Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 Kókaínmálið: T veimur sleppt úr einangrun Börnin flutt heim til íslands TVEIR íslendinganna, sem sitja í gæzluvarðhaldi vegna kókaínmálsins, komu fyrir rétt í Kaup- mannahöfn í gær. Þar stað- Ólafsvík: Kötturiim og minkabaninn misstu af minknum Ólafsvfk 2. apríl. ÞAÐ bar við hér um daginn að húsmóðir sem býr við Ólafsbraut, næst sjónum, sá kött í óvenjulegum veiðihug- leiðingum. Hafði kisi farið niður í fjöru, rekizt þar á mink og hugðist ráða niður- iögum hans. Konan kallaði á vegfaranda einn til að skoða þetta nánar. Kom í ljós að kisi gerði sér grein fyrir að þarna var hættulegur and- stæðingur á ferðinni og var því alveg tvöfaldur að gild- leika með hvert hár öfugt. Þó reyndi kisi að komast að minknum með vopnlausan manninn til hjálpar. Slapp I minkurinn fyrst í holu og tókst síðan að skjótast í grjótfyllinguna við höfnina og var þá hólpinn. Það napurlega við þetta allt sam- an var það, að hjálparmaður kisa var enginn annar en refa- og minkabani staðarins, en gjörsamlega vopnlaus eins og áður sagði. Hefur honum trúiega orðið svipað við eins og einum kvikmyndatöku- stjóra BBC í hitteðfyrra. Sá var staddur á hálendinu með Sigurjóni Rist þegar eldur kom upp á Leirhnjúks- ^væðinu. Óku þeir eins og dró á vettvang. Þegar að gosinu kom fórnaði sá enski höndum og hrópaði eitthvað á þessa leið: „Hér stend ég, starfs- maður BBC, við fyrsta og kannski eina jarðeld sem ég mun sjá á ævinni, og hef ekki einu sinni myndavél við höndina.“ Þess má geta að lokum að dæmi eru til að köttur hafi drepið mink hjálparlaust. -Heigi. festu þeir framburð sinn fyrir dómara og voru að því búnu leystir úr einangrun. Hins vegar verða þeir áfram hafðir í haldi í Vestre-fangelsinu eða til 30. aprfl n.k. Þá mun væntanlega ganga dómur í máli þeirra og er talið líklegt að þeir afpláni refsingu sína í fangelsi úti á Sjálandi. Hinir Islendingarnir tveir, hjón, munu væntanlega koma fyrir rétt- inn seinna í vikunni. Gæzluvarð- hald þeirra rennur út á föstudag- inn og munu talsverðar líkur á því að þeim verði þá sleppt úr haldi. Þau hjónin eiga saman 6 mánaða stúlkubarn, sem til skamms tíma var í fangelsinu hjá móður sinni, og konan á einnig 9 ára gamlan dreng. Akveðið hefur verið að börnin fari heim til Islands við fyrstu hentugleika og mun móðir konunnar fylgja þeim hingað heim. Þessa mynd tók Ól.K.M. á hinum fjölmenna fundi Varðbergs í Reykjavík um helgina. Farmanna- og fiskimannasamband íslands: Kröf ur um allt ad 110% launahækkun sjómanna 15—20% hækkun á gos- drykkjum og öli RÍKISSTJÓRNIN hefur staðfest 15—20% hækkun á gosdrykkjum og öli, sem hlotið hafði samþykki verð- lagsnefndar fyrir nokkru. Orsökin er hækkanir á hrá- efni, launum og aðrar kostnaðarhækkanir, sam- kvæmt upplýsingum Gunnars Þorsteinssonar varaverðlagsstjóra. Hækkunin er mest á öli, 20%, hækkun á ávaxtadrykkjum er 18% en hækkun á kóladrykkjum og öðrum drykkjum 15%. Samkvæmt þessu hækkar 19 cl Coka Cola-flaska úr 62 í 77 krónur, 25 cl appelsínflaska hækkar úr 75 í 88 krónur og 20 cl Seven up-flaska hækkar úr 66 í 78 krónur. Pilsner- flaskan hækkar úr 122 í 147 krónur en Thule-lageröl hækkar úr 157 í 189 krónur flaskan. VINNUVEITENDASAMBAND íslands hefur nú rciknað út kröf- ur Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands og reiknazt því til, að þær þýði í grunnkaups- hækkunum frá 26% til 56%. Heildarlaunahækkunin, sem kröf- urnar myndu hins vegar hafa í för með sér. þegar tekið hefur verið tillit til ýmissa sérkrafna og frídaga, yrði frá 80 til 110%, ef samþykktar yrðu. Er þá ekki tekið tillit til nokkurra þátta, sem enn hafa ekki verið reiknaðir nákvæmlega út. Gætu þeir leitt til hækkunnar. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk í gær frá VSÍ, hefur ekki verið ákveðinn samn- ingafundur, en kröfurnar voru afhentar síðastliðinn miðvikudag. Á fundi í dag mun framkvæmda- stjórn VSÍ fjalla um kröfurnar, svo og afstöðuna til samningamál- anna í heild miðað við þau áform stjórnvalda að lögfesta grunnkaup og verðbætur. Ingólfur Ingólfsson forseti Far- manna- og fiskimannasambands íslands, sagði að reikna mætti kröfur sambandsins til þessa gild- is, sem VSÍ hefði gert, en þó væru vandkvæði á að meta þær að fullu, þar sem um væri að ræða viða- mikla kerfisbreytingu launakerfis, sem auðvitað kæmi mjög mismun- andi niður eftir stöðum. Það væri hins vegar ekkert launungarmál, að næði allt fram að ganga, sem sett væri fram, þá myndu kröfurn- ar leiða af sér mjög miklar hækk- anir. Ingólfur kvað sjómenn hafa átt von á því að annar samningafund- ur yrði haldinn á miðvikudag og kvaðst hann ekki vita annað en við það yrði staðið. Deilan er enn ekki komin til sáttasemjara ríkisins. Ungir Alþýðubandalagsmenn: Ræðumaratahallæri Kappræðufundum við sjálfstæðis- menn frestað á 4 stöðum Smygl í Mánafossi TOLLVERÐIR fundu fyrir helgi 91 áfengisflösku og 12 vindlinga- Iengjur í m.s. Mánafossi, þar sem skipið lá í Reykjavíkurhöfn. Mest- ur hluti áfengisins var Vodka. Vélstjórar skipsins áttu varning- BÚIÐ var að ákveða kappræðufundi víða um land á næstu dögum á milli ungra sjálf- stæðismanna og æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins, en nú hefur orðið að fresta fjórum fundum þar sem alþýðubandalagsmenn hafa tilkynnt að þeir hafi ekki ræðumenn til kappræðu við unga sjálfstæðismenn og geti ekki útvegað þá fyrr en að nokkrum vikum liðnum. Fundirnir sem búið er að fresta áttu að vera í Vestmannaeyjum þar sem Eyjamennirnir Árni Johnsen, Árni Sigfússon og Sigurður Jónsson munu tala af hálfu ungra sjálfstæðismanna, á ísafirði þar sem Guðmundur Þórðarson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Pétur Rafnsson tala, á Akureyri þar sem heimamennirnir Björn Jósef Arnviðarson og Sigurður J. Sigurðsson tala auk Jóns Magnús- sonar og á Húsavík þar sem ræðumenn verða Björn Jósef Arn- viðarson, Þorvaldur Mawby og Júlíus Hafstein. Akureyri 2. aprfl FYRIR nokkru var öllu starfsíólki K. Jóusson og co á Akureyri sagt upp störfum, alls um 120 Efnahagsfrumvarp forsætisráðherra: Þingmenn Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags þögðu þunnu hljóði Breytingartillögur meiri- hluta fjárhags- og viðskipta- nefndar Efri deildar Alþingis við efnahagsfrumvarp forsætis- ráðherra, tíu talsins, vóru sam- þykktar með 13 samhljóða at- kvæðum í deildinni í gær ásamt viðaukum við bráðabirgða- ákvæði laganna. Frumvarps- greinar, rúmlega 60 talsins, vóru síðan samþykktar sam- hljóða utan það að þingmenn Sjálfstæðisflokks greiddu at- kvæði gegn 54., 56., 57., 59. og 63. grein frumvarpsins. Frum- varpsgreinarnar sem sjálf- stæðismenn greiddu atkvæði gegn fjölluðu um skyldu vinnu- veitenda til að gefa upp með tveggja mánaða fyrirvara breytingar í rekstri, sem leitt gætu til samdráttar í atvinnu, og um breytingar á verðlags- ákvæðum nýrra verðlagslaga sem taka áttu gildi 1. nóv. n.k. K. Jónsson og co. á Akureyri: Helmingur starfsfólks- ins þegar endurráðinn manns, vegna þess áfalls sem fyrirtækið varð fyrir, þegar þess varð vart að gaffalbitar, sém það sendi á Rússlandsmarkað, reyndust gölluð vara. Nú um mánaðamótin var um helmingur starfsfólksins endurráðinn og að sögn Kristjáns Jónssonar for- stjóra er ákveðið að ráða hinn helminginn eftir páska. Nú er verið að vinna ýmsar vörur fyrir innanlandsmarkað og verksmiðjan mun vera í þann veginn að hefja framleiðslu á útflutningsvörum einnig, einkum rækjum, sem keyptar hafa verið frá ýmsum stöðum. Allt er enn óljóst um framtíð útflutnings til Sovétríkjanna, en vonast er til að þau mál fari að skýrast alveg á næstunni, þannig að verksmiðjan komist í fullan gang eftir miðjan mánuðinn. -Sv. P. Siglufjörður: 15-20 millj. kr. tjón grá- sleppukarla TJÓN grásleppukarla í Siglu- firði er mjög tilfinnanlegt af völdum hafíssins, því þeir hafa á síðustu vikum tapað milli 300 og 400 netum sem ísinn hefur sópað burt á rekinu, en hvert net kostar um 50 þús. kr. þannig að hér er um að ræða 15—20 milljón króna tjón. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu síðan atkvæði gegn því að vísa frumvarpinu til þriðju umræðu sem er undirstrikun á andstöðu þeirra við frumvarpið í heild. Það vakti sérstaka athygli að þingmenn Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags, sem harðast hafa deilt um efnahagsmál á Alþingi í vetur, tóku ekki þátt í umræðunum. Rifa á stefni Heklunnar í á- tökum vió ísinn RIFA og sprungur komu stjórn- borðsmegin á stefni strandferða- skipsins Heklu í átökunum við hafísinn norður af landinu í síðustu viku. Skipið var tekið í slipp í Reykjavík á sunnudaginn og kom þá í ljós að skipið var einnig dældað á fleiri stöðum. Auk viðgerðarinnar vegna ís- skemmdanna þarf að gera við bilun í vél skipsins, en Heklan heldur væntanlega vestur um land á miðvikudagskvöld eða á fimmtudagsmorgun. Hafísinn fyrir Norðurlandi hef- ur sett áætlanir strandferðaskip- anna verulega úr skorðum. Þannig fer Esjan austur um land í dag, en þangað átti hún að fara síðastlið- inn föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.