Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRIL 1979 25 Jafnræði í 20 mínútur hjá Víkinn og FH FH reyndist Víkingi lítil hindrun, er liðin mættust í 1. deild karla í Höllinni á sunnudagskvöldið. Eítir mikið jafnræði, sterkar varnir og góða markvörslu á báða bóga mest allan fyrri hálfleik, riðlaðist leikur FH þegar á leið, Víkingur seig fram úr og sigraði örugglega 20—14, en staðan í hálfleik var 7—4 fyrir Víking. Mesta eftirsjónin varðandi leik þennan er, að Geir Hallsteinsson skyldi ekki ná að skora 7 mörk, en það hefði fært honum hundrað mörk á keppnistímabilinu. Geir var hins vegar ekki sjálfum sér líkur í leiknum og skoraði aðeins tvö mörk. Þrátt fyrir það, er hann öruggur markakóngur íslandsmótsins í handbolta. Þá vekur athygli, að Einar Magnússon hefur ekki leikið með Víkingi tvo sfðustu leikina. Það var lítið skorað í leik þessum í fyrri hálfleik, varnir voru þéttar og sterkar fyrir og framan af vörðu þeir Kristján Sigmundsson hjá Víking og Magnús Ólafsson hjá FH, rnest af því sem í gegn um vörnina slapp. Það var ekki fyrr en á 7. mínútu, að Páll Björgvinsson skoraði fyrsta mark leiksins. Víkingar skoruðu aftur, en FH jafnaði 2—2. Síðan var jafnt 3—3 og 4—4 og var þá langt liðið á hálfleikinn. Bæði Víkingur og FH eru kunnari fyrir sóknarleik en varnarleik og kom því hið lága markaskor á óvart. Víkingar tóku þó smákipp undir lok hálfleiksins og skoruðu 3 síðustu mörkin og leiddu þannig 7—4 í hálfleik. Viggó skoraði fyrsta marki í síðari hálfleik, en FH-ingar svöruðu með tveimur mörkum. Víkingar voru hins vegar að vakna til lífsins og breyttu þeir á skömmum tíma stöðunni úr 8—6 í 15—8. Urslitin voru þar með ráðin og leikurinn varð hálf losaralegur undir lokin, en lokatölurnar urðu eins og fyrr segir 20—14. Varnarleikur Víkinga hefur stórbatnað eftir því sem liðið hefur á Islandsmótið og hann var sterkari hluti liðsins að þessu sinni, það er ekki á hverjum degi sem FH skorar aðeins 14 mörk í leik. I sókninni bar mest á Viggó, hann var mistækur framan af, en náði sér síðan vel á strik þegar á leið. Steinar náði ekki að fylgja góðum leik sínum gegn Haukum eftir að þessu sinni, hann gerði góða hluti, en var mistækur þess á milli. Ólafur Jónsson var einnig góður að vanda og Páll átti góða spretti, Arni var sterkur í vörninni. Kristján Sigmundsson var mjög góður í markinu hjá Víkingi, hefur staðið sig vel að undanförnu, Kristján varði 14 skot í leiknum. Það var fátt um fína drætti hjá FH að þessu sinni, Geir var langt frá sínu besta og Viðar, Janus og Guðmundur Arni sýndu lítið. Magnús Ólafsson var mjög góður í markinu framan af, varði þá m.a. vítakast. Magnús varði á þessum kafla 7 skot. Það vakti athygli snemma í leiknum, rétt eftir að Magnús hafði varið vítakast Sigurðar Gunnarssonar, að Víkingur fékk annað víti. En í stað þess að leyfa Magnúsi að spreyta sig á því, skipti sá pólski honum út af og setti Birgi Finnboga inn á. Arni skoraði úr vitinu. Sjá mátti glöggt, að Magnúsi líkaði ekki ráðstöfun þjálfarans. Þegar á leið, fóru skotin að leka inn hjá kappanum og varð ekki fyrir þann leika sett frekar en varnarleikann. Guðmundur Magnússon var líklega bestur hjá FH, ávalt glaðvakandi á línunni og að þessu sinni markhæstur FH-inga með fjögur mörk. Jón Friðsteinsson og Árni Tómasson sáu um dómgæsluna. Þeir sóttu sig dálítið er á leikinn leið, en dómgæsla þeirra var þó ekki til fyrirmyndar, þeir voru oft hikandi, ósamræmis gætti og tvisvar eða þrisvar fóru menn beinlínis að hlægja yfir dómum þeirra. Sigurður Gunnarsson er farinn að leika með Víkingum að nýju eftir slæm meiðsli sem hann hlaut í upphafi keppnistímabilsins. Hér reynir Sigurður skot, en Guðmundur Magnússon FH er til varnar. f stuttu máli: íslandsmótið 1. deild: Víkingur — FH 20—14 (7—4) Mörk Víkings: Viggó Sigurðsson 6, Ólafur Jónsson 4, Steinar Birgisson 3, Páll Björgvinsson og Sigurður Gunnarsson 2 hvor, Erlendur Hermannsson og Árni Indriðason eitt mark hvor. Mörk FH: Guðmundur Magnússon 4, Gumundur Árni og Viðar 3 hvor, Geir Hallssteinsson 2, Janus Guðlaugsson og Sæmundur Stefánsson 1 mark hvor. Víti í vaskinn: Kristján Sigmundsson varði víti Geirs og Magnús Ólafsson varði víti Sigurðar Gunnarssonar. Brottrekstrar: Viðar Símonarson FH í 2 mínútur. — gg. Annar tveggja áhorfenda svaf „ÞETTA er ekkert til að hlæja að.“ mátti heyra kallað af bekknum hjá Ármanni í leikn- um gegn Leikni í 2. deild ís- landsmótsins í handbolta á sunnudaginn. Þetta var alveg hárrétt, þetta var ekkert fyndið því að þó að leikurinn hafi ekki haft nokkra þýðingu, hefði maður talið að áhugaleysi ieik- manna væru einhver takmörk sett. Svo var þó ekki að sjá. Ármann vann 35 — 23, en lengst af var ekki meiri en 2—4 marka munur á liðunum. Staðan í hálfleik var 12—10 fyrir Ár- mann. Leiknir skoraði fyrsta markið og Ármann hefði átt að jafna 10 sekúndum síðar, en Þráinn rann þá á höfuðið á tómum popp- kornspoka í dauðafæri, Leiknir komst síðan í 3—1, en eftir það var forystan ávallt hjá Ármanni. Það sýnir áhuga almennings á leikjum sem þessum, að í síðari hálfleik mátti sjá tvo áhorfend- ur og var annar þeirra meira að segja, steinsofandi og gekk illa að vekja hann í leikslok. Markhæstir hjá Ármanni voru Friðrik með 13 mörk og Pétur með 12, en þeir Sveinbjörn og Gunnar Gunnarsson skoruðu 7 mörk hvor fyrir leikni. — gg. VÍKINGUR ER FALLINN 1. DEILDARLIÐ Víkings í kvennaflokki féll niður í 2. deild með tapi gegn FH í Laugardals- höllinni á sunnudagskvöldið, Vík- ingur sem hefur lokið leikjum sínum hlaut aðeins 4 stig á mót- inu, en næsta lið sem er UBK, hefur 5 stig og á enn eftir einn leik. Þó að Víkingsliðið hafi verið slakt í vetur, hefur liðið oft leikið betur en það gerði gegn FH, þar var taugaspennan og hnoðið alls- ráðandi. FH vann örugglega 16—10, en staðan í hálfleik var 8-4 fyrir FH. Sigur FH var aldrei í hættu, liðið náði strax afgerandi forystu sem var frá 2—6 mörk og þó að FH hafi eins og Víkingur, oft leikið betur og mistökin væru mörg, var eigi að síður alger gæðaflokks- munur á liðunum. Það er í raun og sannleika ekki hægt að hæla nokkurri Víkings- dömunni fyrir frammistöðu sína í leiknum nema helst Sólveigu. Efniviðurinn er þó fyrir hendi og það er kannski best fyrir liðið að falla niður og byrja allt upp á nýtt frá grunni. Þær Anna, Svanhvít, Katrín og Sigrún voru allar at- kvæðamiklar í leiknum fyrir FH, en þær Hildur og Kristjana mættu að ósekju vera eigingjarnari. Þá varði Gyða í marki FH mjög vel allan tímann, m.a. 3 vítaköst, en tvö önnur, allt í allt 5, fóru forgörðum hjá Víkingi. Var það auðvitað þungt á metunum. Mörk Víkings skoruðu: Iris og Sólveig 2 hvor, Ingunn, Agnes Sigurrós, Heba, Sigrún og Ástrós mark hver. Mörk FH: Svanhvít 5, Katrín og Anna 4 hvor, Sigrún 2 og Kristjana 1 mark. — gg. • íslandsmeistarar Fram í meistaraflokki kvenna Stúlkurnar sigruðu nú íslandsmótið fjórða árið í röð, og höfðu nokkra yfirburði yfir keppinauta sína. Fremri röð frá vinstri: Þórlaug Sveinsdóttir, Steinunn Helgadóttir, Jenný Grétudóttir, Laufey Gísladóttir, Kolbrún Jóhannsdóttir, Guðríður Guðjónsdóttir, Guðrún Sverrisdóttir, Sigrún Blomsterberg. Aftari röð frá vinstri: ólafur Aðalsteinn Jónsson formaður handknattleiksdeildar Fram. Bára Einarsdóttir, Guðríður Halldórsdóttir, Katla Kristjánsdóttir, Margrét Blöndal, Oddný Sigsteinsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir, Margrét Blöndal og Guðjón Jónsson þjálfari þessa sigursæla liðs. Eyjaþór sigraði eftirhörkuleik við Ármann ÞÓR frá Vestmannaeyjum tókst nokkuð sem vart var reiknað með af liðinu í haust þegar keppnis- tímabilið hófst. Liðið sem kom upp úr 3. deild árið áður, náði öðru sætinu í 2. deild og tryggði sér þannig rétt til þess að leika aukaleiki við næstneðsta liðið í 1. deild, um sætið. Þessum áfanga náðu Eyjamenn þegar Ármann var lagður að velli í íþrótta- húsinu í Vestmannaeyjum á föstu- daginn var. Þór vann 20—19, en staðan í hálfleik var 12—7. Þórsarar höfðu mikla yfirburði á öllum sviðum í fyrri hálfleik, vörnin barðist sem ein heild, markvarslan var góð og sóknar- leikurinn gekk upp. Réðu Ármenn- ingar ekki neitt við neitt og máttu teljast heppnir að vera aðeins 5 mörkum undir í hléi, urðu þeir þó að vinna leik þennan til að eiga nokkra möguleika á því sæti sem Eyjaþór hreppti með sigri sínum. I síðari hálfleik tóku Ármenn- ingar að saxa hægt og bítandi á forskot Eyjamanna, þannig stóð innan skamms 15—12, eða 5 mörk í röð frá Ármenningum. Þórsarar náðu enn smáspretti og þegar 2 mínútur voru til leiksloka, stóð 19—16 fyrir Þór og sigurinn virtist nokkurn veginn tryggður. En þá tóku Ármenningar það til bragðs að leika maður á mann og riðlaðist leikur Þórs algerlega við það og þégar 34 sekúndur voru til leiks- loka, jöfnuðu Ármenningar 19—19. Eyjamenn hófu leikinn og þegar 20 sekúndur voru til leiks- loka var brotið á einum þeirra í dauðafæri og víti var dæmt. Ur því skoraði Ásmundur Friðriksson sigurmark Þórs. Lið Þórs var jafnt að þessu sinni, en bestir voru þó þeir Hannes Leifsson og markvörður- inn Sigmar Þröstur Óskarsson, sem varði mjög vel allan leikinn. Pétur Ingólfsson og Jón Viðar voru sterkastir Ármenninga og gekk þó Pétur ekki heill til skógar. Mörk Þórs: Hannes Leifsson 9 (2), Ásmundur 3 (1), Herbert, Andrés og Ragnar 2 hver, Þórarinn Ingi og Böðvar 1 mark hvor. Mörk Ármanns: Pétur 6 (3), Jón Viðar 5, Óskar 3, Friðrik 2, Jón Á. 2 og Þráinn 1 mark. Hkj. Ásmundur Friðriksson Þór skorar úr vítakasti framhjá Ragnari markverði Ármanns. Það var Ásmundur sem tryggði Þór sigur í leiknum með því að skora sigurmarkið úr vítakasti 20 sek. fyrir leikslok. Fylkir féll niður í 2. deild FYLKIR og HK gerðu jafntefli 16—16 í leik sínum á laugardag- inn í LaugardalshöIIinni. Leikur þessi var afarþýðingamikill fyrir hæði liðin þar sem þau voru bæði í fallhættu í 1. deildinni. Til þess að eiga einhverja möguleika á að halda sér í deildinni þurfti Fylkir að sigra í leiknum. HK eða ÍR þurfa hins vegar að ieika auka- leik við næst efsta liðið í 2. deild en það er Þór Vestmannaeyjum. Leikur Fylkis og HK var mjög spennandi síðustu mínúturnar og var þá mikill darraðardans á fjölum hallarinnar. Þegar 15 mínútur voru eftir að leiknum náði Fylkir að jafna metin 14—14, og var það í fyrsta skiptið sem jafnt var. HK var ávallt með yfirhöndina og mesti munur var fimm mörk. Hilmar Sigurgíslason náði aftur forystu fyrir HK, en Fylkir gaf ekkert eftir að Einar Ágústsson jafnar aftur. En Hilmar sem var í mikl- um markaham skoraði strax í næstu sókn og var það fimmta mark hans í hálfleiknum. Síðasta mark Fylkis skoraði svo Einar Einarsson. Þessar lokamínútur léku liðin meira af kappi en forsjá. Og ekki var að sjá að lið HK hefði neitt lært í vetur af því að róa leik sinn þegar þess er þörf. Að þessu sinni voru það heilladísirnar sem voru þeim hliðhollar en ekki Fylki. Gerði það gæfumuninn. Lið HK barðist vel í leiknum og var sérlega mikill kraftur í þeim strax í upphafi leiksins. Þeim tókst að skora fimm fyrstu mörk leiksins án þess að Fylkir svaraði fyrir sig. Að vísu voru Fylkismenn afaróheppnir með skot sín, áttu þeir hvert stangarskotið af öðru og upp úr því náðu HK menn hraða- upphlaupum sem enduðu með marki. Það var fyrst og fremst þessi góði kafli í byrjun sem gerði útslagið, og má heita gott hjá Fylki að ná að vinna þetta stóra forskot upp. En leikur Fylkis batnaði stórlega eftir því sem á leikinn leið. í liði HK áttu þeir Hilmar Sigurgíslason og Stefán Halldórs- son bestan leik, og skoruðu þeir 15 af 16 mörkum liðs síns. Má mikið vera að Pétur þjálfari Fylkis hefur ekki gert mistök að láta ekki taka þá báða úr umferð. Þá átti Einar markvörður ágætan leik svo og Kristinn í vörninni. Hjá Leikni átti Einar Einarsson góðan leik í sókninni, þessi há- vaxni leikmaður gerði oft mikinn usla í vörn HK og hefði gjarnan mátt reyna að skjóta meira en hann gerði. Sigurður Símonarson og Halldór Sigurðsson komust vel frá varnarleiknum. Jón Gunnars- son markvörður varði þokkalega, hefur hann margsinnis varið betur í vetur en hann gerði í þessum leik. I stuttu máli: Islandsmótið 1. deild. Laugardalshöll 31. mars. Fylkir - HK 16-16 (6 - 9) Mörk HK: Hilmar Sigurgíslason 8, Stefán Halldórsson 7 (3v), Jón Einarsson 1. Mörk Fylkis: Einar Einarsson 6, Örn Hafsteinsson 3, Gunnar Baldursson 3 (2v), Magnús Sigurðsson 1, Sigurður Símonar- son 1, Einar Ágústsson 1, Halldór Sigurðsson 1. Brottvísun af leikvelli: Hilmar Sigurgíslason og Kristinn Ólafs- son báðir úr HK í 2 mín. Misheppnuð vítaköst: Gunnar Baldursson Fylki skaut framhjá á 8 mín og Einar Þorvarðarson varði hjá Magnúsi Sigurðssyni Fylki á 25 mín. -þr. | 1. DEILD | | 2. DEILD | | 1. DEILD í 1. DEILD KARLA ER NÚ STAÐAN ÞESSI: Víkingur Valur FH Haukar Fram ÍR HK Fylkir MARKHÆSTIR ERII NÚ: Geir Hallsteinsson FH Stefán Halldórsaon HK Hörður Harðarson Haukum Atli Hilmarsson Fram Gústaf Björnsson Fram Viggó Sixurðsson Vík. Jón Pétur Jónsson Vai Gunnar Baldursson Fylki Guðjón Marteinsson ÍR Hilmar Sigurgfslason HK Páll Björfjvinsson Vfk. Ólafur Jónsson Vfk. STAÐAN í 2. DEILD KARLA ER NÚ ÞESSI: STAÐAN í 1. DEILD KVENNA ER NÚ ÞESSI: 13 11 1 1 317-251 23 KR 14 9 2 3 336- 278 20 Fram 13 12 0 1 168-107 24 12 10 1 1 224-188 21 Þór Ve 14 8 3 3 279- 255 19 FH 13 8 1 4 177-157 17 14 6 1 7 285-288 13 KA 14 9 0 5 323 -282 18 Haukar 14 7 1 6 168-146 15 13 5 2 6 272-282 12 Ármann 14 7 2 5 304 -283 16 Valur 11 7 1 3 155-144 15 13 5 1 7 257-290 11 Þór Ak 14 7 1 6 275-262 15 KR 13 7 0 6 149-138 14 13 4 1 8 238- 255 9 Þróttur 14 6 2 6 316-299 14 Þór 11 3 0 8 128-146 6 14 3 3 8 250- 269 9 Stjarnan 14 5 0 9 303-300 10 UBK 12 2 1 9 100-163 5 14 2 4 8 250-271 8 Leiknir 14 0 0 14 131-368 0 Vfkingur 14 1 2 11 148-190 4 MARKHÆSTIR ERU NÚ: 95 Konráð Jónsson Þrótti 110 79 Hannes Leifsson Þór Ve 97 75 Björn Pétursson KR 86 68 Eyjólfur Bragason Stjarnan 70 68 Sigtryggur Guðlaugsson Þór Ak '68 62 SÍRurður Sifrurðsson Þór A 66 56 Alfreð Gíslason KA 64 55 Friðrik Jóhannsson Ármanni 63 51 Björn Jóhannesson Ármanni 63 50 Þorleifur Ananíasson KA 62 50 Pétur Ingólfsson Ármanni 62 47 Simon Unndórsson KR 60 Einkunnagjdfin Fylkir: Jón Gunnarsson 2, Halldór Sigurðsson 3, Gunnar Baldursson 2, ■Stefán Hjálmarsson 2, Örn Hafsteinsson 2,. Einar Einarsson 4, Kristinn Sigurðsson 2, Einar Ágústsson 2, Sigurður Símonarson 3, Magnús Sigurðsson 2, Guðni Hauksson 2, Jóhann Jóhannsson 2. HK: Hilmar Sigurgíslason 4, Stefán Halldórsson 3, Einar Þorvaröarson 3, Erling Sigurðsson 1, Karl Jóhannsson 2, Jón Einarsson 2, Kristinn Ólafsson 2, Ragnar Olafsson 2, Gunnar Eiríksson 2, Friöjón Jónsson 2. Víkingur: Kristján Sigmundsson 3, Eggert Guðmundsson 1, Páll Björgvinsson 2, Ólafur Jónsson 3, Viggó Sigurösson 3, Steinar Birgisson 2, Árni Indriöason 3, Erlendur Hermannsson 2, Siguröur Gunnarsson 2, Magnús Guðfinnsson 1, Skarphéöinn Óskarsson 1. FH: Magnús Ólafsson 2, Birgir Finnbogason 1, Guömundur Magnússon 3, Sæmundur Stefánsson 1, Geir Hallsteinsson 2, Viðar Símonarson 2, Guðmundur Árni Stefánsson 2, Janus Guðlaugsson 1, Valgarð Valgarösson 1, Kristján Arason 1. Fylkir: Jón Gunnarsson 3, Halldór Sigurðsson 2, Gunnar Baldursson 3, Stefán Hjálmarsson 3, Örn Hafsteinsson 2, Einar Einarsson 2, Kristinn Sigurðsson 2, Einar Ágústsson 2, Siguröur Símonarson 2, Magnús Sigurðsson 3, Guðni Hauksson 2, Jóhann Jóhannesson 2. Fram: Gissur Ágústsson 2, Sigurður Þórarinsson 2, Jóhann Kristjánsson 2, Theodór Guðfinnsson2, Hjörtur Þorgilsson 2, Gústaf Björnsson 4, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Atli Hilmarsson 2, Erlendur Davíösson 2, Jens Jensson 1, Birgir Jóhannsson 2, Viðar Birgisson 2. MARKHÆSTAR ERU: Guðrfður Guðjónsdóttir Fram 53 Margrét Theodórsdóttir Haukum 51 Harpa Guömundsdóttir Val 49 I nKunn Bernódusdóttir Vfk. 46 Katrín Danivalsdóttir FH 45 Svanhvft Magnúsdóttir FH 43 Hansfna Melsted KR 42 Anna Gréta Þór 42 Oddný Sigsteinsdóttir Fram 36 Halldóra Matthiesen Haukum 35 Kristjana Aradóttir FH 34 Erna Lúðvíksdóttir Val 33 Arna Garðarsdóttir KR 27 Stigahæstir í einkunna- gjöf Mbl. Stigahæstir f einkunnagjöf Morgunblaðsins eru nú þessir: Jón Gunnarsson Fylki 39 (14) Geir Hallsteinsson FH 39 (14) Jens Einarsson lR 37 (13) Andrés Kristjánsson Haukum 36 (13) Hörður Haröarson Haukum 36 (13) Atli Hilmarsson Fram 36 (13) Ólafur Jónsson Vfk. 35 (13) Erlendur Hermannsson Vík. 34 (13) Páll Björgvinsson Vfk. 34 (12 ) Árni Indriðason Vfk. 34 (13) Einar Þorvarðarson HK 33 (13) Viggó Sigurðsson Vík. 33(12) Bjarni Guðmundsson Val 32(11) Guðmundur Árni Stefánsson FH 32 (14) Stefán Halldórsson HK 32 (13) Guðmundur Magnússon FH 31 (13) Gústaf Björnsson Fram 31 (12) ólafur Benediktsson Val 30 (10) Jón Pétur Jónsson Val 30 (11)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.