Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 Jón G. Sóines: Orkuver utan Landsvir sjóð, en ábyrgðinni væri skipt milli ríkis og Reykjavíkur. Hann sagði, að það ætti að jafna rafmagnskostnaðinn með beinum framlögum úr opinberum sjóðum svo sem ríkissjóði en alls ekki með aukaálagi á íbúa þéttbýliskjarn- unarsvæðisins búa vi miklu erfiðari lánakjör í fyrirspurnartíma sl. þriðju- dag svaraði fjármálaráðherra fyrirspurn Jóns G. Sólnes varð- andi fjármögnun virkjunarfram- kvæmda. * Jón G. sólnes (S) sagði mklar umræður hafa farið fram um fjárhagsleg vandamál hinna ýmsu orkuvera dreifbýlisins og þá alveg sérstaklega Rariks. — I sambandi við þessi mál hefur verið upplýst, að fjármögnunarmál hinna ýmsu raforkuvera landsins munu vera með margvíslegum hætti. Ástæða er til að ætla, að orkuver utan svokallaðs Landsvirkjunarsvæðis búi við miklu erfiðari lánakjör heldur en t.d. Landsvirkjun. Telja margir, að til þessara þátta megi rekja að verulegu leyti hina miklu fjárhagslegu erfiðleika umræddra orkuvera. Fyrirspurn þingmannsins var svohljóðandi: 1. Hve hárri upphæð nam skuld Landsvirkjunar við ríkissjóð í árslok 1978 vegna svokallaðra víkjandi lána og hvernig er háttað greiðsluskilmálum og öðrum lána- kjörum að því er snertir þessi mál. 2. Að hve miklu leyti hafa framkvæmdir neðangreindra virkjunaraðila verið fjármagnaðar greiðslur hefjist þegar tekjur að frádregnum rekstrarkostnaði eru orðnar jafnar vöxtum og afborgunum. Er þá meðtaldir þeir vextir, sem færðir eru á byggingarkostnað mannvirkja. Enn hefur ekki tekizt að ná þessu marki vegna hinnar öru uppbygg- ingar Landsvirkjunar. Ráðherrann sagði enn fremur, að ef undan væri skilið innlenda lánið, nú 203 millj. kr. og stutt 27 millj. kr. lán hjá ríkissjóði hefði Landsvirkjun engin innlend lán fengið og þá ekki heldur vísitölu- tryggð lán. Laxárvirkjun hefur fengið 69 millj. kr. í vísitölutryggðu láni, nú að eftirstöðvum 344 millj. kr. Rafmagnsveitur ríkisins hafa fengið 3.606 millj. kr. í vísitölu- tryggðu láni, nú að eftirstöðvum 8.181 millj. kr. Kröfluvirkjun hefur fengið 3.298 millj. kr. í vísitölutryggðu láni, nú að eftirstöðvum 5.133 millj. kr. Lán Laxárvirkjunar yfirtók ríkissjóður í sambandi við lausn Laxárdeilunnar. Af lánum Rafmagnsveitna ríkis- ins hefur Orkusjóður yfirtekið vegna framkvæmda á Vestfjörðum kr. 2.887 millj., en ótalin er skuld með vísitölutryggðum lánum og hve háum upphæðum nema skuldir þessara fyrirtækja í slíkum lánum í ársiok 1978 a. Landsvirkjunar, b. Laxárvirkjunar s. Rafmagnsveitna ríkisins d. Kröfluvirkjunar. Víkjandi lánin nema 550 millj. kr. Tómas Árnason fjármála- ráðherra sagði, að 1967 hefði ríkissjóður veitt Landsvirkjun 200 millj. kr. víkjandi lán til Búrfells- virkjunar og því til viðbótar 350 millj. kr. lán árið 1974 vegna Sigölduvirkjunar. Þar af voru 100 millj. kr. í innlendri mynt, en engar greiðslur af lánunum hefðu farið fram og vextir bætzt við höfuðstól árlega. í árslok 1978 voru lánin reiknuð í íslenzkum krónum 3430 millj. eða um 5,6% af heildarlánum Lands- virkjunar. — Að sjálfsögðu er gert ráð fyrir, sagði ráðherra, að vegna byggðalínu kr. 2.062 millj. kr. Orkuverðið á þéttbýlis- svæðunum greitt niður Jón G. Sólnes þakkaði svör ráðherra, en af þeim mætti ráða, að sá aðilinn, sem byggi við hag- stæðasta markaðinn og hefði að mörgu leyti beztu aðstöðuna, byggi einnig við beztu lánakjörin. — Það gefur aúga leið á þessum verð- bólgutímum og hávaxtatímum, sem gilda í fjármálakerfi þjóðar- innar, að það eru ekki lítil hlunn- indi að geta verið með 3,5 milljarða í skuldum, sem eru ekki verðtryggð lán og bera ekki hærri vexti en frá 6 eg upp í 10%, sagði þingmaðurinn. Og óneitanlega hvarflar að manni spurningin um það, hversu mikil upphæð mundi þessi upphæð vera nú, ef þetta hefði verið reiknað á sviðaðan hátt og til að mynda lánin, sem Rarik og Kröfluvirkjun hafa verið látin taka. Þingmaðurinn sagði, að í sam- bandi við jöfnun orkuverðs hefði verið talað um að reyna að hafa a.m.k. heildsöluverðið sem næst því jafnt á aðalafhendingar- stöðunum, en slíur uppreikningur lánanna myndi valda verulegri hækkun á rafmagnsverði á þétt- býlissvæðinu. — En í sambandi við það dettur mönnum þá í hug að varpa fram þeirri athugasemd, hversu mikið er verið að greiða niður orkuverðið á þéttbýlis- svæðinu af hinum almenna skatt- þegn þjóðarinnar með því að haga lánskjörum til aðalorkusölufyrir- tækisins hér á þéttbýlissvæðinu á þann veg sem gert er. Örlítið brot af lánunum Einar Ágústsson (F) sagði ekki tíma til þess að ræða raforkumálin í heild til nokkurrar hlítar í fyrirspurnatíma. Hann vildi þó ekki láta hjá líða að koma því á framfæri, að þær tölur, sem fjár- málaráðherra las upp, væru aðeins örlítið brot af lántökum Lands- virkjunar eða um 5%. Til þess að fá raunhæfan samanburð á fjár- magnskostnaði þessara fyrirtækja þyrfti auðvitað að upplýsa líka, hversu mikið erlend lán Lands- virkjunar hefðu hækkað, sem væru langstærsti hlutinn af lántökum þess fyrirtækis. — Áður en það liggur fyrir, sagði þingmaðurinn, geta menn ekki gert raunhæfan samanburð ' á því, hver búi við beztu kjörin og hver sé að greiða niður roforkuverðið fyrir hinn. Til að réttlæta frekari álögur Albert Guðmundsson (S) sagðist hafa höggvið eftir því, að innlend lán Landsvirkjunar væru um 200 millj. kr. og sagðist hann vona, að hann skildi það rétt, að þessi skuld væri vegna Sigöldu vegna seinkunar framkvæmda við Grundartangamannvirkið. Þá tók hann fram að 3430 millj. kr., sem Landsvirkjun skuldaði erléndis, væri að hálfu á ábyrgð Reykjavikur. Þingmaðurinn sagði, a&sérstak- lega eftir þau ummæli spyrils, að sá sem byggi við beztu aðstæðurn- ar hefðu beztu lánakjörin, fælist í fyrirspurninni, eins og hún væri sett fram, réttlæting á frekari álögum á Reykvíkinga til jöfnunar á rafmagnsverðinu í landinu. Ég held, að það sé öllum ljóst, sagði þingmaðurinn, að þegar skynsamlega hefur verið staðið að uppbyggingu einhvers í langan tíma, skapar það traust hjá lán- veitendum og það traust á ekki að skattleggjast af öðrum íbúum þessa lands. Skuld við ríkissjóð Jón G. Sólnes gat þess til að fyrirbyggja misskilning, að þessar upphæðir, 3.430 millj. kr., væru ekki skuldir Landsvirkjunar erlendis, heldur skuld við ríkissjóð íslands. Tómas Árnason fjármála- ráðherra sagði, að hér væri aðeins um lítið brot af lánum Lands- virkjunar að ræða, sem væri í erlendum gjaldeyri, sterlings- pundum og Bandaríkjadollurum. Hann tók undir með Jóni G. Sólnes að það væri ástæða til að athuga það nánar, hvernig lánamálunum væri háttað, því að vitaskuld væri fjármagnsbyrðin liður í rekstrar- kostnaðinum. Albert Guðmundsson (S) ítrekaði að skuld Landsvirkjunar væri erlent lán en ekki við ríkis- Eðlileg og sanngjörn ósk Gunnar Thoroddsen (S) sagði, að ýmsir virkjunaraðilar hefðu a.m.k, ekki enn notið sams konar fyrirgreiðslu og Landsvirkjun, sem kæmi fram í því t.d., að Rafmagns- veitur ríkisins hefðu orðið að notast fyrst og fremst við vísitölu- tryggð lán. — Og það er vitanlegt, sagði þingmaðurinn, að undanfar- ið ár hafa vísitölutryggð lán innanlands verið miklu óhag- kvæmari heldur en erlend lán, þau hafa hækkað miklu meira heldur en gengisbreytingum nemur. Ég held, að það sé alveg ljóst að það sem fyrir hv. fyrirspyrjanda vakir er ekki það að skattleggja Lands- virkjun eða þá, sem eru á veitu- svæðum Landsvirkjunar, heldur þvert á móti fá þessar upplýsingar til þess að vinna að því að sum önnur virkjunarfyrirtæki í land- inu geti annað hvort á næstunni eða smám saman fengið svipaða fyrirgreiðslu eins og Landsvirkjun hefur fengið. Það finnst mér ákaf- lega og eðlileg og sanngjörn ósk. í stuttu máli Ur Sameinuðu þingi • Fundur var í Sameinuðu þingi sl. fimmtudag. Tillögu þingmanna Sjálfstæðisflokksins um 15 ára landsáætlun um varanlega þjóðvegagerð var vís- að til fjárveitinganefndar. Tillögu Ellerts B. Schram o.fl. um lækkun og niðurfellingu opinberra gjalda af íþróttavör- um var vísað til allsherjar- nefndar. Einnig tillögu Friðjóns Þórðarsonar o.fl. um sendingu matvæla til þróunarlanda og tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur o.fl. um könnun á heilbrigðis- og félagslegri þjónustu fyrir aldraða. • Árni Gunnarsson (A) mælti fyrir tillögu, sem hann flytur ásamt tveimur öðrum þing- mönnum Alþýðuflokksins, þess efnis að felld verði niður og lækkuð leyfisgjöld af litlum fólksbifreiðum. Af bifreiðum, sem í eru vélar með rúmmál sprengirýmis minna en 1600 rúmsentimetra, verði 50% leyf- isgjald alveg fellt niður, og lækkað um 25% af bifreiðum með vélar þar sem sprengirými er 1601—3000 rúmsm. Af bif- reiðum með stærri vélar verði gjöld óbreytt. Tillaga þessi mið- ar í þá átt að stýra bifreióa- kaupum til sparneytnari farar- tækja vegna hækkunar á olíu- vörum. Eiður Guðnason (A) mælti fyrir tillögu þess efnis, að sam- gönguráðherra láti endurskoða fjarskiptareglur Pósts- og síma að því er varðar notkun far- stöðva í bifreiðum og öðrum farartækjum, á vinnustöðum, í heimahúsum og á víðavangi. Endurskoðunin taki mið af þeim tæknilegu framförum, sem orðið hafa í framleiðslu fjarskipta- tækja að undanförnu, og stefni að því að um notkun farstöðva gildi raunhæfar reglur, sem ekki dragi úr gildi þeirra sem örygg- istækja. Páll Pétursson (F) og Ingvar Gíslason (F) hafa lagt fram tillögu þess efnis, að ríkis- stjórnin kanni, hvort ekki að greiða orlofsfé beint til bænda. Orlofsfé bænda, 8,3%, er nú hluti af afurðaverði. Flutnings- menn segja, að ef ríkið greiddi hverjum bónda meðalorlof, skv. verðlagsgrundvelli 1/3 79, kr. 483.000.- stuðlaði slíkt að jöfn- uði meðal bænda innbyrðis, lækkun afurðaverðs, lækkun framfærslukostnaðar og að niðurgreiðslufé myndi nýtast betur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.