Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979 KR — Víkingur ÞAÐ VAR lánleysi yíir Víkings- liðinu í knattspyrnu í gærkveldi er þeir töpuðu 1—0 íyrir KR í íslandsmótinu er hálfgert slysa- mark á 49 minútu leiksins gerði út um leikinn. Sigurður Indriða- son skaut háum bolta inn í vítateig Víkings utan af kanti og boltinn fór yfir Diðrik markvörð, hafnaði á stönginni fjær innan- verðri og þaðan í bak Diðriks og í netið. Var þetta eina mark leiks- ins, því að þrátt fyrir nokkur allgóð tækifæri hjá báðum liðum tókst leikmönnum ekki að koma boltanum oítar í netið. Lítið um tækifæri í fyrri hálfleik Fyrri hálfleikur var frekar daufur á að horfa, lengst af var mikið um miðjuþóf, og liðunum gekk illa að ná upp samleik. Víkingar voru þó fyrri til að skapa sér færi og á 1. mínútu leiksins náðu þeir góðri sókn sem endaði með hörkuskoti frá Hinrik, Magnús varði en hélt ekki boltan- um og missti hann frá sér en varð fyrri til að ná honum aftur, áður en framlínumenn Víkings komust að. Það er svo ekki fyrr en á 20 mínútu leiksins að Lárus Guðmundsson, sem kom inn á sem varamaður fyrir Óskar Tómasson sem meiddist í hné, átti gott tækifæri er hann komst einn í gegnum vörn KR-inga. Magnús hljóp vel út á móti, og náði að trufla Lárus sem skaut framhjá. í lok hálfleiksins áttj svo Sigurður Indriðason gott tækifæri en var of seinn að ná til boltans. Lifnar yfir leiknum í síðari hálfleiknum lifnaði yfir leiknum og liðin virtust finna sig betur. Á fjórðu mínútu síðari hálfleiks fær Sigurður Indriðason góða sendingu út á kantinn og brunar upp völlinn. Þegar hann er kominn á móts við hliðarlínu vítateigsins sendir hann fyrir markið háan bolta sem fór yfir Diðrik í markinu og í innanverða stöngina og í bak Diðriks, sem virtist ekki reikna með boltanum, og hrökk svo í netið. Sannkallað slysamark. Reyndist þetta sigur- mark leiksins. Við markið lifnaði verulega yfir Víkingum sem sóttu nú ákaft og áttu tvö góð tækifæri. Það fyrra kom á 51. mínútu er Lárus Guðmundsson skaut þrumuskoti af um 25 metra færi, og sleikti boltinn þverslána í orðsins fyllstu merkingu. Tveimur mínútum síð- ar átti svo Heimir Karlsson mjög svipað skot af löngu færi, og enn á ný smaug boltinn yfir þverslána. Er óhætt að segja að KR-ingar hafi þarna sloppið með skrekkinn. Sóttu nú liðin sitt á hvað og var barist um hvern bolta. Heldur var Pierre Robcrt bikar. meiri broddur í sókn KR en þeim gekk illa að nýta tækifæri sín. Á 14. mínútu bregst Sigurði Indriða illa bogalistin er hann fær fyrir- gjöf og er einn fyrir opnu marki. Jón Oddsson kemst í gott færi á 29. mínútu en skýtur yfir. Og á 31. mínútu er Sverrir Herbertsson í opnu færi eftir fyrirgjöf Jóns en hann hittir ekki boltann. I lok leiksins pressuðu Víkingar ákaft. Heimir Karlsson skallaði rétt framhjá á 40. mínútu og Hinrik Þórhallsson komst í gegn um vörn KR á 43. mínútu en ávallt vantaði herslumuninn. Jafnræði með liðunum Þegar litið er á liðin er ekki hægt að segja annað en að jafn- ræði hafi verið með þeim. KR-liðið barðist þó öllu betur og gafst aldrei upp. En hjá Víkingum var á stundum eins og gætti vonleysis. I liði Víkings var Sigurlás best- ur þrátt fyrir að hann léki meidd- ur, og var greinlegt að meiðslin háðu honum. Þá var Lárus Guðmundsson góður og víst er að hann á framtíðina fyrir sér í íþróttinni. Hann er lipur með boltann og hefur mjög gott auga • Gullið tækifæri rennur út í sandinn, þar sem Sverrir Herbertsson hittir ekki knöttinn í algeru dauðaíæri. Ljósm. Kristinn. Slysamark færði KR-ingum sigur fyrir samleik. Varnarleikur Vík- ings var ekki alveg nægilega öruggur i leiknum, vantaði meiri festu í hann. Sóknarleikurinn var á köflum ágætur, en datt svo niður á milli. Hið unga lið KR barðist vel í leiknum og gafst aldrei upp. Og baráttan fleytir mönnum langt í öllum íþróttagreinum. Bestur hjá KR var Sigurður Pétursson sem er ódrepandi baráttujaxl sem gefur ekkert eftir, þá áttu Sigurður Indriðason Jón Oddsson góða spretti. Og mikil ógnun er af því hversu sprettharður Jón er. Magnús reyndist nokkuð öruggur í markinu og greip ávallt vel inn í leikinn. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild Laugardalsvöllur 11. júní Víkingur — KR 0—1. (0—0). Mark KR. Sigurður Indriðason á 49. mínútu. Gult spjald. Ragnar Gíslason Víkingi. Áhorfendur 506. Dómari Sævar Jónsson. - þr. Heimsmet í boðhlaupi AUSTUR-þýskt boðhlaupslið kvenna setti nýtt heimsmet í 4x100 metra boðhlaupi ó móti í Karl Marx Stadt um helgina. Fór þar fram landskeppni við Kanada. Mettíminn var 42,09 sekúndur, en gamla metið átti Austur-Þýskaiand einnig, 42,27 sekúndur. Austur-þýsku sveitina skipuðu um helgina þær Marita Koch, Romy Schneider, Ingrid Auers- wald og Marlies Göhr. Frestað Elnkunnagjfifin ^ ■ :.. ''_'' _______:___________ ' KR: Magnús Guðmundsson 2, Guðjón Hilmarsson 2, Sigurður Pétursson 3, Jósteinn Einarsson 1, Börkur Ingvarsson 2, Örn Guðmundsson 2, Vilhelm Fredriksen 2, Jón Oddsson 2, Birgir Guðjónsson 2, Sæbjörn Guömundsson 2, Sigurður Indriðason 3, Sverrir Herbertsson (VM) 2, Elías Guðmundsson (VM) 2. Víkingur: Diðrik Ólafsson 2, Ragnar Gíslason 2, Magnús Þorvaldsson 1, Jóhannes Báröarson 2, Róbert Agnarsson 2, Gunnar Örn kristjánsson 2, Heimir Karlsson 2, Ómar Torfason 2, Sigurlás Þorleifsson 3, Hinrik Þórhallsson 2, Óskar Tómasson 1, Lárus Guðmundsson (Vm) 3. Dómari: Sævar Jónsson 2. Lið KA: Aöalsteinn Jóhannsson 1, Steinþór Þórarinsson 2, Gunnar Gíslason 3, Einar Þórhallsson 3, Haraldur Haraldsson 2, Ásbjörn Björnsson 1, Óskar Ingimundarson 1, Njáll 2, Gunnar Blöndal 2, Jóhann Jakobsson 1, Elmar Geirsson 3. Lið Þróttar: Ólafur Ólafsson 2, Rúnar Sverrisson 1, Úlfar Hróarsson 2, Jóhann Hreiðarsson 2, Sverrir Einarsson 2, Halldór Arason 2, Daði Harðarson 2, Sverrir Brynjólfsson 2, Baldur Hannesson 2, Ágúst Hauksson 2, Ársæll Kristjansson 3, Þorgeir Þorgeirsson (vm) 1, Ásgeir Árnason (vm)1. LEIK ÍBK og Fram, sem leika átti í Keflavík í 1. dcild í gærkvöldi, var frestað. Gras- völlurinn í bænum hefur verið eins og svampur í vætunni, en malarvöllurinn slíkt forað, að ekki er út á hann hægt að fara, hvað þá að leika mikilvægan leik í 1. deild. Real og Sevilla gerðu það gott REAL Madrid og Sevilla tryggðu sæti sín í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu um helgina. Leikið er heima og heiman í keppni þcssari á Spáni og var hér um síðari viðureignir að ræða. Úrslit leikjanna urðu sem hér segir, en innan sviga fylgja úrslit úr fyrri viðureignum félaganna. Zaragoza — Real Madrid 1—0 (0—2) Santander — Sevilla 0—2 (1—2) Eftir eiga að leika Valencia og Alves annars vegar og Osasuna og Pamplona hins vegar. Valencia hefur þegar unnið 1—0 á útivclli og fer að öllum líkindum áfram, Pamploid vann fyrri leik sinn gegn Osasuna 2—0 og Iék á hcimavelli. Fyrri leikurinn í undanúrslitunum fer fram næstkomandi sunnudag, Real Madrid mætir þá Sevilla. GOLFMÓT blaðamanna fór fram siðastliðin föstudag. Þar var keppt í þremur flokkum, meistaraflokki, 1. flokki og 2. flokki. Voru snilldarbrögð framin á leikvellinum, ekki síst í 2. flokki, þar sem Bjarnleifur Bjarnleifsson fór 9 holur á 93 höggum. Sigurvegari í meistaraflokki var Kjartan L. Pálsson, Rúnar Gunnarsson sigraði í 1. flokki og Sigtryggur Sigtryggsson í 2. flokki. A myndinni eru flestir keppenda, en það var Saab-umboðið á íslandi, Töggur hf„ sem stóð fyrir mótinu. Ljósm: SÞ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.