Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
33
félk f
fréttum
+ Þessi fróttamynd er úr kosningaslagnum í Svíþjóö. — Þaö er foringi
stjórnarandstööunnar, fyrrum forsætisráðherra, Olav Palme, sem hér er, í hópi
kröfugöngukvenna, sem hann haföi farið til móts viö. Þær fóru í mótmælagöngu
gegn byggingu kjarnorkuvera undir vígoröinu: Segjum já viö aö lifal
Hörmulegt sumarfrí
+ Þessi þreytulegi og skeggjaði maöur er sá hinn sami og fór
með konu sína og unga dóttur þeirra til ítölsku eyjarinnar
Sardinia, í sumarleyfi. — En sú ferö varö hin mesta ógœfuför. —
Mannræningjar rændu fjölskyldunni. Ekkert spuröist til hennar
dögum saman. En allt í einu kom fjölskyldufaöirinn „til byggöa".
Voru þá 15 dagar liönir frá því þeim var rænt. — Honum sögöu
mannræningjarnir er þeir slepptu honum, aö ef hann vildi sjá
konu sína og dóttur aftur lifandi, skyldi hann greiöa í
lausnargjald 24,5 milljónir dollara, 9,3 milljaröir ísl. króna. —
Maöurinn sem er Breti, Rolf Schild aö nafni, 55 ára gamall
kaupsýslumaöur, er hór I fylgd meö lögregluforingja úr ítölsku
lögreglunni í hafnarbænum Olbia á suöurströnd eyjarinnar. —
Schild flaug til London til þess aö reyna að safna peningum til
þess aö greióa lausnargjaldió. — Úr þeirri för er hann kominn
aftur til eyjarinnar. Hann hefur neitaö aö ræöa viö blaðamenn
um þetta mál. En hann á aö hafa sagt lögreglunni, aó skömmu
áöur en hann var látinn laus hafi kona hans og 14 ára dóttir verió
fluttar í helli í hálendinu inni á mióri eyjunni.
Fyrrum forseti fyrir rétt
+ í AFRÍKURÍKINU Cameroon hefur veriö tilkynnt aö fyrrum
forseti landsins, Francisco Macias Nguema, sem er sagöur hafa
veriö einn allra grimmastur allra einræóisherra í þeirri álfu allri,
muni verða leiddur fyrir opinberan rétt og látinn svara þar til
saka fyrir margs konar glæpi er hann framdi í stjórnartíö sinni.
— Honum var velt úr valdastóli 3. ágúst síóastl. Hin opinberu
réttarhöld eiga aö hefjast 24.sept. og fara fram í kvikmyndahúsi
einu í höfuöborginni í Cameroon, Yaounde.
Kína-
vinurinn
Nixon
+ Svo virðist sem Nixon
fyrrum forseti Bandaríkj-
anna hafi fengið Kína á
heilann, eins og stundum er
kveöiö aö oröi, þegar menn
margendurtaka eitthvað. —
Nú er Nixon í þriðju Kínaför
sinni. Þá fyrstu fór hann í
forsetatíð sinni, 1972. —
Þessi mynd er tekin af Nixon
er hann var aö fara um borð
í flugvélina, sem flutti hann
austur, frá flugvellinum í Los
Angeles. — Viö brottförina
sagöi hann blaöamönnum
stuttlega frá feröaáætlun
sinni. Hann ætlar aö vera 10
daga í Kína. — Og fór
tengdasonur hans, Edward
Cox, meó honum svo og
nokkrir öryggisveröir úr
leyniþjónustunni, svona til
frekara öryggis, — líklega.
Akureyn:
Forskóli starfræktur
við Myndtístarskólann
Akureyri. 15. september.
Myndlistarskólinn á Akureyri
mun í vetur starírækja forskóla
ok hefjast inntökupróf i hann 18.
september og lýkur 21. septem-
ber. Tólf nemendur þreyta inn-
tökuprófið og hyggjast sækja
forskólann i vetur. Gerðar eru
sömu kröfur á Akureyri og við
Myndlista- og handiðaskóla ís-
lands í Reykjavík. hvað varðar
inntökuprófið og eins námsmat-
ið. Prófstjóri verður Gunnlaugur
Stefán Snæland frá Myndlista- og
handíðaskólanum í Reykjavik.
Tilgangur forskólans er að veita
nemendum alhliða undirbúnings-
menntun í almennum myndlistum
og undirbúa fyrir nám í sérdeild-
um Myndlista- og handíðaskólans
í Reykjavík, sem veitir Myndlista-
skóla Akureyrar fulla viðurkenn-
ingu og stuðning. Eini munurinn á
forskólanum í Reykjavík og á
Akureyri er sá að í Reykjavík er
hann tekinn á einum vetri og er
1088 stundir. Á Akureyri skiptist
hann á tvo vetur með 544 stundum
í hvort skipti og er hagað þannig
að kennsla hefst ekki fyrr en kl. 16
til þess að fólk geti stundað vinnu
með náminu. Fyrir bragðið er
hægt að ljúka forskólanum í
heimabyggð.
Myndlistarskólinn á Akureyri
er einkaskóli en styrktur af Akur-
eyrarbæ og ríkinu. Akureyrarbær
leggur skólanum til 7 milljónir
króna á þessu ári en ríkissjóður
leggur fram 197.830 krónur sam-
tals. Skólastjóri Myndlistarskól-
ans á Akureyri er Helgi Vilberg
listmálari.
— Sverrir.
Badminton
Enn er ófáum tímum óráöstafaö í vetur.
Upplýsingar milli kl. 6—8 á kvöldin.
Leiknir.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
#i mmmmmmmwmmwMmmmmmm*
"í?''"
símanúmer
'S'.
TCT Ifll
s J W%Mt
If DICC flCII
lUllre I Urll
10100
83033
iHHIIitllttlltlHt HItit i . s*i