Morgunblaðið - 22.07.1979, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1979
Flugvélarnar sinntu m.a. sjúkraflugi þegar þær voru
hér á landi. Hér er ein að koma úr slíkri ferð.
lenda, sá hann glytta í hindrun
framundan í gegnum snjókófið.
Hindrun þessi er tangi sem skagar
út í Þjórsá á þeim stað sem hún
beygir aftur til suðurs. Flug-
maðurinn beygði vélinni skyndi-
lega til hægri til að forðast árekst-
ur, en þar sem vélin var komin
niður undir ofrishraða og var auk
þess rétt við vatnsflötinn, rak hún
hægra flotholtið, sem við það
brotnaði af, í ána og skall síðan i
vatnið. Vélin flaut auðveldlega, þó
að annað flotholtið vantaði, og
barst rólega undan straumnum
niður ána. Að lokum strandaði
hún á sandhrygg neðar í ánni.
Bulukin og félagi hans ákváðu nú
að freista þess að komast í land,
en hvor um sig átti að hafa eins
manns björgunarbát í fórum sín-
um. Þá kemur í ljós að Bulukin
var með sinn, eins og reglur gerðu
ráð fyrir, en Leif Rustad hafði
gleymt sínum heima. Þeim tókst
þó báðum að hanga á bátnum og
komust klakklaust í land, þó
annar á sokkaleistunum. Þeir voru
algerlega ókunnir staðháttum og
vissu ekki um neina byggð í nánd.
Þeir ákváðu því að freista þess að
ganga til Reykjavíkur. Þeir tóku
stefnu til byggða og einungis fyrir
einskæra heppni gengu þeir fram
á bæinn Ásólfsstaði, éftir aðeins
hálftíma göngu. Snjókólfið var svo
dimmt að þeir sáu ekki bæinn fyrr
en þeir áttu örfáa metra ófarna til
hans, og mega þeir teljast heppnir
að hafa rekist á annan tveggja
bæja, sem þarna eru á stóru
svæði. Þar hlutu þeir góðar við-
tökur og var hlúð að þeim eftir
bestu getu.
Flugvélin sökk ekki nærri strax
og stóð afturhluti hennar upp úr
ánni alit fram á miðjan sjötta
áratuginn að því er talið er.“
Vélin í tvennu lagi
— Hvernig verður björgunar-
aðgerðum háttað?
„Síðastliðinn vetur voiu gerðar
kannanir á vélinni í gegnum ís.
Þetta voru aðallega dýptar-
mælingar og jarðvegskannanir,
þar sem könnuð var efnasam-
setning botnsins. í apríl var svo
farinn köfunarleiðangur, en þá
var ástand flugvélarinnar kannað
nákvæmiega. Kom þá í ljós að
flugvélin er brotin í tvennt um
miðjuna og einnig var mótor
hennar horfinn. Þetta skiptir þó
hvorugt höfuðmáli, mótor má fá
næstum því hvar sem er og
grindina má tengja saman. Vélin
er á kafi í sandi og leir en þeim
efnum verður dælt upp með kraft-
miklum sogdæium. Að því verki
loknu verða settir undir vængina
svokallaðir „liftings bags“, en það
eru stórir pokar sem fylltir verða
af lofti, en við það lyftist vélin upp
á yfirborðið. Síðan verður hún
dregin upp í nálæga vík, þar sem
hún mun tekin sundur."
— Hver verða svo afdrif vélar-
innar?
„Það er samkomulag um það
milli allra aðila sem að björgun-
inni standa. Flugvélin verður í
upphafi flutt til Bandaríkjanna og
komið þar í sýningarhæft ástand.
Þessi vél er fyrsta flugvéiin sem
bandarísku Northrop verk-
smiðjurnar smíðuðu. Meðal
gamalla starfsmanna verksmiðj-
anna eru margir sem stóðu að
smíði þessara véla og eru þeir,
ásamt öðrum, tilbúnir að endur-
byggja flugvélina. Þá mun fyrir-
tækið leggja til allt efni til við-
gerðanna, þannig að öll vinna er
unnin í sjálfboðavinnu og efni
fæst að kostnaðarlausu. Að
viðgerðum loknum verður vélin
sýnd í Bandaríkjunum um tíma.
Að því búnu verður vélin flutt
hingað til íslands og sýnd almenn-
ingi. Að lokum liggur svo leið
vélarinnar til Noregs og verður
framtíðarstaður hennar í norska
flugminjasafninu.
Það vekur athygli erlendis að
reynt skuli að bjarga flugvél á
þennan hátt því flugvél hefur
aldrei áður, svo vitað sé, verið
bjargað úr slíkri aðstöðu. Erlendir
fréttamenn verða á staðnum og
fylgjast þeir með björguninni.
Einnig verður gerð sjónvarpskvik-
mynd um þennan atburð og verður
hún trúlega sýnd víða um heim.
Heyrst hefur að National
Geographic muni senda mann til
að fylgjast með og ætti það að
gefa vísbendingu um hversu
merkileg björgun þarna fer fram.“
Bulukin — fyrir-
liði Norðmannanna
— Hvað munu margir menn
taka þátt í leiðangrinum?
„Þetta verður um þrjátíu og
fimm manna hópur sem þarna
mun vinna að staðaidri, og
kannski eitthvað fleiri um helgar.
Ellefu meðlimir Flugsögufélagsins
munu vinna við björgunina, en
leiðangurinn lýtur yfirstjórn
Flugsöguféiagsins og mun ég
verða leiðangursstjóri. Þá mun
björgunarsveitin Albert á Sel-
tjarnarnesi sjá um allt sem snýr
að öryggismálum, einnig munu
þeir annast eldamennskuna. Munu
líklega verða átta menn frá
björgunarsveitinni á staðnum að
staðaldri. Átta menn koma frá
Noregi og eru þeir á vegum norska
flughersins og Norsk Sjöfarts-
museum. Þrír þessara átta manna
voru hér á stríðsárunum og voru í
flugsveitinni. Tveir þeirra eru
flugvirkjar en einn er flugmaður
og enginn annar en W.W. Bulukin,
sá sem síðastur manna flaug
vélinni. Hann er fyrirliði Norð-
mannanna. Bulukin er áhugakaf-
ari og mun hann verða fyrstur til
að kafa niður að vélinni. Þrír
menn frá Bandaríkjunum munu
verða í leiðangrinum. Tveir þeirra
eru verkfræðingar og er annar
þeirra íslendingur, Sveinn Þórðar-
son, Þorsteinssonar á Sæbóli, en
Sveinn er meðal fremstu flugvéla-
verkfræðinga Northrop verk-
smiðjanna. Þá mun einn kvik-
myndatökumaður verða í
leiðangrinum. Bandaríski flotinn
mun leggja til fjögurra manna
sprengjuleitarsveit, en þeir menn
eru allir kafarar. Alls munu átta
kafarar starfa að björguninni, þar
af einn íslenskur, Sigurður P.
Harðarson. Öll vinna í leiðangrin-
um er sjálfboðavinna og öll tæki
eru fengin að láni hjá ýmsum
aðilum. Norski herinn lánar mikið
af tækjum, en einnig hefur banda-
ríski herinn reynst okkur hjálp-
legur. Eina vandamálið, að
björguninni sjálfri undantekinni,
er fæðisöflun fyrir allan þennan
mannskap. Munum við sem að
björguninni stöndum fara fljót-
lega til ýmissa innlendra fyrir-
tækja sem að matvælaframleiðslu
standa og vonumst við til að okkur
verði vel tekið."
— Hafa þessar aðgerðir ein-
hverja hættu í för með sér?
„Vissulega er nokkur hætta á
ferðum, eins og aðstæðum er
háttað þó að ýtrustu varúðarráð-
stafanir hafi verið gerðar. Aðal
hættan stafar þó af óviðkomandi
fólki sem kann að koma og fylgj-
ast með aðgerðum. Við viljum
hvetja fólk til að halda sig í
hæfilegri fjarlægð, svo það tefji
ekki leiðangurinn að störfum og
bendum á að við erum með mörg
hættuleg tæki og getur stórslys
hlotist af, ef óvarlega er gengið
um. Einnig vil ég koma því að, að
við hvetjum alla þá sem kunna að
hafa einhverja hluti úr vélinni
undir höndum, að láta okkur
Baldur Sveinsson, formann Flug-
sögufélagsins, vita hið fyrsta."
- oj.
Kort sem sýnir leið þá sem flugvélin fór frá Búðareyri við Reyðarfjörð áleiðis til Reykjavíkur. Krossinn sýnir staðinn þar sem vélin fórst og er
enn þann dag í dag.
MUSAVtK
1SPjO"ÐUt
KAvrsij
MAf NAWFJQWOUWj
(tfLAVjK,
(SLAND
VEGiR OG VEGALENGDIR
ROADS ANO DISTANCÍS
*~k pí]P*.
7 )>
~7 \ s. /ý
yt
j* y ý, r— /
W /.
Pr.
//,
\ j
/ /
-*L
V
gi
'&’.L.i