Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
17
son læknir. Framkvæmdastjóri
félagsins er Þorvarður Örnólfsson.
Félagsmenn eru nú á tólfta hundr-
að, þar af um helmingur ævifélag-
ar.
Hátíðarfundur.
Eins og áður segir varð Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur þrjátíu
ára á aðalfundardaginn en það var
stofnað 8. marz 1949. Fyrsti for-
maður þess var Níels Dungal
prófessor. Árið 1951 tók Alfreð
Gíslason læknir við af honum og
var formaður til 1960 þegar Bjarni
Bjarnason læknir tók við for-
mennskunni. Núverandi formaður,
Gunnlaugur Snædal yfirlæknir,
hefur gegnt því starfi síðan 1966.
Þrítugs-afmælisins var sérstak-
lega minnst með hátíðarfundi í
Norræna húsinu föstudaginn 9.
marz. Þar fluttu ávörp formaður
félagsins og Páll Sigurðsson ráðu-
neytisstjóri sem flutti félaginu
árnaðaróskir frá heilbrigðisráð-
herra. Þá tilkynnti formaður kjör
fjögurra nýrra heiðursfélaga,
þeirra Sveinbjarnar Jónssonar
hrl., Gísla Fr. Petersen prófessors,
Ólafs Bjarnasonar prófessors og
Sigríðar Eiríksdóttur hjúkrunar-
konu en þau voru öll í fyrstu stjórn
eða varastjórn félagsins. Þrír hin-
ir fyrstnefndu voru á fundinum og
tóku þar við heiðursskírteinum
sínum en Ólafur Bjarnason þakk-
aði fyrir hönd heiðursfélaganna og
færði félaginu kveðjur og þakkir
frá Krabbameinsfélagi Islands.
Loks flutti danski yfirlæknirinn
Jörgen Rygárd, dr.med., alþýðleg-
an fyrirlestur um skipulag nútíma
krabbameinslækninga, en honum
var sérstaklega boðið til landsins í
tilefni afmælisins. Hátíðarfundinn
sóttu um 60 manns.
Læknaráðstefna
Laugardaginn 10. marz efndi
Krabbameinsfélag Reykjavíkur til
læknaráðstefnu á Hótel Loftleið-
um í tilefni af afmæli félagsins.
Þátttakendur voru rúmlega 50.
Fjallað var sérstaklega um
krabbamein í höfði, hálsi, skjald-
kirtli og lungum. Einnig var fjall-
að um krabbameinsleit, krabba-
meinsskráningu og skipulag
krabbameinslækninga hér á landi.
Frummælendur voru alls ellefu,
þar á meðal Jörgen Rygárd.
Ályktun aðalfundar Krabbameins-
félags Reykjavíkur 8. marz 1979
Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur, haldinn að Suðu'r-
götu 22, fimmtudaginn 8. marz 1979, vill í tilefni af 30 ára afmæli
félagsins þakka landsmönnum það mikilsverða lið sem þeir hafa
veitt málefnum samtakanna.
Á þessum tímamótum vill félagið vekja athygli á eftirfarandi:
1. Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir hefur frá
upphafi verið megin þáttur í starfsemi Krabbameinsfélags
Reykjavíkur. Reynslan hefur sýnt fram á margvíslegan árangur
þessa starfs. Almenningur sýnir æ meiri árverkni um byrjunar-
einkenni sjúkdómsins en það flýtir fyrir greiningu hans og eykur
batahorfur. Jafnframt hefur afstaða til sjúkdómsins breytst í þá
veru að minna gætir ótta en meira raunsæis í viðhorfi til
krabbameins. Fundurinn leggur áherslu á að hvergi verði slakað
á fræðslustarfinu en það aukið og eflt.
2. Fundurinn fagnar þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni
gegn reykingum barna og unglinga eins og m.a. nýleg könnun á
reykingavenjum grunnskólanemenda í Reykjavík hefur leitt í
ljós. Frumkvæði félagsins og starf þess að reykingavörnum, sem
einnig eru mikilvægar krabbameinsvarnir, á drjúgan þátt í
þessum árahgri. Haldi svo fram sem horfir er fyrsta reyklausa
kynslóðin senn í sjónmáli.
3. Undanfarið hefur á vegum heilbrigðisráðuneytisins verið unnið
að tillögum um framtíðarskipan krabbameinslækninga og
eftirlits með krabbameinssjúklingum í landinu. Á grundvelli
þessara tillagna má búast við ákvörðunum sem gætu markað
tímamót í þessum efnum. Fundurinn heitir á stjórnvöld og
almenning að stuðla að því að svo verði og felur stjórn félagsins
að fylgja málinu fast eftir.
4. Fundurinn bendir á þá staðreynd að krabbameinsskrá Krabba-
meinsfélags íslands hefur getið sér orð fyrir að vera ein hin
besta í heiminum og hér á landi eru einstakir möguleikar til
rannsókna í faraldsfræði. Fundurinn beinir þeim eindregnu
tilmælum til stjórnar félagsins að hún stuðli að því eftir föngum
að komið verði á fót stofnun sem hafi slíkar vísindalegar
krabbameinsrannsóknir að höfuðverkefni.
5. I tilefni af 30 ára afmæli Krabbameinsfélags Reykjavíkur
heimilar fundurinn stjórn félagsins að verja tíu milljónum
króna til framgangs verkefna sem um ræðir í 3. og 4. lið þessarar
ályktunar.
Nefnd fjallar um fram-
leiðslu- og rekstr-
arlán iðnaðarins
IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur
ákveðið að höfðu samráði við
viðskiptaráðuneytið og Seðla-
banka íslands. að skipa fimm
manna nefnd til að gera tillögur
um. hvernig auka megi fram-
leiðslu- og rekstrarlán til iðnaðar
með sérstöku tilliti til þarfa
samkeppnisiðnaðar.
Núverandi fyrirkomulag varð-
andi þessi lán skal tekið til
endurskoðunar. Sérstaklega skal
nefndin huga að því, hversu haga
beri framleiðslulánum og
rekstrarlánum til að fullnægt sé
eðlilegri lánsfjárþörf iðnfyrir-
tækja við ríkjandi samkeppnis-
aðstæður og eftir því sem aðstæð-
ur í hvcrri grein gefa tilefni til.
Þá skal nefndin gera tillögur
um, hvernig veita megi meira
fjármagni til þessara þarfa, jafn-
framt því sem hugað verði sér-
staklega að, hvernig tryggja
megi að aukið svigrúm til
nefndra lánveitinga nýtist iðnað-
inum að fullu.
í nefndina hafa verið skipaðir:
Þorsteinn ólafsson, aðstoðamað-
ur ráðherra, formaður, Ingi R.
Helgason hrl., Davíð ólafsson,
seðlabankastjóri, Valur Valsson,
aðstoðarbankastjóri Iðnaðar-
banka íslands, og Helgi
Bachmann, forstöðumaður hag-
deildar Landsbanka íslands.
Leiðrétting
Þau mistök urðu í grein í laugar-
dagsblaðinu um Eyjólf Jónasson,
Sólheimum, níræðan, að setningar-
hluti féll niður.
Rétt er þetta þannig: Þegar árin
færðust yfir, lét Eyjólfur af búskap
og seldi jörðina í hendur sonar síns
Ingva og konu hans Helgu. í skjóli
þeirra hefur hann dvalizt til þessa og
notið frábærrar umhyggju þeirra
hjóna og barna þeirra.
Mbl. biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
Þessar upplýsingar koma fram í
Akureyrarblaðinu Islendingi og í
viðtali við blaðið segir Sverrir
Guðmundsson framkvæmdastjóri
Grávöru að fyrirtækið sé tilleiðan-
legt að reyna refaræktina ef fyrir-
greiðsla fáist frá opinberum aðil-
um. Það yrði þá blárefur, sem við
yrðum með, en skinn af þeim ref
hafa verið í háu verði á skinna-
mörkuðum' að undanförnu, segir
Sverrir í viðtali við blaðið. Stofn-
inn yrði þá fluttur inn frá Eng-
landi eða Noregi. Að sögn mun
refurinn vera auðveldari í meðför-
um en minkurinn og ekki eins
matvandur, segir Sverrir.
ræktin, hún krefðist ekki eins
mikilla fjárfestinga og heldur ekki
sömu nákvæmni og minkaræktin.
Refaræktin gæti orðið talsverð
aukageta fyrir bændur og hug-
myndir manna beindust í þá átt að
æskilegt væri að refabú gætu verið
nokkur á ákveðnum svæðum þar
sem um samvinnu bænda við
reksturinn gæti verið að ræða.
Þessi svæði þyrftu eðlilega að vera
vel í sveit sett með fæðuöflun i
huga.
Refabú auk minka-
ræktar á Grenivík
FYRIRHUGAÐ er að hefja refa-
rækt hjá minkabúi Grávöru á
Grenivík. Það er nefnd á vegum
Landbúnaðarráðuneytisins, sem
sett var á laggirnar til að auka
loðdýrarækt, sem haft hefur sam-
band við forráðamenn Grávöru
og óskað eftir því að búið hefji
tilraunarekstur með rcfarækt.
neytisstjóra í Landbúnaðarráðu-
neytinu og sagði Sveinbjörn, að þó
hann ætti ekki sæti í fyrrnefndri
nefnd, þá væri áhugi á refarækt
mjög vaxandi. Hún þætti að
mörgu leyti heppilegri en minka-
Morgunblaðið ræddi í gær við
Sveinbjörn Dagfinnsson ráðu-
íslenskur villircfur í búri hjá Grávöru í fyrra. (Ljósmynd úr
Islendingi).
pflLmfl/on & vfiL//on ud.
/Egisgötu 10. Sími 27745.
INSTANT
pxq
vinnupallar
Hinir velþekktu Instand ál-vinnupallar voru
fyrst framleiddir áriö 1947 og hafa því veriö
notaöir yfir 30 ár meö góöum árangri.
Instant ál-vinnupallar eru settir saman úr
einingum, sem vega 25 kg hver. Tvær gerðir
eru af hjólum er nota má eftir undirlagi.
Samskeyti eru öll kaldpressuö, er gefa
þrisvar sinnum meiri styrkleika en soöin
samskeyti. Engar lausar súlur, skrúfur eöa
rær. Grindin er opin og auöveldar þaö
flutning á efni. Samsetning þaö fljótleg aö
tveir menn geta slegið upp 10 m turni á
hálftíma. 15 cm öryggislisti um fótpall.
Einstaka hluti sem slitna, má auöveldlega
skipta um.
Instant ál-vinnupallar eru viöurkenndir af
norska, sænska og danska öryggiseftirlitinu.
Okkar vinnupallar tryggja fullkomiö öryggi.
OPIN GRIND
SAMSKEYTI OPIN
SAMSKEYTI LOKUO
ENGAR LAUSAR STENGUR, SKRÚFUR EDA RÆR. ÞEGAR GAFLARNIR ERU KOMNIR í LÓO*
RÉTTA STÖDU LÆSIST HORNSTAGIO MED FJÖOUR.