Morgunblaðið - 17.07.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.07.1979, Blaðsíða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ1979 27 plurgtnjtWalíil* Útgefandi Framkvœmdaatjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fróttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiðsla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Sími 83033 Áskriftargjald 3500.00 kr. á ménuði innanlands. í lausasölu 180 kr. eintakið. Vendirríkis- stiórnarinnar Ríkisstjórnin var ekki orð- in viku gömul, þegar Steingrímur Hermannsson lét þess getið í blaðaviðtali, að „efnahagsdæmi Alþýðu- flokksins" gengi ekki upp. Allar götur síðan hafa ráð- herrarnir haft svipuð um- mæli um „efnahagsdæmi" hver annars og jafnan verið viðkvæðið, að þeir væru önn- um kafnir við að móta fram- búðarstefnu í efnahagsmál- um. Þetta hefur einkanlega ver- ið áberandi í þann mund sem nýjar skattahækkanir hafa verið í burðarliðnum eða ný skerðing kaupgjaldsins. Þannig mátti lesa það í grein- argerð með efnahagsfrum- varpinu í nóvember, hver væri frambúðarstefnan í efnahagsmálum þótt ekki væri orð um hana í frumvarp- inu sjálfu. Þegar skattarnir voru hækkaðir fyrir jólin, var skipuð sérstök ráðherranefnd til þess að marka þessa fram- búðarstefnu. Og loksins sá hún dagsins í ljós í frumvarpi forsætisráðherra, sem aldrei var að vísu lagt fyrir Alþingi, en var þó alveg sérstaklega fagnað af krötum. Upp úr því urðu miklar sviptingar í stjórnarherbúð- unum. Fréttir bárust af því, að forsætisráðherra væri lagstur á sveif með kommum, sem kratar undu illa, en þó fór svo, að 10. marz náðist loksins samkomulag innan ríkisstjórnarinnar um efna- hagsstefnuna, sem ráðherrar kommúnista sögðu tveim dög- um síðar að væri algjör mis- skilningur. Um svipað leyti skoraði Alþýðusamband Vest- urlands á Verkamannasam- band íslands að halda ríkis- stjórninni saman, en þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason áttu fund með forsætisráð- herra um það, hvernig skerð- íngu kaupgjaldsvísitölunnar yrði bezt fyrir komið og opin- berir starfsmenn og fleiri sviptir umsaminni grunn- kaupshækkun. Um miðjan marz lagði svo forsætisráð- herra fram efnahagsfrum- varp „sém þingmaður í þess- ari háttvirtu þingdeild", eins og hann komst að orði, og enn um hríð fylgdist þjóðin með ráðherrunum sínum, þar sem þeir snerust eins og leikbrúð- ur kringum þessa frambúðar- stefnu sína, sem aldrei vildi sjá dagsins ljós. Þó fór svo að lokum, að frumvarp forsætis- ráðherra var samþykkt. Steingrímur Hermannsson taldi „vel hafa tekizt til að ná loks samkomulagi, sem nú yrði að byggja á áfram“ og Hjörleifur Guttormsson hvatti til þess að samþykkja frumvarpið „og ganga ótrauð til þeirra mörgu verka, sem það vísar til“. Síðan efnahagsfrumvarpið var samþykkt og hin lang- þráða „frambúðarstefna" loksins mörkuð, hefur ekkert sérstakt borið upp á í íslenzk- um efnahagsmálum, nema hvað aflabrögð hafa verið óvenju góð og það kom til langvinns farmannaverkfalls. Olíuverðshækkanirnar lágu þegar fyrir, þannig að ekki gátu þær komið ríkisstjórn- inni á óvart. En forsætisráð- herra lét þess að vísu getið, að verðbólgan færi yfir 30%. Það yrði „að fá sinn reynsludóm" hvort hún yrði 35% eins og Þjóðhagsstofnun spáði eða 40%, eins og Vinnuveitenda- sambandið reiknaði með. Nú eru rúmlega þrír mán- uðir liðnir og enn sem fyrr eru talsmenn ríkisstjórnar- innar farnir að tala um fram- búðarstefnu. Kommúnistar vilja hækka vörugjaldið og kratar söluskattinn en fjár- málaráðherra kvartar undan að „allir nema Tómas vilja vísa á tóman ríkissjóð." Þó virðast skattskrárnar sýna, að beinu skattarnir gefi drjúgum meiri tekjur en fjár- lög gerðu ráð fyrir, auk þeirra uppgripa, sem hækkað ben- zínverð hefur fært ríkissjóði. Og formaður þingflokks Al- þýðuflokksins spáir því, að verðbólgan fari yfir 50%. Nýir vendir sópa bezt, sagði forsætisráðherra, þegar hann myndaði ríkisstjórnina. En vendir eru til margra hluta nytsamlegir. Líka til að berja á fólki, — og skattborgarar þessa lands hafa svo sannar- lega fengið að kenna á vönd- um ríkisstjórnarinnar, þegar þeir eru notaðir til þess arna. Eyjólfur Konráð Jónsson, alþm: Ekki meir, ekki meir’9! Það er uppgjafartónn í ungu fólki um hásumar, tíðin hefur verið slæm — lands- stjórnin verri. En verst er þó það, að engra kosta er völ, nema helzt að flytja úr landi, því að allir eru þeir eins! Og víst er um, að nóg er komið. Samt á enn að bera í bakka- fullan lækinn. Því hrópa menn og biðja: „Ekki meir, ekki meir!“ Stjórnarfarinu mælir eng- inn bót, upplausnin er algjör. Þó er ekki víst, að ríkis- stjórnin eigi endilega að fara frá alveg strax. Úr því sem komið er held ég að bezt sé, að hún ljúki óheillaverkun- um, svo að engum detti í hug að reyna að lappa upp á þá vinstri vitleysu, sem ríkt hefur svo til allan þann áratug, sem senn er á enda, eða frá því að verðbólgu- draugurinn tók völdin 1971. Þess í stað snúi menn sér að því að marka stefnu ní- unda áratugsins á máli, sem skilst, því að gömlu úrræðin duga ekki til eins eða neins, þó að ekki væri af öðru en því, að fólk hefur misst trú á þau. Þess vegna verður að gefa upp á nýtt. Það verður hlutverk Sjálfstæðismanna. Og spilin á vinningshendi gætu kannski litið út eitt- hvað á þessa leið: 1. Margt það sama og gert var 1960 með viðreisnar- ráðstöfunum, sem dugðu vel á annan áratug. En fleira þarf nú til að koma. 2. Alfrjáls utanríkis- og gjaldeyrisverzlun. Jafn- rétti og samkeppni. 3. Frjálst verðlag, sem samhliða erlendum vöru- kaupalánum og greiðslu- fresti á tollum tryggir hagstæð innkaup. Færri innflytjendur og lægra verð. 4. Full verðtrygging og frjálsir vextir. Skömmt- unarstjórar snúi sér að heilbrigðri bankastarf- semi. 5. Afnám allra viðbótar- skatta vinstri stjórnar. Fjármunirnir verði hjá fólkinu. 6. Frekari lækkun tekju- skatta og almennar launatekjur skattfrjáls- ar. Aukinn heiðarleiki og minni millifærslur. 7. Lækkun verðbólguskatta eins og „tímabundins" vörugjalds, bensínskatta og tolla í áföngum, t.d. á átta til tólf mánuðum. 18+8+6+4=0, og kaupmátt- ur tryggður. 8. Ákvarðanir kunngerðar með fyrirvara og verðlag stöðvast almennt á ákveðnum degi, en margt fer síðan lækkandi. Frestun innkaupa og bankar fyllast af pening- um. 9. Hætt á talsverðan halla ríkissjóðs í eitt til tvö ár, og fjárlög byggð upp frá grunni — byrjað á núlli. Tekið á verðbólgunni af dirfsku í stað „hag- fræðsku". 10. Vissar opinberar fram- kvæmdir fjármagnaðar með lánsfé frá fólkinu í landinu, skuldabréfalán- um eins og tíðkast t.d. í Bandaríkjunum og V-Þýzkalandi. Menn „eigi“ t.a.m. vegina, sem ljúka verður, en ekki rík- ið. 11. Orkan nýtt m.a. til stór- iðju og fiskiræktar, sem í vaxandi mæli standi undir yfirbyggingunni. Minni skattar á almenn- ing. 12. Embættisbáknið tekið hörkutökum og byrjað á fjármálakerfinu og orku- stofnunum. Sparnaður og ábyrgð, en ekki of- vöxtur. 13. Þjóðarauðnum dreift svo, að sá, sem minnst á, eigi íbúð, ríkisskuldabréf og hlutdeild í atvinnu- rekstri, sem svari til íbúðarverðs. Aukið lýð- ræði og efnahagsöryggi. Og þetta er hægt, annað vonlaust. Svona ráðstafanir gæti ný ríkisstjórn gert, en dauðvona stjórn ekkert. Væntanlega verður þetta frekar rætt á næstunni. Hópar rússneskra flugvéla af gerðinni AN-26 hafa þrívegis á þessu ári millilent hér á leið sinni til Kúbu. 5 rússneskar flug- vélar lenda í Reykja- vík á leið til Kúbu FIMM rússneskar flugvél- ar af gerðinni AN-26 frá flugfélaginu Aeroflot lentu á Reykjavíkurflug- velli í gær. Vélar þessar eru á leið frá Moskvu til Kúbu og fengu leyfi utan- ríkisráðuneytisins til að millilenda nér en hópar flugvéla af þessari gerð hafa komið hingað þríveg- is á þessu ári á leið sinni frá Rússlandi til Kúbu. Alls eru 30 manns í áhöfn- um vélanna. Þennan útbúnað gat að líta er skyggnst var inn í glerkúlu á hlið rússnesku vélanna framar- lega. Flugliðar rússnesku flugvélanna ræða við landa sína úr sendiráði Sovétrfkjanna hér á landi eftir komu flugvélanna í gær. LjAsm.: KristjAn. Sigurbjöm Bárðarson, mað- ur mótsins í Skógarhólum UM HELGINA voru hald- in tvö stórmót í Skógarhól- um í Þingvallasveit. Þar voru haldin jafnhliða ís- landsmót í hestaíþróttum og Skógarhólamót í hefð- bundnum stfl. Mótin fóru í alla staði vel fram og var margt athyglisvert á boð- stólum. Það vakti nokkra athygli, að oft voru það sömu hestarnir, sem stóðu efstir í hinum ýmsu grein- um mótanna. Til dæmis má nefna, að einn knap- anna, Sigurbjörn Bárðar- son, hlaut níu verðlauna- peninga auk bikara fyrir aðeins tvo hesta. Á Brjáni hlaut hann fyrstu verð- laun í tölti, fjórgangi og í B-flokki gæðinga, og önn- ur verðlaun í hlýðni- keppni. Á Garpi hlaut hann fyrstu verðlaun í fimmgangi, gæðingaskeiði og önnur verðlaun í A-flokki gæðinga. Því má A Fyrsta millilandakeppnin í flugíþróttum hérlendis -SÍE3E&* A> ■f Norðurlandameistaramót í svifflugi fjarstýrðra flug- módela fór fram við Hvols- f jall um helgina. Þetta er í fyrsta skipti sem milli- landakeppni í flugíþróttum fer fram hérlendis. Til keppninnar var boðið þátt- takendum frá öllum Norð- urlöndum, en Norðmenn og Finnar sáu sér ekki fært að senda lið að þessu sinni, en einn Norðmaður keppti sem gestur auk Dana, Svía og íslendinga. Mótstjóri keppninnar var Þorgeir Árnason formaður Svifflugfélags íslands en yfirdómari Sigurður Bene- diktsson verkfræðingur. I hverju liði voru þrír flugmenn og einn unglingur, sem keppti í unglingaflokki 20 ára og yngri. Úrslit urðu sem hér segir: í fyrsta sæti og Norðurlandameistari varð Kaj Henning Nielsen frá Danmörku með 6694 stig. Á eftir honum komu Jan Karlson, Svíþjóð, And- ers Ráttzen, Svíþjóð, Preben Nörholm, Danmörku, Phil- ipp Emborg Jensen, Dan- mörku, Rafn Thorarensen, Islandi, John Knutsen, Sví- þjóð, Theodor Theodorsson, Islandi, Hörður Hjálmars- son, íslandi og Royce Morg- an gestur frá Noregi. Úrslit í unglingaflokki urðu sem hér segir: Peter Frank frá Danmörku varð í fyrsta sæti með 6857 stig. í öðru sæti varð Staffan Kuuse frá Svíþjóð og í þriðja sæti varð Steinar Theodórsson frá íslandi. Röð liðanna varð því: Sví- þjóð í fyrsta sæti með 19541 stig, Danmörk með 19429 stig og ísland með 17313 stig. Sigurvegarinn í unglingaflokki, Peter Frank frá Danmörku. með sanni segja, að Sigur- björn hafi verið sigurveg- ari mótanna. Af öðrum úrslitum má nefna, að í A-fl. gæðinga sigraði Svipur (frá Sörla í Hafnarfirði), eig. Sigurður Alfonsson, knapi Trausti Þ. Guðmundss. í hlýðnikeppni sigraði Reynir Aðalsteins- son á hesti sínum Borgfjörð. I hindrunarstökki sigraði Tómas Ragnarsson á Glotta. í töltkeppni unglinga sigr- aði Aðalsteinn Reynisson á Gáska, í fjórgangi unglinga Tómas Ragnarsson á Gauta og í hlýðnikeppni unglinga Þorleifur Sigfússon á Hausta. í kappreiðum urðu úrslit þau, að í 250 m skeiði sigraði Fannar Harðar G. Alberts- sonar á 23,6 sek. í 250 m stökki sigraði Don Harðar G. Albertssonar á 18,9 sek. í 350 m stökki Glóa Harðar G. Albertssonar á 25,4 sek. í 800 m stökki varð fyrstur Reykur Harðar G. Alberts- sonar á 63,8 sek. og í 1500 m brokki varð fyrstur Stjarni Omars Jóhannssonar á 3:28,0 sek. Að Skógarhólamótinu stóðu átta hestamannafélög, Andvari, Fákur, Gustur, Háfeti, Hörður, Máni, Sörli og Trausti. Að íslandsmót- inu í hestaíþróttum stóð íþróttadeild Fáks í umboði Iþróttaráðs. BnH „Maður mótssin“, SÍKurbjörn Bárðarson, með hluta af verð- launum sfnum. iiMIMBi Þessir urðu efstir á íslandsmótinu í fimmgangi. Frá vinstri: Sigurbjörn Bárarson á Garpi, Aðalsteinn Aðalsteinsson á Skelmi, Sigfús Guðmundsson á Þyt. Reynir Aðalsteinsson á Borgfjörð og Sigurður Sæmundsson á Val. Ljós: Gunnhjorn Marinósson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.