Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 5 Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyn: Samningar tókust við röntgentækna Akureyri 2. apríl vildu þeir ekki una og sögðu því KJARADEILA heíur staðið að undanförnu milli stjórnenda Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og fjögurra röntgen- tækna, sem þar starfa. í haust var samið við meinatækna, sem vinna við FSA, og þá drógust röntgentæknarnir aftur úr. Því Fyrirlestur um málaralist á Selfossi LISTASAFN íslands efnir til fyrirlesturs í gagnfræðaskólanum á Selfossi miðvikudaginn 4. apríl kl. 20.30. Ólafur Kvaran listfræð- ingur flytur fyrirlestur sem nefn- ist „Upphaf abstraktlistar á Is- landi". Öllum er heimill aðgangur. upp störfum frá og með 1. apríl. Á föstudagskvöld tókust svo samningar í deilu þessari. Röntgentæknar komu til starfa sinna í gær, sunnudag, og starf- semi röntgendeildar FSA varð ekki fyrir neinni truflun. Helztu ákvæði samkomulagsins eru þau að laun röntgentækna hækka eins og meinatækna um tvo flokka, úr 11. í 14. launaflokk, og fyrirheit er gefið um hækkun í 14. launaflokk út á væntanlega sér- menntun og starfstíma. Fyrir hvert starfsár að loknu námi fá röntgentæknar 3,6 starfsstig og eftir að hafa áunnið sér 10 starfs- stig hækka þeir um einn launa- flokk. Auk þess geta þeir fengið launahækkun út á sérmenntun, sem FSA hefur í hyggju að sjá þeim fyrir. -Sv. P. nnnn nordííIende nnnnnn LITASJONVORPIN mæla með sér sjálf serstök vildarkjör 35% út og restin á 6 mán. BUÐIN ■--_ / Skipholti 19, sími 2980 Sex sýning- ar ákveðnar á íslands- klukkunni FÖSTUDAGINN 30. aprfl frum- sýndi Ungmennafélag Biskups- tungna íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness í félagsheimili Aratungu. Húsið var þéttskipað og var flytjendum og stjórnanda, Sunnu Borg, ákaft fagnað í leikslok. Var það mál manna'að sýningin hefði tekist með ágæt- um, enda skiluðu leikendur allir hlutverkum sínum með prýði og hinar öru sviðsskiptingar gengu snurðulaust. Fyrirhugaðar eru að minnsta kosti sex sýningar á Islandsklukk- unni. Var hún flutt öðru sinni í Aratungu á sunnudagskvöld, en á þriðjudag verður sýning á Hvoli og á miðvikudag á Flúðum. Föstudag- inn 6. apríl er sýning ákveðin á Borg í Grímsnesi, en fyrirhugað er að sýna íslandsklukkuna þriðju- daginn 10. apríl og í Félagsheimili Seltjarnarness á skírdag. Allar þessar sýningar hefjast klukkan 21. Mikill rekís á Öxarfirði Skinnastað 2. apríl SÍÐUSTU viku var mikill rekís á Öxarfirði, en tals- verð hreyfing á honum bæði af völdum vinda og sjávar- falla. Á hádegi í gær, sunnudag, var samfelldur ís allt að 7/10 að þéttleika að sjá frá Kópaskeri, en auðar lænur sáust þó utar. Höfn- inni á Kópaskeri er lokað með stálvír og þar hefu'r ekki verið farið á sjó í tvær vikur, ýmist af völdum haf- íss eða illviðra. Illviðrasamt var í Öxarfirði allan síðasta mánuð og margir hríðardagar. Aðalþjóðvegir eru nú ruddir á mánudögum, en jafnan myndast ófærur eða illfærir kaflar fljótlega aftur. Torveldar það sam- göngur. Skafrenningur er oft tölu- verður. Norðvestan hríðarveður er í dag og mokar niður snjó. IB-lánin bjóða marga valkosti. Þarftu mikið, - eða lítið? Er fyrirvarinn langur - eðastuttur? Heimilterað hækka innborg- anir og framlengja samninga. Allt eftir efnum og ástæðum. Býður nokkur annar IB-lán? Kynntu]pér hinavalkDStma. SPARNAÐAR- DÆMI UM MANAÐARLEGA INNBORGUN SPARNAÐUR IÐNAÐARBANKINN RÁÐSTÖFUNAR- MÁNAÐARLEG ENDURGR. TÍMABIL í LOK TÍMABILS LÁNAR ÞÉR FÉ MEÐ VÖXTUM ENDURGREIÐSLA TÍMABIL 6 man. 30.000 50.000 75.000 180.000 300.000 450.000 180.000 300.000 450.000 367.175 612.125 917.938 32.197 53.662 80.493 6 . man. 12 40.000 480.000 480.000 1.002.100 45.549 12, li=o , 60.000 720.000 720.000 1.502.900 68.324 man. 75.000 900.000 900.000 1.879.125 85.405 man. BanMþieirra sem íiyggja aö fiamtíðmni Iðnaðarbankinn AóalbanM og útíbú Sigurvin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.