Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 10

Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979 RÉTTIR standa nú sem hæst. Þó aö fjárleitir og réttir séu annatími til sveita, er þeirra jafnan beöiö meö nokkurri tilhlökkun jafnt af ungum sem öldnum. Göngur hafa yfir sér sérstakan ævintýra- Ijóma og þaö eru ekki bara sveitamenn, sem sækjast eftir aö komast í þær. Margur þéttbýlisbú- inn hefur átt sér þann draum aö komast í göngur allt frá unglingsárum, þegar hann var í sumardvöl í sveit. í réttirnar sækir jafnan fjölmenni, jafnt fólk úr sveitunum sem þéttbýlisbúar. Hjá mörgum þétt- býlisbúanum er þaö árviss viöburöur aö fara í réttirnar og hitta gamla kunningja og vini og hjálþa til viö dráttinn. Meðfylgjandi myndir tók fréttaritari Mbl. Sigurð- ur Sigmundsson, í Tungnarétt og Hrunamannarétt í síðustu viku. Milli 10 og 12 þúsund fjár var réttaö í hvorri rétt en taliö er aö vegna slæms veðurs og erfiöra leitarskilyrða hafi nokkru fleira fé oröiö eftir á afréttunum eftir fyrstu leit en vant er. í báðum réttunum þótti mönnum féö með allra lélegasta móti og þykir mönnum sýnt aö fallþungi dilkanna í haust veröi jafnvel nokkrum kílóum lægri en undanfarin ár. Það þykir við hœfi að hafa örlitið tár með sér i réttirnar, þó að ekki sé til annars en bjóða Kömlum kunningja. Kristinn Kristmundsson frá Kalbak i Hrunamannahreppi, nú skólameistari á Laugarvatni sést hér ásamt Sigurði Hannessyni i Stóru-Sandvik. Yngri kynslóðin ieggur sitt af mörkum við að draga féð. I réttum Freisinu lokið. Fjallmenn i Hrunamannarétt reka hluta af safninu inn i almenninginn. Ljósm. Sig. Sigm. Biskupstungum og er haft fyrir satt að sumir leggi þangað leið sína ekki síst til að taka undir í söngnum með Tungnamönnum. Það er Einar Þorsteinsson frá Vatnsleysu, sem stjórnar söngnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.