Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 3 Belgískur tog- arí ákærður fyrir ólög- legar veiðar GEFIN hefur verið út ákæra vegna meints brots belgísks togara, en hann var staðinn að ætluðum veiðum á bannsvæði suður af Grindavík sl. laugardag. Togarinn var færður til hafnar í Reykjavík og mál skipstjórans rannsakað í gær og fyrradag. Jónatan Sveinsson, full- trúi hjá ríkissaksóknara, sagði að rannsókn málsins hefði fyrst og fremst beinst að því að kanna traustleika staðarákvarðana, sem oft væru vandasamar með lórantækjum. Komið hefði í Ijós að togarinn hefði verið rétt innan markanna við bannsvæði suður af Grinda- vík og hefðu sérfróðir menn staðfest mælingarnar og skipstjórinn ekki véfengt þær. Málið hefur verið dómtekið hjá Sakadómi Reykjavíkur og er dóms að vænta í dag. Belgíski togarinn við bryggju í Reykjavíkurhöfn Ljósn. Krtetján Minnihluti f járhags- og viðskiptanefndar: ,,Þ»víiíkt klambur get- ur ekki verid uppistada heilbrigdrar löggjafar ” Mun alvarlegri afskipti af kjara- samningum en skerding verdbóta MINNIHLUTI f járhags- og viðskiptanefndar gerir ekki tillögur um breyting- á frumvarpi forsætis- að og ar ráðherra um stjórn efna- hagsmála og fleira, „þar sem þvílíkt klambur, getur Lone Pine skákmótið: Korchnoi tapaði annarri skák Helgi og Gudmundur gerdu jafntefli en Margeir tapaði fyrir misskilning „ÞETTA var alveg sárgrætilegt. Eg gleymdi að skrifa í einn reitinn á skákblaðinu og hélt þvi að við værum búnir að leika einum leik fleiri en reyndin var og svo féli ég á tíma með unnið tafl,“ sagði Margeir Pétursson er Mbl. ræddi við hann í Lone Pine í gær. í sjöttu umferð tapaði Mar- geir fyrir Tarjan frá Bandaríkj- unum, en Helgi gerði jafntefli við Benkö og Guðmundur jafntefli við Federovic. í sjöttu umferðinni tapaði Korchnoi annarri skák í röð, nú fyrir Lombardy. Þeir Guðmundur og Helgi hafa nú 3,5 vinninga, en Margeir 3. Júgóslavinn Shamkovic er efst- ur með 5 vinninga, en hann vann Bandaríkjamanninn Lein í sjöttu umferðinni. Með 4,5 vinninga eru: Gligoric, Liberzon, Lombardy, Sheravan og Sosonko og Georgiu er með biðskák við Kaplan, sem Margeir sagði jafnteflislega og er Georghiu þá með 4,5 vinninga líka. Bent Larsen vann Lichterink frá Hollandi í sjöttu umferð og er nú með fjóra vinninga. Miles tapaði fyrir Sheravan og Hort er með lakara tafl í biðskák gegn Biyasis frá Kanada. ekki verið uppistaða heil- brigðrar löggjafar,“ segja þeir Jón G. Sólnes og Eyjólfur Konráð Jónsson í nefndaráliti, sem lagt var fram í efri deild Alþingis í gær. Segir í áliti þeirra, að með frumvaræinu sé verið að setja ákvæði um endurkröfu á hendur launþegum vegna fyrri óráðsíu stjórnarflokkanna. Minnihluti nefndarinnar segir í áliti sínu, að aðdragandi þessara breytingartillagna sé með undar- legum hætti og ætti það bæði við um það sem gerzt hefði utan þings og innan. Segja þeir félagar að uppgjöf ríkisstjórnarinnar við mótun árangursvænlegrar stefnu í efnahagsmálum sé algjör. „Jafn- framt er opinberað, svo að ekki verður um villzt, að verið er knýja fram kjaraskerðingu taka þannig aftur það, sem stjórnarliðið þóttist veita s.l. haust til að kaupa sér stundar- frið.“ í minnihlutaálitinu segir m.a., að fyrstu 32 greinar frumvarpsins í I. til VI. kafla séu með öllu óþarfar. Um VIII. kafla, „Verðbætur á laun“ segir: „Hér er verið að setja ákvæði um endur- kröfu á hendur launþegum vegna fyrri óráðsíu stjórnarflokkanna. Hljóta þeir einir að bera ábyrgð á slíkri lagasetningu. Jafnframt er um þann reginmun að ræða nú og á löggjöf fyrrv. ríkisstjórnar í febrúar og maí á s.l. ári, að kjarasamningar eru nú lausir. Auk þess eru með breytingartillögu meirihlutans við frumvarpið tekn- ar aftur þegar umsamdar grunn- kaupshækkanir. Þetta eru miklu alvarlegri afskipti af kjarasamn- ingum en skerðing verðbóta." — Sjá nefndarálit minnihlut- ans á bls. 29. Hvorki Stenmark, Karpov né ísbjöminn sá- ust 1. apríl ÞVÍ miður varð ekkert af því að Ingemar Stenmark birtist í skíðalöndunum fyrir ofan Reykjavík á sunnudaginn. Frétt Morgunblaðsins um komu skíðakóngsins hingað til lands var apríl- gabb að gömlum og góð- um sið. Nokkur hópur manna lagði leið sína í Hamragil og Bláfjöll á sunnudaginn og vonum við að þeir hafi haft gam- an af útiverunni og dvöl- inni í fjöllunum. Tíminn boðaði komu Karp- ovs heimsmeistara í skák, sem sömuleiðis var aprílgabb. Út- varpið sagði frá ísbirni, sem náðst hefði lifandi norður af landinu og sýningu á honum í Örfirisey. Sjónvarpið sagði frá vélsleðastökkvaranum og sagði að hann myndi nota sunnudagskvöldið til að stökkva á sleða sínum yfir Tjarnarbrúna. Loks notaði Þjóðviljinn tækifærið í tilefni dagsins og sagði frá einum af „óskadraumum" sínum, rúss- nesk-íslenzkri olíustöð í Viðey. o INNLENT Félag símamanna: Mótmælir afsali 3% launa- hækkunarinnar 1. apríl K jörin ný blad- st jórn Tímans Fundi miðstjórnar Framsóknarflokks lokið Á félagsráðsfundi Félags íslenskra símamanna, sem haldinn var 29. marz s.l. var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Félagsráð F.Í.S. hefur fjallað um samkomulag BSRB og fjár- málaráðherra um breytingar á smningsrétti og afsal 3% launa- hækkunar þann 1. apríl n.k. Félagsráð er andvígt þessu sam- komulagi og minnir í því sambandi á samþykkt sína frá 17. janúar s.l. þar sem segir m.a. að ekki komi til greina að falla frá umsaminni grunnkaupshækkun. Félagsráð bendir á, að þrátt fyrir að samkomulagið feli í sér takmarkaðan verkfallsrétt fyrir félögin rýrir það í raun samnings- rétt þeirra, þar sem það gerir ráð fyrir að þau geti einungis samið um röðun í launaflokka og þá aðeins á 3ja ára fresti. Þá telur Félagsráð að D-liður samkomulagsins, sem kveður á um ákvæði samningsréttarlaganna um hverjir ekki mega fara í verkfall verði gerð skýrari, sé mjög varhugaverður og bjóði þeirri hættu heim, að heilum starfshópum verði neitað að taka þátt í verkfalli." FUNDUR miðsjórnar Framsókn- arflokksins stóð frá sl. föstudegi til sunnudags og svo sem frá hefur verið skýrt í Mbl. var Steingrímur Hermannsson þar kjörinn formaður flokksins í stað Ólafs Jóhannessonar er gaf ekki kost á scr. Ritari flokksins var kjörinn Tómas Árnason. Einar Ágústsson varaformaður og Guð- mundur G. Þórarinsson gjaldkeri. Snjóflódahætta í Siglufirði SNJÓ hefur kyngt niður í Siglufirði að undanförnu og telja heimamenn mikla hættu á snjóflóðum þar sem hitastig hefur verið við frostmark, en snjó hefur kyngt niður á frosna jörð. Samkvæmt upplýsingum frétta- ritara Mbl. í Siglufirði eru vfða hættulegar hengjur og til dæmis einhverjar þær mestu sem menn muna við Sauðanes og við Stráka. Á fundi miðstjórnarinnar var kjörið í ýmsar nefndir m.a. fram- kvæmdastjórn og blaðstjórn Tím- ans. I framkvæmdastjórn voru kjörin Ólafur. Jóhannesson, Ey- steinn Jónsson, Helgi Bergs, Þórarinn Þórarinsson, Jónas Jóns- son, Halldór Ásgrímsson, Hákon Sigurgrímsson, Erlendur Einars- son og Ragnheiður Sveinbjörns- dóttir, en auk þeirra eru sjálf- kjörnir i framkvæmdastjórnina formaður flokksins og varafor- maður, ritari og gjaldkeri og for- maður Sambands ungra fram- sóknarmanna. í blaðstjórn Tímans voru kjörin: Steingrímur Hermannsson, Magn- ús Bjarnfreðsson, Gerður Stein- þórsdóttir, Pétur Einarsson, Geir Magnússon, Einar Ágústsson, Vil- hjálmur Jónsson, Heiður Helga- dóttir og Haukur Ingibergsson. Blaðstjórnin kýs sér sjálf for- mann, en hún hefur ekki enn komið saman til síns fyrsta fund- ar. AUGLYSING Hrókur alls fagnaðar í fermingarveizlunni Löngum hefur gítarínn verið vinsælt hljóðfæri. Góður til að slappa af með úti í horni. þegar streitan sverfur að, eða þegar tekið er lagið í margmenni og þú vilt gerast hrókur alls fagnaðar. Vandamálið er bara hvernig á að læra svolítið á hljóðfærið án þess að fara til kennara, binda sig við ákveðna tíma og ma'ta í hverri viku. Nú er, þetta vandamál leyst á íslandi. Þú getur fengið sent heim nám- skeið, kennslubók og tvær kassettur, en með þyí er hægt að læra svolítið á gítar sér til ánægju bara með einföldu og skemmti- legu heimanámi. Alveg sama á hvaða aldri þú ert — þetta er fyrir alla, sem spennandi og þroskandi. og er upplag takmarkað. kupna að lesa. Námskeiðið, bókin og Sendu pöntunarseðilinn, I bókinni eru heilmörg kassetturnar tvær, er í sem fylgir hér með, eða grip og fjöldi laga sem þú sérhönnuðum plastumbúð- hringdu í síma 85752 eða þekkir, en auk þess undir- um, vandað að öllum frá- 27015 (síðdegis) og við stöðuatriði í nótum, sem gangi og útliti, og kostar sendum námskeiðið sam- þú getur lært ef þú vilt, en kr. 17.000 auk sendingar- stundis meðan eitthvað er líka §leppt ef þú kýst held- kostnaðar. Það fæst aðeins eftir, eða veitum þér meiri ur. Á kassettunum tveim, hjá Gítarskóla Ólafs Gauks upplýsingar ef þú vilt. sem fylgja með bókinni, eru leiðbeiningar og út- skýringar. Þar eru öll grip, allar æfingar og lög leikin Gjöriö svo vel aö senda mér undirrit. i póstkröfu gítarnámskeiölö fyrir þig og ætlunin er að Leikur að læra é gítar.tvær kassettur og bók, verö kr 17.000 auk þú æfir þig með kassett- sendingarkostnaöar. unni. Þannig verður þú miklu fljótari að komast NAFN ............................................................ upp á lag með að leika á e.gin spytur undir hjá HElMA ........................................................... sjalfum þer, eða öllum 1 partýinu ef svo ber undir. ferm^n^argjöf^' ^^bæiM tltanáskrlft: Gíarskóli Ólafs Gauks, pósthólf 806. 121 Reykjavík. PONTUNARSEÐiLL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.