Morgunblaðið - 18.09.1979, Side 38

Morgunblaðið - 18.09.1979, Side 38
 22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979 Steinar skoraði þrjú ÍBK — Haukar „MÉR tókst að vísu ekki að skjótast upp að hlið Sigurlásar Þorleiíssonar sem markakóngur en niu mörk i átta og hálfum leik gefur ágætt meðaltal, “ sagði hinn siungi Steinar Jóhannsson, markakóngur Keflavíkinga. Steinar skoraði þrjú mörk í 4 —1 sigri íbK gegn fallliði Hauka í 1. deild íslandsmótsins á laugardag og hann var óheppinn að skora ekki fleiri. Þessi hættulegi mið- herji var vörn Hauka ákaflega erfiður og sýndi að hann hefur engu gleymt — ávallt á réttum stað, og vörn Hauka réð ekki við harðfylgi hans og skotfestu. Steinar Jóhannsson var á ferð- inni þegar á 2. mínútu. Keflvíking- ar fengu aukaspyrnu frá hægri við vítateiginn. Ólafur Júlíusson tók spyrnuna, gaf laglega á Steinar, sem afgreiddi knöttinn í netið, 1—0. Á 26. mínútu skoruðu Kefl- víkingar sitt annað mark, og það var ákaflega svipað hinu fyrra — enn var Steinar á ferðinni. Ólafur Júlíusson tók aukaspyrnu rétt við vítateiginn frá hægri. Nú gaf hann laglega út í teiginn, og þar var Steinar fyrir og afgreiddi knöttinn í netið með góðu skoti, 2—0. Keflvíkingar réðu lögum og lofum á vellinum án þess þó nokkurn tíma að sýna sínar beztu hliðar — en meira þurfti ekki til gegn Haukum. Staðan í leikhléi var 2—0 Keflvíkingum í vil, og vallargestir töluðu nú um fátt annað en hvort Steinari tækist að verða markakóngur í ár. Þetta smitaði greinilega út í liðið, því að engu líkara var en leikmenn vildu að Steinar byndi endi á sóknar- loturnar — jafnvel um of. Þegar á 7. mínútu bætti Steinar við sínu þriðja marki — úr vítaspyrnu. Enn var það Ólafur Júlíusson sem lagði markið upp. Hann tók horn- spyrnu frá vinstri, gaf fastan og hnitmiðaðan bolta fyrir. Þar var Rúnar Georgsson fyrir og skallaði af stuttu færi að marki en beint í hönd varnarmanns. Áreiðanlega óviljaverk en Kjartan Ólafsson var ekki í nokkrum vafa og dæmdi vítaspyrnu. Steinar skoraði af öryggi 3—0, og nú vantaði hann aðeins eitt mark í að þoka sér að hlið Sigurlásar Þorleifssonar, Víkingi. Og sókn Keflvíkinga var stíf, aðeins tveimur mínútum síðar var staðan 4—0, þá var hinn bráðefni- legi Ragnar Margeirsson á ferð- inni. Skaut föstu skoti frá vítateig, knötturinn fór í varnarmann, breytti um stefnu og hafnaði í netmöskvunum, 4—0. Guðmundur Sigmarsson náði að minnka muninn í 4—1 upp úr hornspyrnu, markið skrifast á hans reikning þó að keimur að sjálfsmarki hafi verið yfir því. Nokkurt kæruleysi hljóp í leik Keflvíkinga, þeir misstu þráðinn og leikurinn fór að mestu fram á miðjunni í suðvestangarranum. En Steinar Jóhannsson var óhepp- inn að skora ekki fleiri mörk — hann átti gott skot frá vítateig en Guðmundur Hreiðarsson, mark- vörður Hauka, varði vel. Síðan tók Ólafur Júlíusson hornspyrnu, sendi hnitmiðað á Steinar út í teignum. Steinar sneiddi knöttinn laglega, þrumuskot hans stefndi í netmöskvana, en enn varði Guðmundur. Síðan munaði sára- litlu að Steinar skoraði þegar Ólafur Júlíusson sendi fyrir, en Steinar náði ekki að stýra knettin- um í netið eftir návígi við mark- vörðinn. Á síðustu mínútu leiksins komst Steinar innfyrir frá hægri, en skot hans fór rétt framhjá, Steinari tókst því ekki að hreppa markakóngstitilinn í ár en hann sýndi að hann hefur engu gleymt. Snöggur og ávallt vakandi í teignum, aldrei má líta augnablik af honum. Steinar hefur einu sinni orðið markakóngur — 1971, þá skoraði hann 12 mörk þegar Kefl- víkingar urðu Islandsmeistarar eftir aukaleik við Eyjamenn um meistaratign, unnu 4—0 í eftir- minnilegum leik. Nú hrepptu Eyjamenn hins vegar bikarinn eftirsótta, Kefl- víkingar urðu aðeins tveimur stigum á eftir. En Keflvíkingar eiga á að skipa liði framtíðarinn- ar. Blanda leikreyndra leikmanna og ungra og efnilegra stráka. Með þá Þorstein Ólafsson, Steinar Jóhannsson og Ólaf Júlíusson, er leggur upp mörkin, er víst að nýir stórveldistímar gætu runnið upp fyrir Keflvíkingum. Þó eru blikur á lofti úr austri. Svíar líta ýmsa hinna ungu drengja hýru auga, auk þess að Malmö hefur boðið Þorsteini Ólafssyni að leika með félaginu. Allt um það — framtíðin er strákanna og ef tekst að halda liðinu saman þá verður það án nokkurs vafa mjög sterkt. Með leikmenn eins og Sigurð Björg- vinsson, Ragnar Margeirsson og Einar Ásbjörn, hvern öðrum efni- legri, er framtíðin ÍBK. Haukar eru nú fallnir í 2. deild og greinilegt að liðið hafði ekkert í hina hörðu baráttu 1. deildar að gera. En dýrmæt reynsla hefur fengist, reynsla sem Haukar geta byggt á. Dómari var Kjartan Ólafsson. H Halls. Þórsarar sigursælir Akureyrarmótinu í knattspyrnu er nýlega lokið. Leiknar eru 2 umferðir. KA sigraði í meistaraflokki en Þórsarar sigruðu í flestum yngri flokkanna. Úrslit einstakra leikja urðu þessi: Meistaraflokkur: Þór—KA 3:5 og 0:2. KA vann samanlagt 7:3 Kvennaflokkur: Þór—KA 5:2 og 0:0. Þór vann samanlagt 5:2 2. flokkur: Þór—KA 0:1 og 0:1. KA vann samanlagt 2:0 3. fiokkur: Þór—KA 4:0 og 5:0. Þór vann samanlagt 9:0 4. flokkur: A —lið. Þór—KA 2:0 og 1:0. Þór vann samanlagt 3:0 4. flokkur: B—lið. Þór—KA 4:0 og 2:0. Þór vann samanlagt 6:0 5. flokkur: A—lið. Þór—KA 2:1 og 4:0. Þór vann samanlagt 6:1 5. flokkur: B —lið. Þór—KA 3:0 og 2:1. Þór vann samanlagt 5:1 6. flokkur: A—lið. Þór —KA 1:2 og 2:1. Aukaleikur 2:0. Þór vann. 6. flokkur: B —lið. Þór—KA 1:1 og 1:1. Aukaleikur 1:3. KA vann. 6. flokkur: C—lið. Þór—KA 6:0 og 0:3. Aukaleikur 1:1. Annar aukaleikur 4:0. Þór vann. Pejic til Aston Villa ASTON Villa, sem gengur hrika- lega illa i ensku deildarkeppn- inni, fékk til liðs við sig Mick Pejic, fyrrum bakvörð Stoke og Everton, i gær. Fengu íorráða- menn Everton 250.000 sterlings- pund i budduna fyrir vikið. Pejic er hörkuhakvörður og lék lands- leiki fyrir England eigi alls fyrir löngu. • Ahyggjur og erfiðleikar á varamannabekk Vals. Nemes þjálfari reynir að finna skýringar á óförunum, en Halldór Einarsson liðsstjóri nagar þumalfingur vinstri handar. Valsmenn áttu sigur fyllilega skilið KA- i.i Valur !■ I ÞEGAR flautað var til leiks KA og Vals á sunnudaginn voru veðurguðirnir ekki beint hliðholl- ir, þvi norðangola var og rigning og völlurinn glerháll. Það var þegar ljóst að Val nægði ekkert nema sigur til að eiga möguleika á íslandsmeistaratitlinum. Vals- menn léku undir mikilli pressu en KA menn voru þegar fallnir í 2. deild og skipti leikurinn því engu máli fyrir þá. Þegar á heildina er litið var leikurinn ekki sérstaklcga vel leikinn, en þó hefðu Valsarar átt sigur fylli- lega skilið. Liðin voru áþekk framan af og skiptust á að sækja. Ekki var þó mikið um færi. Á 28. mín. var gefinn stungubolti inn fyrir vörn Vals og virtist ekki mikil hætta á ferðum, því að Dýri Guðmundsson hafði gott forskot' á Gunnar Blön- dal. Dýri hugðist senda knöttinn á Sigurð í markinu en sending hans var allt of laus og komst Gunnar inn í sendinguna. Hann náði að skjóta í Sigurð og af honum hrökk knötturinn í markið. Eftir markið tóku Valsarar leikinn smátt og smátt í sínar hendur. Á 40. mín. var dæmd aukaspyrna á KA rétt fyrir utan vítateig. Ólafur Dani- valsson tók spyrnuna og vippaði yfir varnarvegginn á Guðmund Þorbjörnsson sem var í ágætu færi en KA menn björguðu. Teið í hálfleik virtist hafa góð áhrif á Valsara því að þeir sóttu stíft allan seinni hálfleikinn og komust KA menn vart fram fyrir miðju. Á 10. mín. hálfleiksins náði Ingi Björn boltanum rétt á undan Aðalsteini markverði sem kom hlaupandi út úr teignum, lék framhjá honum og skaut síðan rétt fram hjá stönginni. Áfram hélt pressa Valsara og markið lá allan tímann í loftinu. Það kom svo loksins á 22. mín. hálfleiksins og var Dýri Guðmundsson þar að verki. Hann skallaði laglega í markið eftir hornspyrnu Harðar Hilmarssonar. Á 30. mín. fékk Atli Eðvaldsson gott færi. Hann fékk boltann frá Magnúsi Bergs aðeins einn metra frá marklín- unni en vippaði bæði yfir Aðal- stein og þverslána. Á 37. mín. skaut Magnús Bergs þrumuskoti af 25m færi sem stefndi efst í markhornið en Aðalsteinn gerði sér lítið fyrir og varði meistara- lega. Það sem eftir lifði leiksins fór mest allt fram í vítateig KA. Á 45. mín. fékk Ingi Björn sannkall- að dauðafæri. Hann fékk boltann á markteig en skaut beint í mark- manninn, þarna virtist auðveldara að skora. Á 50. mín. (nokkrar tafir urðu í leiknum) átti sér stað mjög umdeilt atvik. Þá skoraði Ingi Björn með skalla eftir auka- spyrnu. En ágætur dómari leiks- ins Óli Ólsen dæmdi markið af. Hann sagði eftir leikinn að Ingi hefði greinilega ýtt á bak eins varnarmanns KA áður en hann fékk knöttinn. Valsarar mótmæltu þessum dómi ákaft en það þýðir ekkert að deila við dómarann. Eftir gangi leiksins hefði Valssig- ur verið sanngjarn en heilladísirn- ar voru ekki á bandi Valsmanna að þessu sinni. Liðið spilaði ágæt- lega á köflum og var Dýri bestur þeirra þrátt fyrir herfileg mistök er kostuðu mark. Hjá KA var Einar Þórhallsson bestur. Mjög yfirvegaður og rólegur leikmaður. Góður sigur Feyenoord Pétur skoraði að venju PÉTUR Pétursson skoraði átt- unda mark sitt á keppnistímabil- inu, er hann skoraði eitt af þrem mörkum Feyenoord í sigurleik gegn nágrannaliðinu Spörtu frá Rotterdam. Pétur er nú lang- markhæstur i hollensku deild- inni, hefur gert 8 mörk í 6 leikjum, sem er frábær árangur og segir alla söguna um framfar- ir stráks. Fréttaskeyti greina frá því, að Pétur hafi átt enn einn stórleikinn og verið allt í öllu hjá Feyenoord, skorað eitt mark og átt þátt í tveim öðrum, sem þeir Van Dein- sen og Jan Peters hafi skorað. Feyenoord er í 2—3 sæti með 9 stig eftir 6 leiki, en Ajax hefur forystu í deildinni með einu stigi betur. Minnkandi þátt- taka í HM1982 ÞRÁTT fyrir að liðum sem leika í úrslitakeppni HM á Spáni 1982 hafi verið fjölgað úr 16 i 24, munu færri þjóðir leika um sætin en áður. Frestur til að skila þátttökutilkynningum rann út fyrir skömmu og kom þá í ljós að þátttökuþjóðum hafi fækkað um fimm frá siðustu HM-keppni. Ajax háði mikla rimmu við Alkmaar, eitt af betri liðum Hol- lands og þótti leikurinn frábær. Lex Schoenmaker, La Ling og Ruud Krol skoruðu fyrir Ajax í fyrri hálfleik en Alkmaar náði sér á strik í síðari hálfleik og minnk- aði muninn með mörkum Kist og Schowvenaar. Úrslit í hollensku deildinni urðu þessi: Alkmaar — Ajax 2—3 Feyenoord — Sparta 3—1 Tvente — Maastricht 3—1 Pec Zvolle — PSV Eindhoven 1—2 Vitesse Arnhem — Deventer 3—5 Haarlem — Nac Breda 1—0 Utrecht — Excelsior 3—0 Roda JC — Den Haag 5—1 Willem Tilburg — Nec Nijmegan 3—2 Jan Poortvliet og Ben Hendriks skorðuðu mörk Phillips Sportver- ein Eindhoven gegn Pec, en PSV er í 2—3 sæti ásamt Feyenoord.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.