Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 2

Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979 Sterk vm hækka um 13% - tóbakum 20% Óbreytt verð á borðvínum ÁFENGI og tóbak hækkar frá og með deginum í dag og er hækkun á tóbaki almcnnt um 13%. Sígarett- upakkinn hækkar almennt úr 565 krónum í 680 krón- ur en svo dæmi sé tekið af hækkun á verði vindla hækkar 10 stykkja pakki af Fauna-vindlum úr 780 krónum í 940 krónur og 10 stykkja pakkinn af Lond- on Docks hækkar úr 850 krónum í 1000. Að ákvörðun fjármálaráðuneyt- isins hækkar verð á borðvínum ekki nú, þannig að verð á hvítvíni, rauðvíni, rósavíni og freyðivíni Miðstjórn ASÍ ræðir verkbann vinnuveitenda MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands kemur í dag kl. 15 saman til fundar til að ræða viðbrögð við verkbannshoðun Vinnuveitenda- sambands íslands. verður óbreytt. Sem dæmi um hækkunina á verði áfengis má nefna að flaska af íslensku brenni- víni hækkar úr 6200 krónum í 7000, Tindavodkinn hækkar úr 7200 í 8100, algengt erlent vodka hækkar úr 8600 í 9200, flaska af algengri tegund af viskí hækkar úr 8650 í 9800 og flaska af Vermouth hækkar úr 3200 í 3600. Jafnteflihjá Guðmundi — Helgi vann GUÐMUNDUR Sigurjónsson, stórmeistari, gerði jafntelfi við Norðmanninn Helmers á skák- mótinu í Luzern í Sviss í næst sfðustu umferðinni sem tefld var á sunnudag á mótinu. Helgi ólafs- son vann Svíann Wedberg í sömu umferð. Síðasta umferð mótsins verður telfd í dag, þriðjudag og er Guðmundur þá með svart gegn GrUnfeld og Helgi hefur hvftt gegn Karlsson. Staðan í mótinu nú þegar ein umferð er eftir er sú að efstur er Hubner með 5Vfe vinning, Griinfeld með 4, Kagan með 3 '/2, Guðmundur með 3, Wedberg 3, Helmer 2, Helgi 1 ‘/2 og Karlsson með 1 '/2. Farmannaverkfallið: „Alvarlegar horfur fyr- ir lagmetisútf lutning’’ Gaffalbitar o.fl. fyrir 400 millj. kr. bíða útskipunar FYRIRTÆKIÐ Tungulax í Ölfusi seldi nýverið 30 þúsund laxaseiði til Noregs. Voru seiðin flutt utan síðast liðinn sunnudag með flugvél frá íscargo. Verðmæti þessa farms var um 13 milljónir. Að sögn Eyjólfs Konráðs Jónssonar, eins af forvígismönnum Tungulax, gengu þessir flutningar í alla staði vel og Eyjólfur bætti við: „Ég er sannfærður um að þetta er framtíðin og verður kannski stærsti atvinnuvegur á íslandi eftir 10 til 20 ár.“ mw. Kristjá'n Otto Jörgensen í Siglufirði látinn OTTO Jörgensen fyrrverandi um- dæmisstjóri Pósts og sfma f Sigluf jarðarumdæmi lézt í Sjúkra- húsi Siglufjarðar á laugardaginn, 83 ára að aidri Otto var fæddur á Seyðisfirði 13. janúar 1896 sonur Anders Jörgens- en bakara og konu hans Johanne Jörgensen. Hann hóf ungur störf hjá Landssímanum á Seyðisfirði og lauk símaritaraprófi 1914. Hann stundaði framhaldsnám erlendis um hríð en árin 1919-’20 var hann kennari í símritun í Reykjavík. Hann varð póst- og símstjóri í Siglufirði frá 1921 og þar til hann hætti vegna aldurs, eða í tæpa hálfa öld, og umdæmisstjóri varð hann 1925 og var síðan. Hann var bæjarfulltrúi 1937-’45 og stofnandi Sósíalistafélags Siglufjarðar og fyrsti formaður þess. Þá var hann einn af stófnendum Kaupfélags Siglufjarðar og formaður þess um skeið. Otto kvæntist 15. október 1921 Þórunni Þórðardóttur ættaðri af Seltjarnarnesi. Þórunn lézt í marz 1961. LAGMETISVÖRUR fyrir 400 milljónir króna bíða nú útskipun- ar vegna farmannaverkfallsins og er hluti þeirra niðurlagðar vörur með takmarkað geymslu- þol samkvæmt upplýsingum Gylfa Þórs Magnússonar fram- kvæmdastjóra Sölustofnunar Lagmetisiðnaðarins. „Horfir mjög alvarlega með þær vörur ef þær komast ekki á markað á næstunni,” sagði Gylfi í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Hér er um að ræða gaffalbita og ýmis konar lagmeti fyrir Rúss- landsmarkað og Vestur-Evrópu og er Mbl. kunnugt um að gaffalbitar Tveirúrgæzlu UM helgina var sleppt úr gæzlu- varðhaldi tveimur Keflvíkingum, sem setið höfðu inni í mánaðar- tíma vegna rannsóknar á um- fangsmiklu fíkniefnamisferli. Fyrir skömmu voru tveir menn til viðbótar úrskurðaðir í gæzlu- varðhald vegna rannsóknar máls- ins og sitja þeir ennþá inni. Niðurstaða nýrrar skoóanakönnunar: Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta í SKOÐANAKÖNNUN sem Dag- blaðið hefur gert og birt var í gær urðu niðurstöður þær að Sjálfstæðisflokkurinn hlyti hreinan meirihluta atkvæða yrði gengið til Alþingiskosninga nú. Framsóknarflokkurinn myndi einnig bæta við sig fylgi frá kosningunum í júní í fyrra en Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag myndu tapa verulegu fylgi. Samkvæmt skoðanakönnun Dagblaðsins fengi Sjálfstæðis- flokkurinn nú 50,6% atkvæða og 31 þingmann, bætti við sig 17,9% atkvæða og 11 þingmönnum. Framsóknarflokkurinn fengi 21,5% atkvæða og 14 þingmenn, bætti við sig 4,6% atkvæða og tveimur þingmönnum. Alþýðu- bandalagið hlyti 13,3% atkvæða og 8 þingmenn, tapaði 9,6% at- kvæða og missti 6 þingsæti. Alþýðuflokkurinn hlyti 12,7% at- kvæða og 7 þingmenn, tapaði 9,3% atkvæða og missti 7 þingsæti. Á undanförnum mánuðum hafa verið gerðar fimm skoðana- kannanir á fylgi stjórnmálaflokk- anna. Síðdegisblöðin Vísir og Dag- blaðið hafa gert tvær skoðana- kannanir hvort blað og nemendur MR gengust fyrir skoðanakönnun í skólanum. Vísast til meðfylgj- andi töflu, þar sem fylgi flokk- anna er sýnt í hverri einstakri könnun og til samanburðar birtar hlutfallstölur flokkanna fjögurra í kosningunum 1978. Alþýðuflokkur F ramsóknarf lokkur Sjálfatæðlaflokkur Alþýðubandalai; , u- c Jj£ o ■® OO u- c 08 11 « £ T. 22,0% 21,1% 15,3% 16,9% 15,6% 5,1% 32,7% 42,2% 44,2% 22,9% 21,1% 28,4% S o 05 U- *o J c I! Vfairí marzlok 11 15,1% 16,7% 12,7% 13,5% 20,7% 21,5% 49,2% 44,3% 50.6% 22,2% 17,3% 13,3% frá Sigló-síld með takmarkað geymsluþol hafa tafist í nær tvo mánuði vegna farmannaverkfalls- ins. Er þar um að ræða útflutning fyrir um 180 millj. kr. til Rúss- lands. Fyrir nokkru var skipað út í flutningaskipið Berglindi lagmet- isvörum fyrir 90 millj. kr. til Bandaríkjanna og létti það nokk- uð á þeim lagmetisvörum sem bíða útflutnings þangað. fsl. kartöflur á markaði fram í ágústmánuð? „MIÐAÐ við þær birgðir, sem við eigum frá fyrra hausti af kartöflum ættu þær að duga út júlí og ef til vill lengur en við höfum hins vegar aldrei geymt íslenskar kartöflur svo langt fram á sumar, þann- ig að við vitum ekki hvort þær þola þetta langan geymslutíma,44 sagði Jó- hann Jónasson, forstjóri Grænmetisverzlunar land- búnaðarins, í samtali við Mbl. í gær. Jóhann sagði að þeir hjá Grænmetis- verzluninni hefðu lengst geymt íslenskar kartöflur ut juni. „Það bendir margt til þess að það séu takmörk frá náttúrunnar hendi hvað kartöflurnar geta geymst lengi," sagði Jóhann, „og í fyrra var vaxtartíminn mjög stuttur. Við þáð að vaxa á svo stuttum tíma verða þær ekki eins þéttar og þar af leiðandi ekki eins þolnar í geymslu. Reynslan verður því að segja til um hvað við getum boðið íslenskar kartöflur lengi í sumar." Jóhann sagði að þegar komið væri fram í júní væru ekki erfið- leikar á að fá kartöflur á markaði erlendis t.d. frá Ítalíu en þær væru að vísu dýrar fyrst á upp- skerutímanum. „Meðan ekki er búið að setja niður kartöflur er ekki hægt að segja neitt fyrir um uppskeruhorf- ur. Þeir fyrstu eru að setja niður þessa dagana og ég á von á því að uppskeran verði heldur með seinna móti í ár. Á bestu árum hafa íslenskar kartöflur komið á markað um 10. ágúst en yfirleitt þó ekki fyrr en upp úr 20. ágúst og oft ekki í einhverju magni fyrr en um mánaðamót," sagði Jóhann. INNLENT Hálfri millj- ón kr. stolið í Hollywood þJÓFNAÐUR var framinn í veit- ingastaðnum Hollywood nokkru eftir miðnætti s.l. laugardags- kvöld. Unnið var uppgjöri á einum barnum og tókst þá einum ballgesta að stinga á sig 4-500 þúsund krónum án þess að eftir væri tekið. Lögregla var kvödd á staðinn og var gestum ekki hleypt út um nokkurn tíma. Til athugunar kom að leita á öllum gestum við útgöngu en frá því var fallið, þar sem það þótti ekki framkvæman- legt. Málið er óupplýst en unnið er að því af fullum krafti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.