Morgunblaðið - 18.09.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
Agreiningur sem
getur sprengt
stj órnarsamstarf’’
BENEDIKT Gröndal, íormaður
Alþýðuflokksins, segir í viðtali
við Alþýðublaðið á laugardag að
afgreiðsla rikisstjórnarinnar á
hækkun landbúnaðarvara hafi
valdið ágreiningi sem hæglega
geti sprengt stjórnarsamstarf.
„Ráðherrar Alþýðuflokksins
mótmæltu harðlega hækkun
landbúnaðarvaranna og snerust
afdráttarlaust gegn því, að ríkis-
stjórnin staðfesti verðútreikning-
inn. Framsóknarmenn og Al-
þýðubandalagsmenn knúðu mái-
ið fram og bera á því alla ábyrgð,
en afleiðingar þessarar hækkun-
Gylfi talar í Höfn
„Gömul list—ný tízka“ eru ein-
kunnarorð samkomu
Dansk—íslenzka félagsins í Dan-
mörku sem haldin verður í kvöld í
Kaupmannahöfn, en frummæl-
andi verður Gylfi Þ. Gíslason
prófessor.
Samkoman fer fram á Hótel
Skandinavíu og hefst klukkan
20.00
ar eiga vafalaust eftir að verða
miklar,“ segir Benedikt i
viðtalinu.
Hann var spurður að því hvaða
stjórnmálalegu afleiðingar þetta
mál hefði og hvort Alþýðuflokkur-
inn gæti setið áfram í ríkisstjórn-
inni. Benedikt svaraði því til að
ágreiningur og afgreiðsla stór-
máls af þessu tagi „geti hæglega
sprengt stjórnarsamstarf". „En
ríkisstjórnin er einmitt þessa
daga að ræða um verðbólgumálið í
heild og munu þær viðræður innan
skamms tíma leiða í ljós, hvort
stjórnarflokkarnir geta komið sér
saman um hernaðaráætlun gegn
verðbólgunni, sem dugir betur en
ráðstafanir síðustu mánaða. Það
mál mun ráða úrslitum um stjórn-
arsamstarfið og leiða í ljós, hvort
mynduð verði ný stjórn eða efnt
til alþingiskosninga í vetur," segir
Benedikt Gröndal einnig í viðtal-
inu og bætti því við, að ríkis-
stjórninni hefði mistekist að
lækka verðbólguna sem þó hefði
verið eitt höfuðmarkmið hennar.
Bohuslav Chnoupek og Benedikt Gröndal við undirritun samnings um aukna samvinnu íslendinga og
Tékkóslóvaka á sviði menningar og vísinda.
Tékkóslóvneski utanríkisráðherrann:
Opinberri heimsókn
hans lýkur í dag
Slasaðist lífshættu-
lega í árekstri
GEYSIHARÐUR árekstur varð á
föstudagskvöld skammt frá bæn-
um Laxamýri í Aðaldai. Fólksbill
frá Akureyri og fjárbíll skullu
þar saman mjög harkalega með
þeim afleiðingum að ökumaður
fólksbílsins og eiginkona hans,
sem sat í framsætinu. siösuðust
mjög mikið og var ökumaðurinn
enn talinn í lífshættu i gær.
Lögreglan á Húsavík fékk til-
kynningu um slysið laust fyrir
miðnætti á föstudagskvöld og kom
hún á staðinn nokkru síðar. Fólks-
bíllinn hafði verið á leið norður
þjóðveginn skammt frá Laxamýri,
en fjárbíllinn á suðurleið. I fólks-
bílnum voru tveir farþegar auk
ökumanns, en í fjárbílnum voru 90
kindur á pallinum og einn vörslu-
maður auk ökumanns.
Ökumaður fólksbílsins virðist,
að sögn lögreglunnar á Húsavík,
hafa misst vald á bílnum og
hemlað með þeim afleiðingum að
bíllinn, skall á vinstra framhorn
fjárbílsins og við áreksturinn
slitnuðu framhjól fjárbílsins und-
an og hann valt út af veginum.
Ökumaður fjárbílsins og vörslu-
maður á pallinum skrámuðust
nokkuð en sluppu við öll stórvægi-
leg meiðsl. Einnig slapp þriðji
farþeginn í fólksbílnum frá
árekstrinum án teljandi meiðsla.
BOHUSLAV Chnoupek, utanrík-
isráðherra Tékkóslóvakíu, kom í
opinbera heimsókn til íslands á
sunnudag. í fylgd með honum eru
eiginkona hans og embættismenn
frá ráðuneyti hans.
Chnoupek og Benedikt Gröndal
utanríkisráðherra hafa átt við-
ræður um stöðuna í alþjóðamálum
og samband íslands og Tékkó-
slóvakíu. í gær gengu þeir frá
samkomulagi um aukna samvinnu
þjóðanna á sviði menningar og
vísinda. Samningur þessi er í anda
lokasamþykktar Öryggismálaráð-
stefnu Evrópu og fjallar meðal
NATO-skip-
unum seinkar
vegna vedurs
HERSKIPUNUM átta úr fasta-
flota NATO, sem væntanleg voru
til Reykjavíkur í gærmorgun,
seinkaði um sólarhring vegna
veðurs og voru í gærkvöldi vænt-
anleg klukkan 9 í dag.
„Allt of snemmt ad ráð-
aspirín sem vam-
arlyf gegn blóðtappa
— segir Vilhjálmur
NÝLEGA var frá því skýrt í
Mbl. að í Bandaríkjunum hafi
verið gerðar tilraunir varðandi
áhrif aspiríns á rúmliggjandi
sjúklinga. Þar kemur fram að
hálf tafla af aspiríni dragi úr
myndun blóðtappa og geti kom-
ið í veg fyrir hjartaáfail.
Morgunblaðið hafði samband
við Vilhjálm Skúlason prófessor
og innti hann eftir þessum áður
óþekktu verkunum aspiríns.
„Það kom í ljós árið 1974, að
aspirín hafði áður óþekkta verk-
un á blóðið," sagði Vilhjálmur.
„Það hefur hvorki áhrif á rauð
eða hvít blóðkorn, en hefur
þannig áhrif á blóðplötur, að það
tekur líkamann lengri tíma að
stöðva blæðingu á eðlilegan hátt.
Tiltölulega litlir skammtar eru
nauðsynlegir og hefur sýnt sig
að einstakur skammtur, sem
nemur 650 milligrömmum, tvö-
faldar blæðingartímann næstu
4—7 daga. Þessi verkun verður á
þann hátt að aspirín minnkar
hæfni blóðplatnanna til þess að
krumpast og loða saman, en það
er mikilvægur þáttur í blóð-
storknun. Á þennan hátt hefur
myndast möguleiki á að nota
aspirín sem varnarlyf, eða ef til
Skúlason
Vilhjálmur Skúlason prófessor
vill sem lyfjameðferð gegn blóð-
tappa, og á það einkum við um
kransæðastíflu", sagði Vilhjálm-
„Þess má geta að acetylsali-
cylsýra, öðru nafni aspirín, hef-
ur verið þekkt mjög lengi, eða
allt frá því að þýzkur efnafræð-
ingur, Felix Hoffmann, við
Bayer lyfjaverksmiðjurnar sam-
tengdi hana árið 1897. Það hefur
prófessor
verið vitað mjög lengi að aspirín
hefur verkjadeyfandi, hitastill-
andi og bólgueyðandi verkun og
að hjáverkanir þess eru erting
magaslínihimnu og blæðingar úr
henni. Áðurgreindar verkanir
aspiríns eru taldar stafa af því,
að það hemur framleiðslu líkam-
ans á efnum, sem kölluð eru
postraglandín og eru skyld fitu-
sýrum, en þau gegna nánast
starfsemi hormóna í líkaman-
um,“ sagði Vilhjálmur.
„Hins vegar var aspirín prófað
á 1239 mönnum árið 1974, en
menn þessir höfðu nýlega lifað
af kransæðastíflu. Helmingur
þeirra fékk aspirín í skammmti
sem nam 300 milligrömmum á
dag, og 1 ári seinna var dauða-
tíðni þeirra 24% lægri en við-
miðunarhóps, sem ekki hafði
fengið aspirín. Það er alls ekki
útilokað, að eftir nokkur ár verði
ráðlegt að taka inn aspirín til
þess að minnka hættu á eða
útiloka blóðtappa, en rannsóknir
þar að lútandi eru hvergi nægi-
legar og þess vegna er allt of
snemmt að ráðleggja aspirín
sem varnarlyf gegn blóðtappa,“
sagði Vilhjálmur Skúlason próf-
essor að lokum.
annars um heimsóknir vísinda-
manna, íþróttamanna, listamanna
og ferðamanna.
í gær fóru Chnoupek og fylgdar-
lið hans að Gullfossi og Geysi og
heimsóttu einnig nokkrar stofnan-
ir í Reykjavík. í dag mun hann
heimsækja Ólaf Jóhannesson for-
sætisráðherra og Kristján Eldjárn
forseta. Héðan heldur utanríkis-
ráðherrann síðan til New York
síðdegis í dag, þar sem hann mun
sitja 34. allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna.
Hlaup í Skaftá
HLAUP hófst í fyrrinótt í
Skaftá og að sögn Sigurrósar
Gunnarsdóttur, húsfreyju í
Hvammi í Skaftártungu óx áin
frekar hægt framan af degi í
gær en færðist í aukana eftir
því, sem á daginn leið.
Hækkaði yfirborð árinnar um
36 sentimetra á tímabilinu frá
kl. 13 til 20 í gær. Mikla
jöklafýlu lagði af ánni. Ekki
Margeir fimmti
í Manchester
NÝLEGA cr lokið skákkeppninni
Benedictine-cup í Manchester í
Englandi en þar var Margeir
Pétursson alþjóðlegur meistari
meðal keppenda. Alls voru kcpp-
endur 50, þar aí tveir stórmeist-
arar og 10 alþjóðlegir meistarar.
Margeir varð í 5.-9. sæti með 6
vinninga af 9 mögulegum. Efstir
og jafnir urðu Botterill og Chandl-
er með 7 vinninga.
Þá tefldi Margeir einvígi við
enska skákmanninn Crouch, en sá
náði alþjóðlegum meistaraárangri
á móti í London nýlega. Einvíginu
lyktaði með sigri Margeirs 4:0.
sagðist Sigurrós geta neinu
spáð um hvenær hlaupið næði
hámarki en oft væri það ekki
fyrr en á þriðja eða fjórða degi
eftir að hlaup hæfist. Oft hafa
orðið spjöll á brúm og vegum
vegna Skaftárhlaupa og hafa
menn áhyggjur af því að
skemmdir verði á brúnum á
veginum að bænum Skaftárdal
en ófært var orðið að bænum í
gærkvöldi, þó að brýrnar væru
ekki enn í hættu.
Ráðstefna um
áfengis- og
barnastúkumál
UNGLINGAREGLAN gengst fyr-
ir námskeiði og ráðstefnu um
áfengis- og barnastúkumál á
þriðjudag og miðvikudag í Templ-
arahöllinni. Á þriðjudag heldur
Ólafur Þ. Kristjánsson erindi um
sögu góðtemplarareglunnar og
Ólafur Haukur Árnason um
áfengismálapólitík í dag. Á mið-
vikudag verður fundur í Barna-
stúkunni Svövu og á eftir honum
umræða um málefni unglingaregl-
unnar.
Haukur Gröndal látinn
IIAUKUR Gröndal, íram-
kvæmdastjóri, lézt í Reykjavík
aðfararnótt mánudags. Haukur
fæddist í Reykjavík 3. febrúar
árið 1912 og var sonur hjónanna
Benedikts Þorvaidssonar Grön-
dals, bæjarfógetaritara og Sigur-
laugar Guðmundsdóttur Grön-
dal.
Haukur Gröndal var einn af
stofnendum Tónlistarfélagsins og
Tónlistarskólans og var alla tíð
einn af helstu stuðningsmönnum
íslenzks tónlistarlífs. Sjálfur
stundaði Haukur tónlistarnám við
Tónlistarskólann í Reykjavík á
sínum yngri árum.
Hann brautskráðist frá Verzl-
unarskóla íslands árið 1930 og
stundaði verzlunar- og síðar skrif-
stofustörf í Reykjavík í allmörg
ár. Haukur var framkvæmdastjóri
Afgreiðslu smjörlíkisgerðanna frá
1946 og seinna fyrirtækjanna
Smjörlíkis h.f. og Sólar h.f.
Haukur Gröndal var þríkvænt-
ur og var fyrsta kona hans Sigríð-
ur Pálsdóttir og áttu þau tvö börn.
Önnur kona hans var Sigríður
Gunnarsdóttir Havstein og áttu
þau þrjá syni. Þriðja kona hans
var Súsanna Halldórsdóttir.
Haukur Gröndal