Morgunblaðið - 18.09.1979, Page 37
MÓRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
21
á sunnudag þegar þeir höfðu tekið við íslandsmeistarabikarnum 1979. Þeir
igruðu með einu marki gegn engu og þegar öllum leikjum mótsins var lokið á
aínframt i fyrsta sinn sem íslandsmeistarabikarinn fer út fyrir Faxaflóa. Á
t. ólafsson, Viktor Helgason þjálfari Eyjamanna, Ómar Jóhannsson, Gústaf
[>. Sveinn Sveinsson, Kári Þorleifsson, Snorri Rútsson, Kjartan Másson
“ðri röð frá vinstri: Tómas Pálsson, Guðmundur Erlingsson, Viðar Eliasson,
Arsæll Sveinsson markvörður og Örn óskarsson. Á myndina vantar
I.jósmynd Mbl.: Kristján.
rarnir
íking
ný. Nú björguðu Eyjamenn á
línunni. Viðar Elíasson skaut góðu
skoti á markið sem Diðrik varði
vel og skömmu síðar skaut Kári
Þorleifsson í stöngina. Sigurlás
átti gott skot á markið en Ársæll
varði meistaralega.
Á 17. mínútu seinni hálfleiks
kom sigurmarkið. Ómar sendi
boltann út á Svein Sveinsson sem
sendi hann með föstu skoti inn í
vítateig Víkings. Gústaf tók þar
við boltanum, sneri laglega á einn
varnarmanna Víkings og skaut
lausu en hnitmiðuðu skoti í hornið
fjær án þess að Diðrik kæmi
vörnum við. Hann var reyndar
seinn til varnar í þetta skipti,
enda greinilega slæmur af meiðsl-
unum.
Diðrik fór útaf skömmu síðar og
í markið kom Óskar Tómasson,
betur þekktur sem framlínumaður
í Víkingsliðinu. óskar stóð sig
mjög vel, varði t.d. með tilþrifum
skot frá Erni og Kára. Undir lokin
gerðu Víkingarnir harða hríð að
marki Eyjamanna en Ársæll
markvörður stóð sig afbragðsvel í
markinu og varði öll skot sem á
það komu.
Eyjamenn fögnuðu mjög i leiks-
lok og það var vel skiljanlegt. Þeir
voru nú komnir með aðra höndina
á bikarinn. Þeir léku þennan leik
af öryggi og sigur þeirra var
verðskuldaður. Vörnin var að
vanda traust með Ársæl markvörð
sem bezta mann. Örn og Valþór
voru einnig mjög góðir en Valþór
hefur nú skipað sér á bekk með
okkar beztu miðvörðum. Óskar
Valtýsson var í leikbanni en stöðu
hans tók Jóhann Georgsson og
skilaði hann hlutverki sínu með
mestu prýði.
Hjá Víkingi voru þeir beztir
Diðrik, Magnús bakvörður og
Helgi Helgason. Sigurlás barðist
vel og það var ekki að merkja að
hann ætti þarna í baráttu við sína
fyrri félaga. Hefði hann haft
heppnina með sér og lakari mark-
vörð við að eiga en Ársæl hefði
hann eflaust skorað 2—3 mörk í
leiknum. Víkingsliðið hefur
breytzt mjög til hins betra í sumar
og átti skilið fleiri stig en þau 16
sem það fékk.
í STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur 15. september,
Islandsmótið 1. deild.
Víkingur — ÍBV 0:1 (0:0).
Mark ÍBV: Gústaf Baldvinsson á
62. mínútu.
Áminningar: Sigurlás Þorleifsson
og Guðmundur Erlingsson bókað-
ir.
Áhorfendur: 594. -SS.
Þóröur fyrirliði hampar bikarnum og félagar hans fagna ákaft. Eins og sjá má á
myndinni leynir gleðin sér ekki í andlitum leikmanna. Þetta er í fyrsta skipti sem
IBV verður Islandsmeistari í knattspyrnu, og er liðið vel að sigrinum komið. Sem
dæmi má nefna að liðið lagði bæði Val o
og markatalan var sjö mörk gegn engu
fi
ÍÁ að velli í báðum leikjum sínum við liðin
BV í hag. Geri aðrir betur.
Ljósm. Kristján.
Þjálfan IBV Viktor Helgason, leiðir lið sitt til verðlaunaafhendingarinnar á
sunnudag í Laugardalnum. Lið ÍA og Þróttar mynduðu heiðursgöng og klöppuðu
leikmönnum IBV lof í lófa.
Ljósm. Kristján.
Formaður KSI, Ellert B. Schram, afhendir Þórði Hallgrímssyni íslandsbikarinn. ÍBV
Islandsmeistarar árið 1979.
Ljósm. Kristján.