Morgunblaðið - 18.09.1979, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
17
• Norðurlandameistaramót i kraitlyftingum fór fram í Laugardalshöllinni um helgina. Landslið íslands sigraði í keppninni og
hreppti Norðurlandameistaratitilinn. Á myndinni hér að ofan sést Skúli óskarsson er varð Norðuflandameistari í 75 kg flokki með
hverja taug og hvern vöðva spenntan til hins ýtrasta í réttsltöðulyftu. Skúli setti nýtt norðurlandamet í hnébeygjulyftu, 300 kg.
Sjábls. 19. Ljósm. Mbl. Kristján.
r
• Þórður Hallgrímsson fyrirliði ÍBV og
Victor Helgason þjálfari virða fyrir sér hin
eftirsóttu sigurlaun íslandsbikarinn. Mikið
var um dýrðir í Vestmannaeyjum, er liðið
kom heimv Sjá allt um knattspyrnu, og
heimkomu ÍBV á bls. 18, 20—21, og 22.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
ÍBV meistarar
ÓVENJU spennandi íslandsmóti í knattspyrnu er nú
lokið. Iþróttabandalag Vestmannaeyja sigraði í
mótinu, hlaut 24 stig. ÍBV hefur tekið þátt í
Islandsmótinu svo til óslitið frá árinu 1912, en ekki
tekist að sigra fyrr en nú. Lið þeirra er vel að
Islandsmeistaratitlinum komið, og óskar íþróttasíða
Morgunblaðsins Eyjamönnum til hamingjuv
Lið Vals átti möguleika á aukaleik við ÍBV hefði
þeim tekist að leggja KA að velli fyrir norðan í leik
liðanna á sunnudag. Það tókst ekki og Valsmenn sitja
eftir með sárt ennið. Hér á eftir fer örstutt spjall við
Þórð fyrirliða ÍBV og Inga Björn Albertsson Val, en
hann skoraði mark á lokamínútunum á Akureyri sem
dæmt var aL Rétt er að benda á að þetta er í fyrsta
skipti sem íslandsbikarinn fer út fyrir Faxaflóa-
svæðið.
„Frekar óheppnir
heldur en hitt“
— sagði Þórður
Hallgrimsson
— Við vorum irekar óheppn-
ir heldur en hitt — sagði
kampakátur Þórður Ilall-
grimsson, íyrirliði íslands-
meistara ÍBV, við blaðamenn
eftir verðlaunaafhendinguna
og gaf þar með i skyn að ÍBV
hefði átt að vinna titilinn af enn
meira öryggi.
Aðspurður um hvað ylli því
að ÍBV hefði krækt i titilinn
sagði bórður að það væri fyrst
og fremst að þakka góðri stjórn
og samheldni innan hópsins. —
Það var góður andi og liðið
barðist jafnan sem ein heild.
Þetta var hiklaust skemmti-
legasta keppnistimabil sem ég
hef leikið á ferli minum, sem
orðinn er nokkuð langur.
„Dómurinn í samræmi
við dómgæsluna“
— sagði Ingi Björn
— Þessi dómur var í sam-
ræmi við dómgæsluna i heild,
það var ekkert athugavert við
þetta mark, — sagði Íngi Björn
Albertsson i samtali við Mbl., er
hann var spurður um „markið“
sem dæmt var af á síðstu stundu
gegn KA. Það mark munaði þvi
að Valur tapaði titlinum. en ef
markið hefði verið dæmt gilt,
hefði þurft aukaleik ÍBV og
Vals.
— Dómarinn ráðfærði sig við
linuvörð sem sá ekkert athuga-
vert, það hrinti enginn neinum,
markið var löglegt, sagði Ingi
Björn að lokum.
STAÐAN
Lokastaðan í
1. deild varð þessi:
ÍBV 18 10 4 4 26-13 24
Valur 18 9 5 4 35-22 23
Akranes 18 10 3 5 27-17 23
Keflavík 18 8 6 4 26-18 22
KR 18 9 4 5 29-24 22
Fram 18 4 9 5 25-23 17
Víkingur 18 6 4 8 26-25 16
Þróttur 18 6 4 8 27-31 16
KA 18 3 6 9 21-36 12
Haukar 18 1 3 14 12-45 5
Valur og ÍA eiga eftir
að gera út um hvort liðið
hreppir 2. sætið.
Markhæstu leikmenn
eru:
Sigurlás Þorleifsson Víkingi 10
Steinar Jóhannsson ÍBK 9
Ingi Björn Albertsson Val 8
Jón Oddsson KR 8
Atli Eðvaldsson Val 8