Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
3
Staðarsveit á Snæfellsnesi:
Geysivíðtæk leit
að gæsaskyttu
Lík mannsins fannst í gærmorgun
GEYSIVÍÐTÆK leit var gerð um
helgina að 27 ára gömlum Reyk-
víkingi, Gisla Guðmundssyni,
sem hvarf s.l. föstudagskvöld í
Staðarsveit á Snœfellsnesi. Leitin
bar ekki árangur fyrr en um
ellefuleytið í gærmorgun þegar
bóndinn á Stekkjarvöllum fann
lík Gisla skammt frá bænum
Gaul, en bóndinn hafði gengið
frá bæ sínum að leita kinda.
Gísli og tveir félagar hans úr
Reykjavík ætluðu á gæsaskytterí.
Lögðu þeir af stað úr Reykjavík á
föstudagskvöldið á bílaleigubíl og
fóru heim að bænum Stakkhamri í
Staðarsveit. Þar fengu þeir lánað-
an Rússajeppa og ætluðu á honum
að bænum Krossum en þangað
liggur jeppaslóð, illfær þó. Þegar
þeir áttu skammt eftir að Kross-
um drap jbíllinn á sér og var ekki
með nokkru móti hægt að koma
honum í gang. Ákvað Gísli að snúa
við fótgangandi að Stakkhamri að
sækja aðstoð. Þetta var um mið-
nætti en þá var veður allgott en
kalt. Félagar Gísla löttu hann til
ferðarinnar en hann vildi freista
þess að ná í aðstoð enda kunnugur
á þessum slóðum.
Félagar Gísla urðu eftir í bíln-
um og um morguninn fóru þeir
fótgangandi að Stakkhamri. Kom
þá í ljós að Gísli hafði ekki komið
þangað. Hófst leit að honum eftir
hádegi og leituðu 2—300 manns á
laugardaginn í slagveðursrigningu
og á sunnudag leituðu um 200
manns. Veður var þá betra. Þá
leituðu tvær þyrlur úr lofti og
sporhundar voru notaðir en
árangur varð enginn. Það var svo
um ellefuleytið í gærmorgun að
bóndinn á Stekkjarvöllum fann lík
Gísla í mýri skammt frá bænum
Gaul. Virðist sem Gísli hafi villst í
myrkrinu og orðið úti um nóttina.
Hefur hann gengið í þveröfuga átt
við það sem hann ætlaði sér.
Leitarflokkar höfðu farið þar um
sem líkið fannst en þeir urðu
einskis varir.
Gísli Guðmundsson var vélvirki
að atvinnu og átti heima í
Engjaseli 87. Hann var fæddur 15.
desember 1952. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og þrjú börn.
Björn L. Jónsson látinn
LÁTINN er Björn L. Jónsson,
yfirlæknir Heilsuhælisins í
Hveragerði. Björn fæddist að
Torfalæk á Ásum 4. febrúar árið
1904, sonur hjónanna Jóns Guð-
mundssonar bónda þar og Ingi-
bjargar Björnsdóttur Leví.
Björn lauk stúdentsprófi frá
MR árið 1925, var við nám í
heimspekideild Háskóla Islands,
en hvarf síðan að námi í náttúru-
vísindum við Parísarháskóla.
Björn var veðurfræðingur við Veð-
urstofu íslands frá 1930 til 1961,
en árið 1952 hóf hann nám við
Læknadeild Háskóla íslands og
lauk þaðan prófi árið 1958. Björn
stundaði ýmis læknisstörf, var
yfirlæknir Heilsuhælisins í Hver-
agerði og í stjórn Náttúru-
lækningafélags íslands.
Björn var kvæntur Halldóru
Vídalín og áttu þau tvö börn.
Björn L. Jónsson
Ingólfur Flygenring látinn
INGÓLFUR Flygenring, fyrrver-
andi alþingismaður, lézt i
Hafnarfirði á laugardag. Ingólf-
ur fæddist i Hafnarfirði 24.júní
1896, sonur hjónanna Ágústs
Flygenring alþingismanns og
Þórunnar Stefánsdóttur.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborg árið 1911 og varð
búfræðingur frá Hólum árið 1915.
Ingólfur var bóndi á Hvaleyri við
Hafnarfjörð 1916—1919, stundaði
síðar framkvæmdastjórastörf við
verzlun og útgerð í Hafnarfirði
1919—1928 og við frystihús og
útgerð þar 1918—1968. Hann var
landskjörinn varaþingmaður árið
1950 og alþingismaður Hafnfirð-
inga 1953—1956.
Ingólfur Flygenring var kvænt-
ur Kristínu Pálsdóttur.
Ingólfur Flygenring
Alþýðubandalagið:
Fundur um endurskoðun
samstarfsyfirlýsingarinnar
FRAMKVÆMDASTJÓRN og
þingflokkur Alþýðubandalagsins
komu saman til fundar i gær, þar
sem rætt var um endurskoðun
samstarfsyfirlýsingar ríkis-
stjórnarinnar.
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður framkvæmdastjórnarinnar
sagði í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi, að í samstarfsyfirlýsing-
unni væri ákvæði um endurskoðun
hennar á árinu 1979 og hefði
fundurinn rætt það ákvæði. Ólaf-
ur kvaðst ekkert vilja segja að svo
stöddu, hvaða tillögur Alþýðu-
bandalagsmenn ræddu varðandi
endurskoðun samstarfsyfirlýsing-
arinnar.
Á leiðinni inn i Landmannalaugar var Frostastaðaháis mesti farartálminn en þar hafði snjó dregið i
skafla. Svo vel vildi til að f jallabill var staddur i Landmannalaugum, þegar veðrið skall á og gat hann
troðið slóð niður hálsinn. Þó áttu aflmiklir fjögurra hjóla bílar í erfiðleikum með að komast upp
hálsinn.
Gangnamenn á Landmannaafrétti við smalamennsku í Jökulgili sl. sunnudag en Jökulgil er inn af
Landmannaiaugum og skerst inn í Torfajökul og Reykjafjöll. Jökulgilsleitin er talin ein erfiðasta
fjárleit á landinu. Ljósm. Guðlaugur Tr. Karlsson.
Gangnamenn
hreppa illviðri
GANGNAMENN bæði sunnan- og
norðanlands lentu um helgina í
erfiðleikum vegna snjókomu og
hvassviðris. Á Norðurlandi var fé
og hross sums staðar grafið úr
fönn í gær og fyrradag og óttast
bændur að fé hafi drepist I snjó
inn á hálendinu. Gangnamenn úr
Bólstaðarhlíðarhreppi sem voru á
leið til smalamennsku á Eyvindar-
staðaheiði I Húnavatnssýslu kom-
ust á laugardal ekki lengra en að
Galtará vegna stórhríðar. Var því
ákveðið á sunnudag að haida til
byggða með það fé, sem þegar
hafði smalast og var því réttað í
Stafnsrétt í gær en að réttu átti
ekki að rétta þar fyrr en á
miðvikudag. Ráðgera gangna-
menn úr Bólstaðarhliðarhreppi
að fara aftur til leita í dag en ekki
er víst að unnt verði að rétta
aftur í Stafnsrétt fyrr en á
fimmtudag.
Eins og frá var greint í blaðinu á
sunnudag hrepptu gangnamenn á
Landmannaafrétti hið versta veð-
ur á laugardag og fyrir norðan
urðu gangnamenn á Skaga að
hætta smölun um tíma vegna
veðurs. Sums staðar biðu leitar-
menn þess að veðrinu slotaði áður
en þeir héldu inn á afréttinn.
Þannig urðu gangnamenn í ann-
arri leit á Hrunamannaafrétti að
bíða í einn dag í byggð vegna
veðurs.
Gangnamenn, sem fóru frá
Skarði á Landi árdegis á laugar-
dagsmorgun á þremur bílum, kom-
ust inn í Dómadal, sem er mitt á
milli Landmannahellis og Land-
mannalauga og var þá kominn
blindbylur og vikurfok, þannig að
ekki var stætt úti. Var bíll sendur
úr byggð með kunnuga menn til að
vitja um mennina og hitti þá þarna
á veginum. Var þá haft samband
við hluta gangnamannanna, sem
-yaraww
Fé Skaftfellinga og Rangæinga
dregið i sundur í Landmanna-
laugum. Maðurinn. sem heldur
í lambið. er Ásgeir Auðunsson á
Minni-Völlum, fjallkóngur
Landmanna.
höfðu farið inn í Landmannalaug-
ar á föstudeginum en mjög erfitt
var að ná talstöðvar sambandi
vegna ókyrrðar í loftinu og einnig
brotnaði loftnet í Landmannalaug-
um í veðurofsanum. Fjallabíll kom
á móti hinum bílunum úr Land-
mannalaugum og fylgdi þeim inn
eftir.
Á sunnudag var komið gott
veður á Landmannaafrétti og unnu
gangnamennirnir þá upp þá töf
sem þeir urðu fyrir á laugardegin-
um og eru ekki horfur á að seinka
verði Landréttum en þær eiga að
verða á föstudag, 23. september. í
gær var veghefill sendur inn á
afréttinn að sögn Theódóru Sæ-
mundsdóttur, húsfreyju í Skarði,
til að ryðja snjó af veginum í
Dómadal til að auðvelda fjall-
mönnum að reka féð fram úr.
Einnig var flutningabíll frá Slát-
urfélagi Suðurlands á leið inn í
Landmannalaugar til að sækja fé
Skaftfellinga en venja er að það sé
flutt beint til slátrunar þaðan
vegna sauðfjárveikivarna. Átti
btllinn í nokkrum erfiðleikum með
að komast inn eftir vegna ófærðar
en þó var gert ráð fyrir að hann
kæmist þangað fyrir kvöldið. í
gærkvöldi voru gangnamennirnir
komnir að Landmannahelli og að
sögn Olgeirs Engilbertssonar t
Nesholti sem fylgir gangnamönn-
um á bíl hafa smalamennskui'nar
gengið vel eftir að óveðrinu ai- .aði
en færð á afréttinum er víða erfið.