Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 35 Margrét Hrefna Guð- numdsdóttír — Mbming Fædd 23. júní 1939. Dáin 27. mars 1979. Hrefna er búin að kveðja okkur hérna megin, það sannar einu sinni enn, að þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Erfitt er að sætta sig við að hún sé hrifin brott frá okkur svo skyndilega. Hún sem alltaf var til staðar ef á þurfti að halda, boðin og búin, og aldrei fór hún í manngreinarálit eða talaði illa um fólk. Þegar við bjuggum á Hverfisgötunni fyrir mörgum árum léku dætur okkar sér saman, en ekki urðu þau kynni mikil þá. Seinna hittumst við aftur í félagsskap sem við vorum báðar í og ef eitthvað bjátaði á í nefndarstörfum sem við hjónin vorum í þá voru Hrefna og Cecil ætíð tilbúin að hjálpa til hvernig sem á stóð hjá þeim sjálfum. Allir menn voru jafnir í hennar augum. Ég tók eftir því þegar hún kom til mín í heimsókn þá var hún gjarnan með fólk frá Skálatúni en þar starfaði hún utan heimilis, og þar eru eflaust margir sem sakna hennar og seint verður hennar skarð fyllt þar sem og á öðrum stöðum. Hún var heldur ekki að kvarta í sínum veikindum síðustu dagana frekar en á öðrum tímum. Við hérna á heimilinu eigum eftir að sakna komu hennar og það rúm verður ekki fyllt. Hitt er annað mál að ættingjar og vinir geta yljað sér við fallegar minningar um góða konu. Það er erfitt að skilja tilganginn með því þegar fólk er hrifið frá okkar jarðlífi og það kona frá börnum, eiginmanni, stóru heimili og starfi utan þess sem henni var mikils virði. Við hjónin hér heima og börnin biðjum guð að styrkja þau, eiginmanninn, börnin og aðra ástvini í sorg þeirra. M.M. Það kom eins og reiðarslag yfir mig sem aðra fréttin um að Hrefna væri látin, hún sem alltaf var svo hress og dugleg. Hrefna stofnaði ásamt mér og nokkrum fleiri konum Sínawik klúbbinn í Mosfellssveit fyrir um það bil 2 árum síðan. Ekki hvarflaði að að okkur Sínawikkonum að Hrefna ætti Nefnd til að endurskoða lög aflatryggingasjóðs Sjávarútvegsráðherra hefur í samræmi við fyrri fyrirætlanir skipað nefnd til þess að endur- skoða lög og reglur Afiatryggingarsjóðs með tilliti til þess að hann gegni hlutverki sínu sem best við að jafna aflasveiflur og tryggja afkomu sjómanna og útgerðar við ríkjandi aðstæður, sem einkennast af breyttri fisk- gengd og nauðsynlegum sóknar- takmörkunum á mikilvægum fiskstofnum. I nefndina voru skipaðir þessir menn: Ingólfur Ingólfsson, for- maður Farmanna- og fiskimanna- sambands Islands, Óskar Vigfússon, formaður Sjómanna- sambands Íslands, Kristján Ragnarsson, formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, Vilhelm Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra botnvörpuskipa- eigenda. Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri, Isafirði, Ólafur Björnsson, framkvæmda- stjóri, Keflavík, Már Elísson, fiski- málastjóri, Jakob Jakobsson, fiski- fræðingur, Hrafnkell Ásgeirsson, lögfræðingur, Jón Sigurðsson, þjóðhagsstjóri, sem er formaður nefndarinnar. Jafnframt hefur Þórarni Árnasyni, framkvæmda- stjóra Aflatryggingarsjóðs verið falið að starfa með nefndinni. (Fréttatilkynning frá Sjávarútvegsráðherra) EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU eftir að eiga svo stuttan tíma með okkur sem raun bar vitni. Ég kynntist Hrefnu fyrir 20 árum er ég gerðist barnfóstra hjá henni, og við höfum hist af og til síðan. Hrefna var vinnusöm og rösk kona þrátt fyrir veikindi sem hún hefur átt við að stríða. Hrefna lætur eftir sig eiginmann og 4 börn, Helgu, Guðmund, Sigurð og Inga Steina. Ég votta ykkur dýpstu samúð mína og bið algóðan Guð að blessa ykkur í harmi ykkar. Sigurlaug Albertsdóttir. Kveðja frá samstarfs- fólki á Skálatúni. Okkur setti hljóð, þegar fréttin um að Hrefna væri dáin barst til okkar í vinnuna. Drungi færðist yfir staðinn og fólk átti eftitt með að koma sér að verki. Hrefna hafði verið frá vinnu vegna veikinda undanfarið, en nokkrum dögum fyrir andlátið hafði hún komið við hjá okkur og hún var svo kát og hress. Erindi hafði hún átt, því að alltaf var hún með hugann við vinnuna, þó svo að hún væri forfölluð vegna veikinda. Ekki óraði okkur á þessari stundu fyrir því, að þetta væri í síðasta sinn, sem við sæjum Hrefnu. Hrefna var gjaldkeri heimilisins, en þrátt fyrir að hún ynni starfið mikið á skrifstofu sinni, einangraðist hún ekki frá öðru starfsfólki. Þvert á móti, kynntist hún fólkinu vel og fékk um leið brennandi áhuga á því starfi, sem verið er að vinna á heimilinu. Var hún alltaf boðin og búin að gera allt, sem hún gæti til að taka þátt í þessu starfi. Hrefna útvegaði einni stúlkunni, sem hér dvelur, vinnu í Reykjavík. Einnig bauð hún henni að vera með sér og fjölskyldu sinni á hátíðum, þegar svo margir fara heim til foreldara sinna. Þannig var Hrefna virkur þátttakandi í öllu starfinu á staðnum. Við kveðjum í dag Hrefnu Guðmundsdóttur, en minningin um góða konu, sem alltaf var reiðubúin að veita hjálparhönd, mun lifa í hugum okkar. Við sendum Cecil, börnunum, móður hennar og öðrum ættingjum, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að veita þeim styrk í þeirra miklu sorg. 4 gLæsileg innstotsborð á aðeíns 89.500krónur Af sérstökum ástæðum getum við nú boðið nokkur sett af þessum glæsilegu ítölsku innskotsborðum á aðeins kr. 89.500. í hverju setti eru 4 borð, þau eru lökkuð og fást í fjórumlitum,svört,dökkbrún hvít og gul. Borðplatan er úr harðplasti í tveimur litum hvítu og svörtu, henni má snúa við með einu þandtaki. Glæsileg borð með góðum greiðslukjörum. Sendum gegn póstkröfu. Sérverslun meö listræna husmuni Borgartún 29 Simi 20640 felSM^ Kodak ektra22ef myndavelin MEÐ INNIBYGGÐU EILÍFÐARFLASSI Þessi nýtízkulega hannaöa myndavél með handfanginu er með innibyggðu eilífðarflassi, þannig aó þú stillir á flassmerkið og styöur svo á takkann og tekur allar þær myndir sem þig langar til. Handfangið gerir vélina stöðugri og hjálpar þér til að taka skarpari myndir. HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S:20313 GLÆSIBÆ S:82590 AUSTURVERI S:36161 Umboðsmenn um land allt Verð á vél í gjafaöskju með 2 rafhlöðum og einni filmu: Kr. 24.700.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.