Morgunblaðið - 22.07.1979, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 22.07.1979, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ1979 + Móöir okkar og stiúpmóöir SIGRÍÐUR HJÖRDÍS EINARSDÓTTIR frá Miödal andaöist aöfararnótt 18. iúlí s.l. Jaröarför hennar fer fram frá Háteigskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 15. Einar Guönason, Geróur Guönadóttir, Bergur Guönason, Jón Guönason, Jónína M. Guönadóttir, Bjarní Guönason, Elín Guönadóttir, Þóra Guönadóttir. t Eiginmaður minn, faöir okkar og fósturfaöir, EINAR ÓSKAR Á. ÞÓRÐARSON, húsgagnasmiöur, Vesturbrún 10, veröur jarðsettur frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 1.30. Laufey Guðmundsdóttir, Sigríöur Erna Einarsdóttir, Þórir Einarsson, Þorsteinn Hörður Björnsson. t SVEINBJÖRN ÞORBJÖRNSSON, löggiltur endurskoóandi, Sörlaskjóli 18, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 23. júli kl. 13.30. Þorsteinn Þorbjörnsson, Anna G. Sigurjónsdóttir, Inga Kristfinnsdóttir, Björgvin Þorbjörnsson, börn, tengdasonur og barnabörn. Betty Þorbjörnsson, Sigurbjörn Þorbjörnsson, synír, tengdadætur og barnabörn. t Móöir okkar og tengd -'rióöir HULDA GUDMUNDSDÓTTIR, Keldulandi 19 veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. júlí kl. 10.30. Elías Bjarni Jóhannsson, Sígríður Þráinsdóttir, Jónína Bjarnadóttir, Áki Jónsson. t GEIR JÓNSSON, Faðir okkar og bróöir, vólstjóri, veröur jarösunginn frá Garöakirkju Álftanesi mánudaginn 23. júlí kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á Dvalarheimili aldraöra sjómanna. Sveinn Helgi Geirsson, Árni Sædal Geirsson, Sída Dal Sigurðardóttir, löunn Siguröardóttir, Unnur Meinerz. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ULFHILDUR ÓLAFSDÓTTIR, frá Flekkudal, Þinghólsbraut 24, Kópavogi, sem lézt föstudaginn 13. júlí veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 23. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Hjartavernd. Arngrímur Vídalín Guömundsson, Ólöf S. Arngrímsdóttir, Sævar R. Arngrímsson, Erla Þorleifsdóttir, Arndís Ú. Sævarsdóttir, Bryndís M. Sævarsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og langafi GUÐMUNDUR STEINDÓRSSON, húsvöröur, Skúlatúni 2, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. júlí kl. 3 e.h. Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans láti li'knarstofnanir njóta þess. Lára Sigvarösdóttir Hammer, Steina G. Guómundsdóttir, Baldvin Haraldsson, Þorvaldur R. Guömundsson, Dóra Guóleifsdóttir, Elín J. Guömundsdóttir, Gylfi Jónsson, Ólafur Guðmundsson, Rósmary Siguróardóttir, Sigriö E. Guömundsdóttir, Haukur ö. Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sveinbjörn Þorbjörns- son löggiltur endur- skoðandi — Minning Fæddur 25. des. 1917. Dáinn 15. júlí 1979 Sveinbjörn Þorbjörnsson var einkar hlédrægur maður, en bar engu að síður reisn mikils per- sónuleika. Á yngri árum féll í mitt hlut- skipti að leita löggilts endurskoð- anda, sem væri a.m.k. ekki síðri öðrum góðum í þeirri stétt. Svein- björn Þorbjörnsson var ótvírætt slíkur maður. Eftir fylgdi samstarf rúmiega þriggja áratuga, sem ég vil nú sérstaklega þakka. Sveinbjörn Þorbjörnsson vildi í engu vamm sitt vita. Dómgreind hans var skörp, og ef því var að skipta átti hann skapsmuni, sem eftir fylgdu. Réttlætiskenndin var ávallt fyrst og fremst í fyrirrúmi. Sérstaklega ber mér að þakka hljóðlát störf Sveinbjörns Þor- björnssonar í þágu Sjálfstæðis- flokksins áratugum saman, jafnt í kosningadagserli sem í undirbún- ingi slíks starfs og endranær þar sem hann safnaði saman tölum með yfirvegun, samdi skýrslur og túlkaði þær. Þá ber ekki síst að minnast starfs Sveinbjörns Þor- björnssonar að endurskoðun og reikningsskiium Sjálfstæðis- flokksins, sem hann vann að og gekk frá með einstakri alúð, þótt hann gengi því miður nú síðast alls ekki heiil til skógar. Sveinbjörn Þorbjörnsson er verðugur fremsti fulltrúi hinnar hljóðlátu fjölmennu fylkingar Sjálfstæðismanna, sem ávallt er reiðubúin til fórnfúsra starfa, hvetjandi með fordæmi sínu og leiðbeinandi þeim, sem í forystu teljast, með gagnrýni sinni. Eg þakka Sveinbirni Þorbjörns- syni vináttu og samstarf og flyt skylduliði hans samúðarkveðjur. Geir Hallgrímsson Sveinbjörn Þorbjörnsson andað- ist sunnudaginn 15. júlí s.l. Hann var fæddur 25. desember 1917 í Reykjavík, sonur hjónanna Þor- björns Þorsteinssonar, húsa- smíðameistara og Sigríðar Maríu Nikulásdóttur, konu hans, sem bæði eru látin. Sveinbjörn Iauk prófi frá Verslunarskóla íslanda árið 1936 og prófi sem löggiltur endurskoð- t Hjartkær faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi VALGEIR GUÐJÓNSSON, múrari, Selvogsgrunni 3, R. verður jarösunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 25. júlí klukkan 1.30. Guðjón Valgeirsson, Hallveig Halldórsdóttir, Gunnar Valgeirsson, Anna Sveinsdóttir, Kjartan Þór Valgeirsson, Anna Hermannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma. JÓNA SIGURLAUG SIGUROARDÓTTIR, Kjarrhólma 18, Kópavogi andaöist 16. júlí á Borgarspítalanum. Jaröarförin hefur fariö fram. Valgeröur Jónsdóttir, Sævar Lýösson, Krístin Jónsdóttir, Bjarni Bjarnason, Sigrún Jónsdóttir, og barnabörn. Jósef Ólafsson t Bróöir okkar, JÓNAS ÓLAFSSON, sem andaöist 15. þ.m. veröur jarösunginn 23. júlí kl. 10.30, í Fossvogskirkju. Þeir sem vildu minnast hins látna er bent á Líknarstofnanir. Fyrir hönd systra og annarra ættingja Leó Ólafsson. t Útför móöur okkar GUÐRUNAR GUOMUNDSDÓTTUR, Efri Gegnishólum, fer fram frá Selfosskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 14. Húskveöja veröur frá heimili hinnar látnu kl. 12.30 sama dag. Börnin. t Hjartkær faðir okkar, tengdafaöir og afi, BJÖRN ÁRNASON, bifreiöastjóri, Brekkuhvammi 2, Hafnarfiröi, veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju þriöjudaginn 24 júlí kl 13.30. Guðlaug Björnsdóttir, Björn Sveinbjörnsson, Sigurlaug Björnsdóttir, Björn Pálsson, Siguröur Björnsson, Sieglinde Kahmann Björnsson og barnabörn. andi árið 1949. Hann hóf störf sem endurskoðandi á Endurskoðunar- stofu Björns Steffensen og Ara Ó. Thorlacíus árið 1938 og var með- eigandi hennar um tíu ára skeið, en hann stofnaði eigin endurskoð- unarstofu á árinu 1958. Sveinbjörn starfaði að endur- skoðun margra af þekktustu og stærstu fyrirtækja þessa lands og naut alls staðar mjög mikils trausts í starfi. Ég átti því láni að fagna að hefja störf á skrifstofu Björns og Ara árið 1944 og eftir það hafa leiðir okkar Sveinbjörns legið mikið saman. Hann var maður með óvenju sterka skapgerð, þannig að saman fór ákveðni í skoðun, óvenju mikil starfsgleði og nákvæmni við vinnu. Þrátt fyrir festu í skoðun var Sveinbjörn léttur í lund og sem dæmi vil ég nefna, að við höfum fimm starfs- félagar haldið hópinn reglulega í 30 ár og spilað saman í viku hverri og við minnumst þess ekki að nokkurn tíma hafi hrotið eitt styggðaryrði frá hans vörum, og var þó keppnisskap hans í fullu samræmi við hans vinnugleði. Við Sveinbjörn áttum ógleymanlegar stundir saman innanlands, sem utanlands, en ég átti þess kost að ferðast með honum víða, og vart var hægt að hugsa sér skemmti- legri og þægilegri ferðafélaga. Það er því eins og myndast hafi all mikið tóm við andlát Sveinbjörns, sem bar að í einni af hans mörgu ferðum, er hann fór sér til hvíldar og hressingar. Eftir situr óvenju skýr og sterk minning um góðan dreng, og á ég honum mikið að þakka fyrir allan hans stuðning og vináttu í minn garð, bæði í starfi og utan þess. Sveinbjörn starfaði mikið fyrir Skátahreyfinguna á íslandi og var óþreytandi við þau störf, sem og önnur. Hann sat í stjórn Félags löggiltra endurskoðenda um nokk- urt skeið, og veit ég að ég mæli fyrir hönd allra félagsmanna, er ég þakka honum störf hans í þágu félagsins. Þá vil ég sérstaklega fyrir hönd okkar spilafélaganna, þakka hon- um fyrir ógleymanlegar ánægju- stundir, en þar, sem annars stað- ar, hefur myndast skarð, sem aldrei verður fyllt. Bergur Tómasson Við fráfall Sveinbjörns Þor- björnssonar eigum við starfsmenn Eimskipafélagsins á bak að sjá góðum og traustum félaga. Kynni flestra okkar af honum voru að LEGSTEINAR S. HELGASON H/F, STEINSMIOJA SKEMMUVEGI48, KÓPAVOGI, SÍMI 76677.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.