Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 Bootha hreinsaður V orster er grun- aður um græsku Höfðaborg, 2. apr. AP. STJÓRNSKIPUÐ rannsóknarnefnd hreinsaði í dag Pieter W. Botha, forsaetisráðherra Suður-Afríku, og meðráðherra hans af þeim ásökunum að hafa misnotað almannafé tii að múta ýmsum samtökum og fjölmiðlum til að skrifa jákva’ðar um Suður-Afríku. og hressa þannig upp á afstöðu almenningsálitsins í heiminum til S-Afríku. Aftur á móti var staðfest í skýrslunni, að af öllu mætti ljóst vera að fráfarandi forsætisráðherra, John Vorster, hefði vitað um þetta og jafnvel er gefið í skyn að hann hafi haft forgöngu um málið. Sagt er að um 100 milljónum dollara hafi verið varið á árunum 1973—1978 til þess að fá fréttamiðla ýmsa til að láta af gagnrýni sinni á kynþáttastefnu stjórnarinnar og með ýmsum öðrum ráðum hafi verið reynt að hafa áhrif erlendis í þessa átt. Stjórnarandstaðan í Suður-Afríku sem er mjög kröftug i gagnrýni sinni þótt hún eigi undir högg að sækja hefur þegar krafizt þess að Vorster verði sóttur til saka. Hann er nú forseti S-Afríku. Samningar staðfestir Þórshöfn, Færeyjum, 2. apr. Frá Jogvan Arge, fréttaritara Mbl. LÖGÞINGIÐ í Færeyjum heíur staðfest fiskveiðisamning þann sem gerður hefur verið milli landsstjórnar Færeyja og íslenzku ríkisstjórnarinnar. Var samningurinn staðfestur með 31 samhljóða atkvæði en einn þingmaður var fjarstaddur. Samkomulag Færeyinga og Norðmanna var einnig staðfest einum rómi, en samningurinn við Sovétríkin fékk aðeins 20 atkvæði þingmanna stjórnarflokkanna og samningur við Efnahagsbandalag Evrópu var staðfestur með 23 atkvæðum. Belgía: MARTENS verði forsætisráðherra Briíssel. 2. apríl. AP. BALDVIN Belgíukonungur skipaði um helgina Wilfried Martcnd formann Flæmska Kristilega flokksins til að verða forsætisráðherra í nýrri samsteypustjórn sem fimm flokkar eiga hlut að. Mánuði hefur tekið að koma saman stjórn 1' Belgi'u eftir að Leo Tindemans og stjórn hans sagði af sér. Undanfarnar vikur hafa mikil fundahöld verið í röðum stjórn- málamanna og undir forystu fráfarandi forsætisráðherra og Paul Vanden Boeynants varnar- málaráðherra. Fái nú nýja stjórn- in traust þingsins mun meginverk- efni hennar vera að undirbúa endurskoðun á belgísku stjórnar- skránni. Eru þá uppi hugmyndir að samkvæmt henni yrði Belgía gerð að tveimur sambandsríkjum, annað í norðurhluta landsins sem flæmskumælandi menn býggja og svo í suðurhlutanum þar sem frönskumælandi búa. Martend hefur verið formaður Flæmska kristilega flokksins síðustu sjö ár og hann var kjörinn í fulltrúadeild þingsins tveimur árum síðar. Hann þykir umbóta- sinnaður og nýtur stuðnings vinstri arms flokks síns svo og forystu verklýðsfélaga sem eru allvoldug í Belgíu. Hins vegar hafa þeir Martens og Tindemans ekki alltaf litið sömu augum á silfrið, ágreiningur hefur verið milli þeirra í ýmsum mikils- háttar málum. Martens hefur barizt mjög fyrir réttindum flæmskumælandi manna í landinu og hann telur að ekki sé jafnræði milli manna hvað þetta snertir. Hann er 43 ára gamall og ásamt Mota Pjnto, forsætisráðherra Portúgals, verður hann því yngsti forsætisráðherra í Evrópuríki. Þetta gerdist 3. apríl 1978—Bandaríkjamenn hætta við smíði nifteindasprengju. 1964—Bandaríkin og Panama taka aftur upp stjórnmálasam- band. 1949—Vopnahlé Araba og ísraels- manna. 1948—Bandaríkin úthluta $5.33 milljörðum til 16 Evrópuþjóða. 1941—Þjóðverjar taka Benghazi. 1936—Bruno Hauptmann líflátinn fyrir ránið og morðið á barni Lindberghs flugkappa. 1930—Haile Selassie verður keis- ari Eþíópíu. 1860—Pretoria verður höfuðborg Transvaal. 1776—Rússar láta af kröfum til Holstein samkvæmt Kaupmanna- hafnarsamningnum við Dani. 1977—Pasquale de Paoli kosinn hershöfðingi á Korsíku og stjórnar uppreisn gegn Genúa. 1742—Prússar missa Olmutz og herför Friðriks II á Mæri fer út um þúfur. 1693—Karl XII tekur sér alræðis- vald í Svíþjóð. Afmæli: Ge<?rge Herbert, enskt skáld (1593—1633). — Washington Irving, bandarískur rithöfundur (1783-1859). - J.B. Hertzog, suð- ur-afrískur hermaður — stjórn- málaleiðtogi (1865—1942). — Marlon Brando, bandarískur leik- ari (1924 — ...). — Doris Day, bandarísk leikkona — söngkona (1924-...). - Hinrik IV Eng- landskonungur (1367—1413). Andlát: Johannes Brahms, tón- skáld, 1897. Innlent: Tilkynning landshöfð- ingja um stofnun þjóðskjalasafns 1882. — Fundurinn í Laugarási 1261. — Sighvatur og Þorvarður sættast að Iðu 1262. — Brak finnst úr póstskipi íslands sem fórst út af Öndverðarnesi 1817. — Kosn- ingasigur vinstri manna í Dan- mörku 1901. — d. Magnús Stephensen landshöfðingi 1917. — Gengisfelling 1939. Orð dagsins: Ég vitna oft í sjálfan mig; það kryddar samræðurnar. — G.B. Shaw, írskur leikritahöfund- ur (1856-1950). Mynd þessi var tekin fyrir framan kjarnorkuverið í Harrisburg fyrir helgina. Fremst á myndinni er vörubifreið með líkan af kjarnorkuverinu, sem notað var til að finna leiðir til að koma í veg fyrir geislun andrúmsloftsins. YFIRVÓLD erlendra ríkja, þar sem kjarnorka er notuð eitthvað að ráði til rafmagnsframleiðslu, keppast nú við að fullvissa þjóðir sínar um að of mikið hafi verið gert úr biluninni í kjarnorkuverinu í Harrisburg í Bandaríkjunum, og að kjarnorkuver í þcirra löndum séu hættulaus. Hafa fjölmiðlar verið gagnrýndir fyrir að gera of mikið úr hættunni sem gæti stafað af geislun frá kjarnorkuverunum, segir í fréttum AP-fréttastofunnar í gær. I Vestur-Þýzkalandi hafa hins vegar dagblöðin varað lesendur sína við því að halda að bilanir eins og í Harrisburg geti ekki orðið í öðrum kjarnorkuverum. Blaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung segir í grein á mánudag að í rauninni hefði mátt búast við svipuðu slysi og í Harrisburg fyrir löngu. í bjartsýni sinni hafi kjarn- orku-vísindamennirnir alls ekki reiknað með því að neitt slíkt gæti gerzt, og því ekki gert neinar varúðarráðstafanir. I viðtali við blaðið segir þingmaðurinn Harald B. Scháfer, sem er formaður und- irnefndar í Sambandsþinginu, er hefur með kjarnorkumál að gera, að Harrisburg slysið neyði Vest- ur-Þjóðverja til að leita lausnar á orkumálum sínum án þess að þurfa að byggja á kjarnorku. Bendir hann á að kjarnakljúfurinn í Harrisburg sé frá sama fyrirtæki Bretar fara burt frá Möltu Valetta, Möltu, 2. aprfl — AP. Reuter. Á MIÐNÆTTI laugardaginn 31. marz lauk 179 ára her- og flotaaðstöðu Breta á eynni Möltu á Miðjarðarhafi, og minntust eyjarskeggjar þess með miklum hátíðahöldum og flugeldasýningum. Verður Malta framvegis hlutlaust ríki, án allrar aðildar að varnarbandalögum. undanfarin sjö ár hafa Bretar greitt Möltu 14 milljónir punda árlega í leigu fyrir aðstöðuna þar, en samningur ríkjanna rann út á laugardag. I stað stuðnings Breta kemur nú stuðningur frá Líbýu, sem heitið hefur Möltu ótakmörk- uðum efnahagsstuðningi og sam- vinnu. Eini erlendi þjóðhöfðing- inn, sem viðstaddur var hátíða- höldin á laugardag, var Muammar Gaddafi Libýuforseti. Gaddafi flutti ávarp við hátiða- höldin á laugardag, og sagði þar að bæði Atlantshafsbandalagið og Evrópa væru „fjandmenn" Möltu. „Hættið þessum áróðri um Möltu og Evrópu," sagði hann. „Malta á ekki heima í Evrópu... Evrópa á ekki heima á Möltu.“ Hann hét því svo að verja hluta olíugróða Líbýu til að styrkja efnahag Möltu og bæta upp tapið á leigunni frá Bretum, en kvaðst jafnframt ætl- ast til þess að Malta styddi harðlínustefnu sína gagnvart Isra- el. Malta varð sjálfstætt ríki árið 1964 og tíu árum síðar lýðveldi, en var áður brezk nýlenda. Bretar hafa jafnan haft her- og flota- stöðvar á eynni, en árið 1972 sömdu þjóðirnar um að stöðvarnar yrðu lagðar niður smám saman á næstu sjö árum. Síðasta brezka herskipið sigldi frá Möltu á sunnudag, og söfnuð- ust þá þúsundir eyjarskeggja sam- an við höfnina til að kveðja. 21 heiðursskoti var hleypt af frá St. Elmo-virkinu við höfnina, og svar- aði brezka skipið í sömu mynt. Kosið á Spáni í dag Madrid, 2. apríl. AP. BÆJAR- og sveitarstjórna- kosningar fara fram á Spáni á morgun, þriðjudag, og er þá búizt við því að síðustu fylgismenn Francos velti þá úr sessi og einnig er gert ráð fyrir því að fylgi sósíalista aukist verulega, svo og ítök frambjóðenda þjóðernissinna Baska á si'nu heimasvæði. Þetta eru fyrstu slíkar kosningar í nálega hálfa öld og enda þótt forsvarsmenn bæði sósíalista og kommúnista vonist eftir því að ná nokkru aftur af því kjörfylgi sem hvarf þeim til Suarezar í þingkosningunum er þeim ekki spáð afgerandi sigri, né heldur er búizt við ámóta úrslitum og urðu árið 1931, en afleiðingar kosningasigra kommúnista og sósíalista þá urðu að Alfonso þrettándi, afi núverandi Spánarkonungs, varð að segja af sér og lýðveldið varð til. Sósíalistum er spáð því að þeir nái borgarstjóraembættinu í Madrid og útlit fyrir góðan árangur þeirra í Barcelona er sagt blasa við. Mjótt er talið að verði á munum í Sevilla og Valencia. I Baskahéruðunum í norðurhluta Spánar er búizt við að þjóðernissinnar nái meirihluta í Bilbao og San Sebastian. A kjörskrá eru 26,7 milljónir manna, en spáð er dræmri kjörsókn, enda erþetta í fimmta sinn á 28 mánuðum sem Spánverjar mega ganga að kjörborðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.