Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979
Um Suðurland liggur upptakalína jaröskjálfta, sem allir
stóru jaröskjálftarnir á Suöurlandi raöa sér á, sllt austur
aö Heklu. Hafa nýjar upplýsingar um fyrri alda jaröskjálfta
á svæöinu meira aö segja fært frávik á upptökum inná
pessa línu. Kortiö sýnir áætlaöa stærö og upptök
jaröskjálfta á Íslandí síöan 1700.
hefði minna verið hugsað. Þó er
þetta eift mesta nautgriparæktar-
svæði landsins, þar sem kýr eru inni
mikinn hluta árs.
En þar kemur fleira til. Dýr veröa
hrædd í jarðskjálftum og erfitt að
koma þeim í hús, þótt góö séu. Og
hvað á þá að gera viö skepnurnar
að vetrarlagi? Skepnur virðast
skynja skjálfta áður en fólk finnur þá.
Þorvaldur Thoroddsen segir:
„Jarðskjálftarnir höfðu töluverð áhrif
á skepnur og víst er þaö aö skepnur
voru víða órólegar undan hviðunum
og fældust mjög kippina þegar þeir
komu. Á Hjalla í Ölfusi voru kýr
dreiföar út um haga, þegar fyrsti
jarðskjálftinn kom, en þutu svo
saman í hnapp og stóðu lengi. Á
Rangárvöllum og í Ölfusi voru kýr svo
fælnar um jaröskjálftatímabilið, aö
þær ætluðu aö ærast, ef hart var
hlaupið kring um þær og svo mun
víöa hafa verið. Eins voru kindur þá
mjög styggar. Síra Ólafur Vigfússon
lýsir áhrifum jaröskjálftanna á
skepnur í Holtum þannig: „fénaöur
fældist, féll eöa stóð nötrandi af
hræðslu með alla fætur sem mest út
undan sér, til aö detta ekki, og trylltu
augnaráði; hestarnir frísuðu og
fnæstu, kýrnar öskruöu hamslausar,
kindurnar stöppuðu í jöröina og
blésu og engin skepna þoröi undir
þak." Fyrir kippinn 5. september
ætlaði köttur á Móeiöarhvoli, sem
var með kettlinga, alveg að tryllast
og vildi hvorki lepja mjólk né rjóma
en var alltaf á iöi mjálmandi þangaö
til kippurinn kom. i Vindási á Landi
voru nautgripir um kvöldiö fyrir
jarðskjálftann 26. ágúst svo ókyrrir
og órólegir, aö ekki var hægt aö
koma þeim inn og varö að hætta við
það, eins var á Stóranúpi, aö menn
ætluðu ekki aö geta komiö kúm inn í
fjós^en það tókst þó á endanum, þar
drapst ein kýrin er fjósiö féll. Þar sem
menn voru á ferö fældust hestar og
slitu sig lausa og var síöan illt að
handsama þá. í Flóa þóttust menn
hafa tekiö eftir því aö sumarfuglar,
sem þar voru margir í byrjun jarð-
skjálftanna hurfu. Eins getur Símon
Jónsson þess aö sundfuglar sem
sátu á Ólfusá, flugu upp þegar
kippirnir komu eins og skotiö væri á
Þá“
Baðstofan heldur
Samkvæmt heimildum virðist fólk
enga aövörun hafa fengið. Höggið
hafi bara riöið yfir, snöggt og fyrir-
varalaust. Manntjón hefur verið
furðanlega lítið í jarðskjálftunum
miðað við styrkleika þeirra. — Ekki
vitum viö hverju má þakka þaö, segir
Sveinbjörn. í torfbæjunum virðist
fólkið hafa fengið ráðrúm til að
skríöa út um skjáina. Sperrurnar
hafa falliö niður í miöju og myndast
rúm milli sperra og veggja, og fólkið
svaf í rúmum úti viö veggina. í
jarðskjálftunum 1896 fórust aðeins
þrír, maður sem var að spranga í
Eyjum og hjón í Selfossbæ. Segir svo
frá því hjá Þorvaldi Thoroddsen:
„Úr bæ Arnbjarnar Þórarinssonar
fékk fólk allt forðað sér nema hjónin
Arnbjörn og Guðrún Mgnúsdóttir
kona hans. Baöstofan féll svo fljótt
aö enginn komst út um dyrnar, en
þaö fólk, sem af komst, smaug út um
rifur, sem komu á þekjuna viö fallið,
en 2 drengir voru sóttir inn 'íöar.
Nakinn fjósamað-
ur með tóbaksf jöl
SÉRA ólafur Ólaíwson í Arnar-
bæli skrifaði grein í Lesbók
Mbl. 1936 um skjálftana 1896.
Þar sexir hann m.a. um
skjálftana 5.-6. september:
„Þá — alt í einu skall á
kirkjunni óttalegur jarðskjálfta-
kippur, svo að hún ljek öll á
reiðiskjálfi.
Við stukkum öll upp og út, sem
í kirkjunni vorum. Þóttumst við
eiga fótum fjör að launa. En
þegar út kom sáum við að komið
var svarta myrkur, sótsvört
þoka og sá varla handaskil.
Jeg gekk upp á hlaðið. Þar var
þá komið alt fólkið úr baðstof-
unni, að mestu allsnakið upp úr
rúmunum. Hafði það brotið alla
glugga vestan á baðstofunni og
skirðið þar út.
Nú voru sendir menn inn aftur
til að fleygja út öllum rúmfötum
og fatnaði. Síðan klæddist fólkið
og nú fórum við öll í kirkjuna.
Meðal þeirra, sem komust út
um gluggana allsnaktir, var
fjósakarlinn minn. Jeg rakst á
hann í myrkrinu með tóbaks-
fjölina mína og tóbaksjárnið í
fangi sjér. Jeg vjek eitthvað
orðum að honum, að hann hefði
ætlað að bjarga þessum tækjum
með sjer. „já, húsbóndi góður“,
sagði karl, „þó að himinn og jörð
forgangi, þá ætla jeg að passa
það, sem mjer er trúað fyrir“.
Mjer þótti svarið gott hjá ekki
vitrara manni.
Nú bjuggumst við öll um í
kirkjunni. Og við fórum enn að
reyna að sofa; en suma af
piltunum sendi jeg út í hverfi til
að vita hvernig þar liði.
Svo smáleið nóttin þangað til
um það bil kl. 2. Þá kom loka-
hríðin, og þeim ósköpum, sem þá
gengu á, er ekki unt að lýsa. Þá
flýðum við öll úr kirkjunni og
höfðumst við úti á túni, þangað
til birtan kom.
I þessum voðalega kipp hrundi
hvert einasta hús á prestsetrinu
í Arnarbæli, nema kirkjan. Það
hafði komið fyrir einu sinni áður
1706.“
Baðstofan datt fram en hjónin lágu
fyrir framstafni; hélt bóndi aö öllu
væri óhætt og er sagt að honum hafi
farist svo orð: „fólk þárf ekki aö
æörast, baðstofan heldur". Súöin
lagöist ofan á þau hjón í rúminu og
sperrukjálki lenti á þeim miðjum.
Voru haföar svo haröar hendur á aö
skera ofan af þeim þakið sem auöiö
var í náttmyrkrinu og þó eftir nokkra
leit aö tólum til þess, því nærri öll hús
á bænum lágu í rústum, en þekjan
álnarþykk eöa meira.“
Komið skjálftaveður
Jarðskjálftarnir á Suðurlandi virð-
ast hafa haft töluverð áhrif á fólk
þegar frá leið.Fram að áramótum
voru smákippir alltaf aö rifja upp
óttastundina frá kippunum
miklu.Þegar skjálftarnir urðu var logn
og mjög gott veöur og það sat lengi í
minni fólks. Sagði gamalt fólk ef stillt
var og heitt, að komið væri
skjálftaveður.
— Vonandi reynast húsin okkar í
dag ékki síður í jaröskjálfta en
torfbæirnir, segir Sveinbjörn. Þau
eru áreiðanlega betri að þessu leyti
en hús víða erlendis. Hins vegar
vitum við það ekki af reynslu og erfitt
er að áætla hvernig ný hús muni
standa sig. Þess vegna eru rann-
sóknir Sigurðar Þórarinssonar á
afieiöingum skjálftanna á Dalvík áriö
1934 svo mikilvægar. Þar voru torf-
bæir, hlaöin hús og steypt. Þau stóöu
sig vel hvað öryggi snertir, en um
fjórðungur húsanna var ekki íbúðar-
hæfur á eftir vegna leka. Tjónið var
því mikið. Sigurður var staddur á
Akureyri er þetta varð og fór strax
síðdegis 2. júní til Dalvíkur. Hann
hafði enga skjálftamaela en lét þaö
ekki á sig fá. Var sögö sú saga, aö
hann heföi tímasett skjálftana þar
sem hann sat og fylgdist með ketti.
Þegar kisi lyfti skottinu, merkti
Siguröur tímann.
Hvað þéttbýli snertir kemur
þekkingin á upptökum skjálftanna aö
miklu gagni. Til dæmis er nú vitaö aö
Hella og Hvolsvöllur eru utan við
upptakabeltið, Hverageröi í útjaðri
þess, en Selfoss innan þess. —
Selfoss kaupstaöur er vel í sveit
settur hvaö jaröhita snertir, en aftur
á móti illa vegna jarðskjálfta, segir
Sveinbjörn. Bæjarstjórnin hefur sýnt
skjálftarannsóknum mikinn áhuga og
hyggst taka tillit til þeirra í skipuiagi
og hún er mjög virk í okkar starfi.
Tjölduöu á
Austurvelli
Eftir að brotalömin í Reykjanes-
skaga er þekkt og þar meö upptök
stærri jarðskjálfta, er Ijóst aö Reykja-
vík og Hafnarfjöröur eru í um 20 km
fjarlægö frá upptakalínunni og því
öryggari en vitað var áöur. Þó sýna
gamlar frásagnir að nokkur hræðsla
gæti oröiö í höfuðborginni í jarð-
skjálfta. Þrovaldur Thoroddsen segir
þannig frá jarðskjálftunum 1896:
„í Reykjavík voru kippirnir all-
snarpir. 26. ágúst um kvöldiö kl. 9.50
fannst þar snarpur landskjálfti, fyrst
allharður kippur, svo titringur og svo
aftur harðari kippur og ekkert full-
komið hlé á milli kippanna. Þó stóö
öll hreyfingin ekki yfir nema rúma V4
mínútu. Fólk þusti út úr húsum,
smádót datt niöur og skorsteinar
löskuðust hér og hvar... Hinn 5.
september fannst kippurinn kl. 11V4 í
Reykjavík, hann var eigi alveg eins
snarpur eins og sá, sem kom aö
kvöldi hins 26. ágúst, en engu styttri.
Kippurinn kl. 2 um nóttina 6. sept.
var allharöur og titringur fannst við
og við alla nóttina. Fór Reykvíkingum
nú ekki að verða um sel, svo sumir
þorðu ekki að vera í húsum og var
tjaldaö úti á Austurvelli, þó voru tjöld
þessi lítiö notuö."
— Aukinn skilningur á skjálfta-
svæöinu á Reykjanesskaga gæti þó
orðið til hagnýts gagns við hús-
byggingar í Reykjavík, segir Svein-
björn. Angar af gossprungukerfinu
vestan Kleifarvatns liggja um Elliöa-
vatnssvæðið og ná í útjaöar Hóla- og
Fellahverfis í Breiðholti. Þessar
sprungur eru þéttar og þótt þær séu
venjulega kyrrar, gæti sterkur jarð-
skjálfti hrist upp í staflanum, þannig
að hreyfing komi á gömul misgengi
og þau hnikist til. Þess vegna þarf aö
kortleggja þessar sprungur og gæta
vel að því hvort greina megi sprungur
í húsagrunnum.
Þannig getur ýmislegt gagnlegt
leitt af auknum skilningi á gosvirkni
og jaröskjálftamynstri landsins.
— E.Pá.
Auður Bjarnadóttir dansar hér eitt hlutverkanna í Hnotubrjótn-
um á sýningu í MÚnchen í fyrra.
Auður Bjarnadóttir
dansar í baUettkeppni
íFinnlandi
Dagana 4. —14. júní er haldin
dans og tónlistarhátíð í borg-
inni Kuopio í Finnlandi. Þar
sýna margir helstu dansflokkar
í Evrópu ýmis verk, svo sem
Finnski óperuballettinn,
Rúmenski óperuballettinn,
Tans-Forum frá Köln þar sem
Sveinbjörg Alexanders er einn
helsti dansarinn og
Raatikko-flokkurinn sem sýnir
nýjan ballett eftir Mario
Kuusela, sem nýlega samdi ball-
ettinn Tófuskinnið fyrir
íslenska dansflokkinn.
Vegna 10 ára afmælis þessara
hátíðahalda í Kuopio er efnt til
keppni milli norrænna dansara á
aldrinum 10—22 ára. Fyrir hönd
Islands keppir þar Auður
Bjarnadóttir sem undanfarna 16
mánuði hefur verið í leyfi frá
Islenska dansflokknum og starf-
að við óperuballettinn í
Munchen, þar eru um 80 dansar-
ar og var Auður ráðin sem
sólóisti strax frá byrjun og hefur
dansað í fjölda verka, mótdans-
ari Auðar í þessari keppni verð-
ur dansari frá Míinchen-óper-
unni. Meðal dómara í keppninni
er einn Islendingur, Ingibjörg
Björnsdóttir.
Laun í unglinga-
vinnu 470kr. til
799kr. á tímann
TALSVERT á annað þúsund
börn hafa sótt um vinnu hjá
Vinnuskóla Reykjavíkurborgar í
sumar, en Vinnuskólinn hóf
starfsemi sína 5. júní síðastlið-
inn. Árgangarnir sem eiga að-
gang að vinnu á vegum Vinnu-
skólans að þessu sinni eru þeir,
sem fæddir eru 1964 og 1965,
eldri árgangurinn fær vinnu 8
tíma á dag með 590 krónur í laun
á tfmann, en yngri árgangurinn
fær vinnu 4 tíma á dag með 520
krónur á tímann.
í Kópavogi tók Vinnuskóli
Kópavogs til starfa 5. júní, en þar
munu vera um 400 börn við vinnu í
júní. Árgangarnir sem eiga kost á
vinnu hjá Vinnuskóla Kópavogs
eru börn fædd 1963, 1964 og 1965
en börn fædd 1966 munu fá vinnu í
júlí. Eldri árgangarnir tveir fá
vinnu allan daginn, börn fædd
1963 frá 799 krónur í laun á
tímann en börn fædd 1964 fá 706
krónur á tímann. Börn fædd 1965
fá 627 krónur á tímann og börn
fædd 1966 munu fá 470 krónur
þegar þau hefja störf í júlí, en í
júlímánuði verða hátt í 500 börn
við vinnu hjá Vinnuskóla Kópa-
vogs.
I Vinnuskóla Hafnarfjarðar hóf
árgangur barna fæddra 1964 störf
5. júní, þau fá 590 krónur á tímann
og vinnu allan daginn, börn fædd
1965 hófu störf 11. júní og verða
hálfan daginn með 520 krónur í
laun á tímann. Yngsti árgangur-
inn í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
hefur störf 18. júní og mun fá 410
krónur í laun á tímann og vinnu -
hálfan daginn. í vinnuskóla
Hafnarfjarðar verða um 400 börn
við vinnu í sumar.
Vinnuskólarnir munu starfa út
júlí samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér hjá skrif-
stofum vinnuskólanna í gær.
Ahöf num tveggja báta
í Þorlákshöf n sagt upp
Þorlákshtífn, 11. júní.
HELDUR dauflegt er hér hvað
viðkemur útgerð og aflabrögðum
bátanna, mannskapnum hefur
verið sagt upp á tveimur bátum
Meitilsins hf. Það mun ekki vera
talið svara kostnaði að gera þá út
eins og sakir standa, vegna hás
olíuverðs og annarrar óáranar.
Tíu til tólf bátar landa hér
humri og er afla þeirra ekið burt
héðan til Eyrarbakka, Stokkseyr-
ar og fleiri staða. Afli humarbát-
anna var tregur en hefur heldur
glæðst síðustu daga. í dag er verið
að landa úr togaranum Þorláki
140—150 tonnum. Uppistaða afl-
ans er karfi. Samfelld vinna hefur
verið í frystihúsinu að undanförnu
og er það afli togaranna sem þar
er unninn.
Ragnheiöur.