Morgunblaðið - 12.06.1979, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.06.1979, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979 Sjómenn framtíðarinnar? — UnglinKar stunduðu siglinKar á Sjómannadaginn í Nauthólsvík Myndir: Kristián. Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, afhendir Herði Kristjánssyni viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í Vélskólanum. Reykjavík: Veðurguðimir í aðalhlutverki HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins í Reykjavík fóru fram í Nauthólsvík eins og venja hefur verið til síðastliðin ár. Veðurguðrirnir voru ekki aldeilis í verkfalli, veður var afar óhagstætt til útihátíðahalda og setti það sitt mark á hátfðahöldin. Vindur var talsverður og einnig rigndi. Þetta olli því að þátttka í hátíðahöldunum var með allra minnsta móti að þessu sinni. Dagskrá hátíðahaldanna var með hefðbundnu sniði og nægir þar að nefna róðrakeppni, sigling- ar og koddaslag. I róðrakeppninni var keppt í 3 flokkum. I flokki skipshafna voru skipverjar á Brúarfossi fyrstir í mark en skip- verjar á Suðurlandi komu þar á eftir. í flokki landkrabba sigruðu bílstjórar af Sendibílastöðinni og er það í fjórða árið í röð, sem þeir ná þeim árangri. Siglingamála- stofnunin varð í öðru sæti í þessum flokki, Hraðfrystistöðin í þriðja sæti og BÚR tryggði sér fjórða sess í flokki landkrabba. Kvenþjóðin lét ekki sitt eftir liggja og í þeirra flokki voru valkyrjurnar frá BÚR hraðskreið- astar en konur frá Hraðfrystistöð- inni voru aðrar í röðinni. Sigur- vegurum úr hverjum flokki var afhentur farandbikar til varð- veislu fram að næsta sjómanna- degi. Kappsigling seglbáta vakti mikla athygli en fleyjunum stýrðu ungmenni úr siglingaklúbbum í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Sund átti að fara fram, en einungis einn skráði sig til keppni þannig að ekkert varð úr. Félagar úr Sportbátaklúbbn- um Snarfara sýndu ennfremur báta sína. Öldruðum sjómönnum voru síð- an veittir heiðurspreningar Sjó- mannadagsins og að þessu sinni hlutu þá Óskar Guðfinnsson, há- seti, Lýður Guðmundsson, loft- skeytamaður, Jón Björnsson, skiptstjóri í Ánanaustum og Hilmar Jónsson fyrrverandi for- maður Sjómannafélags Reykja- víkur. Einnig var afhentur svonefndur Fjalarbikar og kom hann í hlut Harðar Kristjánsson- ar fyrir framúrskarandi námsár- angur á 3. stigi Vélskólans. Erindi sjómannadagsins fluttu Kjartan Jóhannsson, sjávarút- vegsráðherra, Ingólfur Ingólfsson, formaður Farmanna- og fiski- mannasambands íslands og Sverr- ir Leósson, útgerðarmaður frá Akureyri. Framkvæmdastjóri Sjómanna- dagsins 1979 er Garðar Þor- steinsson og kvaðst hann vilja skila þakklæti til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn við undir- búning sjómannadagsins. ísafjörður: w Ovenju- bað er betra að vera volkinu vanur þegar keppt er í koddaslag eins og þessi mynd Irá Þingeyri sýnir. Ljóxm. FinnboKÍ Uermannsson. gott sjó- manna- dagsveður ÍSFIRÐINGAR hófu hátíða- höld sín með hópsiglingu báta á sunnudagsmorgni. Siglt var út í ísafjarðardjúp með far- þegana, sem voru milli 5 og 6 hundruð. Messa var í Ilnifsdal kl. 10 en síðan var lagður blómsveigur að minnisvarða drukknaðra sjómanna. Safn- ast var saman, þar sem gamla bæjarbryggjan var áður á ísa- firði og gengu fánaberar fyrir fylktu liði að minnisvarða sjómanna þar sem formaður Sjómannadagsráðs, Kristján J. Jónsson, lagði blómsveig. Séra Jakob Hjálmarsson predikaði við messu í Isafjarðarkirkju. Skemmtun hófst við bátahöfn- ina kl. 14. Tveir aldnir sjómenn, Hólmgeir Líndal Magnússon og Jón Helgason, voru heiðraðir. Hátíðarræðu flutti Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri. Úrslit í kappróðri urðu þau að í flokki skipshafna sigraði Víkingur III, en Björgunarsveitin Skutull í flokki landkrabba. í kvennaflokki sigraði harðsnúið lið frá Hrað- frystihúsinu Norðurtanga, og er þetta í þriðja sinn í röð, sem það gengur með sigur af hólmi. Sigur- vegari í kappbeitingu varð Sævar Gestsson, landmaður á vélbátnum Orra. I fyrsta skipti fór nú fram á Isafirði sportbátakeppni og voru 9 bátar skráðir til leiks. Fyrstur í þessari keppni var bátur undir stjórn Eiríks Kristóferssonar og Einars Vals Kristjánssonar. Björgunarsveitin Skutull sýndi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.