Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
1
Mikil gróska í
FYRIR skömmu boðaði aðal-
stjórn Knattspyrnufélagsins
Víkings til blaðamannafundar í
félagsheimilinu við Hæðargarð. A
blaðamannafundi þessum kynnti
stjórn félagsins atarf hinna ýmsu
deilda, og hvað framundan væri í
starfi þeirra. Þá var blaða-
mönnum boðið að skoða glæsilegt
félagsheimili þeirra svo og alla
aðstöðu. Miklar endurbætur hafa
að undanförnu verið gerðar á
félagsheimilinu og því verið gjör-
breytt. Er öll aðstaða þar orðin
hin besta.
Þá hefur Víkingum nú verið
úthlutað framtíðaríþróttasvæði
innst í Fossvogsdalnum. Er
mikill fengur að úthlutun
þessari, en stefnt verður að því að
svæðið komist í notkun á næstu
4 — 6 árum. Fram kom að á döf-
inni er útgáfa sérstaks frétta-
bréfs Víking og er hugmyndin sú
að með útgáfu slíks rits sé hægt
að ná betra sambandi við fólk það
sem býr í Víkingshverfinu.
Á blaðamannafundinum kom
fram að mikil gróska er í öllu
starfi félagsins, og fjölgar
félögum stöðugt. Var mikill
hugur í aðalstjórn svo og for-
mönnum deildarinnar að gera
veg og vanda Víkings sem mestan
á komandi árum.
Nýtt framtíðar
íþróttasvæði
Víkingur hefur frá því á miðjum
sjötta áratugnum haft aðalbæki-
stöðvar sínar og íþróttasvæði milli
Breiðagerðisskólans og Hæðar-
garðs. Svæði þetta er á margan
hátt mjög gott og hefur dugað
félaginu vel, en á síðari árum er
það farið að verða í minnsta lagi
og farið að kreppa að starfssemi
félagsins. Þess vegna hafa
Víkingar í mörg ár svipast um
eftir nýju íþróttasvæði fyrir
félagið. Á árunum 1970—‘72 sóttu
Víkingar um að fá úthlutað svæði
innst í Fossvogi, en samningar
tókust ekki við borgina og IR-ing-
um var úthlutað þetta svæði. Er
ÍR fékk vilyrði fyrir íþróttasvæði í
Mjóddinni í Breiðholti afsöluðu
þeir sér svæðinu í Fossvoginum.
Árið 1974 gerðu Víkingar
samning við borgaryfirvöld um að
félagið fengi forgang að umræddu
svæði í Fossvogi, sem borgin
hugðist sjálf byggja upp með
almenningsnot í huga. Hugmynd
borgaryfirvalda var að svæðið yrði
tilbúið til notkunar að einhverju
leyti 1978 og ‘79. Vegna fjárhags-
örðugleika varð að fresta fram-
kvæmdum við svæðið að mestu, en
frumvinna hefur þó farið fram á
svæðinu. Víkingar ákváðu því að
sækja um þetta svæði fyrir félagið
að nýju. 8. nóvember var umsóknin
send til borgaryfirvalda og rúmum
mánuði síðar var Víkingum form-
lega úthlutað þetta svæði.
Að mati Víkinga er það mikill
fengur að hafa fengið svæði þetta
til einkanota fyrir félagð. Það er
mjög skjólsælt og gróðursælt,
innst í Fossvogsdalnum fyrir
vestan Gróðrastöðina Mörk. Um
leið og snjóa leysir er ætlunin að
mæla svæðið út og láta síðan gera
teikningar. Stefna Víkings er sú að
svæðið komist í gagnið á næstu
4—6 árum og m.a. er ætlunin að
þar verði heimaleikvangur 1.
deildarliðs Víkings í knattspyrnu.
íþróttahús og
félagsheimili
Það hefur lengi verið draumur
Víkinga að byggja eigið íþrótta-
hús. Árið 1977 var sótt um til
Iþróttaráðs og Iþróttanefndar
ríkisins leyfi fyrir byggingu slíks
mannvirkis, en svör hafa ekki
borist. Iþróttahússjóður hefur
verið stofnaður innan félagsins, en
það segir sig sjálft að gífurlegt
átak þarf til að koma slíku húsi
upp. Grófir útreikningar telja
kostnað vegna byggingar íþrótta-
húss eins og Víkingar hafa í huga
vera 300—350 milljónir króna.
Miklar og dýrar endurbætur
hafa verið gerðar á félags-
heimilinu að undanförnu. Síðast-
liðinn vetur var suðurálmu húss-
ins gjörbreytt og þar gerð vönduð
búningsherbergi og baðklefar. I
vetur hefur endurbótunum verið
haldið áfram og það nýjasta er að
gamlar myndir og merki, sem
félagið hefur eignast á langri leið,
hafa verið dregin upp úr skúffum
og skápum, kössum og kistum, víðs
vegar um bæinn og skreyta nú
félagsheimilið.
Félagsheimilið er nýtt flest
kvöld vikunnar allan ársins hring.
Auk búningsaðstöðu og herbergis
fyrir þjálfara og dómara í suður-
álmu er gott fundarherbergi í
heimilinu, stór salur, sem m.a. er
notaður fyrir stærri fundi og
borðtennisdeild félagsins, lítið eld-
hús, lítil verzlun og anddyri eða
hol, sem m.a. er notað fyrir starf-
semi Bridgedeildar félagsins.
Knattspyrnan
Mikill hugur er nú í knatt-
spyrnumönnum Víkings. Sovét-
maðurinn Youri Ilytchev hefur
verið ráðinn þjálfari meistara-
flokks og 10. febrúar hófust
æfingar af miklum krafti, og æft
er 4—5 sinnum í viku. Binda
Víkingar miklar vonir við starf
Youra, því að maðurinn er snjall
þjálfari og náði frábærum árangri
með lið Vals á sínum tíma. Ekki
verður ungu kynslóðinni gleymt og
hefur Sverrir Friðþjófsson verið
ráðinn unglingaleiðtogi félagsins.
Er ætlunin að endurskipuleggja
allt unglingastarfið frá grunni.
• Það er best að sýna hvað í manni býr.
félagsstarfi Víkings
• Aöalstjórn Víkings. Neðri röð frá vinstri: Vilhelm Andersen, Jón Aðalsteinn Jónasson formaður Víkings,
Kristján Helgason, Efri röð f.v. Brúnó Hjaltested, Jón Valdimarsson, Hjörleifur Þórðarson. Á myndina vantar
Árna Árnason og Einar Guðmundsson.
Handknattleikur
Meistaraflokkur Víkings er nú í
fremstu víglínu í handknatt-
leiknum, hefur náð mjög góðum
árangri í íslandsmótinu í vetur og
stefnir að tvöföldum sigri, bæði
bikar og sjálfan íslandsmeistara-
titilinn. Hefur starf pólska
þjálfarans Bodans Kolwalsky
skilað sér ríkulega, og allt bendir
til þess að hann starfi áfram hjá
félaginu.
Handknattleiksdeildin hefur
ákveðið að taka þá nýbreyttni upp
að hafa æfingar fyrir alla flokka
félagsins í sumar. Að vísu verður
gefið hlé í mánaðartíma eftir að
keppnistímabilinu lýkur, en síðan
byrjað að fullum krafti.
Víkingur eiga rétt á haust-
heimsókninni í handknattleik og
hafa mikinn hug á að fá hingað
sterkt lið og hefur Barcelona verið
nefnt í því sambandi, en einnig
kemur þýska liðið Gummersbach
til álita. Víkingar munu senda
2—3 flokka ungra handknattleiks-
manna á Partille V Cup í sumar
eins og undanfarin ár.
Stuðningsmannaklúbbur hefur
verið stofnaður hjá félaginu og
mun hann fylgja handknattleiks-
mönnum svo og knattspyrnu-
mönnum á leikjum liðanna. Nú
þegar er 90 manna hópur skráður í
klúbb þennan.
Skíðadeild
Skíðaskáli Víkings í Sleggju-
beinsskarði hefur mikið verið
notaður í vetur og greinilegt að
margir forðast örtröðina í
Bláfjöllum og renna sér heldur í
brekkunum fyrir ofan Kolviðarhól
eða í Skálafelli. Þrjár togbrautir
eru í Víkingsbrekkunum og m.a.
ein, sem eingöngu er ætluð
byrjendum, en þar fer fram
kennsla fyrir nýgræðinga í íþrótt-
inni um allar helgar. I sumar er
ætlun skíðadeildar að komast eins
langt með byggingu aðallyftunnar
og framast er kostur, en einnig
verður byggt við skíðaskálann í
sumar sérstakt herbergi fyrir
kennara.
Blakdeild, borðtennisdeild
og badmintondeild
Uppbygging blakdeildar hefur
gengið vel í ár eftir nokkra lægð.
Karlalið félagsins hefur nú nýlega
tryggt sér sæti í 1. deildinni að
nýju. Um badmintondeild er það
að segja að heldur stirðlega hefur
gengið að vinna íþróttinni sess
innan félagsins, en ungt og efni-
legt fólk er farið að gera sig
gildandi á unglingamótum. Borð-
tennisdeildinni hefur gengið betur
og Víkingur á nú 3 landsliðsmenn
og 3 í unglingalandsliði. Þessar
þrjár deildir voru allar stofnaðar
1974 og eru því ungar að árum.
Þá eru göngudeild og bridge-
deild starfandi í félaginu.
Göngu-Víkingar hittast á hverjum
sunnudagsmorgni og ráða með sér
hvert skuli gengið þann daginn. Og
hjá bridgedeildinni spila reglulega
um 35 manns.
Fulltrúaráð og kvennadeild
hefur starfað innan Víkings um
árabil og verið félagsstarfinu
mikill styrkur. Víkingskonurnar
hafa ávallt verið tilbúnar að rétta
hjálparhönd þegar til þeirra hefur
verið leitað.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu er ekki setið auðum
höndum. Félagsstarfið blómstrar
og árangurinn og uppskeran eiga
eftir að koma í ljós.
- þr.
• Þeirra er framtíðin. Ungir knattspyrnumenn á æfingu hjá Víkingi.
Framtíðarsvæðið
verður í Fossvogi