Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979
„Vettvángur dags-
ins” í 3iu útgáfu
HELGAFELL heíur sent írá sér
þriðju útgáfu af ritgerðarsafni
Halldórs Laxness „Vettvángur
dagsins“, sem fyrst kom út árið
1942. í bókinni eru 39 ritgerðir
langar og stuttar, en bókin er
324 blaðsíður.
Kristján Karlsson segir m.a.
svo innan á bókarkápu um rit-
gerðarsafnið: „Annars er Vett-
vángur dagsins yfirgripsmikið
og órólegt safn frá miklum
umrótstíma í sögu vorri og höf-
undarins. Á þeim árum er þjóðin
nývöknuð í hringiðu stríðsins, og
Halldór Laxness stendur í víg-
stöðu gegn hættum, sem að
þjóöerninu steðja bæði utanfrá
og innan, um leið og hann upp-
hefur viss íslenzk menningar-
gildi í nýju ljósi. Hann víkur að
furðu mörgu; hér eru ádrepur
um mannasiði, drykkjuskap,
dönskuslettur í máli, framburð,
stafsetningu, híbýlagerð, land-
búnaðarmál, margar greinar um
samtímahöfunda og bækur.“
Bókin hefst á mikilli ritgerð
um Hallgrím Pétursson og önn-
ur höfuðritgerð safnsins er loka-
ritgerðin, Höfundurinn og verk
hans.
/ ORKUKREPPUNNI er
snjallt að grípa til reið-
hjólsins í stað þess að
eyða miklum fjármunum
í eldsneyti á bensínfrekar
bifreiðar. Þessar líflegu
stöllur á tveggja manna
fararskjóta hitti blaða-
maður á Eskifirði á dög-
unum. (Ljósm. — áij).
-
Lýðveldið ísland
50.000.000 bandaríkjadollarar
Lán með breytilegum vöxtum.
Hambros Bank Limited
Mitsui Finance Europe Limited/The Mitsui Bank, Limited
Scandinavian Bank Limited
Banque Canadienne Nationale Crédit Commercial de France
(Bahamas) Limited
Crédit Lyonnais The Mitsubishi Trust and Banking Corporation
Þessi mynd var tekin af hópnum, er lagt var upp í ferðina á
laugardagsmorgni.
Sjálfstæðismenn í vestur- og miðbæjarhyerfi:
Kynnisferð með aldr-
aða í Mosfellssveit
FÉLAG sjálfstæðismanna í vest-
ur- og miðbæjarhverfi bauð eidri
borgurum hverfanna í eftirmið-
dagsferð laugardaginn 26. maí
8.1.
Fjölmenni var í ferðinni. Farið
var í Mosfellssveitþar sem endur-
hæfingarheimili S.I.B.S. var kynnt
undir leiðsögn Björns Ástmunds-
sonar forstjóra og Odds Ólafsson-
ar alþm. og fyrrv. yfirlæknis.
Einnig var dælustöð hitaveitunn-
ar á staðnum skoðuð.
Björn H. Jóhannsson arkitekt
kynnti verðlaunateikningu að
skipulagi Mosfellssveitar og var
ekið um Mosfellssveit og byggðin
skoðuð. Að lokum drukku stjórn-
armenn félagsins og gestir kaffi í
Valhöll við Háaleitisbraut þar
sem Meyvant Sigurðsson kvaddi
sér hljóðs og þakkaði fyrir hönd
gesta.
Veglegar gjafir til
Borgarspítalans
Soroptimistaklúbbur Reykja-
víkur hefur nýlega gefið skurð-
deild Borgarspítalans tæki til
viðbótar mæiitæki því sem klúbb-
urinn færði stofnuninni fyrir 2
árum til mælinga á „intra cran-
ial“ þrýstingi.
Tækið sem nú var gefið skráir á
pappír allar upplýsingar úr fyrr-
nefnda búnaðinum og gerir hann
þannig auðveldari og betri í notk-
un. Þá hafa Borgarspítalanum
borist góðar bókagjafir. Frá
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands, til sjúklinga-
bókasafns, bækur að verðmæti kr.
450 þús. Voru þetta bækur sem út
komu í lok síðasta árs og er
bókagjöf þeirra orðin árviss at-
burður og hefur deildin stóraukið
bókakost safnsins.
Frá Hafsteini Guðmundssyni
bókáutgefanda stór bókagjöf til
Borgarspítalans, en hann gaf ein-
tak af öllum bókum sem bókafor-
lag hans hefur gefið út. Jafnframt
hét hann því að gefa eintak af
þeim bókum sem hann kynni síðan
að annast um útgáfu á.
Þá hafa hjónin Anna Gunn-
laugsdóttir og Brynjólfur Þor-
steinsson fært skurðlækninga-
deild Borgarspítalans stofnfram-
lag til tækjakaupasjóðs, sem er í
undirbúningi að setja á stofn við
Borgarspítalann.
Myndin var tekin er Soroptimistaklúbburinn afhenti gjöf sína til
Borgarspftalans að viðstöddum nokkrum læknum á skurðlækninga-
deild.
Kastaði sendiferða-
bíl 8 metra
BÍLALEIGUBÍLL af Toyota-gerð
gjöreyðilagðist í árekstri í Eyjum
aðfararnótt föstudags þegar hon-
um var ekið á kyrrstæðan sendi-
ferðabfl.
Kastaðist sendiferðabíllinn 8
metra. Þrír ungir menn voru í
fólksbílnum og gekk erfiðlega að
ná einum þeirra út þar sem hann
festist í hræinu. Enginn þremenn-
inganna slasaðist þó alvarlega, en
einn liggur ennþá í Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja. Grunur leikur á
að um ölvun hafi verið að ræða.
Þremenningarnir eru aðkomu-
menn í Eyjum og bílaleigubíllinn
er úr Kópavogi.
The Sumitomo Bank, Limited
Umboðsbanki
Hambros Bank Limited.
Júní 1979
Ungmennabúðir aðHúnavöllum
Ungmennasamband
Austur-Húnvetninga hefur
ákveðið að gangast fyrir umg-
mennabúðum að Húnavöllum í
sumar eins og undanfarin sumur.
Starfsemin hófst miðvikudaginn
6. júní og stendur í eina viku.
Þátttakendur verða á aldrinum
8-12 ára.
í ungmennabúðunum verður
m.a. kennt sund, frjálsar íþróttir
verða iðkaðar og farið verður í
ýmsa leiki. Þá verða kvöldvökur
hvert kvöld og sjá þátttakendur
sjálfir um efni þeirra að miklu
leyti. Dag hvern verður helgistund
og sitthvað fleira verður boðið upp
á þá daga, sem ungmennabúðirnar
standa.