Morgunblaðið - 12.06.1979, Síða 30

Morgunblaðið - 12.06.1979, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979 Barnaárs- sjóður FYRIRTÆKIÐ Gullkistan í Reykjavík heíur stufnað Barnaárssjóð til hjálpar þeim, sem stuðla að uppeldi, hjálp og fræðslu þcirra barna, er þurfa sérstakrar aðstoðar við. Fjáröflun sjóðsins verður þannig háttað, að í hann renn- ur ákveðin upphæð af hverjum seldum hlut með barnaárs- merkinu. sem fyrirtækið lætur framleiða til ágóða fyrir sjóð- inn. Framleidd verða hálsmen og prjónar úr silfri, sem nú eru að koma á markaðinn. Einnig koma síðar á árinu veggplattar úr postulíni, teiknaðir af Egg- erti Guðmundssyni listmálara og unnir hjá postulínsverk- smiðjunni Fúrstenberg í Þýzka- landi. Þangað til þeir koma verður hægt að fá gjafakort. Gullkista hefur fengið leyfi framkvæmdanefndar barnaárs til að nota merki barnaársins á þessa hluti til ágóða fyrir sjóð- inn. Síðar á árinu verður svo úthlutað úr þessum sjóði. Iðnskóli Akureyrar brautskráir 119iðnnema IÐNSKÓLANUM á Akureyri var slitið 31. maí s.l. í sal Iðnskólans. Þetta er 74. árið frá upphafi skólans. I upp- hafi máls síns gerði Aðalgeir Pálsson skólastjóri grein fyrir vetrarstarfinu. í skólan- um voru 253 nemar, þar af 180 konur og 11 nemar utan skóla en þreyttu próf í ein- stökum greinum. Bekkjar- deildir voru 19, þó kennt sam.an að hluta. Húsasmiðir voru flestir eða 38, bifvéla- virkjar 22, ketil- og plötu; smiðir 17, en aðrir færri. í fyrsta skipti fengu málara- nemar verknámskennslu. Af brottskráðum nemum voru húsasmiðir 31 og bifvéla- virkjar 17. 7 luku rafsuðunámi sem er tveggja ára iðjunám. Hæstu einkunnir á brottfarar- prófi hlutu Elín Gísladóttir, nemi í húsgagnasmíði, 9,1, og Ólöf Tryggvadóttir, nemi í bifvélavirkjun, 9,0. Fastráðnir kennarar við skólann voru 13 og stundakennarar15. Um nýjungar í skólanum á næsta vetri er það helst að segja, að boðið verður upp á meistaraskóla í byggingariðn- aði, þ.e. vegna þeirra sem stefna að löggildingu bygging- arnefnda. Einnig verður tækniteiknunarskóli starf- ræktur ef næg þátttaka fæst. Ellert B. Schram, alþingismaður: Endurskoðun meiðyrðalöggjaíar ALÞINGI samþykkti sl. miðvikudag þingsályktun, sem felur rikisstjórninni að láta fram fara endurskoðun á löggjöf um ærumeiðingar. Tillagan var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli með 55 atkvæðum gegn 1 (Finns Torfa Stefánssonar), 1 sat hjá (Vilmundur Gylfason) og þrír vóru fjarverandi. Ellert B. Schram (S) flutti við aðra umræðu málsins eftirfarandi þingræðu, þar sem gerð er grein fyrir afstöðu þingmanna Sjálfsteeðisflokksins. Ilonum fórust m.a. svo orð: Eg á sæti í hv. allsherjarnefnd og skrifa undir þetta nefndarálit þar sem mælt er með samþykkt þeirrar tillögu, að endurskoðun meiðyrðalöggjafar fari fram, en ég tel nauðsynlegt að gera grein fyrir afstöðu minni og koma í veg fyrir hugsanlegan misskiln- ing um það, að ég sé með þessu að taka undir þá röksemda- færslu, sem fram kemur í grein- argerð með nefndri tillögu til þingsályktunar eða taka undir þau ummæli, sem fram komu í ræðu framsögumanns með þessu máli á sínum tíma. Bæði í greinargerð og í framsögunni var vísað til svokallaðra VL-málaferla sem forsendu fyrir því, að nauðsynlegt væri að endurskoða löggjöf um æru- meiðingar. En eins og allir vita eru tildrög þeirra mála þau, að vegna einarðrar og afdráttar- lausrar skoðunar nokkurra manna á varnarmálum og öryggismálum og forystu þeirra í því að efna til undirskrifta- söfnunar, þá voru þeir bornir svívirðingum, fúkyrðum og jafn- vel landráðum með svo blygðun- arlausum hætti, að fá dæmi eru til um slíkt hér á landi. Þessir menn áttu ekki annarra kosta völ til þess að verja æru sína en að höfða mál til að fá ummæli í þeirrar garð gerð dæmd dauð og ómerk. Þetta svokallaða VL-mál er því engan vegin tilefni til þess að endur- skoða löggjöf um ærumeiðingar, en það mál er þó frekar til þess fallið að vekja upp umræðu um æruna sem slíka og reyna þá að haga löggjöf þannig, að hver sem er geti ekki svívirt æru annarra manna. Löggjöfin og siðgæðis- verðir þjóðarinnar eiga miklu fremur að vernda æru en að tala um að breyta löggjöf til þess að auðvelda ómerkilegum og lítil- sigldum blöðum eða einstakling- um að svipta menn æru fyrir það eitt að hafa skoðun. í framsögu með þessari tillögu tók hv. flutningsmaður, Svava Jakobsdóttir, þannig til orða, að tjáningarfrelsi ætti að sitja í fyrirrúmi og smásmuguleg vernd ærunnar ætti að víkja, eins og hún tók til orða. Þessum ummælum hafna ég algerlega. Tjáningarfrelsið er varið samkv. stjórnarskrá en menn verða auðvitað að vera ábyrgir orða sinna og ég vil fyrir mitt leyti standa vörð um æru manna, þvíað hún er jafn mikilvæg eins og tjáningarfrelsið. í þessu sambandi, herra for- seti, vildi ég vitna til þess að í þingsályktunartillögu, sem sam- þykkt hefur verið hér á hinu háa Alþingi um aðild Islands að alþjóðasamningi um mann- réttindi segir svo í 19. gr.: „Allir skulu eiga rétt á að ráða skoðun- um sínum afskiptalaust. Allir skulu eiga rétt til að láta í ljós skoðanir sínar. I þessum rétti felst frelsi til þess að leita, taka við og miðla alls konar vitneskju og hugmyndum án tillits til landamæra, annaðhvort munn- lega, skriflega eða á prenti í formi lista eða eftir hverjum öðrum leiðum að þeirra vali.“ Og síðan segir í þessari grein: „Sér- stakar skyldur og ábyrgð felast í því að nota sér réttindi þau, sem um getur í 2. mgr. þessarar gr. Því má takmarka þessi réttindi að vissu marki, en þó aðeins að því marki, sem mælt er í 1. og er nauðsynlegt til þess að virða réttindi eða mannorð annarra, til þess að vernda þjóðaöryggi eða allsherjarreglu eða heil- brigði almennings eða siðgæði." Þessi grein er samhljóða í mannréttindasáttmála Evrópu- ráðsins og ég-vil leggja áherslu á það, að ef um endurskoðun á meiðyrðalöggjöf er að ræða nú hér á landi, þá á hún að felast í því að hafa þessi grundvallar- atriði í heiðri. Þetta vildi ég láta koma fram, herra forseti, til þess að fyrirbyggja allan mis- skining um það, að ég skrifi undir samþykkt þessarar tillögu með þeim rökstuðningi, sem fram kemur í greinargerð eða framsögu eins og ég gat um áðan. Laxalónsmálið: Alþingi kýs nefnd til málskönnunar SAMEINAÐ þing kaus sl. þriðjudag þriggja manna nefnd til úttektar á svokölluðu Laxalónsmáli, sam- kvæmt tillögu frá allsherjarnefnd neðri deildar Alþing- is. Kosnmgu hlutu: Jonas ur, Jón Sveinsson, Lárósi, verðlagsstjóri. Áður hafði Þórarinn Sigur- jónsson (F) lagt til, að tillögu um kjör nefndarinnar yrði vísað til þingnefndar, sem á þessu stigi máls, á síðasta degi þings, hefði þýtt að málið næði ekki fram að ganga nú. Sú tillaga var felld að viðhöfðu nafnakalli með 38 atkvæðum gegn 14, 5 sátu hjá og 3 voru fjarverandi. Með vísun tillögu til nefndar greiddu atkvæði: Eðvarð Sigurðsson (Abl), Alexander Stefánsson (F), Halldór E. Sigurðsson (F), Helgi F. Seljan (ABl), Hjör- leifur Guttormsson (Abl), Ingvar Gíslason (F), Jón Helgason (F), Lúðvík Jóseps- son (Abl), Stefán Jónsson iarnason, efnaverkfræðing- og Kristján Gíslason, fv. (Abl), Stefán Valgeirsson (F) og Vilhjálmur Hjálmarsson (F). Allir viðstaddir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks greiddu tiltögunni mót- atkvæði og auk þeirra Gils Guðmundsson (Abl), Einar Ágústsson (F), Ólafur R. Grímsson (Ábl) og Tómas Árnason (F). Deilur stóðu um, hvort til- lagan um skipan nefndar þýddi það, að Alþingi kysi nefndina, eða ríkisstjórn kysi hana. Forseti s.þ. úrskurðaði, að höfðu samráði við skrif- stofustjóra Alþingis, Friðjón Sigurðsson, að kjósa bæri nefndina. Kosningar í Sameinuðu þingi; Auð athvæði stjómarliða Sameinað þing kaus í ýmis trúnaðarstörí á lokadegi sl. miðvikudag. Kosningu hlutu: • Þingvallanefnd: Geir Hallgríms- son, Gils Guðmundsson og Sighvat- ur Björgvinsson. • Orkuráð: Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Þóroddur Th. Sigurðs- son, Aage Steinsson (ísafirði), Finn- ur Torfi Stefánsson og Daníel Ágústsson. Tveir fyrst töldu kjörnir af B-lista, er hlaut 19 atkvæði (allra viðstaddra sjálfstæðismanna). Hin- ir af A-lista, sem hlaut 37 atkvæði, allra viðstaddra stjórnarþingmanna (utan tveggja, sem skiluðu auðu, með þeim afleiðingum að 4. maður á A-lista, Bergþór Halldórsson verk- fræðingur féll). • Viðlagatrygging íslands: Jóhannes Árnason (til vara Víg- lundur Þorsteinsson), Ólafur Jóns- son (Erling Viggósson) og Friðjón Guðröðarson (Benedikt Sigurðsson). • Endurskoðendur reikninga Landsbanka (til 2ja ára): Ragnar Jónsson og Sveinn Aðalsteinsson. • Endurskoðendur reikninga Útvegsbanka (til 2ja ára): Ingi R. Jóhannsson og Davíð Guðmundsson. • Stjórn Kísiliðjunnar: Magnús Jónsson bankastjóri, (Ingvar Þórar- insson Húsavík til vara), Sigurður Rúnar Ragnarsson (Tryggvi Finnsson) og Pétur Pétursson (Guð- mundur Hákonarson). • Kosningu 5 manna í stjórn stofn- unarinnar Aðstoðar íslands við þróunarlöndin var frestað til haustþings. Lög frá Alþingi Lög um Rafmagnseftirht rík- isins. Breyting á lögum um Fjárfest- ingarfélag íslands hf. (framleng- ing á sama rétti í skattamálum og aðrar fjármálastofnanir hafa — til ársloka 1982). Breyting á lögum um al- mannavarnir (um skipan yfir- stjórnar þeirra mála). Ríkisreikningurinn 1977. Lög um ríkisborgararétt, sem greint verður nánar frá á þing- síðu Mbl. Lög um sölu notaðra lausa- fjármuna (þ.m.t. bifreiða). Lög um landflutningasjóð (lánasjóð til vöruflutninga). Meðal þingmála, sem döguðu uppi, en gert var ráð fyrir að fá myndu fullnaðarafgreiðslu, eru: „gereyðingarfrumvarpið" um öl- gerðarefni o.fl., frumvarp um framhaldsskóla, frumvarp um eftirlaun aldraðra og frumvarp um breytingu á framleiðsluráðs- lögum landbúnaðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.