Morgunblaðið - 22.07.1979, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ1979
+ Móöir okkar og stiúpmóöir
SIGRÍÐUR HJÖRDÍS EINARSDÓTTIR
frá Miödal
andaöist aöfararnótt 18. iúlí s.l.
Jaröarför hennar fer fram frá Háteigskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl.
15.
Einar Guönason, Geróur Guönadóttir,
Bergur Guönason, Jón Guönason,
Jónína M. Guönadóttir, Bjarní Guönason,
Elín Guönadóttir, Þóra Guönadóttir.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar og fósturfaöir,
EINAR ÓSKAR Á. ÞÓRÐARSON,
húsgagnasmiöur,
Vesturbrún 10,
veröur jarðsettur frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 1.30.
Laufey Guðmundsdóttir,
Sigríöur Erna Einarsdóttir,
Þórir Einarsson,
Þorsteinn Hörður Björnsson.
t SVEINBJÖRN ÞORBJÖRNSSON,
löggiltur endurskoóandi,
Sörlaskjóli 18,
veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 23. júli
kl. 13.30. Þorsteinn Þorbjörnsson, Anna G. Sigurjónsdóttir, Inga Kristfinnsdóttir, Björgvin Þorbjörnsson, börn, tengdasonur og barnabörn. Betty Þorbjörnsson, Sigurbjörn Þorbjörnsson, synír, tengdadætur og barnabörn.
t
Móöir okkar og tengd -'rióöir
HULDA GUDMUNDSDÓTTIR,
Keldulandi 19
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. júlí kl.
10.30.
Elías Bjarni Jóhannsson, Sígríður Þráinsdóttir,
Jónína Bjarnadóttir, Áki Jónsson.
t
GEIR JÓNSSON,
Faðir okkar og bróöir, vólstjóri,
veröur jarösunginn frá Garöakirkju Álftanesi mánudaginn 23. júlí
kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á Dvalarheimili aldraöra
sjómanna.
Sveinn Helgi Geirsson,
Árni Sædal Geirsson,
Sída Dal Sigurðardóttir,
löunn Siguröardóttir,
Unnur Meinerz.
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ULFHILDUR ÓLAFSDÓTTIR,
frá Flekkudal,
Þinghólsbraut 24, Kópavogi,
sem lézt föstudaginn 13. júlí veröur jarösungin frá Fossvogskirkju,
mánudaginn 23. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á Hjartavernd.
Arngrímur Vídalín Guömundsson,
Ólöf S. Arngrímsdóttir,
Sævar R. Arngrímsson,
Erla Þorleifsdóttir,
Arndís Ú. Sævarsdóttir,
Bryndís M. Sævarsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og langafi
GUÐMUNDUR STEINDÓRSSON,
húsvöröur,
Skúlatúni 2,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. júlí kl. 3
e.h.
Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans láti
li'knarstofnanir njóta þess.
Lára Sigvarösdóttir Hammer,
Steina G. Guómundsdóttir, Baldvin Haraldsson,
Þorvaldur R. Guömundsson, Dóra Guóleifsdóttir,
Elín J. Guömundsdóttir, Gylfi Jónsson,
Ólafur Guðmundsson, Rósmary Siguróardóttir,
Sigriö E. Guömundsdóttir, Haukur ö. Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sveinbjörn Þorbjörns-
son löggiltur endur-
skoðandi — Minning
Fæddur 25. des. 1917.
Dáinn 15. júlí 1979
Sveinbjörn Þorbjörnsson var
einkar hlédrægur maður, en bar
engu að síður reisn mikils per-
sónuleika.
Á yngri árum féll í mitt hlut-
skipti að leita löggilts endurskoð-
anda, sem væri a.m.k. ekki síðri
öðrum góðum í þeirri stétt. Svein-
björn Þorbjörnsson var ótvírætt
slíkur maður.
Eftir fylgdi samstarf rúmiega
þriggja áratuga, sem ég vil nú
sérstaklega þakka.
Sveinbjörn Þorbjörnsson vildi í
engu vamm sitt vita. Dómgreind
hans var skörp, og ef því var að
skipta átti hann skapsmuni, sem
eftir fylgdu. Réttlætiskenndin var
ávallt fyrst og fremst í fyrirrúmi.
Sérstaklega ber mér að þakka
hljóðlát störf Sveinbjörns Þor-
björnssonar í þágu Sjálfstæðis-
flokksins áratugum saman, jafnt í
kosningadagserli sem í undirbún-
ingi slíks starfs og endranær þar
sem hann safnaði saman tölum
með yfirvegun, samdi skýrslur og
túlkaði þær. Þá ber ekki síst að
minnast starfs Sveinbjörns Þor-
björnssonar að endurskoðun og
reikningsskiium Sjálfstæðis-
flokksins, sem hann vann að og
gekk frá með einstakri alúð, þótt
hann gengi því miður nú síðast
alls ekki heiil til skógar.
Sveinbjörn Þorbjörnsson er
verðugur fremsti fulltrúi hinnar
hljóðlátu fjölmennu fylkingar
Sjálfstæðismanna, sem ávallt er
reiðubúin til fórnfúsra starfa,
hvetjandi með fordæmi sínu og
leiðbeinandi þeim, sem í forystu
teljast, með gagnrýni sinni.
Eg þakka Sveinbirni Þorbjörns-
syni vináttu og samstarf og flyt
skylduliði hans samúðarkveðjur.
Geir Hallgrímsson
Sveinbjörn Þorbjörnsson andað-
ist sunnudaginn 15. júlí s.l. Hann
var fæddur 25. desember 1917 í
Reykjavík, sonur hjónanna Þor-
björns Þorsteinssonar, húsa-
smíðameistara og Sigríðar Maríu
Nikulásdóttur, konu hans, sem
bæði eru látin.
Sveinbjörn Iauk prófi frá
Verslunarskóla íslanda árið 1936
og prófi sem löggiltur endurskoð-
t
Hjartkær faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi
VALGEIR GUÐJÓNSSON,
múrari, Selvogsgrunni 3, R.
verður jarösunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 25. júlí
klukkan 1.30.
Guðjón Valgeirsson, Hallveig Halldórsdóttir,
Gunnar Valgeirsson, Anna Sveinsdóttir,
Kjartan Þór Valgeirsson, Anna Hermannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma.
JÓNA SIGURLAUG SIGUROARDÓTTIR, Kjarrhólma 18, Kópavogi andaöist 16. júlí á Borgarspítalanum. Jaröarförin hefur fariö fram.
Valgeröur Jónsdóttir, Sævar Lýösson,
Krístin Jónsdóttir, Bjarni Bjarnason,
Sigrún Jónsdóttir, og barnabörn. Jósef Ólafsson
t
Bróöir okkar,
JÓNAS ÓLAFSSON,
sem andaöist 15. þ.m. veröur jarösunginn 23. júlí kl. 10.30, í
Fossvogskirkju.
Þeir sem vildu minnast hins látna er bent á Líknarstofnanir.
Fyrir hönd systra og annarra ættingja
Leó Ólafsson.
t
Útför móöur okkar
GUÐRUNAR GUOMUNDSDÓTTUR,
Efri Gegnishólum,
fer fram frá Selfosskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 14.
Húskveöja veröur frá heimili hinnar látnu kl. 12.30 sama dag.
Börnin.
t
Hjartkær faðir okkar, tengdafaöir og afi,
BJÖRN ÁRNASON,
bifreiöastjóri,
Brekkuhvammi 2, Hafnarfiröi,
veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju þriöjudaginn 24 júlí kl
13.30.
Guðlaug Björnsdóttir, Björn Sveinbjörnsson,
Sigurlaug Björnsdóttir, Björn Pálsson,
Siguröur Björnsson, Sieglinde Kahmann Björnsson
og barnabörn.
andi árið 1949. Hann hóf störf sem
endurskoðandi á Endurskoðunar-
stofu Björns Steffensen og Ara Ó.
Thorlacíus árið 1938 og var með-
eigandi hennar um tíu ára skeið,
en hann stofnaði eigin endurskoð-
unarstofu á árinu 1958.
Sveinbjörn starfaði að endur-
skoðun margra af þekktustu og
stærstu fyrirtækja þessa lands og
naut alls staðar mjög mikils
trausts í starfi.
Ég átti því láni að fagna að
hefja störf á skrifstofu Björns og
Ara árið 1944 og eftir það hafa
leiðir okkar Sveinbjörns legið
mikið saman. Hann var maður
með óvenju sterka skapgerð,
þannig að saman fór ákveðni í
skoðun, óvenju mikil starfsgleði
og nákvæmni við vinnu. Þrátt
fyrir festu í skoðun var Sveinbjörn
léttur í lund og sem dæmi vil ég
nefna, að við höfum fimm starfs-
félagar haldið hópinn reglulega í
30 ár og spilað saman í viku hverri
og við minnumst þess ekki að
nokkurn tíma hafi hrotið eitt
styggðaryrði frá hans vörum, og
var þó keppnisskap hans í fullu
samræmi við hans vinnugleði. Við
Sveinbjörn áttum ógleymanlegar
stundir saman innanlands, sem
utanlands, en ég átti þess kost að
ferðast með honum víða, og vart
var hægt að hugsa sér skemmti-
legri og þægilegri ferðafélaga. Það
er því eins og myndast hafi all
mikið tóm við andlát Sveinbjörns,
sem bar að í einni af hans mörgu
ferðum, er hann fór sér til hvíldar
og hressingar. Eftir situr óvenju
skýr og sterk minning um góðan
dreng, og á ég honum mikið að
þakka fyrir allan hans stuðning og
vináttu í minn garð, bæði í starfi
og utan þess.
Sveinbjörn starfaði mikið fyrir
Skátahreyfinguna á íslandi og var
óþreytandi við þau störf, sem og
önnur. Hann sat í stjórn Félags
löggiltra endurskoðenda um nokk-
urt skeið, og veit ég að ég mæli
fyrir hönd allra félagsmanna, er
ég þakka honum störf hans í þágu
félagsins.
Þá vil ég sérstaklega fyrir hönd
okkar spilafélaganna, þakka hon-
um fyrir ógleymanlegar ánægju-
stundir, en þar, sem annars stað-
ar, hefur myndast skarð, sem
aldrei verður fyllt.
Bergur Tómasson
Við fráfall Sveinbjörns Þor-
björnssonar eigum við starfsmenn
Eimskipafélagsins á bak að sjá
góðum og traustum félaga. Kynni
flestra okkar af honum voru að
LEGSTEINAR
S. HELGASON H/F,
STEINSMIOJA
SKEMMUVEGI48, KÓPAVOGI,
SÍMI 76677.