Morgunblaðið - 18.09.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
11
Bók um lífríki Mývatns og Laxár
Rannsóknir Péturs M. Jónassonar og fleiri á svæðinu kringum
Mývatn og Laxá undirstrika þá skoðun manna að þetta svæði sé mjög
dýrmætt bæði hvað varðar liffræði og jarðfræði.
iðnaðarráðherra, Hjörleifur Gutt-
ormsson, ávarp þar sem hann
þakkaði bókina fyrir hönd íslend-
inga. Kvað hann ritun hennar
þarft framtak sem vonandi væri
upphaf að fleiru. Sagði ráðherr-
ann íslendinga hingað til ekki
hafa stuðlað sem skyldi að al-
mennum grundvallarrannsóknum
á sviði landnýtingar og landvernd-
ar.
Vigfús Jónsson frá Laxamýri
flutti Pétri þakkir Þingeyinga og
færði honum blóm, sprottin úr
þingeyskri mold.
Um leið og Mývatnsbókin kem-
ur út hér á landi er hún birt í
skandinavíska tímaritinu Oikos og
fagnaði Pétur því mjög þar sem
bókin mun þannig dreifast á um
annað þúsund fræðistofnanir víðs
vegar um heim. Sögufélagið hefur
umboð fyrir bókina hérlendis.
Samvinna vatnalíffræðideildar
Hafnarháskóla og íslenskra aðila
heldur áfram og hafa þeir unnið
að rannsóknum á Þingvallavatni
um 5 ára skeið.
Eigum f yrirliggjandi á hagstæðu verði
Hrærivélar Gufugleypa Kæliskápa
Blendera Strauvélar Frystiskápa
Kaffivélar Þurrkara Frystikistur
HEKLA HF LAUGAVEG1170-172 -SlMAR 21240-11687
ÚT ER komin á vegum Hins
íslenska fræðafélags í Kaup-
mannahöfn bók um lífríki Mý-
vatns og Laxár. Ritun bókarinn-
ar, sem er á ensku og nefnist
„Lake Mývatn“, stjórnaði dr.
Pétur M. Jónasson forstöðu-
maður Vatnalíffræðideildar
Hafnarháskóla. Ails hafa 10
menn unnið að efni bókarinnar
sem er um 300 blaðsiður og með
180 myndum.
Efni Mývatnsbókarinnar eru
niðurstöður rannsókna sem hófust
á svæðinu kringum Laxá og Mý-
vatn, að ánni og vatninu meðtöldu,
árið 1970 og lauk árið 1974.
Ránnsóknirnar voru gerðar að
frumkvæði iðnaðarráðuneytisins
að ósk Þingeyinga vegna deilna
um áætlaðar virkjunarfram-
kvæmdir á þessu svæði. Rann-
sóknirnar beindust m.a. að veður-
fari, jarðfræði og fugla- og fiska-
lífi svæðisins. Þrír menn hófu
þessar rannsóknir, þeir Pétur M.
Jónasson, sem hafði umsjón með
þeim, Jón Ólafsson og Hákon
Aðalsteinsson. Síðar varð Kaup-
mannahafnarháskóli við þeirri
ósk Péturs um að láta í té þrjá
ólaunaða sérfræðinga til aðstoðar
rannsóknunum en þeir voru auk
Péturs, Claus Lindegaars og
Carsten Hunding. Iðnaðarráðu-
neytið kostaði rannsóknirnar í 4
ár en ýmsir aðrir hafa stutt bæði
rannsóknirnar og útgáfu bókar-
innar.
Islenskir náttúruvísindamenn
sem hafa unnið að rannsóknum á
umræddu svæði komu einnig til
hjálpar við útgáfu bókarinnar og
rituðu hver um sitt svæði. Sigurð-
ur Þórarinsson ritaði um jarð-
fræði svæðisins, Markús Á. Ein-
arsson um veðurfar og sólmæl-
ingar, Sigurjón Rist um vatna-
mælingar, sveiflur á vatnsborði,
ísafar og Finnur Guðmundsson
um stofnsveiflur á fuglum og fiski
frá aldamótum fram til 1960 og dr.
Arnþór Garðarsson prófessor, for-
stöðumaður rannsóknarstöðvar
við Mývatn, skrifaði um núverandi
fjölda anda samanborið við fyrri
rannsóknir.
Pétur M. Jónasson kynnti Mý-
vatnsbókina á fundi með náttúru-
verndar- og náttúruvísinda-
mönnum í Norræna húsinu þriðju-
daginn 3. september s.l. Þar þakk-
Dr. Pétur M. Jónasson sýnir
fundargestum nokkrar
skyggnur af myndum
sem eru í Mývatnsbókinni.
aði hann öllum samstarfsmönnum
sínum fyrir gott samstarf við
ritun bókarinnar og sagðist vonast
til þess að þær rannsóknir sem
gerðar hefðu verið yrðu upphafið
að enn frekari rannsóknum á
svæðinu.
Svæðið kringum Mývatn var
friðlýst árið 1974 en það er sem
kunnugt er eitt af mikilvægari
varplöndum í Evrópu. Þar verpa
15 tegundir anda.
Rannsóknir hafa sýnt að í
Mývatni er lífmagnið með því
mesta sem gerist. Vatnið er á
svæði þar sem sjaldan rignir og
hitastig loftsins er mjög breyti-
legt. Hitastig vatnsins er hins
vegar stöðugt en það er ísilagt 190
daga á ári.
Mývatn hefur algjöra sérstöðu
hvað varðar orkuflæði, en það fer
með botninum. Undirstaða þess
eru lirfur mývargsins, kúlúskítur
og er það uppspretta allrar fæðu í
vatninu.
Á kynningarfundinum flutti
Stórkostleg
fjolskylda
KENWOOD heimilistæki bjóóa upp á ótrúlega
fjölbreytni í framleióslu, sem öll hefur þaó sameiginlegt,
aó þar fara saman fullkomin gæói, fallegt útlit og mjög
hagkvæmt veró.
TH0RN
KENWOOD