Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 10

Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979 Ahugamanna- hljómsveitin ÞAÐ er ekki víst að nafn hljóm- sveitarinnar sé að öllu leyti heppi- legt og má benda á nafn eins og t.d Leikmannahljómsveitin. Hvað sem því líður er hér verið að vinna merkilegt starf er íslenskir tón- listarmenn eiga að láta sig varða og styðja. Tónleikarnir hófust á forleik eftir Mozart og var hann ekki óþokkalega leikinn. Annað verkið á efnisskránni er eftir Elgar, Serenada fyrir strengi, afskaplega sviplaust og ómþýtt verk, er var duaflega en þokkalega leikið. Fyrri hluta tónleikanna lauk með Hornkonsert í Es-dúr Tónllst eftir JÓN ÁSGEERSSON eftir Mozart og lék Gareth Molli- son hornröddina mjög laglega. Seinni hluti tónleikanna saman- stóð af fimm Kleemyndum, eftir P. Maxvell Davis, Aríum úr La Traviata, eftir Verdi, Valse Triste, eftir Sibelíus, og lauk á sérlega leiðinlegum raddsetningum eftir Britten, á tónlist eftir Rossini. Klee-myndirnar eftir Davis eru ekki merkileg tónlist en var hressilega flutt. ó,öf R Harðar_ dóttir og Garðar Cortes sungu saman atriði úr La Traviata, eftir Verdi, og fyrir utan það, að þau skiluðu sínu mjög vel, var ánæju- legt að heyra hversu hljómsvetin var samtaka undir stjórn Olivers Kentish. Aðrir stjórnendur voru Brian Carlile og Michael J. Clarke frá Akureyri, en hluti hljóm- sveitarinnar var þaðan. Það var auðheyrt að stjórnendurnir höfðu lagt mikla vinnu í æfingar og eftir árangrinum, er ástæða til að ætla að slík „leikmannasveit" geti orðið mjög góð og verið heppilegur vettvangur fyrir leikmenn á sviði tónflutnings og hlustendum einnig til ánægju. Jón Ásgeirsson. Harmonikku- snillingur SALVATORE di Gesualdo er snillingur á harmonikku en ein- mitt fyrir slíkan mann koma upp vandamál er eiga rót sína að rekja til þess munar sem er á megin- hluta þess efnis er tilheyrir harmonikkunni og þess efnis sem hann vill leika á hljóðfærið. Tón- leikarnir s.l. föstudag voru aðrir í röðinni hér í Reykjavík en Gesualdo hefur ferðast um landið og haldið tónleika undanfarið. Tónleikarnir hófust á Toccötu, eftir Claudio Merulo, og á eftir fylgdu Pavanne, eftir William Byrd, og Toccata nr. 2 eftir Frescobaldi. Það fer ekki illa að leika slíka tónlist á harmonikku, þó hljóðfærið sé 300 árum yngra en tónlistin og tónblær þess nú- tímalegur. Næstu þrjú verkefni voru eftir Bach, tveir þættir úr „List fúgunnar" og Toccata og fúga í d-moll. Öllum verkunum gerði hann góð skil, en það er aðeins eitt sem er að og það er, að verkin eru hugsuð fyrir önnur hljóðfæri og þó hægt sé að leika þau að mestu óbreytt á harmonikku, eru verkin betri í frumgerð sinni og að nokkru sprottin upp úr þekkingu tón- skáldanna á hljóðfærum síns tíma. Harmonikkan nær aldrei viðurkenningu með því að sanna að hægt sé að leika á hana tónlist annarra hljóðfæra, heldur fyrir þá tónlist sem tónskáld finna hjá sér hvöt til að semja fyrir hljóðfærið, tónlist, sem hugsuð er í gegnum hljóðfærið og einungis fær notið sín á það. Á seinni hluta tónleik- anna lék Gesualdo reglulega harmonikkutónlist, þ.e. verk sér- staklega samin fyrir hljóðfærið. Sérstaklega var áhugavert að heyra tónsmíð eftir hann sjálfan er hann nefnir Impromtu nr. 1. Þar notar hann hljóðfærið á skemmtilegan máta og hefði verið áhugavert að heyra hann leika eingöngu nútímaverk sem töluvert er til af og nokkur, er sérlega hafa verið samin fyrir hann. Jón Ásgeirsson. Vorfundur FORSTÖÐUMENN fjörutíu stærstu almenningsbókasafna í landinu héldu dagana 31. mai og 1. júní vorfund um málefni al- menningsbókasafna og verður fundurinn í Reykjavík. Er fundurinn haldinn fyrir tilstilli bókafulltrúa rfkisins, Bóka- varðafélags íslands og Deildar starfsfólks f almenningsbókasöfnum. Samkvæmt löum um almennings- bókasöfn er landinu skipt í 40 bókasafnsumdæmi, sem hver hafa sitt miðsafn. Miðsöfn eru bæjar- og/eða héraðsbókasöfn og eiga þau að gegna forystuhlutverki í al- menningsbókasafnakerfi landsins. Forstöðumenn þeirra koma nú í fyrsta skipti saman til fundar og ræða sameiginleg áhugamál. Fyrri fundardaginn verður rætt um hlutverk miðsafna og ábyrgð þeirra gagnvart smærri almenn- ingsbókasöfnum og skólasöfnum. bókavarða Tekið verður á ýmsum þáttum skipulagningar og stjórnunar, sem æskilegt er ^ð samræma milli safna, svo sem flokkun bóka og spjaldskrárgerð, opnunartíma safna, skýrslugerð, o.s.frv. Enn- fremur verður rætt um tengsl bókasafnanna innbyrðis, við ein- staklinga og við stofnanir í þjóð- félaginu. Ennfremur verður kynn- ingarerindi um Þjónustumiðstöð bókasafna. Síðari daginn flytur Þorbjörn Broddason stutt erindi um félags- legt hlutverk almenningsbóka- safna, rætt verður um stöðu al- menningsbókasafnanna í landinu og reifaðar framtíðarhorfur í mál- efnum þeirra. Að kvöldi 31. maí verður fundur í Deild starfsfólks í almenningsbóka- söfnum og verða þar rædd mennt- unarmál og launamál. Deildin gengst fyrir sýnikennslu í plöstun og viðgerðum bóka á föstudags- morgunn. Uppreisnarmenn á sovézkri þyrlu. Uppreisnarmaður vopnaður Kalashnik- ov-riffli. Rússar í vanda í Afghanistan Uppreisnarmaður með sovézk vopn. Gert er ráð fyrir því að Rússar hafi sent 3,000 „ráðunauta" til Afghanistans og íhlutun þeirra þar hefur komið þeim í svo miklar ógöngur, að Bandaríkja- menn líkja því við þá erfiðleika sem þeir komust í sjálfir í Víetnam. Samkvæmt fréttum frá Kabul, höfuðborginni, hafa tugir Rússa fallið fyrir uppreisnarmönnum, sem eru aðallega trúaðir múhameðstrúarmenn og reyna að kollvarpa eins árs gamalli ríkisstjórn marxista. Rússar senda því um þessar mundir mikið magn vopna til landsins til að treysta stjórnina í sessi því að þeir óttast að önnur bylting á landamærum þeirra geti komið af stað ólgu í lýðveldum sovézkra múhameðstrúarmanna. Sovézk hermálanefnd fór til Kabul í apríl undir forsæti Alexei Ypishev hershöfðingja, eins helzta skipuleggjanda innrásarinnar í Tékkóslóvakíu 1968 sem nú er aðalyfirmaður stjórnmáladeildar sovézka heraflans. Með honum voru sex hershöfð- ingjar og þeir dvöldust í vikutíma og kynntu sér hið versnandi ástand. í marz var sovézkum ráðunautum í fyrsta sinn sýnt banatilræði i borginni Herut í vesturhluta landsins þar sem gerð var uppreisn í líkingu við írönsku uppreisnina. Fréttir bárust um að mikill fjöldi hermanna og lögreglumanna hefði svikizt undan merkjum og fólk réðst inn í vopnageymslur og stal vopnum. Fréttir hermdu að allt að 300 manna herflokkar hefðu gerzt liðhlaupar. Svo gerðist það 20. apríl, skömmu eftir að sovézka nefndin fór, að hermenn gerðu uppreisn í setuliðsborginni Jalalbad nálægt pakistönsku landamærunum. Stöðugar hreinsanir, léleg laun og tregða við að skjóta á múhameðska trúbræður hafa gert það að verkum að mikil ólga hefur verið undir niðri. Rússar felldir Síðustu vandræðin hófust þegar höfuðsmaður neitaði að fara með menn sína aftur til dalsins Kunar sem er á valdi uppreisnarmanna. Hann var ákærður fyrir óhlýðni, en hefndi sín með því að skjóta yfirmann setuliðsins til bana og stjórna uppreisn í fjórum stórum hersveitum. I bardögun- um sem fylgdu í kjölfarið misstu Rússar tvo ráðunauta. Þar sem æ fleiri hermenn gerast liðhlaupar hefur afghanski heraflinn orðið að treysta á aðstoð Rússa í miklum mæli og samkvæmt sumum fréttum fljúga Rússar nú þotum og þyrlum frá flugvellinum í Jalalabad að staðaldri. Þeir sáust að verki þegar miklar loftárásir voru gerðar á uppreisnarmenn í Herat í marz. Fullkomin vopn Nýlega héldu uppreisnarmenn því fram að þeir hefðu í fyrsta sinn grandað sovézksmíðaðri MIG-herflugvél, sem afghanski flugherinn hefur fengið frá Rússum. Þetta sögðu uppreisnarmenn að hefði tekizt vegna þess að mikill fjöldi liðhlaupa úr fastsahernum hefði meðferðis full- komin vopn. Þannig hefur orðið umtalsverð breyting á stríðinu því að til þessa hafa uppreisnarmenn nær eingöngu notað gamaldags riffla. I Washington segja embættismenn að engar órækar sannanir séu fyrir því að flugvélar afghanska flughersins séu mannaðar Rússum, en þeir vilja heldur ekki útiloka þennan möguleika. Vitað er í Washington, að Rússar hafa nýlega útvegað stjórninni í Kabul orrustuflugvélar af gerðunum MIG-21 og SU-7, þyrlur af gerðinni Mi-24 og skriðdreka af gerðinni T-62. Ekki hefur fengizt staðfest að Rússar hafi einnig sent MIG-23 flugvélar. Jafnframt eykst spennan í sambúð Afghanist- ans og grannríkisins Pakistans. Tarakki forseti hefur veitzt harkalega að Pakistönum sem hann sakar um árásir yfir andamærin og önnur afskipti af innanríkismálum Afghanistans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.