfleik. Varnarleikurinn var aðall
Valsliðsins í mótinu, sterkur varn-
arleikur og vel útfærðar skyndi-
sóknir. Ingi Björn Albertsson var
jafnan aftasti maður hjá Val og
var markvarsla hans oft frábær.
Það átti þó ekki síst við undanúr-
slitaleikinn gegn Víkingi. Vals-
menn höfðu þá yfir 3—0 í hálfleik
og vörðu Valsmenn þá eigi færri
en 3 vítaspyrnur Víkinga.
í síðari hálfleik minnkuðu Vík-
ingar muninn þegar Valsmenn
misstu menn út af og lokastaðan
varð 5—4. Var spennan mikil í
lokin, því að Atli Eðvaldson skor-
Ottar
ÍFH
ATIIYGLI vakti á hraðmótinu í
knattspyrnu í fyrrakvöld, að
Valsmaðurinn Óttar Sveinsson
lék með FII. Nokkur samskipti
hafa verið milli félaganna undan-
farið. þannig skipti Ólafur Dani-
valsson nýlega um félag eins og
frá hefur verið skýrt, fór úr FH í
Val. Er óttar nokkur sárabót
fyrir missi FH.
aði sigurmarkið þegar aðeins 4
sekúndur voru til leiksloka. Mörk
Vals skoruðu Atli (2), Albert,
Guðmundur og Ingi Björn en fyrir
Víkinga svöruðu Gunnar Örn (2),
Magnús Bárðarson og Heimir
Karlsson.
Þróttarar komu verulega á óvart
í mótinu fyrir góðan leik og þeir
lögðu KR-inga að velli í undanúr-
slitunum. Skoruðu Þróttarar 7
mörk gegn 6. Þróttur hafði yfir,
3—1 í hálfleik og í þeim síðari
sáust tölur eins og 4—1 og 6—3.
KR-ingar áttu þó góðan lokasprett
og minnkuðu muninn niður í eitt
mark rétt fyrir leikslok. Mörk1
Þróttar í leiknum skoruðu Daði
Harðarson 2, Þorgeir Þorgeirsson
2, Halldór Arason, Baldur
Hannesson og Ágúst Hauksson
eitt hvor. Mörk KR skoruðu Sverr-
ir Herbertsson 3, Sæbjörn Guð-
mundsson 2, og Elías Guðmunds-
son 1 mark.
Leikið var í fjórum 4-liða riðlum
og urðu úrslit í riðlunum þessi:
A-riðill:
KR a — Fylkir 3-3
Fram — Fylkir 5—3
KR a — Fram 3—2
B-riðill:
UBK — KR b 2-2
KR b — Víkingur 4—6
Víkingur — UBK 6—4
C-riðill:
ÍA — Haukar 6—0
Þróttur — Haukar 5—1
Þróttur — ÍA 5—1
D-riðill:
FH - ÍBK 6-2
FH - Valur 2-6
ÍBK - Valur 5-7
— gg.
Stuðningsmannadeild
stofnuð hjá Víkingi
Handknattleiksdeild Víkings gengst fyrir stofnun stuðningsmanna-
deiidar f dag kl. 14.00 í félagsheimili Vfkings. Strax eftir stofnfundinn
verður svo fjölmennt á leik Víkings og ÍR sem fram fer í
Laugardalshöllinni og hefst kl. 15.30.
Að sögn Eysteins Helgasonar formanns handknattleiksdeildar
Víkings kom í ljós mikill stuðningur við deildina í sambandi við
kærumál það er deildin hefur staðið í. Þess vegna var ákveðið að
stofna deild þar sem ungir og gamlir Víkingar gætu hist yfir
kaffibolla með leikmönnum og þjálfara og rætt málin. Þá er ekki síður
atriði að íoreldrar sem eiga börn í yngri flokkum félagsins taki þátt í
starfinu á einhvern hátt. Markmiðið er að fjölga áhorfendum á leiki
Víkings og stuðla á allan hátt að félagslcgri uppbyggingu í dcildinni.
Það cr von stjórnar handknattleiksdcildarinnar að sem flestir sjái
sér fært að koma í félagsheimilið á stofnfundinn í dag.
Blak um helqina:
Heldur ÍS strikinu?
HELGIN er frekar róleg hjá blakfólkinu, eða aðeins 4 leikir á dagskrá,
þar af aðeins tveir í 1. deild karla. Segja má að einkum einn þeirra hafi
verulega þýðingu fyrir toppbaráttuna, en það er leikur UMSE og ÍS.
Stúdentarnir opnuðu 1. deildina upp á gátt með sigri sínum gegn Þrótti í
vikunni og sigri þeir UMSE eiga þeir enn nokkra von um titilinn. Leikir
helgarinnar eru þessir:
Laugardagur:
Laugarvatn 1. deild karla UMFL—Mímir kl. 14.00.
Glerárskóli 1. deild karla UMSE-ÍS kl. 15.00
Glerárskóli 2. deild karla KA—ÍBV kl. 16.00.
Sunnudagur:
íþr. húsið Akureyri 2. deild karla ÍMA—ÍBV kl. 13.00.
Víðavangshlau|)in
að komast á klárt
NYLEGA hefur verið gengið frá
endanlegri skrá yfir vetrarhlaup
víðavangshlaupara. Það er víða-
vangshlaupanefnd FRÍ sem hefur
yfirumsjón með og raðar niður
hlaupunum, en þátttaka í
• Þær eru margvíslegar íþróttagreinarnar sem keppt er í. Nú tróna
vetraríþróttir víða efst á lista, og þessi skemmtilega mynd sýnir okkur
hvar einn vetraríþróttamaður fær flugfcrð í þotusleðakeppni sem
fram fór í Austurríki nýlega. En keppni á þotusleðum er vinsæl þar í
landi. Eins og sjá má á myndinni er fjöldi áhorfenda.
hlaupunum veitir hlaupurunum
stig í keppni um sæmdarheitið
„Víðavangshlaupari íslands*4. Sex
hlaup hafa farið fram þegar þetta
er ritað, og alls hafa 28 karlar frá
átta félögum og 12 konur frá
fjórum félögum tekið þátt í
hlaupunum til þessa. Vegalengdir
hlaupanna hafa verið frá 5—10
kílómetrar.
24. feb.: Fióahlaup ungmennaf.
Samhygðar. Illaupið
hefst við Félagslund í
Gaulverjabæ kl. 14.
11. marz: Víðavangshlaup ís-
lands. Haldið i' Reykja-
vi'k, hugsanlega á
Miklatúni.
25. marz: Víðavangshlaup heims-
ins, Limerick, írlandi.
Þátttaka íslendinga
hefur ekki verið ákveð-
in, og hlaupið gefur
ekki stig.
31. marz: Akureyrarhlaup, íram-
kvæmt af KA.
12. apríl: Álafosshlaup, fram-
kvæmt af umf. Aftur-
elding, Mosfellssvcit
19. apríl: 64. víðavangshlaup ÍR
1. mai': Eyrarbakkahlaup
12. maí: Stjörnuhlaup FH,
Kaplakrikavelli