Morgunblaðið - 12.06.1979, Page 21
MORGUNBJLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12.-JUNÍ 1979
21
1. deild í kvöld:
Stórleikir
TVEIR stórleikir íara í kvöld fram í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. Valur fær ÍBV í heimsókn á Laugardalsvöllinn, en á
Hvaleyrarholtsvellinum eigast við Haukar og IA.
Leikur Vals og ÍBV hefst klukkan 20.00. Valsmenn hafa ekki
verið eins sannfærandi í sumar og oft áður, ÍBV hefur gengið upp
og ofan og er því ekki gott að spá um úrslit þessa leiks. ÍA ætti hins
vegar að teljast sigurstranglegra liðið í Hafnarfjarðarleiknum.
Haukar eru enn án stiga og virðast ekki líklegir til að hreppa mörg
stig. Skagamenn hafa hins vegar reynst drjúgir í stigaöfluninni og
ættu að vinna örugglega. Leikurinn hefst klukkan 19.00.
Þá fer fram einn leikur í bikarkeppni KSÍ á Þórsvellinum á
Akureyri, Þór mætir HSÞ klukkan 20.00.
Sigurður sigldi
fram úr Sveini
DUNLOP-KEPPNIN í golfi fór
fram á Leiruvellinum um helg-
ina í frekar leiðinlegu veðri. Er
ekki spurning, að rigningin
hafði mikil áhrif á getu og
frammistöðu keppenda. Keppn-
in var þó nokkuð spennandi,
einkum þar sem allt fram á
síðustu holu virtist sigurinn
blasa við Svcini Sigurbergssyni.
Honum varð hins vegar illa á f
messunni og þurfi 7 högg (á 4
par holu) til að ljúka sér af og
það notfærðu sér 4 aðrir
keppendur til þess að skjótast
fram úr honum. Sigurður Ilaf-
steinsson stóð uppi sem sigur-
vegari, sló samtals 152 högg.
Sigurður var einn hinna fjög-
urra sem fram úr Sveini skaust á
lokasprettinum. Sigurður hafði
reyndar forystuna ásamt Þor-
birni Kjærbo eftir fyrri keppnis-
daginn, en báðir léku þá á 75
höggum. Þorbjörn dróst hins
vegar dálítið aftur úr og varð að
láta sér lynda fjórða sætið á 155
höggum. Jafnir í 2.-3. sæti urðu
þeir Barry Lane, sem keppti sem
gestur, og Sigurður Pétursson,
sem léku á 153 höggum hvor.
Sveinn Sigurbergsson hafnaði
því í fimmta sæti með 156 högg,
en Björgvin Þorsteinsson virðist
vera að ná sér á strik, hafnaði í
sjötta sætinu með 156 högg, rétt
eins og Sveinn.
Gunnar Schram sigraði í
keppninni með forgjöf, með 138
högg nettó, 23 í forgjöf. Ægir
Magnússon kom þar næst með
143 högg nettó, 22 í forgjöf. í
þriðja sætinu var Jóhann
Jósepsson með 145 högg, 6 í
forgjöf.
Mót þetta gaf stig til landsliðs,
en það verður væntanlega valið á
næstunni af einvaldinum Kjart-
ani L. Pálssyni.
• Sigurvegarinn í Dunlop keppninni í golfi var Sigurður
Hafsteinsson, sem lék á 152 höggum. Hér mundar Sigurður
golfkylfuna.
#
íslensku landsliðsmennirnir fagna ákaft marki Janusar Guðl-
augssonar f landsleiknum við Sviss. Sjá á bls 24—25.
Ljósmynd RAX.
12.000
á vellinum
ALLS greiddu 10469 aðgang að
landsleiknum í knattspyrnu á
laugardaginn. Og ekki er frá-
leitt að álíta að um 12.000
manns hafi verið á vellinum þar
sem margir fá boðsmiða. Frið-
jón Friðjónsson gjaldkeri KSÍ
sagði eftir leikinn að hann væri
mjög ánægður með aðsóknina
sem gæfi um 16 milljónir í
brúttótekjur.
Kostnaðurinn við báða leik-
ina við Sviss eru um 10,7
milljónir þannig að nokkur
hagnaður verður.
Staðan í riðlinum er nú þeNxi:
Holland 5 4 0 1 11:2 8
Pólland 4 3 0 1 7:2 6
A-býskaland 4 3 0 1 7:5 6
Sviss 6 2 0 4 6:11 4
ísland 5 0 0 5 2:12 0
- þr-
• Pétur Pétursson fagnar marki sínu með Teiti, sem liggur á
sem missti boltann.
jörðinni ásamt markverðinum,
Ljósmynd Emilfa.
„Markið var i
alla staði löglegt'
— MARKIÐ var að öllu leyti
löglegt. sem ég skoraði, sagði
Pétur Pétursson. þegar blm.
Mb. spurði hann um markið. —
Markvörðurinn náði ekki að
halda föstu skoti Ásgeirs og
missti boltann frá sér. Ég var
heilan metra frá markmannin-
um, þcgar ég náði að sparka
boltanum í netið, og kom ekki
við markmanninn. Þetta voru
mikil mistök hjá dómaranum.
Markið var 1 alía staði löglegt.
Mér fannst vanta allan samleik
í liðið hjá okkur. Þetta voru
tómar kýlingar fram völlinn og
vont fyrir okkur í framlínunni
að ná boltunum. Þá fékk ég
ekki boltann langtimum saman
í síðari hálfleiknum. Hann var
alltaf hægra megin. Það var
slæmt að tapa þessum leik.
Ilann átti að vinnast.
Slagur er Bayern
sigraói Hamburger
MARGIR slösuðust, sumir al-
varlega, og leikmönnum var
bjargað burt af vellinum með
þyrlum,, er nýja meistaraliðið
Hamburger SV lék sinn síðasta
leik á keppnistfmabilinu. Það
var gegn Bayern á heimavelli
þess. Bayern sigraði 2—1 og
brutust þá út logandi áflog um
allan völl og þúsundir manna
ruddu sér braut inn á leikvang-
inn. Alls voru rúmlega 60.000
manns á vellinum og var laus-
lega áætlað að þriðjungur þess
skara hefði ruðst inn á völlinn.
Leikurinn út af fyrir sig var
góður, Keegan skoraði fyrir
Hamburger, en Janzon og
Rummenigge svöruðu fyrir
Bayern.
Stuttgart mjakaði sér nær
Hamburger með yfirburðasigri
sínum, 7—1, á útivelli gegn
Darmstadt. Olicher skoraði þrí-
vegis, Dieter Höness tvö, Hans
Muller og Georg Volkert hvor
sitt. Köln lauk keppnistímabil-
inu vel, tryggði sér UEFA-sæti
eftir að hafa verið í fallbarátt-
unni lengi framan af vetri. Liðið
vann Herthu Berlin örugglega
3—1, Zimmermann, Okudera og
Littbarski skoruðu mörk liðsins,
Kremer svaraði fyrir Herthu.
Aðrir leikir voru þessir: Bruns-
wick 2 (Popivoda og Hand-
schue)—Schalke 04 l(Fischer)
Kaiserslautern—1 (Schwarz) —
Bochum l(Abel).
Nurnberg 2 (Schnieder og
Teuber) — Werder Bremen
2(Röber og Lint)
Dusseldorf 3(K Allofs 2,
Schmitz) — Mönch.gladvach
3(Simonsen, Danner 2) Dort-
mund 2(Segler og Voege)—Biele-
feldt 0
Duisburg 0—Frankfurt 2(Pezzey
og Schaub).
Manfred Kaltz átti góðan leik
með liði sínu Ilamburg SV um
helgina.