Morgunblaðið - 12.06.1979, Síða 45
45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—11
, FRÁ MÁNUDEGI
nf i\y
útvarpa allan daginn, svo ég álít
að vel mætti stytta útvarpstímann
um einhverja klukkutíma, ekki
hvað síst fyrir þetta fjárvana
fyrirtæki, þó okkur finnist gjöldin
alveg nógu há eins og er.
Þulirnir bæði hjá útvarpi og
sjónvarpi finnst mér ágætir, þó
finnst mér að einn af útvarps-
þulunum, frú Ragnheiður Ásta
Pétursdóttirm mætti mjög gjarn-
an lesa nokkru hægar, einkum
fréttirnar, þó hún sé eins og hinir
þulirnir annars ágæt. En ég skil
ekki almennilega hvers vegna
útvarpið er að ráða prest sem
aukaþul, þegar fullt er af atvinnu-
lausu fólki t.d. skólafólki, að því er
fjölmiðlar herma. Hann les
annars mjög skýrt og mátulega
hratt, en ég hélt að prestur fyrir
stóran söfnuð hefði nóg annað að
gera en hafa sem „aukasporslu"
þularstarf við útvarpið.
Að endingu kærar þakkir til
vinar míns Sverris Þórðarsonar
fyrir grein hans 6. þ.m. um að
vernda fuglana gagnvart því eitri
sem sprautað er í trjágarða.
Þyrftu fleiri að hugsa svo vel til
fuglanna og reyndar allra dýra,
sem mér finnst almenningur
skeyta of lítið um, þó Dýra-
verndunarsambandið, og félög
þess og — sem betur fer — margir
aðrir hugsi vel um það sem í
náttúrunni er, og þjóðin alls ekki
má missa.
M.H. 64824716.
• Brunavarnir í
sumarbústöðum
Nú fer sá tími í hönd, er fjöldi
barna og unglinga dvelst um
stundarsakir í sumarbúðum um
land allt.
Börn og unglingar sofa yfirleitt
fast eftir ærsl og leiki dagsins. Því
hvarflaði að mér, hvort í gildi
væru sérstakar reglugerðir um
brunavarnir á slíkum stöðum, en
sumardvalarstaðir eru flestir
byggðir úr timbri. Ég óttast það,
að kröfum um brunavarnir og þó
öllu heldur eftirlit með þeim á
stöðum þessum sé mjög áfátt. Það
myndi gleðja mig og sjálfsagt
aðstandendur allra barna að fá að
vita, að þessi ótti er ástæðulaus.
Því vil ég beina fyrirspurn til
fyrirstjórnar brunavarna lands-
ins, svo og stjórna hinna ýmsu
sumardvalarstaða, um hvað gert
sé í þessum málum. Einnig vil ég
spyrja, hvort svo sjálfsögðum
öryggistækjum, sem reykskynjar-
ar eru, sé komið fyrir í svefn-
skálum húsanna.
Er það von mín, að svör berist
sem víðast að og meðal annarra
verði svör um Skíðaskálann í
Kerlingarfjöllum, sumarbúðir
KFUM og K, þjóðkirkjunnar,
skáta og skála Ferðafélags ís-
lands.
Ég vil að lokum taka fram, að ég
er mjög þakklátur fyrir starfsemi
þá, sem fer fram á þessum stöðum
og vona að hún megi vaxa og
dafna sem bezt.
Með kveðju,
faðir.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Sovétríkjunum í ár
kom þessi staða upp í skák þeirra
Koz, og Cheremisinovs, sem hafði
svart og átti leik.
20.... Dxfl+! og hvítur gafst upp,
því að hann tapar óumflýjanlega
drottningúnni til baka og verður
þá heilum hrók undir.
• Knattspyrna er
ekki bara
fyrir karla
Mig langar til að leggja
spurningu fyrir íþróttafréttamenn
fjölmiðlanna:
Hvers vegna er aldrei sagt frá
leikjum í kvennaknattspyrnu? Ég
hef séð marga leiki hjá stúlkunum
og liðin geta leikið skemmtilega
knattspyrnu, t.d. Breiðablik og
Valur.
Ég held að fólk almennt geri sér
litla grein fyrir því hvað gróskan
er mikil hjá kvenfólkinu. í 1. deild
kvenna eru nú 5 lið en mörg félög
úti á landi hafa ekki efni á að
senda lið til keppni.
Eg hvet fólk til þess að reyna að
fylgjast með og fjölmiðla til að
segja frá, það yki örugglega áhuga
almennings og stúlknanna, því
knattspyrna er ekki bara íþrótt
fyrir karlmenn.
G.Þ.
• Hamingjuóskir
Helga Weishappel hringdi:
Mig langar til þess að senda
Guðrúnu Símonar hamingjuóskir í
tilefni tónleika hennar. Þeir voru
það sem ég kalla gamantónleika
og Guðrún stóð sig stórkostlega.
Eftir að ég sá þáttinn um hann
Bing Grosby hugsaði ég
„Aumingja Guðrún, því var hún
ekki fædd í Ameríku".
HÖGNI HREKKVÍSI
Myndin er af Bessa og Margréti í hlutverkum sínum í gamanleikn-
um Á sama tíma að ári.
Síðustu sýningar á
„ A sama tíma að ári”
NÚ ERU aðeins eftir örfáar
sýningar á bandaríska gaman-
leiknum Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI,
sem Þjóðleikhúsið hefur sýnt í
allan vetur við miklar vinsældir.
Sýningar eru að nálgast 130 og
hefur ekkert gamanleikrit verið
sýnt jafn oft á vegum leikhússins.
Eins og flestum mun kunnugt
eru það leikararnir Bessi Bjarna-
son og Margrét Guðmundsdóttir,
sem fara með hlutverkin tvö í
leikritinu. Ástæða er til að taka
fram, að þetta eru allra síðustu
sýningar á leikritinu — það
verður ekki tekið upp aftur í
haust.
Þá fer sýningum einnig að
fækka á leikriti Guðmundar
Steinssonar, STUNDARFRIÐ,
sem sýnt hefur verið fyrir fullu
húsi í allt vor. Verður leikritið
sýnt til loka leikársins en því
lýkur 24. júní.
Gagnfræðaskóli Akureyrar:
Fyrstu sjúkralið-
arnir brautskráðir
GAGNFRÆÐASKÓLA Akureyr-
ar var slitið 5. júní. Skólastjóri,
Sverrir Pálsson, minntist fyrst
tveggja fyrrverandi kennara við
skólann, Freyju Antonsdóttur og
Indriða Hallgrímssonar, sem lét-
ust á skólaárinu, en gat sfðan
helstu þátta í starfi skólans.
Innritaðir nemendur voru alls
676, 190 í 10 deildum framhalds-
skólastigs og 486 í 21 deild
grunnskólastigs. Kennarar voru
62, 40 fastakennarar og 22
stundakennarar.
Á vetrinum brautskráðust
fyrstu 10 sjúkraliðarnir frá skól-
anum með fullum starfsréttind-
um, en verklega kennslan var í
höndum Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Nú við skólaslit fengu fyrstu
nemendurnir, 11 að tölu, skírteini
um sérhæft verslunarpróf að
loknu þriggja ára námi á við-
skiptasviði, en þeir luku fyrstir
almennu verslunarprófi við skól-
ann 1978. Þessir nemendur eiga
þess kosta ða þreyta stúdentspróf
að viðbættu einu námsári. Hæstu
einkunn hlaut Laufey L. Árna-
dóttir, 8,4.
Hæstu einkunn í 2. bekk heil-
brigðissviðs hlaut Ragnheiður
Sigfúsdóttir, 9,0, í 2. bekk upp-
eldissviðs Hansína Einarsdóttir,
8,6, og í 2. bekk viðskiptasviðs (á
almennu verslunarprófi) Elín J.
Jónsdóttir, 8,8. — Hæstu einkunn
í framhaldsdeildum hlaut Lisbeth
Grönvaldt Björnsson, 1. bekk heil-
brigðissviðs, 9,6.
177 nemendur luku grunnskóla-
prófi, og 117 náðu réttindaeinkunn
til framhaldsnáms eða 66,1%.
Nokkrir nemendur fengu verð-
laun frá skólanum fyrir námsaf-
rek og forystu í félagsmálum
nemenda. — Einnig veitti Kaup-
mannafélag Akureyrar farandbik-
ar fyrir hæstu meðaleinkunn á
almennu verslunarprófi árlega og
vegleg bókaverðlaun fyrir hæstu
meðaleinkunn á sérhæfðu verslun-
arpfófi. — Lionsklúbbur Akureyr-
ar veitti bókaverðlaun fyrir hæstu
einkunn í íslensku á almennu
verslunarprófi. — Þá hlutu .6
nemendur bókaverðlaun frá sendi-
ráði Sambandslýðveldisins Þýska-
lands fyrir góða þýskukunnáttu.
Gagnfræðingar frá 1959 sendu
skólanum rausnarlega peninga-
gjöf í listaverkasjóð.
Auldn kinda-
kjötssala
VERULEG söluaukning hefur
orðið á kindakjöti á þessu
verðlagsári miðað við árið á
undan. Frá því í september í
haust og fram til 1. maí var
salan 14.3% meiri en sömu
mánuði árið á undan, að jafn-
aði seldust um 120 tonnum
meira á mánuði, segir í frétt
frá Upplýsingaþjónustu
bænda.
Birgðir af kindakjöti 1. janú-
ar s.l. voru 11.393 lestir, sem
var tæpum 1200 lestum meira
en árið áður. Fyrstu 4 mánuði
ársins voru seldar innanlands
3.195 lestir, fluttar voru út
2.466 lestir af kindakjöti.
Birgðir 1. maí voru 5731 lest,
sem var tæpum 500 lestum
meira en í fyrra á sama tíma.
Mjög mikil sala var í síðasta
mánuði, það má gera ráð fyrir
að salan í mánuðinum hafi
verið um 1000 lestir.
Gert er ráð fyrir að flytja út
fram til 1. september um 1700
lestir af dilkakjöti.
Leiðrétting
Misritun varð í síðasta laug-
ardagsblaði í grein um kostnað
við jarðvarmahitun íbúðarhúsn-
æðis, bls. 18. Þar stendur að
mánaðarleg útgjöld fyrir hitun
húss í Reykjavík eða nágrenni sé
kr. 99.603 á mánuði. Þessi upp-
hæð er greidd fyrir hitunina á
ári. Mánaðarlegur kostnaður er
aðeins kr. 8V300.